Þjóðviljinn - 12.01.1975, Síða 5

Þjóðviljinn - 12.01.1975, Síða 5
Sunnudagur 12. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5 Iutta Waloschek ,,úr fjórða heiminum'' var heitið sem lutta Waloschek gaf mynd- listarsýningu sinni í Vínarborg síðast liðið haust. ' Allir kannast við umtalið um ,,þriðja heiminn", lönd fátæktar og efnahagslegrar van- þróunar, þar af leiðandi einnig pól itískrar kúgunar sem oftast á rætur að rekja til hinna heimanna tveggja. Eru þá til fyrsti og annar heimur? Ekki eru þeir nefndir svo, en ætli sé ekki átt við gamla heiminn, Evrópu, og nýja heiminn, Norður- Ameríku Og hver er þá f jórði heimurinn? Er það einvörðungu heimur luttu sjálf rar? Iutta Waloschek stendur á mörkum tveggja heima, Evrópu hinna öldnu þjóða og rótgrónu menningar og Suður- Ameriku þjóðablöndunar, alls- leysis hinna mörgu og auð- legðar hinna fáu: þar er sveiflan milli vona og vonleysis svo stór. Þess vegna er hennar heimur fjórði heimurinn, i senn hugarheimur og endurgerð veruleikans. Þar er borgin nafnlausa sem prýðir forsiðu blaðsins i dag og þar eru trúðarnir. A sýningunni úr „fjórða heiminum” var röð margra mynda af trúðum. Flest teikningar. Trúðarnir voru komnir handan um hafið úr vinnustofu Iuttu við Viamonte i Buenos Aires. Vinnustofan er griðastaður trúða og manna. Los pierrots — það verður þrengra um þá i Argentinu nú með hverjum deginum. Hvitir, fölir, bleikir hörfa þeir utan af götunni og leita sér skjóls. Ysinn utan af Viamonte er ekki alltaf friðsamlegur. Æ oftar verður að loka gluggunum fyrir viðvörunarflauti, kvalaópum, formælingum. t fyrra var ástandiö ótryggt, i ár er það miklu verra. Það voru bundnar vonir við endurkomu Peróns. Nú er hann genginn en við er tekin Maria Estela Martinez. Lögreglan verður æ harðhentari. Vonir vikja, æ fleiri gluggum er lokað, trúðarnir flýta sér inn fyrir. Stundum má greina svip- drætti hins langþreyða stjórn- málamanns i ásjónu trúðsins. Það var beðið eftir Perón i 17 ár. Útlegðarárin. En er til nokkurs að biða eftir trúð? Trúðar eru yfirleitt angurværir á svip og ekki að ófyrirsynju. Trúðarnir endurspegla lika óttann úti á Viamonte. Lista- konan hefur gefið þeim griðland. Kannski fá þeir lika grið hjá okkur. Orð og myndir í tilefni f orsíðutei kni nga r i n na r, „La ciudad sin nombre proprio” Iutta Waloschek var kynnt hér i Þjóðviljanum fyrir réttu ári þegar hún var hér i stuttri kynnisför með manni sinum Frank. Hún á ættir i þýsku- mætandi löndum en hefur frá barnæsku átt heima i Argentinu, en oft vitjað gömlu Evrópu til náms og kynna. Iutta er þvi skipt milli 2ja heima og sjálf skapar hún sér heim i list sinni. Þar er „borgin nafnlausa” sem forsiðu- íeikningin sýnir og virðist ekki eiga iiia við á nýhöfnu kvenna- ári. hj

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.