Þjóðviljinn - 12.01.1975, Síða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. janúar 1975.
Vinsældir og
óvinsældir
Hemingway bjó meft fimmtlu köttum. Kattavinátta er algeng mebai rithöfunda
Kr#% I l#V
Húsdýrahald hefur
fariö vaxandi um Vestur-
lönd á undanförnum
árum og á þaö sér marg-
víslegar félagslegar og
sálrænar ástæður. Og
menn haf a tekið eftir þvi,
að kettir hafa yfirleitt
unnið á ef að tala mætti
um samkeppni dýra um
hylli manna. í Banda-
ríkjunum hafa menn nú
22 miljónir katta á heim-
ilum sér til skemmtunar,
i Frakklandi um sex
miljónir og í því mikla
hundalandi Englandi 3,6
miljónir. í Vestur-Þýska-
landi eru 2,5 miljónir
katta, en 2,3 miljónir
hunda.
Hundalif
hjá köttum
Þar me6 er aö visu ekki sagt,
að kattalif sé tekið út með
sitjandi sældinni. Vesturþýskar
heimildir geta þess, að köttum
sé þar oftar misþyrmt en öllum
öðrum dýrum til samans. Þegar
fólk i þvi sama landi er að þvi
spurt, hvort það hafi sérstaka
andstyggð á einhverjum dýrum,
þá lenda kettir i fjórða sæti. (13
af hundraði hata ketti, 16 hafa
andstyggð á músum og slöngum
og 22 þola ekki rottur). En þess
má geta til samanburðar, að
aðeins þrir af hundraði hafa
illan bifur á hundum.
Misskilningur
Þýski kattasérfræðingurinn
Leyhausen heldur þvi fram, að
hinn fræga fjandskap hunda og
katta megi helst útskýra með
þvi, að maðurinn neyði þá til að
búa saman. Hann segir að
þessar dýrategundir hafi ekki
tekiö neinn f jandskap að erfðum
hver i garð annarar. Þær séu að
minnsta kosti ekki samkeppnis-
aðilar hvorki um fæðu né
,,lifrými”. Kannski væri
skynsamlegast að visa til
misskilnings sem riki á milli
hunda og katta. Merkjamál
þeirra er mismunandi. Þegar
köttur lyftir t.d. löpp sinni, þá
þýðir það á kattamáli „Komdu
þér i burtu”. En hjá hundi hefur
þessi hreyfing vinsemdar-
merkingu: Komdu hér, lags-
maður. Og svo mætti áfram
telja. Ef að hundur og köttur fá
að alast upp saman i friði geta
þeir vel lært „merkjamál” hver
annars. En hitt er svo annað
mál, að það er sjaldgæft að einn
og sami maður láti sér annt
bæði um hunda og ketti.
Miklir menn
og kettir
Sálfræðingar hafa tekið eftir
þessu og dregið þar af sinar
ályktanir. Þeir segja að hunda-
vinur sé liklegur til að vera
valdafikinn maður sem um leið
sé haldinn vanmetakenndum —
hann verður að minnsta kosti að
hafa getað svalað valdafikn
sinni á fullri undirgefni dýrsins.
En kettir hlýða ekki skipunum
yfirleitt og verða þvi slikum
mönnum til litillar huggunar.
Þessvegna þoldu hinir miklu
einræðisherrar sögunnar ekki
ketti. Sesar hataði þá, og einnig
Alexander mikli og Djengis
Khan. Valdsmennirnir
Bismarck, Mussolini og Hitler
voru allir hundavinir — en i
fjallakastala Hitlers var engan
kött að finna.
IJndantekning var Napóleon,
sem var kattavinur. En menn
láta þess þá getið i leiðinni að
hann hafi eiginlega byrjað sem
byltingarmaður. Sagnfræðingar
kunna einmitt að nefna marga
þekkta kattavini, sem kunnu
með kattarslægð og þrjósku að
berjast við yfirvöldin. Abraham
Lincoln er talinn með þeim og
einnig Lenin. Martin Luther var
mikill kattarvinur og þá einnig
spámaðurinn Múhammeð.
Múhammeð lenti reyndar i þvi
einu sinni að þurfa að gera upp á
milli Allahs og kattar sins
Múessa. Kisi svaf i viðri ermi
spámannsins þegar Muhammeö
var kvaddur til bæna. Hann
skarermina af til að trufla ekki
ró kattar sins og gekk siðan til
guðshúss. Reyndar trúa áhang-
endur spámannsins þvi enn i
dag, að þeir menn sem ekki þola
ketti hafi sjálfir verið rottur i
fyrra lifi.
Kettir skálda
En fyrst og fremst hafa kettir
notið hylli skapandi listamanna.
Kattabókmenntir eru allmerkar
og fjölbreyttar. Taka má dæmi
af djúpviturlegri kattaskáld-
sögu E.T.A. Hoffmanns,
„Skoðanir kattarins Múrrs”,
sem reyndar varð ekki lokið
vegna þess að köttur Hoff-
manns, sem gaf honum ágætan
innblástur, lést á meðan á
samningu sögunnar stóð. Victor
Hugo, Baudelaire, Anatole
France, Gottfried Keller, Mark
Twain og T.S. Eliot hafa gert
ketti eilifa i skáldskap og sist
ættu islendingar að gleyma
kvæöi Jóns Helgasonar prófess-
ors „A afmæli kattarinsVErnest
Hemingway hafði fimmtiu ketti
á búgarði sinum skammt frá
Havana.
Bandarikjamaðurinn Howard
Salzburg rekur vinsældir katta
meðal rithöfunda til þess að
„þar eð menn skrifa venjulega i
einrúmi miðlar félagsskapar
kattar mörgum rithöfundum
hljóðlátri kæti án þess að trufla
hugsanir þeirra”.
Kvenfólk
Óliklegustu samfélög manna
eiga þá trú sameiginlega, að
kettir og konur séu með
einhverjum dularfullum hætti
andlega skyld. Þýskur atferlis-
fræðingur, Ingrid Zwerenz
hefur reynt að útskýra
þetta samband með þvi, að
kettir séu i raun holdtekning
ýmissa leynilegustu óska
kvenna. „Náttúran hefur gert
ketti frjálsa og óháða, en það
reynist mörgum konum torvelt
takmark. Kötturinn er hefur
fullt vald á samúð og andúö, er
alltaf hann sjálfur, lætur ekki
temja sig, gengur ekki of langt i
þvi að laga sig að fólki.
Kötturinn smeygir sér i arma
manna eða keltu þegar honum
sjálfum þóknast, og hann þolir
enga afskiftasemi um einkamál
sin.
Galdrar og
grimmd
Til þessa dags hafa kettir i
þjóðtrúnni einnig verið
nátengdir andskotanum.
Zwerenz útskýrir þetta með þvi,
að það hafi oft orðið svo, að
konur sem afskiptar voru hafi
huggað sig við félagsskap katta.
Konan sem var ein eftir skilin,
einstæðingur, snemma ekkja,
hefur ávallt verið talin grun-
samleg i okkar fjölskylduþjóð-
félagi, og þar með hinn ferfætti
förunautur hennar. Þegar
galdraofsóknir miðalda
beindust gegn þessum varnar-
lausu einstæðu konum voru þær
sendar á bálkestina þúsundum
saman ásamt köttum sinum.
Lifseigir fordómar telja ketti
mikla fugladrápara. Athuganir
sýna að þetta er ekki rétt. Kettir
drepa ekki að ráði söngfugla
nema i þéttbýli, þar sem hinum
eðlilegu óvinum fuglanna hefur
verið útrýmt. Þeir gegna þar
þvi jákvæða hlutverki að halda
uppi heilbrigði söngfugla-
stofnsins, grisja hann hæfilega.
Þá telja atferlisfræðingar sig
hafa komist að þvi, að það sé
misskilningur að kettir séu
grimmir að eðlisfari, en um það
telja menn leik þeirra að
músum glöggast vitni.
Samkvæmt þessu „léika” kettir
sér aðeins að smádýrum þegar
þeir eru litt reyndir og hafa ekki
lært hvernig á aö drepa skjótt og
örugglega.
áb tók sanian
Kattafræðingar halda þvi nú eindregið fram, að kettir séu alls ekki
grimm dýr. Þeir kettir einir „leiki sér” að smádýrum, sem ekki
kunna að drcpa fljótt og örugglega.