Þjóðviljinn - 12.01.1975, Síða 9

Þjóðviljinn - 12.01.1975, Síða 9
Sunnudagur 12. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 ÁRNI BERGMANN SKRIFAR Ein af 300 Ein af tæplega 300 bókum, sem út komu I fyrra, fylgdi mér inn á nýtt ár. Þaö var ágætur doðrant- ur Jóns Guðnasonar um Skúla Thoroddsen. Mér sýnist að þetta sé einkar nytsamleg bók: eftir aö hún kom út veit maður miklu meira en áður um það hvernig nútimapólitik varð til á íslandi, miklu fleira um rætur Islenskrar róttækni, sem stundum er kölluð „þjóðernisofstæki til vinstri”. Ein þeirra róta er merkilega nútima- legur skilningur Skúla á þeim mikla mismun sem oftar en ekki er staðfestur á milli formlegra réttinda og raunverulegra. Aður en lengra er haldið. A okk- ar dögum heyrast oft miklir kveinstafir út af flokksræði sem svo er nefnt, að öll ákvarðanatekt sé harðlæst I lokuöu flokkakerfi með tilheyrandi ósóma. Skúli Thoroddsen lifði á tima hinna miklu þingskörunga sem menn fjórar er þýðing Jóns Gíslasona? á þrem leikritum Evripidesar Móðir sjöstjarna eftir Willian frænda Heinesen, Mariamma stutt helgisaga eftir Pár Lager kvistog stutt skáldsaga eftir þanr japanska kviðristumann Misjima. Reyfararnir eru ósköp svipaðir og venjulega. Þarna eru nýjustu æsingabækur eins og Exorcist o| Siðasti tangó i Paris, fastagestii eins og Sven Hazel, MacLean Bagley og Hammond Innes, fulí trúar tilfinningadýrðarinnar eint og Theresa Charles og Denise Robins, gamlir uppvakningai eins og Kordula frænka og leyni lögreglumeistari eins og Simenon. Liklega halda best sölu þær bækur I þessum blokki sem byggja á sérlega æsilegri og lygi legri atburðarás, en manni sýnist i fljótu bragði að bæði ástirnar sykursætu og flókna morðgátan eigi i vök að verjast. Heitar ástir kólnaog baöstofuhjal styttist Handbækur og fleira Aftur á móti sýnist vöxtur i kennslubókum, þær teljast 25 og ég held alllt innlend framleiðsla — þarna er mikil hreyfing frá þvi sem var fyrir skömmu, þegar kennslubækur færðust milli kyn slóða, hverju sem fram fór i heiminum. Handbækur margs- konar, uppflettirit, eru einnig flokkur bóka sem er á uppleið — þær voru átján og gáfu upplýsing- ar um kynlif og skordýr, eldvarn- ir og islensk lög, meðferð ung- barna og ferðalög svo nokkuö sé nefnt. tala nú um með söknuði: þá höfðu þingmenn persónuleeg viöhorf og fóru að sannfæringu er sagt, voru ekki bundnir flokkskálfar. Það er i þessu samhengi skemmtilegt að sjá, hve Skúli hefur verið þreyttur á þessari persónupólitlk og harmað flokksleysið — hann vill bersýnilega að menn fylki liði og komi sér upp samtökum og stefnuskrá til að fá meira vit i sjálfstæðisbaráttuna og mark- sækni, og hefur sjálfsagt haft rétt fyrir sér. Og jafnt á timum þing- jöfra og flokksræðis eru kvart anir manna um þá sem ekki eru ,,i náðinni”, ekki eru i réttri klfku osfrv. ósköp hliðstæðar. Framleiðsla En þetta var semsagt útúrdúr. Ætlunin var hinsvegar sú að vikja að þeim tæpum 300 bókum sem út komu i fyrra, gera litillega grein fyrir þvi, hvernig þær skipt- ast i tegundir (það skal strax tek- ið fram, að lærðir bókasafna- fræðingar mundu fussa við þeirri skiptingu sem hér fer á eftir). Slika iðju er unnt að stunda fyrr á þessum vetri en venjulega, þvi nú hefur Landsbókasafn tekið að sér að gefa út bókaskrá þá sem áöur var tekin saman á vegum Bók- salafélagsins. Bókaskráin var i ár komin út um jól. Mér telst svo til, að þar sé sagt frá 275 bókum, en það vantar nokkrar. Til dæmis íslandssögu Bókmenntafélagsins, og fimm-sex bækur aðrar koma upp I hugann. En hér á eftir verð- um við, þvi miður, að láta sem þær séu ekki til. Bókaframleiðsla hefur dregist saman, en ekki mikið. Bækur „fyrir fullorðna” voru i fyrra 204, 290 árið 1972 og 230 árið 1971. Hrunið mikla, sem alltaf er verið að spá Isienskri bókagerð er ekki komið enn. Breytingar á hlutföll- um mi.lli flokka eru ekki veruleg- ar en þar er samt um nokkra at hyglisverða hluti að ræða. Tökum til dæmis barnabækur. Fjórar nýjar barnabækur Mér telst svo til, að i fyrra hafi komið út 71 barna- og unglinga- bók. Þessi útgáfa er á niðurleiö — fyrir tveim árum voru barnabæk- ur 96. I öðru lagi fer hlutur inn- lendra barnabóka minnkandi, þær eru aðeins 18. Og það sem enn merkilegra er: allar þessar átján innlendu barnabækur voru endurútgáfur (til dæmis sex endurútgáfur á bókum meistara Stefáns Jónssonar) nema fjórar. Aðeins fjórar nýjar islenskar barnabækur komu út á árinu og hefur þeirra frægust liklega oröið tviburasaga Guðrúnar Helgadótt- ur. Skýringuna á þessari fátækt má iiklega finna við skoðun hinna þýddu barnabóka: liklega er góð- ur helmingur þeirra prentaður erlendis, liður i alþjóðlegri útgáfu þar sem myndakostnaður verður fremur litill. Reyndar er allmikið af bókagerð komið út úr landinu — má nefna sem dæmi ýmislegar stórar bækur með miklu mynda- efni, handbækur og yfirlitsrit um sögu, landafræði, skordýr og hvaðeina. Um val á erlendum barnabók- um til þýðinga er það að segja, að liklega fer það ögn skánandi. Allavega er minna af krakka- reyfurum úr löngum serium, enda ætti satt að segja yfrið nóg að vera til af þeim á öllum bóka- söfnum. Að þvi er varðar barna- bókaútgáfu er það eitt fyrirtæki sem hefur nokkuð góða sérstöðu og það er Iðunn. Það er einmitt sú útgáfa sem leggur út i ævintýri eins og að þýða bók eftir þann rauða barnabókahöfund Sven Wernström, sem á vonandi eftir að hrella margar Ihaldskerlingar. Halda velli Islenskarbókmenntireru ósköp svipaðar að fyrirferð og venju- lega. Nefndar eru 21 ljóðabók, en liklega vantar nokkrar sjálfút gáfurnýliða i skrána. Nýliðar eru annars sjö á skrá,þeirra á meðal það orðheppna metsöluskáld Þórarinn Eldjárn. Ólafur Jóhann og Sigurður A. Magnúss . gáfu út ljóöabækur ásamt fimm öðrum llfsreyndum skáldum. Endurútgáfur voru sjö og fjölgar þeim reyndar i flestum bóka- flokkum. 1972 komu út 22 ljóða- bækur en árið 1971 um fjörutiu, herra minn sæll og trúr. Skáldsögur og ritgerðasöfn voru 21, þar af þrjár endurútgáf- ur. Hér er vert að vekja athygli á þvi, að afþreyingarbókum, hinum islensku eldhúsreyfurum, fer fækkandi — ég held að slikar bæk- ur hafa ekki veriö nema f jórar, en oft hafa þeir veriö 8-10 á ári. Að öllu samanlögðu er þessi flokkur bóka liklega jafnskástur, þótt ekki verði sagt að stórtiðindi hafi beinlinis gerst. Þarna eru Halldór og Guðbergur, Jakobina og Thor, Þorgeir Þorgeirsson og Steinar Sigurjónsson, Þorsteinn frá Hamri og Þráinn Bertelson. Áður hefur sú hugmynd verið látin uppi, að liklega muni viðbótarrit- laun efla fleiri menn oftar til skáldsagnagerðar en áður. Ljóðabækur verða liklega alltaf til á Islandi, hvort sem efnahags- legar forsendur eru betri eða verri. Það er nokkuð árvisst að út komi fimm (eða sex) bækur um islenskar bókmenntir og einstök skáld. Ein er þýdd — bók Breds- dorffs um þau firn sem hlutust af óskipulögðum kvennamálum á timum Islendingasagna. Þá komu Sjö erindi um Halldór Lax- ness, löng ritgerð Ingvars Stefánssonar um Gandreið Benedikts Gröndal (hvorttveggja i einni bók) og hér set ég einnig bók Helga Skúla Kjartanssonar um Hallgrim Pétursson. Tiu út- gáfur, alþýðiegar eða fræðilegar, voru gerðar á fornritum og ritum fyrri alda — þar á meðal er þjóð- hátiðarlandnáma, snobbútgáfan af Ferðabók Eggerts og Bjarna, hið heillandi safn Einars Ólafs, Fagrar heyrði ég raddirnar og tvær Passiusálmaútgáfur íslensk sagnfræðirit eru ekki nema fjögur (fyrir utan Þjóð- hátiðarsöguna sem áður var get- ið) og má það eiginlega ekki vera minna á þessu söguári. Hér er bókin um Skúla Thoroddsen höfð með, þvi hún fer langt út fyr- ir venjulegan ævisöguramma. Hér er togarasaga Heimis Þor- leifssonar og Reykjavikursaga Páls Lindals. I betri árum telur þessi flokkur á annan tug bóka. Sjómannabókin sem hvarf Alls falla 27 bækur undir marg breytilegan flokk bóka þar sem saman kemur ýmislegur þjóðleg- ur fróðleikur og samtiningur, ferðabækur, endurminningar, ævisögur byggðar á viðtölum áttahagafræöi, saga einstakra félaga. A þessu sviði er um mik- inn samdrátt að ræða og mundu vist flestir segja að löngu væri mál til komið. Fyrir tveim árum voru tæplega fimmtiu bækur i þessum flukki. Ýmsir ágætir menn eru enn með sagnaþætti (t.d. Bergsveinn Skúlason og Ein- ar Bragi) en liklegt er að sá akur sé nú mjög plægður. Enn at- hyglisverðara er að ævisagan, endurminningarnar virðast hafa misst þó nokkuð af sinu að- dráttarafli. Það var talað við Þórð á Dagverðará, Guðrún Á. Simonar kom út aftur, Matthias talaði við Gunnlaug Scheving, svei mér ef það var nokkuð meira. Jú — Gylfi Gröndal talaði við Kristin Guðmundsson utan- rikisráðherra og sendiherra, en sú bók komst reyndar ekki á list- ann. Hún minnir á merkilega staðreynd: það virðist sama hVort um er að ræða aumingja eða öðlingsmann úr hópi stjórn- málamanna — allir eru þeir jafn gjörsamlega frábitnir þvi að segja frá einhverju sem máli skiptir. Ég held ég ljúgi þvi ekki að það hafi i íaun og veru gleymst að setja saman sjómannabókina i ár, en þær bækur hafa stundum verið margar. Nema hvað sjó- slysasögunni miklu heldur áfram, en það rit ætlar sér bersýnilega að keppa við Hæstaréttardóma og Alþingistiðindi að lengd og verður vonandi gott fyrir þá sem þurfa á hillumetrum að halda. Mesta hruniö Þýdd rit um söguleg efni, hvort sem um er að ræða fræði- mennsku, endurminningar eða þá spekúlasjónir á la Dániken — þau eru ekki mörg, eða aðeins sjö. Sá flokkur hefur oft áður áreiðan- lega verið helmingi stærri eða meir. Þarna er að fara af stað mjög myndskreytt itölsk mann- kynssaga, út komu tvær bækur um landafundi, ný þýðing á bráð- skemmtilegum endurminningum Peters Freuchens og svo sjálfs- ævisaga Jörundar hundadaga- kóngs, sem islenskum finnst skemmtilegastur valdsmanna eins og vonlegt er. Það er bara verstað honum hefur bersýnilega ekki fundist Islandsævintýrif nærri þvi eins spennandi og okk ur. Höldum "þá áfram með flokka þýddra bóka. Mesta hrunið sem um getur i islenskri bókaútgáfu er tengt erlendum þýddum skáld verkum, og á þetta, þvi miður, jafnt við um reyfara og bók menntaverk. Arið 1971 komu út 4( reyfarar og 10 erlend skáldverk sem til bókmennta máttu teljast Arið 1972 voru reyfararnir 44 og bókmenntaverkin 14 og þótti þaí nokkuð gott hlutfall. En nú eri reyfararnir aðeins 4. Bækurnai Mér sýnist aö tiu bækur falli undir duiræn efni svokölluð. Þar af eru ekki nema tvær innlendar miðilsbækur, Elinborg og seinna bindið af Ragnheiði Brynjólfs- dóttur, sem mun hafa vakið ná- kvæmlega jafnlitla athygli og hið fyrra kom upp fjaðrafoki. Hins- vegar eru tvær draumráðninga- bækur og þrir bæklingar um stjörnuspádóma og geri ég ráð fyrir þvi að áhugi manna á þvilik- um efnum muni haldast nokkuð svo i hendur við oliukreppuna. Undir trúarbrögð beinlinis falla fimm bækur, þar af tvær bibliuút- gáfur. Ur þessu fara flokkarnir mjög að smækka. Bækur um félags- fræði, vistfræði, hagfræði, sál- fræði og svo jarðfræði (önnur raunvisindi komast ekki á blað) eru svo fáar að undrum sætir — aðeins sjö, þýddar og frumsamd- ar. Sigurður Þórarinsson skrifar um Vötnin strið, Hjörleifur Gutt- ormsson um vistfræði, Kristján Friðriksson um sina framsóknar- útópu, þýdd er skýrslan um Tak- mörk vaxtar. Það er nú ekki mik- ið meira — kilja MM eftir Erich Fromru, Listin að elska, komst ekki á skrána. Bókaútgáfa um myndlist og tónlist lá svotil alveg niðri (samtalsbækur við lista- menn, þrjú nótahefti), ljós- myndasöfn til landkynningar voru þrjú, bækur um iþróttir og tómstundagaman fimm. Eyður og hrun Þegar á heildina er litið er hvorki ástæða til að fagna né heldur gráta beisklega yfir is- lenskri bókaútgáfu. Hún er þarna. I henni eru slæmar eyður, sem virðast fara stækkandi — nefni ég sérstaklega útgáfu er- lendra bókmenntaverka og rita um félagsfræði, samtima sögu, heimspeki og annað i þá veru. Hinsvegar skai þvi ekki gleymt að niðurskurðurinn verður mest- ur i ýmsu þvi sem ómerkilegast hefur verið: skrautútgáfur á er- lendum reyfurum og innlendum reyfurum og útvötnuðum þjóðleg- heitum og minningatuldri. En þessir flokkar voru reyndar svo fyrirferðarmiklir um tima að eitthvað hlaut undan að láta — og er ekki vist að við þurfum að hrósa hvorki útgefendum né les- endum fyrir bættan smekk. Arni Bergmann

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.