Þjóðviljinn


Þjóðviljinn - 12.01.1975, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 12.01.1975, Qupperneq 15
Sunnudagur 12. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 SITT ÚR HVERRI ÁTTINNI Úrval færeyskra Ijóöa á norsku Komið er út hjá Aschehoug i Osló úrval færeyskra ljóða á norsku, hið fyrsta sinnar tegund- ar. Skáldið Knud ödegárd hefur þýtt kvæðin og valið þau i sam- vinnu við færeyska skáldið Karsten Hoydal. Knud skrifar og ýtarlegan formála um færeyskar bókmenntir. bað er sjálfur Willi- Knud ödegárd. am Heinesen sem hefur gert myndirnar. 1 bókinni eru kvæði eftir þessi skáld: Christian Matras. Karsten Hoydal. Regin Dahl, T.N. Djur- huus, Steinbjörn Jacobsen, Liggj- as i Bö, Guðrid Hemsdal Poulsen, Öðin Ódn, ArnbjörnDanielsen.Rói Patursson, Alexandur Kristian- sen, Heðin M. Klein. Allt eru þetta samtiðarskáld. Bókin nefnist Færoysk lyrikk. Knud ödegard er skálda virk- astur i ýmislegri bókmenntamiðl- un. Hann hefur þýtt á norsku ljóðaúrval eftir Einar Braga, Regn i mai, og Einar Bragi hefur þýtt eftir hann Hljómleika i hvitu húsi. bá er nýkomið út hjá sama forlagi og gefur út Færeysk ljóð, Dikt i utval eftir Gyula Illyés, eitt ágætasta skáld Ungverjalands, sem er talinn sameina ágætlega alþýðlegar hefðir þess bænda- lands, sem til skamms tima var, og alþjóðlega menningar- strauma. Knud hefur þýtt kvæðin og valið i samvinnu við Vince Sulyok. HÚSNÆÐISLEYSI Effll Frá Námsflokkum Hafnarf jarðar HVAÐ KEMUR ÞAÐ MÉR VIÐ? begar nautabaninn Manuel Benitez eða ,,E1 Cordobés” hafði unnið sér inn fyrstu milj- ónirnar á arenunni réð hann sér einkakennara til að læra að lesa og skrifa. En þótt Manuel til- heyri ekki lengur þeim 600 þús- undum sem teljast ólæsir á Spáni er ekki þar með sagt, að hann beri einhverja virðingu fyrir þvi sem skrifað er. — Skrifaðu bara það sem þú vilt, sagði hann nýlega við blaðamann, sem var að taka viðtal við hann. Finndu bara eitthvað upp! — Ég get nú ekki farið að búa til einhverjar sögur um þig, mótmælti hinn. — Hvers vegna ekki? spurði Manuel. Hvað kemur mér við hvað stendur i blaðinu? — Enn reyndi blaðamaður- inn: — Hvernig likar þér bókin, sem Lapierre og Colin skrifuðu um ævi þina? — Hversvegna ætti ég að fara að lesa bók um sjálfan mig? sagði Manuel. Ætli ég viti ekki best sjálfur hvernig ég er. ALDREI EINMANA í RÚMINU Spánskir tollverðir gerðu af siðferðisástæðum upptæka stutta franska kvikmynd, „bað er leiðinlegt að vera einn i rúm- inu”. beir urðu þó að leyfa innflutn- ing þegar i ljós kom, að um var að ræða auglýsingamynd um bangsa handa smábörnum að hafa með sér i rúmið. ÞÆGILEG ÓÞÆGINDI bjóðfélagsfræðingur hefur lýst simanum sem „mestu óþægindum allra þæginda og mestu þægindum allra óþæg- inda.” Aumingja Kissinger. 1 bráðum ár er hann nú búinn að leita að sæmilegu húsi fyrir sig og hana Nancy, konuna sina. Árangurs- laust. bvi húsið á nefnilega að vera antikt, helst frá miðbiki 18. aldar og standa i Georgetown i námunda við Washington. Húsið, sem Jackie Onassis bjó i eftir dauða Kennedys forseta, er nú eign miljónamæringsins Michael Straights, sem nýlega giftist systur Jackiar, Ninu Auchincloss. En vandræði Kiss- ingers eru, að Straight vill ekki leigja, heldur selja húseignina og það á háa sex stafa tölu I dollur- um — sem er meira en jafnvel Kissinger hristir framúr erminni. Innritun i flokkana fer fram mánudaginn 13. janúar og þriðjudaginn 14. janúar i húsi Dvergs, Brekkugötu 2, Hafnarfirði, milli kl. 5-8 báða dagana. Námsskrá flokkanna liggur frammi i bókabúðum bæjarins, en allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður i sima 5-32-92 báða innritunardagana. Athugið! Nemendur á haustnámskeiði, sem hyggjast halda áfram, innritist þó i fyrsta tima. Kennsla hefst fimmtudaginn 16. janúar samkvæmt stundarskrá. Forstööumaður. Auglýsingasíminn er 17500 mv/u/NN VÍSNA- ÞÁTTUR S.dór. .S5S Látum fjúka stöku Einn af velunnurum þessa visnaþáttar leit við hér á bjóð- viljanum fyrir nokkrum dögum með vænt handrit af skemmti- legum visum eftir ýmsa höf- unda og sagði: — Notaðu úr þessu þegar þig vantar efni. Og eftir lestur þessa handrits er al- veg óþarfi að hafa svo litillátan formála, þarna var ekkert nema góðar visur, og maður þarf sannarlega ekki að vera i efnishraki til að nota úr þessu handriti sem uppistöðu i visna- þátt. Fyrst koma hér visur eftir hinn góðkunna hagyrðing Harald Hjálmarsson frá Kambi: Byrðar iifsins ber ég hátt, brattan stika halla. Reyni að sýna með þvi mátt meðan ég er að faila. Töium fagurt tungumál teygjum stutta vöku. Lyftum glasi, lyftum sál. Látum fjúka stöku. Fagrar ræður, fögur Ijóð, frjálsmannlegur andi, er eitt sem hæfir okkar þjóð og okkar kæra landi. Nú fer ég að lesa lög og læra um svik og hrekki, þvi litið gagnar höndin hög og heiðarleikinn ekki. Hjá mér stendur flaskan full fjörs ég drykkinn kenni. Það er ekkert samlagssull sem að er á henni. Flaskan mörguni leggur lið læknar dýpstu sárin. Hópur manna heldur við hana gegnum árin. Enn þá, gct ég á mig treyst. ölinu frá mér hrundið. En þetta er orðið eins og þú veizt, crfiðlcikum bundið. Haraldur er á þv! enn þótt enginn geti séð það. Það eru frcmur fáir menn, sem fara bctur með það. Skagafjarðar fögur sýsla fer að verða miður sin, skelfur alveg eins og hrisla, ef ég smakka brennivin. Halla sundrað sálarflak siglir á dánum vonum. Það þarf hundrað tonna tak til að bjarga honum. Hér er leiði Haraldar hann var ætið snauður. Uppi á fjörum Framsóknar fannst hann leginn dauður. Allir dagar eiga kvöld, allar nætur daga. Þannig verða árin öld, aldir mannkynssaga. bá er rétt að lita aftur i bréfið sem hann Magnús J. Jóhannesson sendi okkur og við birtum visur úr i siðasta þætti: Staka Klettahjalia, kiif og stalla klæða alla skuggatjöld. Litinn fjallið lét á skalla ljósan mjallarhött i kvöld. Að gefnu tilefni. Konan mina knöppu vörn kveðst ei vilja heyra. Ég á að smiða biía, börn báta, hús og fleira. A baðstað gekk stúlka svo fá- klædd, sem verða mátti, utan algjörs klæðleysis: Allt þetta, sem ekki sést eflaust vert er fatanna. Ileillar mig þó hcld ég mest haftið milli gatanna. Maður úr söfnuði „Votta Jehova” hafði oft lýst þvi yfir að heimsendir yrði á næsta ári, og gekk svo i mörg ár. 1 tilefni þessa varð eftirf. til: Ekki vel með glópsku gekk, gömul spá er fallin. Heimsendinum frestað fékk frægur dellukallinn. Á ferðalagi kvaðst kona ein vera „rauðsokka” og ræddi mikið um jafnrétti kvenna. Undirritaður gerði sér það til tímastyttingar að andmæla henni. Af þessu tilefni varð eftirfarandi visa til: Rauðsokka með rjóða kinn rifst um kvennagengi. Við að barna bóndann sinn baukað hefur Iengi. Svona er lífiö Eitt sinn þráði ég þriflcgt hreið ur, þrýstna konu og vöggu. Nú er ég fyrir löngu leiður á lifinu og Möggu. Ekki nýtt begar sólin bjarta og bliða bak við hólinn legst i dá, upp i ból ég einn má skriða, enginn skjól mér veitir þá. Um yfirmann Eitt sinn var hann alvaldur, er nú bara hálfvaldur, kynni að verða kvartvaldur, kannski aðeins borvaldur. Auðvitað Pyngja er full af peningum, á pyttlu sull frá útlöndum, I mig bulla ég afgangnum, enda fullur réttbráðum. Þetta er satt Einatt bullan æði klúr ihaldssullið lapti, leirburðsdrullan lak svo úr lygafullum kjafti. Að fenginni reynslu Viða klandur verður á, vfkur standið dáða þegar fjandar illir á okkar landi ráða. Stúlka átti óskilgetið barn og olli hneykslun hinna ærukæru og syndlausu. Mariu hér margir dá, mjög sem er að vonum en drekkja þó i Öxará öðrum gleðikonum. Til manns, sem oft kom i út- varpið: Löngum hefur litið grin létt mér timans byrði, en alltaf finnst mér þögnin þin þúsund dala virði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.