Þjóðviljinn - 12.01.1975, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 12.01.1975, Blaðsíða 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. janúar 1975. Myndlíst-a- og Handíðaskóli íslands Námskeið Myndlista- og handiðaskóla íslands frá 20. janúar 1975 til 30. april 1975. Námskeiðin hefjast mánudaginn 21. janú- ar. Innritun fer fram daglega frá kl. 2-5 á skrifstofu skólans, Skipholti 1. Námskeiðagjöldin greiðist við innritun áður en kennsla hefst. Skólastjóri. Skipholti 1 - Sími 19821 íþróttafélag kvenna Leikfimi er að byrja mánudaginn 13. þ.m. i Miðbæjarskólanum. Innritun i sima 14087. Stjórnin Minningarorð Böövar Steinþórsson bryti Böövar Steinþórsson, bryti andaöist 6. þ.m. aöeins rúmlega fimmtugur, en hann var fæddur á Akureyri 20. febr. 1922, og fluttist til Reykjavikur meö foreldrum sinum áriö 1933. Böðvar var sonur Steinþörs Guðmundssonar, kenn- ara og konu hans Ingibjargar Benediktsdóttur, skáldkonu. Þegar i æsku fékk Böðvar mik- inn áhuga á allskonar félags- starfi, fyrst beindist framlag hans til félagslegra samskipta að iþróttamálum og var hann um skeið ritari Knattspyrnufélagsins Fram. Samtímis þvi að Böðvar fór i siglingar i byrjun seinni heimsstyrjaldarinnar, gerðist hann virkur þátttakandi i sam- tökum launþega og varð þar ekk- ert hlé á til æfiloka. Arið 1945 fór fram fyrsta sveinspróf i matreiðslu hérlendis og var prófið háð á bingvöllum. Böðvar var einn I hópi þeirra matreiðslumanna, sem fyrstir hlutu sveinsbréf I matreiðslu, sem hann hafði numið að Hótel Borg. Vann siðan að matreiðslu bæði til sjós og lands. Arið 1955 réðist Böðvar til matreiðslustarfa á skipum Skipaútgerðar rikisins, fyrst sem matreiðslumaður, en gerðist bryti árið 1959 og gegndi þvi starfi til dauðadags. Böðvar gerðist þegar mikil- virkur i samtökum launþega, Böðvar Steinþórsson hann var formaður Félags mat- reiðslumanna, formaður Sam- bands matreiðslu- og fram- reiðslumanna og siðast formaður Félags bryta, frá 1961. Auk þessa voru Böðvari falin margháttuð trúnaðarstörf önnur i þágu laun- þegasamtakanna, átti sæti á þingum Alþýðusambandsins og slöar á þingum Farmanna- og fiskimannasambandsins. Þá rit- aöi Böðvar mjög mikið i félags- biöð og dagblöð um hugðarefni sin i sambandi við hagsmuna- og menningarmál launþega. Böðvar lét málefni Matsveina- og veitingaþjónaskólans mjög til sin taka og var I fyrstu skóla- nefndinni og formaður skóla- nefndar 1958—1962. Hér hefur aðeins verið fátt eitt talið af þeim verkefnum sem Böðvar vann i þágu þeirra sam- taka, sem hann sinnti öllum stundum. — Það var engin tilvilj- un að Böðvar gerðist mikill fé- lagshyggjumaður — i föðurgarði ólst hann upp I andrúmslofti þeirra hugsjóna sem verkalýðs- hreyfingin grundvallaðist á og iærði jafnframt að meta gildi samtaka og andlegra verðmæta. Að lokum vil ég, fyrir hönd skólanefndar Hótel- og veitinga- skóla tslands, færa Böðvari Stein- þórssyni alúðarþakkir fyrir mikið og óeigingjarnt starf, sem hann hefur lagt fram skólanum til heilla og aukins þroska nemenda i matreiðslu og framreiðslu fyrr og siðar. — Persónulega þakka ég Böðvari rúmlega 30 ára samfylgd að sameiginlegum hugðarefnum okkar. Otför Böðvars verður gerð á morgun, mánudag, kl. 13.30 frá Fossvogskapellu. Þorsteinn Pétursson Myndir Framhald af bls. 10. til frekari tiðinda og daginn eftir herúðboðið yfirgefur Nova Akureyrarpoll og fer vestur og suður um land. A Siglufirði sjá verkamenn til þess að Akur- eyrarvörum sé ekki skipað á land, en mikill viðbúnaður er af hálfu atvinnurekenda er skipið kemur til Reykjavikur. Þar hefur ASI brugðist Verkamannafélagi Akureyrar á þeirri forsendu, að það sé ei i sambandinu, en kommúnistar birta áskoranir og tilkynningar að norðan og hvetja til sam- úðarbaráttu. Fjöldi Dags- brúnarmanna hafa safnast saman á hafnarbakkanum þeg- ar Nova leggst að, ákveðnir i að láta ekki vega aftan að stéttar- bræðrunum nyrðra, ma. margir úr Varnarliði verkalýðsins. Litlu munaði, að til átaka kæmi, en málalok urðu að Akur- eyrarvörum var ekki skipað á land. Almenningsálitiö snýst A meðan er allt við það sama á Akureyri, en hatrammur á- róöur borgaranna hefur önnur áhrif en til var ætlast þegar til lengdar lætur og smám saman snýst almenningsálitið i lið með verkafallsmönnum. Margur verkamaðurinn sem leitt hafði deiluna hjá sér skráir sig i verk- fallsliöið og margir þeirra sem gengið höfðu i klofningsfélagið kunna illa andrúmsloftinu i fé- iagsskap hvitliða og ýmist snú- ast i liö með verkfallsmönnum eða afneita öllu samneyti við hjálparlögregluna. Varla finnst nokkur lengur sem ljær máls á að vinna i banni Verkamannafé- lags Akureyrar. Samstaðan eflist og að lokum gefst andstæðingurinn upp. 25. mars undirritaði bæjarstjórnin kjarasamning um að kaup við tunnusmiðina yrði samkvæmt taxta verkamannafélagsins. Þarmeð var hrundið kaupárás sem jafngilt hefði 20% launa- lækkun og sigur jafnfr. unninn yfir klofningsöflunum. Með þessum endalyktum fékk Is- lenskur verkalýður áþreifan- lega sönnun þess, aö hann gæti unnið kaupdeilu á krepputima þótt hann hefði atvinnurekendur bæjarvald, lögreglu og þrjá af fjórum stjórnmálaflokkum landsins gegn sér og jafnvel i andstöðu við stjórn Alþýðusam- bandsins — „svo framarlega sem eining verkamanna ekki bilar og forystan ekki bregst” einsog Jón Rafnsson orðar það I lok frásagnar sinnar. —vh Olíulönd Framhald af bls. 3. ur Castros og hans manna að þjóðnýta sykurekrur og nikkel- námur I eigu bandariskra auð- félaga urðu þeir óspart fyrir refsiaögerðum af hálfu Banda- rikjanna: viðskiptabann, inn- rásartilraunir, landið einangrað innan OAS, Bandalags Ameriku- rikja. Stjórn Venezúelu hefur til þessa verið einhver helstur and- stæðingur Kúbu á meginlandi Ameriku og aðstoðað Bandaríkin dyggilega i þvi að halda riki Castros utan OAS. En nú er þjóð- nýtingaraldan komin til Venezúela, þótt með nokkuð öðr- um hætti sé en á sósialískri Kúbu. Og svo hlálega vill til, að nú verða Kúbumenn, sem eftir ýmsar þrengingar eru farnir að sjá verulegan árangur af sinni þjóð- nýtingu, til þess að bjóða Venezúelu aðstoð i hugsanlegum árekstrum við bandariska aðila — og þá ekki aðeins siðferðilega aðstoð. Eða eins og Fidel Castro sagði á fundi i Havana fyrr á þessum vetri: „Venezúelar munu ekki standa einir”. (Heimild: Reuterog Information) Hver er...? Framhald af bls. 2. áðurnefndum áþjánarhlutverk- um. „Sósialiskur grundvöllur” samfylkingar er i raun sam- merkt þvi að einangra fram- sæknustu konurnar frá kvenna- fjöldanum, kljúfa hann og gefa andstæðingnum aukið svigrúm. Þannig geta sósialistar einhvers konar, sem nær væri að nefna vinstribullur, gegnt sama neikvæða hlutverki og hinir borgaralegu feministar. Höfuðatlögur auðvaldsins og kynbundin undirokun snerta meginþorra islenskra kvenna — þar verður að berjast aðalbáráttunni. Dæmi um kröfur: Jöfn laun karla og kvenna fyrir sömu vinnu. Fullan rétt kvenna til allrar vinnu. ókeypis fullnægjandi dag- heimiíi. Karlar og konur i sama verkalýösfélagi Fullan rétt til fóstureyð- inga og kynfræðslu. — en fyrir þessu verður að virkja kvennafjöldann til baráttu og vinna að þvi aö allar framsæknar hreyfingar og stéttarfélögin taki upp stuðning við baráttuna. Um leiö ættu konur að taka fullan þátt i baráttu vinnandi alþýðu. Þekking kvenna og skilningur á nauðsyn sósialismans eykst með fræðslu, en þó aðalega með eigin baráttureynslu þeirra sjálfra — ef sjónarmið verkakonunnar og kvenna vinnandi alþýðu liggja til grundvallar.Barátta á ofangreind um grunni og aö ofangreindum kjörorðum er þvi margfalt mikil- væga'ra skref til frelsunar konunnar og raunverulegs sigurs alþýðunnar en „sósialisk” slag- orðin eintóm og hreinmeyjaaf- staða til fjöldans. Ari Trausti. Ég þakka innilega samstarfsmönnum vinum og kunningj- um fyrir heimsóknir, gjafir og kveðjur á sjötugsafmæli minu þann 21. des. s.l. Þorstcinn ö. Stephensen Jóna Guðmundsdóttir fyrrverandi yfirhjúkrunarkona, Kópavogsbraut 11, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 14. janúar kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu láti liknarstofnanir njóta þess. Fyrir hönd barna minna og annarra vandamanna, Kristin Kristinsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.