Þjóðviljinn - 18.01.1975, Qupperneq 15
Laugardagur 18. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Hvað er verksmiðjutogari
fiskimál
^eftir Jóhann J. E. Kúld^,
Þaö er orðiö meira en timabært
aö almenningur á tslandi geri sér
fullkomlega ljóst hvernig beri að
skilgreina og skýra samheitiö
..verksmiðjutogari”. Svo viröist
sem ýmsir framámenn i
Islenskum sjávarútvegsmálum
skilji ekki þetta orð nema aö mjög
takmörkuðu leyti og hefur það
komiö fram bæði I sjónvarpi og
blööum. Ég vil þvi i fáum orðum
leitast við að skýra þetta orð og
myndun þess.
tslenska heitið togari er notað
um fiskiskip sem draga á eftir sér
fiskivörpu og gildir einu hvort
virar vörpunnar liggja út frá siðu
eða skut skipsins. Verksmiðja er
hinsvegar vélvæddur vinnustaður
þar sem hráefni er breytt i unna
vöru. Samkvæmt þessu er togari
sem er vélvæddur fyrir flaka-
vinnslu og frystingu, verksmiðju-
togari, þó frekari vinnsla fari
ekki fram um borð. Hinsvegar er
sá togari eingöngu frystitogari
sem heilfrystir fiskinn. En verk-
smiöjutogari sem vinnur fiskinn i
flök og frystir siðan er að sjálf-
sögðu lika frystitogari.
Norðmenn t.d. taka stundum
þannig til orða um ákveðið skip
að það sé frystitogari með flökun-
arverksmiðju. Þá er sá hluti
norsks frystihúss þar sem sjálf
vinnslan fer fram kallaður flaka-
verksmiðja (filetfabrikk). Verk-
smiðjutogarar sem vinna fiskinn i
flök og hraðfrysta siðan, eru nú til
af ýmsum stærðum eða frá 1000
smálestum eða minni og upp i
nokkur þúsund smálestir. Norð-
menn eiga t.d. nokkra verk-
smiöjutogara sem eru nálægt 1000
smálestum.
Flestir þeir verksmiðjutogarar
sem smiðaðir hafa verið siðustu
árin gernýta allan afla sem inn i
skipið kemur; þar fer ekkert for-
görðum. Fyrstu verksmiðju-
togarar norðmanna voru ekki
búnir fiskmjölsverksmiðjum, og
var þá fiskúrgangurinn unninn i
loðdýrafóður og frystur. Ég held
að þaö fari ekkert á milli mála, að
fiskveiðiþjóðir almennt noti heitið
verksmiðjutogari yfir þá togara
sem eru vélvæddir til að vinna
fiskinn i markaðsvöru um borð I
stað þess að láta gera það I landi.
Stærstu verksmiöjutogararnir
geta verið með stórar fiskimjöls-
verksmiðjur, þó þeir minni hafi
aöeins getu til að vinna fiskúr-
gang sem til fellur. Þegar svo
talað er um verksmiðjuskip þá
held ég að i öllum tilfellum sé átt
við skip sem taka á móti afla frá
veiöiskipum til vinnslu. Og sam-
kvæmt erlendum frásögnum þá
Landssambandið gegn áfengis-
bölinu hélt ellefta þing sitt 23.
nóv. s.l. i Templarahöllinni,
Eiriksgötu 5, Reykjavik.
Mættu þar fulltrúar frá 26
aðildarfélögum, en þau eru alls
30.
Þingforseti var Helgi Þorláks-
son, skólastjóri.
Formaður sambandsins, Páll
V. Danielsson, gerði grein fyrir
störfum þess á liðnu ári..
Annað erindi flutti Ölafur
Haukur Árnason. Fjallaði það um
áfengisvarnir o.fl.
Stjórn Landssambandsins
skipa nú:
Páll V. Danielsson, Eirikur
Stefánsson, Pétur Björnsson,
Óskár Pétursson, Guðsteinn
Þengilsson, Jóhanna Steindórs-
dóttir, Hanna Kolbrún Jónsdóttir.
er slikt skip nefnt verksmiðjuskip
hvort sem það er vélvætt ein-
göngu til að framleiða mjöl og
lýsi um borð eða jafnhliða búið
flökunarverksmiðjujrystitækjum
og búnaði til niðursuðu á afurð-
um.
Ég held að þessi mikli hugtaka-
ruglingur manna hér, þegar þeir
vilja skilgreina heitið verk-
smiöjutogari, sé tilkominn fyrir
þá sök að við höfum ekki nefnt
frystihús okkar verksmiðjur,
heldur einfaldlega frystihús ein-
göngu. Hinsvegar er flestum
Islendingum efst i huga mjöl- og
lýsisverksmiðjur þegar talað er
hér um verksmiðjur I sambandi
við vinnslu á fiski i stórum stil.
En það er alveg fráleitt ef við
leggjum ekki likan skilning I orðið
verksmiðjutogari og þær þjóðir
sem við erum i tengslum við.
Nú þegar talað er um verk-
smiðjutogara i sambandi við
veiðar innan 50 milna fiskveiði-
markanna, þá þarf almenningur
aö vita, að verksmiðjutogari er
hver sá togari sem vélvæddur er
til vinnslu á eigin afla i markaðs-
vöru um borð, i stað þess að flytja
fiskinn óunninn að landi til
vinnslu þar.
Þetta er nauðsynlegt að fólk
geri sér ljóst ef islensk stjórnvöld
fara að ræða við vestur-þjóðverja
Norski togarinn Labrador
um veiðar i landhelgi okkar. Af
framansögðu ætti mönnum að
vera ljóst að hver sá togari á að
kallast verksmið jutogari
(fabrikktráler) sem vélvinnur
afla sinn um borð i fiskblokkir.
Verksmiðjutogari þarf ekki einu
sinni að vera búinn fiskimjöls-
verksmiðju, þó þeir séu það
flestirnú orðið. Flakavinnslan ein
unnin i vélasamstæðum gerir tog-
arann að verksmiðjutogara. Hins
vegar er ekki hægt að kalla frysti-
togara án vinnsluvéla
verksmiðjutogara. Bretar eiga
t.d. marga frystitogara sem
eingöngu hafa búnað til
heilfrystingar og eru án allra
vinnsluvéla.
Eölilegt er að nefna slika
togara einfaldlega frystitogara.
Þá eru lika togarar sem hafa
frystivélar tii heilfrystingar á
afla fyrri hluta veiðiferðar. Fiski-
lest þessara skipa er skipt i
tvennt. Annarsvegar er frystilest,
en hins vegar i isfisklest, ýmis
1000 smálesta skip eru þannig bú-
in, til að tryggja rekstur þeirra.
Þessi skip eru nefnd isfisks- 'og
frystitogarar.
Ég vonast nú til að ýmsum
verði ljósara en áður, á hverju
heitið verksmiðjutogari byggist.
Ef tekið er dæmi af fuilkomnum
verksmiðjutogara af minnstu
geröinni þá er norski togarinn
„Labrador” glöggt dæmi um
slikan togara sem gervinnur
allan afla og kastar engu. Tog-
arinn er búinn 7 flökunarvélum af
Baader-gerð, og eru afköst þeirra
12 smálestir af flökum á sólar-
hring. Þetta er taliö 1050 smálesta
skip, sem hefur 750 rúmmetra
frystilest og 300 rúmmetra mjöl-
lest. Mjölverksmiöjan er af
Atlas-Stord-gerð aö mestu sjálf-
/irk og afköst hennar 30-35 smá-
lestir af fiskúrgangi eða fiski á
sólarhring.
„Labrador” er talinn vera
mjög fullkominn verksmiðju-
togari þrátt fyrir það, að stærð
hans er ekki meiri en að framan
segir.
Vesturfarar og jass
Vestfirðingar koma i sjónvarpssal á miðvikudaginn og ræða vandamál landshluta sins. Eiður Guðnason
stjórnar umræðum, en þátttakendur eru Svavar Jóhannsson, Patreksfirði, Guðmundur H. Ingólfsson,
isafirði, Ólafur Þ. Þórðarson Súgandafirði, Jóhann T. Bjarnason ísafirði, Kari E. Loftsson Hólmavík og
Ólafur Kristjánsson Bolungavik.
„Rcttur er scttur” — myndin er úr þættinum sem fluttur verður á sunnudagskvöldið.
Sjónvarpsdagskrá næstu viku
virðist við fyrstu sýn vera frem-
ur fáfengileg.
Laganemar verða með þátt-
inn Réttur er settur á sunnu-
dagskvöldið, og bilaþjóðin is-
lendingar hlýtur að hafa áhuga
á að fylgjast með þvi máli sem
þar er sett á svið, og ris vegna
sölu bifreiðar.
Vesturfararnir eru svo siðast
á dagskrá sunnudagsins. Vafa-
söm auðæfi, heitir þessi sjöundi
þáttur, og er þar átt við pening-
ana sem Róbert færir bróður
sinum og mágkonu, er hann
kemur heim eftir gullleitar-
ævintýri sitt.
Söngur Sólveigar, þriðji þátt-
ur þessarar finnsku myndar er
á dagskrá á þriðjudaginn. Þetta
er lokaþátturinn, og væntanlega
fá menn nú að sjá, hver verða
afdrif Sólveigar sem alist hefur
upp við næsta misjöfn kjör.
Islenska rikisútvarpið hefur
alla tið sniðgengið jasstónlist.
Af einhverjum ástæðum skipar
sú tegund tónlistar afar litið
rúm i dagskránni, þrátt fyrir þá
staðreynd, að á Islandi eru
margir jassunnendur. Sjón-
varpið hefur þó staðið sig til
muna betur en útvarpið hvað
jassinn snertir, og á þriöjudags-
kvöldið er 2. þáttur myndar frá
danska sjónvarpinu, sem heitir
„tír sögu jassins”. Fyrsti þátt
urinn var ágætur, og væntan-
lega verður framhaldið ekki
siðra.
Sjónvarpið hefur krækt I
breska teiknimynd, sem byggð
er á þeirri frægu sögu Jules
Verne, „Umhverfis jörðina á
áttatiu dögum.” Reyndar er
teiknimyndasagan afbökun á
skáldsögu meistarans, en þar
fyrir utan er hún vel gerð og
börnin fá nú loks eitthvað
skemmtilegt inn i dagskrá
þeirra fullorðnu.
A föstudaginn hefur nýr,
breskur fræðslumyndaflokkur
göngu sina. Hann heitir hvorki
meira né minna en „Lifandi
veröld”. Flokkur þessi er I sex
þáttum og fjallar um „lifið um-
hverfis okkur og jafnvægið i riki
náttúrunnar”, segir dagskráin.
A laugardaginn eftir viku
býður sjónvarpið upp á „Uglu”-
þáttinn, getraunaþátt sem Jón-
as Jónsson stjórnar.
SJÓNVARP
1 haust var búist við að þessi
skemmtiþáttur væri annan
hvern laugardag á móti „Vöku”
sem Gylfi Gislason stjórnaði. Af
einhverjum ástæðum hefur
Gylfi hætt að stjórna „Vöku og
„Uglan” hefur tekið öll völd,
svo féleg sem hún nú er.
Laugardagsmyndin er svo
„ójafn leikur”, eða „23 Paces to
Baker Street”, bresk sakamála-
mynd frá árinu 1956.