Þjóðviljinn - 18.01.1975, Síða 18

Þjóðviljinn - 18.01.1975, Síða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. janúar 1975. H. K. Rönblomr Að nefna snöru — —- Er hugsanlegt að hann hafi veriö kunningi lögmannsins? — Bottmers? Óbreyttur vöru- bflstjóri? Kemur ekki til greina! — beir sem afplána refsivist, sagði Paul og reyndi að vera eins embættismannslegur og honum var unnt, — eignast stundum ann- ars háttar kunningja en fyrrum. Frú Nohrström blés frá sér undrandi reykskýi. betta hafði hún ekki athugað. En hún var enn i vafa. Ef þeir hefðu þekkst, þá hefði bilstjórinn örugglega spurt um Bottmer, eða hvaö? — En skrifaði hann ekki sjálfur nafnið sitt i gestabókina? — Auðvitað. — Á eftir Bottmer? — Já. — bá þurfti hann ekki að spyrja. Frú Nohrström var býsna um- burðarlynd við Paul, trúlega vegna þess að hún hélt að hann væri einhvers konar embættis- maður,og auk þess hefur hún haft það bakvið eyrað að hún fengi bætur fyrir vinnutap. Loks beind- ist talið að ástæðunni til þess að Bottmer var dæmdur. — bað var fröken Rosenhöök, þér þekktuð hana kannski? Ekki það? Jú, hún var gömul og rik og Bottmer sá um fjármál hennar. Svo dó hún alveg óvænt, og þá — Óvænt dauðsföll orkuðu alltaf mjög örvandi á forvitni Pauls. — Úr hverju dó hún? útvarp Laugardagur 18, janúar 7.00 Morgunútvarp. Veður- 1 fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20, 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Veðriðog viðkl. 8.50. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 íþróttir. Umsjón: Jón Ásgeirsson. 14.15 Að hlusta á tónlist, XII. Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn. 15.00 Vikan framundan. Magnús Bjarnfreðsson kynnir dagskrá útvarps og sjónvarps. 15.45 Evrópumeistarakeppnin í handknattleik.Fyrri leikur FH og Vorwárts frá Austur- býskalandi. Jón Ásgeirsson lýsir siðari hálfleik beint frá Laugardalshöll. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 tslenskt mál. Ásgeir Bl. Magnússon flytur þáttinn. 16.45 TIu á toppnum. örn Petersen sér um dægur- lagaþátt. 17.35 Sögulestur fyrir börn. Gunnar Stefánsson les sið- ari hluta sögunnar „Ákvæðaskáldsins” eftir Sigurbjörn Sveinsson. FLUCIÐ HL SALJÚT — bað veit ég ekki, en fljótt gekk það fyrir sig, og þegar pen- ingarnir voru taldir, þá vantaði fjörutiu þúsund. bó ekki meira? Manni finnst sem maður i stöðu Bottmers — en það hefur kannski verið sjóðþurrð vfðar? —- Nei, hvergi annars staðar. Ef til vill hefði hann getað fengið peningana að láni, ef hann hefði haft timann fyrir sér. En Erken- dorf borgarstjóri, sem sá um skiptin, er réttsýnn maður, sem gefur biófunum engan tima til að smeygja sér undan réttvisinni, og hanh kærði um leiö og honum var ljóst hvernig allt var I pottinn bú- ið. Meira upplýstist ekki sem Paul fannst ástæða til að leggja á minniö. Loks kom röðin að frú Nohrström að spyrja. — Hvernig er með bæturnar fyrir vinnutap? — bær gera fimmtán krónur, sagði Paul með embættismanns- rödd. — Skrifið kvittum, og ég skal greiða upphæðina. Frú Nohrström virtist hæst- ánægð með þetta. Úr eldhús- skúffu tók hún upp reiknings- eyöublöð hótelsins, en sá sig um hönd og fann skrifpappir eftir nokkra leit. Paul stóð fyrir aftan hana meðan hún skrifaði og að- stoðaði hana við orðalagið. Hann þekkti bréfsefnið,og jafn- velrithöndin kom honum kunnug- lega fyrir sjónir. Eftir andartak vissi hann hvar hann hafði áður séð hvort tveggja. Hann kimdi við tilhugsunina um að ofurstafrúin þyrfti að borga nafnlausa bréfrit- aranum fimmtán krónur i bætur fyrir vinnutap. 4. begar hann kom aftur á Borgarhótelið og ætlaði að sækja herbergislykilinn, sagði nætur- vörðurinn: — bað var sfminn til yðar, dokt- or Kennet. — Hvaðan? — Héðan úr bænum. Frú Viktorsson bað mig að skila þvi til yðar ef þér kæmuð fyrir hálftíu — Klukkan var nýslegin niu. Úr herbergi hringdi Paul i númerið sem honum hafði verið gefið upp. Kvenrödd svaraði. — Er þetta frú Viktorsson? betta er doktor Kennet. — Mig langar mjög til að tala við yður. Getið þér komið núna? Húsið er við torgið, Járnvöru- verslunin er i sama húsinu, dyra- vörðurinn getur visað yður leið ef með þarf. Inngangurinn I ibúðina er baka til. bað eru ekki miklar fjarlægðir i Abroka. Eftir tiu mínútur var Paul Kennet sestur inn i stofu með endurreisnarhúsgögnum og 18.00 Söngvar I léttum dúr. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 í minningunni. bor- steinn Matthiasson kennari talar við Theódóru Guð- laugsdóttur, fyrrum hús- freyju á Hóli i Hvamms- sveit. 20.00 Hljómplöturabb. bor- steinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 20.45 „Sinustrá”, smásaga eftir Friðjón Stefánsson. Elin Guðjónsdóttir les. 21.00 Pianósónata i e-moll op. 7 eftir Edvard Grieg. Alicia De Larrocha leikur. 21.20 I táradal er stundum hlegið. Jónas Jónasson talar við danska spéfuglinn og pianóleikarann Victor Borge. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. # sjónvarp Laugardagur 18. janúar 1975 16.30 íþróttir Knattspyrnu- kennsla 16.40 Enska knattspyrnan. 17.30 Aðrar iþróttir M .a. myndir frá badmintonmóti I málverki af þvi taginu sem for- stjórar fá i fimmtugsafmælisgjöf. Frú Viktorsson var ein heima og hættulega falleg i kóngabláum heimakjól. Hún virtist vita allt sem ung kona þarf að vita og meira til. — Ég bað yður að koma hingað, sagði hún, vegna þess að skipti- borðinu á hótelinu er ekki treyst- andi, þegar einkasamtöl eru ann- ars vegar. Og þetta er svo sann- arlega einkamál. Bottmer lög- maður var persónulegur vinur mannsins mins — og minn. — Minn llka, svaraði Paul. En siðan eru liðin fjöldamörg ár. Frú Viktorsson gat ekki leynt undrun sinni. — bá eruð þér hér, vegna þess aö þér hafið persónulegan áhuga á málinu? Ég hélt þér væruð hér sem leynilögreglumaður. — Og það táknar, svaraði Paul, — að þér gerðuð boð eftir mér til að gefa mér upplýsingar. Látið mig hafa þær. — Upplýsingar? sagði frú Viktorsson hikandi. — Ég veit ekki hvort ég hef nokkrar upplýs- ingar. Eiginlega veit ég ekki meira um málið en allir aðrir. — Fyrst svo er, sagði Paul vin- gjarnlega, —þá hafið þér kallað á mig til að ég gæfi yður upplýsing- ar. En það hef ég ekki hugsað mér. Paul hafði i skyndingu bundið enda á allar hugsanlegar ráða- gerðir frú Viktorsson um að fræð- ast utan dagskrár. Nú var komið að henni að leggja spilin á borðið. bað var enginn asi á honum, hann svipaðist um I stofunni með- an hann beið eftir svari hennar. Stofan var gamaldags og hlutföll- in inni skemmtileg. Húsgögnin voru falleg án þess að vera bein- linis fyrsta flokks. Teppið var ó- svikið; járnvörusalinn var efnað- ur. Honum varð litið til frú Viktors- son. Hún sogaði að sér athygli hans. Paul var hrifnari af annars háttar konum en frú Viktorsson var, en hann kunni vel að meta útlit hennar. — bér eruð að velta fyrir yður, hvers vegna ég hafi beðið yður að koma hingað, sagði hún bliðlega. Ég skal segja yður það. bað var til þess að biðja yður að vekja ekki upp neitt hneyksli. — bað vona ég að ekki þurfi að verða, svaraði hann óljóst til að gefa henni tilefni til að halda á- fram. — bér hafið kannski aldrei átt heima i smábæ sjálfur? bað hef ég gert alla ævi, svo að ég veit hvernig það er. Allir ráðamenn eru f einhvers konar slagtogi. Reykjavik, og kjöri iþrótta- manns ársins og leik 1R og Gróttu I fyrstudeild i handb. Rætt er við Birgi Björnsson og Einar Bollason. 18.30 Lina langsokkur. Sænsk framhaldsmynd, byggð á barnasögu eftir Astrid Lind- gren. 3. þáttur. býðandi Kristin Mantyla. Áður á dagskrá i október 1972. 19.00 Illé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.30 Vinur minn, Jónatan. Stutt leikin kvikmynd, sem ungur Islenskur kvik- myndagerðarnemi, Agúst Guðmundsson, gerði i Bret- landi. Myndin er byggð á sögu eftir Agúst sjálfan, og gerði hann einnig islenskan texta við myndina. 20.50 Julie Andrews. Breskur skemmtiþáttur með söng og grini. býðandi Heba Július- dóttir. 21.45 Anna Karenina. Banda- risk biómynd frá árinu 1936, byggö á hinni frægu, sam- nefndu skáldsögu eftir rúss- neska höfundinn Leo Tol- stoj. Leikstjóri Clarence Brown. Aðalhlutverk Greta Garbo, Frederich March og Basil Rathbone. býðandi Óskar Ingimarsson. Myndin gerist i Rússlandi fyrr á ár- um og lýsir daglegu lifi og ástamálum tignarfólksins þar. 23.25 Dagskrárlok. Alexei Gorokjov, sérlegur fréttamaður APN ritar frá Baikonur- geimferðamiðslöðinni. Sovéska geimfarið Sojus-17, sem stjórnað er af Alexei Gubarev ofursta og Georgi Gretsjko vélfræðingi, cand, sc., er upphafið að röð geimtilrauna, sem áætlað er að gera i Sovétrikj- unum á þessu ári. „Viö höldum áfram að vinna i samræmi við okkar eigin geim- ferðaáætlun,” sagði Vladimir Sjatalov, tvivegis hetja Sovétrikj- anna og yfirmaður þjálfunaráætl- unar sovéskra geimfara, i viötali við fréttaritara APN. „Aætlunin gerir ráð fyrir endurbótum á geimstöðvum af Saljútgerð. bað var og er stefnan I sovéskum geimrannsóknum að vinna með geimstöðvum, sem starfræktar eru lengi.” Sjatalov hershöfðingi benti á, að á árinu 1975 á að framkvæma i fyrsta sinn i sögunni sameiginlegt geimflug sovéskra og banda- riskra geimfara, Sojus og Apollo. betta er ekki aðeins sameiginleg tilraunaför farartækja, sem gerð eru i tveim löndum. Sovétrikin lita fyrst og fremst á geimferðina sem meiriháttar verkefni á þvi sviði aó auka alþjóðlega sam- vinnu um geimrannsóknir I frið- samlegum tilgangi. Arangur liðins árs eykur viss- una um, að allar áætlanir muni framkvæmdar með góðum ár- angri. í samræmi við sovésku geimferðaáætlunina fór áhöfn Sojusar-14, Pavel Popovitsj og Juri Artjukjin, I leiöangur til geimstöðvarinnar Saljut-3. Gennady Srafanov og Lev Djomin framkvæmdu ýmsar til- raunir um borð I Sojusi-15. Sex daga geimferð Anatoli Filip- tsjenko og Nikolai Rukavisjnikov i Sojusi-16 var mikilsverð æfing undir væntanlegt tilraunaflug Apollo-Sojus geimfaranna. Hún færði heim sanninn um, að tækni legar lausnir væru réttar, svo og árangur tilrauna á jörðu niðri með öll þau tæki, sem munu tryggja örugga tengingu so- véskra og bandariskra geimfara. I sambandi við ómönnuð geimför má nefna að skotið var á loft nýrri sameiginlegri eldflaug sósialisku rikjanna, Intercosmos-12.1 stuttu máli, öll helstu verkefni ársins voru leyst með góðum árangri. A sviði geimferða er með réttu litið á áttunda áratuginn sem timabil geimstöðva. Saljut-4, sem Sojus-17 er tengdur, táknar nýtt stig endurbóta á þessum tækjum til rannsókna á jörðinni og umhverfi hennar. Byrjunin var gerð árið 1971 meö fyrstu varan- legu Saljutgeimstöðinni, en áhöfn hennar vann i 24 daga á braut umhverfis jörðu. bá var hinum endurbætta Saljut-2 skotið á loft. Hann var ómönnuð geimstöð og gerði kleift að reyna nýtt kerfi tækja um borð og framkvæma margar visindalegar tilraunir. I stuttu máli hafa sovéskir sér- fræðingar aflað sér traustrar reynslu i hönnun og starfrækslu geimstöðva, bæði mannaðra og ó- mannaðra. bótt aðeins hafi liðið þrjú og hálft ár á milli Saljut-1 og Saljut-4, er langt bil á milli þeirra frá sjónarmiði geimferða. I þessu sambandi langar mig til að vitna i orö visindamannsins Anatoli Blagonravov, þekkts sovésks vis- indamanns, formanns nefndar sovésku visindaakademiunnar, er stjórnar rannsóknum og nýt- ingu geimsins. Hann sagði, að það sem einkenndi þessi miklu afrek væri, að þvi lengra sem liði frá þeim,. þeim mun skýrar kæmi mikilvægi þeirra i ljós. Siðustu þrjú ár hafa sannað ótvirætt, að það var rétt að leggja áherslu á varanlegar geimstöövar sem grundvallarstefnu varðandi þró- un geimferða. Snemma á þessari öld ritaði Konstantin Tsiolkovski „Kaluga- draumóramaðurinn”, um „aðset- ursstað úti i ljósvakanum” sem undirbúning undir ferðir út i hin- ar ókönnuðu viðáttur ytra geims- ins. Nú eru geimstöövar orðnar að „aðsetursstað úti i ljósvakan- um.” Saljut-4 er engin nýlunda á sviði hönnunar. Hann er gerður I beinu framhaldi af þróun fyrri geim- stöðva með hliðsjón af fenginni reynslu af starfsemi þeirra. Lita ber á Saljut-4 sem nýtt skref i sömu meginátt. Visindamaðurinn Valentin Glusjko, tvivegis hetja sósialisks starfs, segir: „I dag höfum við geimstöðvar til að framkvæma rannsóknir. I framtiðinni munu þær þjóna framleiðslunni. Nú starfa tveir til þrir menn i geimstöðvunum, sið- ar tugir eða hundruð manna. Nú er aðeins starfrækt ein geimstöð, siðar meir verður komið upp heilli borg gervihnatta, sem minnir i einu og öllu á borgir á jörðu niöri.” r” i W RAFAFL Vinnufélag rafiönaðar- manna Barmahliö 4 HUSEIGENDUR, HÚSBYGGJENDUR allar nýlagnir og á gömlum raflögn- önnumst viðgerðir ,um. 1 Setjum upp dyrasima og lág- spennukerfi. 1 Ráðgjafa og teikniþjónusta. ' Sérstakur simatimi milli kl. 1-3 daglega, simi 28022.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.