Þjóðviljinn - 18.01.1975, Side 20
DJÖÐVIUINN
Laugardagur 18. janúar 1975.
Samið um
skip
VESTMANNAEYJUM 17/1 —
Núna alveg á næstunni veröur
gengiö frá samningum um smföi
farþegaskips, sem koma á i staö
Herjólfs til fiutninga milii lands
og Eyja. Skipiö veröur 700 lesta
meö útbúnaöi fyrir bfla á svipaö-
an hátt og Akranesferjan. Þetta
skip sem fiytur tii og frá Eyjum
er þó mikiu stærra og sjófært á
úthafi.
Þrjú tilboö bárust i skipið.
Magnús Magnússon bæjarstjóri
sagöi fréttamanni Þjóðviljans i
dag að liklegasta tilboðið væri frá
norðmönnum. 1 útboði hef ðu verið
mjög strangir skilmálar um af-
hendingarfrest, en gert er ráð
fyrir að skipið verði tilbúið i janú-
ar—mars 1976.
—S.dór
Neskaupstaður:
Flot-
A morgun segjum viö frá nýjung I myndlistarkennslu sem Sigriöur Björnsdóttir hefur komiö á f sinu
starfi. Hún tengir saman myndlist og leikræna tjáningu sem hefur þaö markmiö aö gera nemandann
opnari og frjálslegri i myndsköpun sinni. Eða finnst ykkur hún ekki dramatisk stúlkan á myndinni?
Ólöf Þráinsdóttir er efst á
kvennaskékmótinu með 4 vinn-
inga Sjá frétt á siðu 5.
girðingin
ónýt
Nú hefur burgðið til betra
veðurs hér i Neskaupstað og orðið
stillt og bjart. Ekki er búið að
ryðja flugvöllinni en hingað komu
þrjár smávélar i dag m.a. með
sexmannanefndina sem verið
hefur veðurteppt i Reykjavik
siðan fyrir helgi. A morgun er
þess vænst að flugfélagsvélar geti
athafnað sig á vellinum.
1 ’illviðrinu sem hér reið yfir
tættist flotgirðingin öll sundur og
er hún nú talin ónýt. Baráttan við
oliumengunina er að hefjast á ný,
og búið er að ná upp þeirri svart-
oliu, sem hægt er að dæla upp úr
laskaða tankinum. 1 hann fennti
talsvert i veðrinu og er þessvegna
ekki hægt að tæma hann að svo
stöddu.
A morgun er von á haugsugu
hingað sem nota á til þess að soga
beint upp úr oliupollum, sem
vitað er að leynast hér og hvar á
menguaða svæðinu. Haugsugan
hefur eigin tank, sem hægt er að
safna i 2500 litrum. Ef þessi til-
raun tekst verður svo hægt að
dæla oliunni úr haugsugugeymin-
um i þá hráefnisgeyma sem stóðu
af sér snjóflóðin. —Hj
Rikið brotlegt við
eigin lög — siða 3
Hvernig á að reikna Leiðbeiningar um
skattana — sjá s>íðu 5 framtöl — siða 9-13
Öveðursskaðar i Dölum:
Fjárhúsþök sliguðust undan
snjóþunga — hlöðuþak fauk
„Hér hafa kannski komið önnur
eins veður og þetta, en þau hafa
sjaidan varað jafn lengi”, sagði
Kristjón Sigurðsson, rafvirki i
Búðardal, þegar blaöiö haföi tal
af honum I gær. „Snjóinn hefur
barið saman i skafla, sem margir
eru erfiöir viðfangs. Hér I Búöar-
dal má ganga beint af sköfiunum
upp á þak á nokkrum húsum, og
það er mjög sjaldgæft.”
Tjón
Margskonar tjón varð i Dala-
sýslu i óveðrinu. Mesta tjónið á
rafmagnslinum varð er linan
milli Króksfjarðarness og Saur-
Alþýöubandalagiö
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldinn i Þinghóli á
mánudagskvöldið kemur klukkan 20:30. Fundarefni: Bæjarmál, ma.
leiðarkerfi Strætisvagna Kópavogs. Landsfundur AB. önnur mál. —
Stjórnin.
Alþýðubandalagsfélagar i Kópavogi
eru hér með látnir vita af þvi, að árshátið félagsins verður haldin 1.
febrúar. Nánar auglýst siðar. — Stjórnin.
bæjar féll niður á hálfs annars
kilómetra löngum kafla. Slitnaði
linan niður vegna isingar og fauk.
Tvö fjárhús sliguðust undan snjó-
þunga, á Oddsstöðum i Miðdala-
hreppi og Gillastöðum i Laxárdal,
og urðu einhverjir fjárskaðar á
Gillastöðum. 1 Gröf i Miðdala-
hreppi fauk þak af hlöðu og á
Fellsenda brotnuðu rúður i ný-
byggðu ibúðarhúsi af grjótfoki. 1
Miðdölum fauk kyrrstæður bill af
gerðinni Cortina eina veltu og er
mjög mikið skemmdur. Ofsinn
var slikur að sums staðar sáust
hnefastórir grjóthnullungar velta
á snjónum.
Vegurinn
fyrir Strandir
Samgönguerfiðleikar eru veru-
legir af völdum veðursins og
ófærðarinnar og þykir mörgum
dalamönnum sem i þvi sambandi
sé mikill skortur á fyrirhyggju
hjá yfirvöldum um samgöngu-
mál. Reglan hefur verið sú að láta
það ganga fyrir öðru að opna veg-
inn gegnum Svinadal til Saurbæj-
ar og Gilsfjarðar, en þar eru nú
mikil snjóþyngsli.Skýrði Kristjón
svo frá i gærkvöldi að þá hefðu
menn verið að reyna að ryðja
MDOVIUANS
1974
I dag er
síðasti
skiladagur
Skrifstófan á Grettisgötu 3 verður opin til klukkan
18. — Vinningsnúmerin birt i þriðjudagsblaðinu
veginn gegnum einn skaflinn i
þrjátiu klukkustundir, og mundi
það verk, sem þegar hefði kostað
um 100.000 krónur, varla miklu
meira en hálfnað. Hinsvegar
heföi fyrst i gær verið gerð gang-
skör að þvi að opna veginn fyrir
Strandir og Klofning og gekkst
Mjólkurstöðin i Búðardal fyrir
þvi og fékk til þess hefil frá vega-
gerðinni. Var hefillinn kominn inn
i Saurbæ klukkan sex i gærkvöldi
og hafði þá verið aðeins átta tima
að opna veginn. Taldi Kristjón að
kostnaðurinn við það hefði varla
verið nema hálfur á móts við það,
sem komið er i moksturinn á
Svinadal. Rafmagnslaust var á
Fellsströnd i hálfan fjórða sólar-
hring, og hefði verið hægt að
koma rafmagninu á hálfum til
heilum sólarhring fyrr, hefði und-
ireins verið gengið i það að opna
Strandaveginn.
Kristjón sagði að ýmsum dala-
mönnum þætti sú áhersla, sem
lögð er á að moka Svinadaiinn,
þeim mun undarlegri þegar tillit
væri tekið til þess að fyrir mjólk-
urflutningana skipti þetta engu
máli. Hefði svo verið að skilja af
orðum bilstjórans á rútunni, sem
fer þessa leið, að þetta væri gert
vegna þess að sérleyfishafinn
legði á það mikið kapp. Þætti
mörgum vestur þar nokkuð kyn-
legt hátterni að sóa almannafé i
snjómokstur aðeins til þess að
fólksflutningabill, sem oft mun
vera hálftómur, þurfi ekki að
taka á sig krók.
Áskorun
Kristjón sagði það eindregna
áskorun sina og margra fleiri til
þingmanna sinna aðþeir gengjust
fyrir þvi að þessum málum væri
komið i það horf, að verkstjóri
vegagerðarinnar á staðnum
ákvæði sjálfur, hvaða vegur yrði
mokaður hverju sinni. Eins og
sakir standa er ákvörðunarvaldið
um þetta i höndum samgöngu-
málaráðuneytisins, en æðsti mað-
ur þess er sem kunnugt er Halldór
E. Sigurðsson, samgönguráð-
herra, áður bóndi á Staðarfelli á
Fellsströnd.
Þá þykir ýmsum vestur hér,
sagði Kristjón, timi til kominn að
gerður sé góður vegur yfir Laxár-
dalsheiði, en sú leið er nú snjó-
laus, á sama tíma og kostað er til
hundruðum þúsunda af almanna-
fé i snjómokstur, og svoleiðis nær
engri átt, sagði Kristjón að lok-
um.
—dþ
BLAÐ-
BURÐUR
bjcðviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Melhagi
Seltjarnarnes
Stigahlíð
Akurgerði
A Iftamýri
Kleppsvegur
Fossvogur
Vinsamlegast hafið '
samband við af-
greiðsluna.
ÞJÓÐVILJINN
Sími 17500
Sendlar
óskast
allan daginn eða
liluta úr degi
ÞJÓÐ VILJINN