Þjóðviljinn - 26.10.1975, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. október 1975.
DIÖÐVIUINN
MALGAGN sOsíalisma
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: EiOur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Árni Bergmann
Ritstjórn, afgreiösla, n.uglýsingar:
Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
ÓTÍÐINDIN FRÁ LONDON
Fréttirnar sem berast fyrir helgina frá
London um viðræður islensku viðræðu-
nefndarinnar og þeirrar bresku eru
vægast sagt iskyggilegar. Þó að Einar
Ágústsson utanrikisráðherra segi að
engar niðurstöður hafi fengist er það ef til
vill rétt en má þó ekki verða til þess að
fólk liti fram hjá aðalatriðum málsins.
Þau aðalatriði eru að islenska viðræðu-
nefndin hefur þegar fallist á að ræða við
bretana um veiðar innan 50 milnanna og
jafnframt leggur utanrikisráðherra
áherslu á það að viðræðunum þurfi að
Ijúka fyrir 13. nóvember er núverandi
samningur við breta fellur úr gildi. Jafn-
framt verða menn að taka vel eftir þvi að
breskir fjölmiðlar, þar á meðal fréttastof-
an Reuter, leggja áherslu á það að
islenska viðræðunefndin hafi verið mun
,,sveigjanlegri” en verið hafi á síðasta
fundi í Reykjavik og er það ills viti. En
það sannar einnig ákaflega vel að meðan
rikisstjórnin hefur islenskt almenningsálit
vakandi allt i kringum sig þá er hún ragari
við að gera samninga en hún nú er þegar
hún er fjarri islenskum aðilum i viðræð-
unum i London.
Sé það rétt hjá breskum fjölmiðlum að
islenska viðræðunefndin sé nú „sveigan-
legri ” en áður getur það ekki þýtt neitt
annað en það að viðræðunefndin hafi tekið
upp þá stefnu undir forsæti Gunnars
Thoroddsens og Einars Agústssonar að
ræða um veiðar breta innan 50 milnanna
eftir 13. nóvember. Þessi afstaða er þeim
mun furðulegri þegar hugsað er til þeirrar
skýrslu fiskifræðinga, sem nýlega hefur
verið birt i blöðum. 1 þessari skýrslu kem-
ur fram að þorskstofninn er i stórfelldri
hættu og verði ekkert að gert getur stofn-
inn orðið hreinlega uppurinn eftir skamm-
an tima. Samkvæmt ummælum fiskifræð-
inga gera þeir ráð fyrir, að hrygningar-
stofn þorsksins verði aðeins 1/7 þess sem
var 1970 eftir 4 ár verði ekki þegar i stað
gripið i taumana.
Þessi skýrsla islensku fiskifræðinganna
er sögð hafa verið lögð til grundvallar við-
ræðunum i London. En þvi trúa liklega
ekki margir, þvi skýrslan felur i sér ein-
dregna kröfu um að útlendingar verði úti-
lokaðir af fiskimiðunum við Island strax.
Skýrslan hefði þvi átt að hafa þær afleið-
ingar að islenska viðræðunefndin lýsti þvi
þegar yfir við upphaf viðræðnanna að eng-
ar veiðar útlendinga kæmu til greina inn-
an fimmtiu milnanna. Þá hefði viðræðu-
fundurinn ekki staðið nema örskamma
stund. íslendinga krefjast þess nú að
rikisstjórnin hafi manndóm i sér til þess
að neita að selja framtið islensku þjóðar-
innar með samningum um veiðar útlendr
inga i landhelginni. Slikir samningar jafn-
giltu þvi að islendingar væru að afhenda
bretum af framfærslueyri sinum — og það
er hlálegt ef sú rikisstjórn gerir það sem
einlægt klifar á þvi að þjóðartekjur séu að
dragast saman.
Furðurlegast alls við þessar Lundúna-
viðræður er þá staða Framsóknarflokks-
ins. Einar Ágústsson hefur marglýst þvi
yfir, að Framsóknarflokkurinn hafi ekki
enn endanlega ákveðið hvort hann
samþykkir veiðar innan 50 milnanna. Er
sagt að málið sé i nefnd! Augljóst er af
Lundúnaviðræðunum að Einar Ágústsson
fer gjörsamlega á svig við þessa afstöðu
nema að Framsóknarflokkurinn sé þegar
búinn að samþykkja að til greina komi að
heimila útlendingum veiðar innan 50
milna markanna. Ekki hefur verið skýrt
frá þeirri nýju samþykkt framsóknar
tyrr, en þá er lika ástæða til þess að
krefjast þess að flokkurinn geri þegar i
stað grein fyrir afstöðu sinni. Andstaða
þjóðarinnar við veiðiheimildir handa út-
lendingum innan 50 milnanna má heita al-
gjör og yfirgnæfandi. Þessi andstaða hef-
ur þegar komið fram, en augljóst er af
hinum óhugnanlegu tiðindum frá London,
að rikisstjórn hefur enn ekki skilið þessa
afstöðu þjóðarinnar nógu greinilega. Þess
vegna þarf enn að herða á. — s.
Líffræðingar stöðva
hættulegar tilraunir
T V; ; '■ *
r . ..lí-A
. ■/ '
'
i&Rí
: - .... .ÆM:"'
Þessi forngrfska mynd sýnir viöureign manns og kentárs, en
kentárar voru hálfir menn og hálfir hestar. Viö birtum hana til
aö vekja athygli á nýlegum möguleikum liffræöinga: þeir
geta skorið sundur litningaraöir og blandaö sainan erföastofnum
ýmissa lífvera.
Það vakti allmikla athygli nú i
haust, þegar nokkrir forvigsmenn
mólekúlliffræði lögðu á sjálfa sig
nokkrar hömlur að þvi er varðar
framkvæmd á ákveðnum tegund-
um tilrauna.
Hér er um að ræða tilraunir,
sem fela að i sér að erfðastofnar
úr mismunandi lifverum séu
tengdir saman (i svokölluðu
DNA-blendingsmólekúl)
Fyrr á árinu söfnuðust 140 vis-
indamenn sem við slikar tilraunir
fást saman i Asiiomar i Kali-
fomiu til að taka afstöðu til á-
framhalds þeirra. Þessi ráð-
stefna var að þvi leyti einstök i
sögu visindanna að á henni voru
gerðar öryggisráðstafanir gegn
enn óþekktri áhættu sem hugsast
getur að nefndar tilraunir hafi i
för með sér.
Hinsvegar hafa þær ráðstafanir
sem stungið er upp á ekkert laga-
gildi, þvi það er mál hverrar
rannsóknastofu hvort þær eru
virtar. En einn helsti tilgangur
ráðstefnugesta var einmitt sá að
verða á undan löggjafarvaldinu
og leggja sjálfir á sig hömlur
frekar en biða eftir þvi að þær
yrðu á þá lagðar ofan frá — og þá
ef til vill i' einhverskonar kreppu-
ástandi.
Hin löngu DNA-mólekúl geyma
erfðaupplýsingar frumanna. Ein-
stöku arfgengir eiginleikar em i
litningum,sem skipa sér I röð eft-
ir DNA-mólekúli.
I frumunum eru ýmisleg en-
sym, sem hvert þeirra um sig
stjórnar ákveðnum efnafræðileg-
um ferlum.
Með nýjum tegundum ensyma
eiga menn þess nú kost, að klippa
DNA-mólekúlin allnákvæmlega
niður I smábúta, sem hver um sig
geyma svo sem tvo litninga. Og
þeir eru klipptir i sundur á þann
hátt, að það er siðan hægt að raða
þessum DNA-bútum saman aftur
að vild.
Þegar horft er lengra fram i
timann gera menn ráð fyrir þvi
að unnt verði að tengja saman
DNA-búta, og þar með erfiða-
stofna sem tilheyra mismunandi
lifverum, og þá verða til áður-
nefnd kynblendingsmólekúl DNA.
Sllkt blendingsmólekúl gæti til
dæmis innihaldið litninga úr
spendýrum með heitu blóði sem
tengt væri veirulitningum.
Menn hafa sérstakan áhuga á
möguleikanum á þvi, að tengja þá
litninga sem menn viija kanna
t.d. við veirupart. Veiruagnir
hafa þann eiginleika, að þær geta
brotist inn i framandi frumu (og
taka áfest iitninga með sér). Það
er hægt að haga tilraunum þann-
ig, að utanaðkomandi DNA verð-
ur áfram traust eining i gest-
gjafafrumunni og tvöfaldast við
hverja frumuskiptingu með að-
stoð ensymakerfis gestgjafa-
frumunnar. Slik tækni býður m.a.
upp á það i framtiðinni, að hægt
sé að setja þá litninga sem fram-
leiða hormónann insúlin i
bakteriufrumur, sem siðan er
hægt að fá til þess að framleiða
insúlín I tonnatali.
Lærisveinn
galdramannsins
Þvi miður hefur þessi tækni
nokkrar þær hliðar sem leiða
hugann að sögunni um lærisvein
galdramannsins. Það er ekki
hægt að afskrifa möguleika á þvi,
að yfir heiminn flæði krabba-
skapandi eða á annan hátt skað-
legir bútar af DNA. eða veir-
um. Margir telja þessar likur svo
litlar að hægt sé að sleppa þeim,
en þær eru allavega til umræðu.
Hér stöndum viö andspænis
einu af þeim dæmum sem veröa æ
algengari með tækniþróuninni.
Annarsvegar verða afleiöingarn-
ar af þeim ákvörðunum sem viö
tökum æ vfötækari, á hinn bóginn
styttist sá timi jafnt og þétt sem
viö höfum til yfirvegunar áöur en
þessar ákvarðanir eru teknar.
önnur dæmi má sækja i umræöu
um kjarnavopn og i umhverfis-
mál yfirleitt.
Aðalhvatamaður áðurnefndrar
ráðstefnu, Paul Berg frá Stan-
fordháskóla, komst að þeirri nið-
urstöðu að ekki mætti hunsa þær
hættur sem á ferð gætu verið.
Fyrirtveim árum tóksthonum að
búa til DNA-blendinsmólekúl,
sem innihélt „krabbaveirur” úr
apa, sem nefnist SV-40. Enda þótt
þessi blendingur yrði til i öðrum
tilgangi, var talið fróðlegt að sjá,
hvernig hann hagaði sér ef hann
kæmist i kolibakteriu. Og þá var
spurt: hvað gerist ef kolibakteria
meö SV-40 sleppur laus og smitar
mannfólkið? Kolibakteriur eru i
þörmum okkarallra.ogenda þótt.
svo virðist sem SV-40 leiði ekki til
krabbameins i mannfólki, þá vit-
um við samt alltof litið um það
hvernig veira fer að þvi að fram-
kalla krabbamein til að útiloka að
þetta geti gerst við óhagstæð skil-
yrði.
Virkni einstakra erfðastolna er
að verulegu leyti háð samspili
þeirra innbyrðis, og þetta samspil
hlýtur einmitt að vera óþekkt
staðreynd þegar bútur af DNA
eru settir inn i framandi sam-
hengi. Paul Berg neitaði sér um
að gera slika tilraun. En siðan er
þessi tækni orðin að hversdags-
legu fyrirbæri.
Haglabyssuáhrif.
Onnur tegund tilrauna sem
menn hafa áhyggjur af er kennd
við „skotvopn”. Þá er DNA ein-
hverrar lifveru skorið i smábúta
og þessir bútar eru hver um sig
settir I bakterlur, sem hver um
sig er látin mynda klon (klon er
afurð endurtekinna frumuskipta
— þ.e.a.s. allar frumurnar hafa
sömu erfðaeigindir). Hér er hætt-
an sú, að einn af klonum þessum
innihaldi litninga hingaðtil ó-
þekktrar krabbaveiru. Þessi
hætta getur sýnst fjarlæg leik-
mönnum, en ekki fagmönnum,
sem hafa vanist ýmsu misjöfnu af
veirum.
Aðrar vafasamar tilraunir eru
tengdar þvi, að litningar sem fela
I sér mótstöðuafl gegn fúkkalyfj-
um eða hæfni til að framleiða eit-
urefni séu settir i bakteriur sem
áður höfðu ekki slíka litninga.
Þátttakendur Asomilarráð-
stefnunnar komust að svo til ein-
róma áliti um allstrangar
öryggisreglur um áframhaldandi
rannsóknir. Hættulegustu til-
raunirnar voru bannfærðar, en
aðrar tilraunir eiga að biða þar til
komiö hefur verið á fót dýrum og
sérhæfðum rannsóknastofum eða
þess, að skapað sé lifrænt um-
hverfi sem sé svo veikbyggt að
það geti ekki lifað utan sérstakra
aðstæðna rannsóknarstofu.
Menn vona að þessi sjálfsagi
visindamanna gefi okkur nokkuð
svigrúm. Þörfin fyrir slikt svig-
rúm kemur vel i ljós ef við t.d.
minnum á reynsluna af bóluefn-
inu gegn lömunarveiki. Nýlega
kom það i ljós að bóluefni þetta
var mengað af SV-40 veirunni. 1
það skipti vorum við heppin — við
erum ekki apar. (Information)