Þjóðviljinn - 26.10.1975, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 26.10.1975, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. október 1975. Fjölmennt í „opnu húsunum á meöan karlarnir strituðu viö aö halda vinnustööunum gangandi Þrátt fyrir kvenmannsleysiö átti Landsbankinn ekki I verulegum erfiöleikum meö aö halda ölium deiidum sinum opnum. Oft komu jafnvel „dauðir timar” eins og þegar myndin er tekin. Kaffi og ekkert meö því Það var mikiö fjölmenni og stemning i höfuðborginni eftir að fundinum lauk og fram eftir degi. í ,,opnu húsunum” kiktu konur i kaffibolla og röbbuðu saman milli þess sem nokkrir hópar skemmtikrafta komu fram. Ferðuðust þeir á milli húsanna sjö, sem auglýst höfðu kaffidrykkju. Auk þess mun nokkuð hafa verið um það, að einstök félög eða vinnuhópar hittust að fundi loknum á smærri samkomustöðum. En kaffidrykkja og fridagur kvenna kostaði nokkur átök á vinnumarkaðinum. Þar voru karlmenn viða undir miklu álagi og þótt bankar og flestar þjónustustofnanir hefðu verið opnar viðurkenndu starfsmenn að þaö gengi ekki neitt sérstak- lega auðveldlega fyrir sig. Grillstaðir og flestir aörir matsölustaðir voru opnir. Viðast var nokkuð mikið um viðvaninga við störf, frændur eigenda og vinir settu á sig svuntu og steiktu hamborgara handa viðskiptavinum, sem voru að sögn öllu fleiri en gengur og gerist. Raunar liktu menn viða umferðinni á mat- sölustaði við jólaösina, sem nær þangað inn eins og annars staöar. t aöalbanka Landsbanka íslands voru allar deildir opnar en börn voru þar að leik i hring- stigum og gjaldkerastúkum. Sagði starfsmannastjórinn að nokkuð væri erfitt að hafa allar deildir opnar, kvenfólk vaéri meira en helmingur starfs- liðsins en þetta gengi nú samt einhvern veginn. Afgreiðsla væri e.t.v. nokkuð tafsöm en menn þökkuðu bara fyrir að ekki væri lokað. Annars báru karlmenn sig misjafnlega á föstudaginn. Er á leið var hungrið farið að sverfa að sumum, a.m.k. heyrðist margur kvarta sáran yfir óþol- andi aðgerðarleysi heima fyrir og erfiðleíkum með „kell- inguna”. Þjóðviljinn leit inn á vinnu- staði, opin hús og viðar og þar voru meðfylgjandi myndir teknir. — gsp Karlkynskennnarar IMT reyndu af mætti að halda uppi kennslu en nokkrir tóku að sér barnagæslu fyrir starfsfélaga slna. Er myndin af nokkrum barnanna undir öruggri gæslu kennaraliösins. Illjómsveitin Hljómsveitin hlær var einn þeirra skemmtikrafta sem ferðaðist á milli opinna húsa og skemmti kaffigestum. Myndin er úr Lindarhæ, þar sem troðfullur salur var allan daginn. Frá opnu húsi að Hótel Sögu Sjálfsafgreiösla var á kaffinu á Hótei Sögu og meðlætiö var aö sjálf- sögðu ekkert, því konur voru i frii og höfðu ekki unnið kaffibrauð fyrirfram. Viða I skólum voru haldnir fundir með ncmendum, þar sem rætt var um málefni kvenna og fleira. Gestir úr kvenréttindahreyfingum heimsóttu fundina. Hér undirbúa nemendur I Menntaskólanum við tjörnina einn slikan.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.