Þjóðviljinn - 03.12.1975, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 03.12.1975, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. desember 1975 New York, 25. nóv. Það hefir verið allfjörugt i sumum nefndunum hér á alls- herjarþinginu þessa siðustu viku. Stór orð hafa fokið yfir suma salina. Háskóli S.Þ. hefir verið til umræðu og i þvi máli flutti fastafulltrúi okkar, Ingvi Ingvason sendiherra, ágæta ræðu. Skrifa ég kannski nánar um það mál sérstaklega. Pólitískir fangar. Eitt þeirra mála, sem hvað mesta athygli hafa vakið i vik- unni, er tillaga Bandarikjanna um að allir pólitiskir fangar verði látnir lausir. Er það mál manna, að hún sé fram borin sem andsvar við samþykkt ályktunarinnar frá þvi um dag- inn að lýsa sionisma kynþátta- Helgi Seljan: Að fengnum skilaboðum Ofbeldi útvarpsins gagnvart samtökum launafólks á dögunum með fullri blessun menntamála- ráðherra hefur vakið mikla at- hygli. Góður kunningi minn eystra, sem er lika góður kunn- ingi ráðherrans heimtaði vit- neskju um þessa blessun á dögun- um og hún kom svo sannarlega. En um leið og honum var gert þetta ljóst, þá sagði hann mér sögu, sem hann bað mig koma á framfæri og skal þaö gert hér. Hann var að greina mér frá við- brögðum verkafólks á hinum ýmsu vinnustöðum i hans heima- bæ og tveim þeim næstu. Hann vildi gjarnan mega koma þeim að, svo lærdómsrik þóttu honum þau viðbrögð vera fyrir stjórn- völd. Það voru nefnilega þeirra eigin menn, sem töluðu. Og þeir töluðu enga tæpitungu — þeir og þær, svo ekkert fari milli mála. Þetta fólk lagði ekki niður vinnu, þó svo flest segðist algerlega andvigt þvi að gera nokkra samninga, þeir yrðú bara ekki umflúnir úr þessu. En hvers vegna sagðist fólkið ekki vilja — eða réttara sagt geta lagt niður vinnu. Rökin voru ein- föld en ljós. Launakjör okkar eru slik i dag, að við megum engan vinnudag missa. I raun engan vinnutima, sem mögulegt er að fá. Stefnani landsmálumleiðir til atvinnuleysis — Það er okkar ótti — sagði sama fólkið. Þá er nógur timi til að taka sér fri frá störfum. Þess vegna er best að vinna þennan dag, meðan enn er vinnu að fá. Áfengisbann á Indlandi? Indverska stjórnin hefur birt áætlun um að koma á algeru áfengisbanni á Indlandi. í ráði er að banna áfengisveitingar á opinberum stöðum, svo og áfengisauglýsingar og sölu áfengis i grennd við vinnústaði. Þá er gert ráð fyrir að sala áfengis verði bönnuð á almennum útborgunardögum og i athugun er að banna að opna ný ,,riki”. I tveimur rikjum i Indlandi er nú áfengis- bann, en hin 20 hafa til þessa ekki talið sig geta misst af teljum af áfengissölu. Nú hefur Indhira Gandhi lofað að bæta þeim upp tekjumissinn af áfengisbanni. Krókur á móti bragði—en geigaði stefnu. En eins og fram hefur komið, vakti samþykkt þessar- ar tillögu ákaflega mikla reiði i Bandarikjunum — og raunar mikla hneykslun i mörgum vestrænum rikjum. Ýmsir túlka þessa tillögugerð um pólitisku fangana svo, að með henni hafi Bandarikin ætlað að láta krók koma móti bragði og koma höggi á ýmis þeirra rikja, sem samþykktu sionismatillöguna, þar eð þau halda mörg hver pólitiskum andstæðingum hjá sér undir lás og slá. Nú i vikunni fór að rigna Helgi Seijan Kunningja minum þótti hér um ófagran vitnisburð að ræða og hann var sagöur enn sterkari orðum en hér er komið að. Hitt sagði svo þessi kunningi minn, að sér hefði þótt lakara, að samhengið hefði vantað milli þessarar röksemdarfærslu og þeirra afleiðinga, sem stjórnar- stefnan i samningamálum varð- andi landhelgina mun af sér leiða, einmitt gagnvart þessu sama fólki. Þá fyrst mundi fara að þrengj- ast fyrir dyrum og einn vinnudag- ur til eða frá nú skipti þar litlu. En hvað sem þvi liður er þessum upplýsingum hér með komið á framfæri, þvi þær segja sina sögu svo sannarlega. Þetta voru andsvör stuðnings- manna núv. stjórnar — álit þeirra á kjörum sinum undir ihalds- stjórn. Til umhugsunar mætti það vera til viðbótar þessa dimmu nóvemberdaga. breytingatillögum við hina bandarisku frá ýmsum þeirra rikja, sem henni var beint gegn. Voru þær þess eðlis, að samþykkt þeirra hefði gert hina bandarisku bitlausa. Eftir harð- ar umræður á föstudag, þar sem m.a. fulltrúi Kúbu lét skamm- irnar dynja á bandarikjamönn- um, fór svo að hinir siðarnefndu drógu sina tillögu til baka rétt eftir atkvæðagreiðslu, þegar þeim var ljóst, að henni yrði i komið fyrir kattarnef. Varð þvi niðurstaðan sú, að krókur bandarikjamanna krækti ekki, heldur réttist úr honum! Talsmáti fastafulltrúa Bandaríkjanna. Inn i þetta mál hafa nú dregist óvenjulegar og satt að segja einstæðar umræður um stöðu fastafulltrúa Bandarikjanna hjá S.Þ., Daniel P. Moynihan, fyrr- verandi prófessors frá Harvardháskóla, sem tók við starfi sinu hér i júli sl. Hann hefir verið miklu skömmóttari um andstæðinga sina en fyrirrennarar hans, svo að reyndum diplómötum i utan- rikisþjónustunni hefir þótt nóg um — að sögn. Þannig kallaði hann Amin Úgandaforseta opin- berlega „kyn'þáttahatara og morðingja” hér i haust, er Amin var á ferðinni, og eftir samþykkt tillögunnar um sionismann sagöi hann, að upp myndu risa „nýir spámenn og nýir harðstjórar, sem réttlættu gerðir sinar með hjálp þess háttar orðhengilsháttar, er hér hefði verið samþykktur i dag”. Sérstaka athygli vakti nú i vikunni, að fastafulltrúi breta hjá S.Þ., Ivor Richard, beindi undir rós i ræðu á fundi með framkvæmdastjórum Félags S.Þ., allharðri gagnrýni að hin- um opinskáa talsmáta banda- riska fastafulltrúans. Gaf hann i skyn, að slikt myndi veikja SÞ., sem bretar litu á sem eitt sitt mikilvægasta tæki á vettvangi utanrikismála. — Menn hér i S.Þ. þekkja fá dæmi þess, að fulltrúi stórveldis hafi orðið fyrir annarri eins gagnrýni af hálfu „vinaþjóðar”. A föstudaginn var svo komið, að likur voru taldar á, að Moynihan myndi verða að segja af sér, en daginn eftir var þvi lýst yfir af hálfu utanrikisráðu- neytisins, að Kissinger hefði fulla tiltrú til hans. Þeir kváðu reyndar vera gamlir vinir frá Harvard. Ford styður Moynihan — hann situr áfram. í gær gerðist svo það i máiinu, að Moynihan var kvaddur á fund Fords forseta i Hvita hús- inu. Forsetinn veitti honum full* an stuðning og fékk hann til þess að sitja áfram um „fyrirsjáan- legan tima”. Kissinger utan- rikisráðherra, sem nú lýsti þvi yfir, að þeir væru gamlir vinir, lýsti sig algerlega sammála hinu hvassa orðalagi Moynihans og sagði, að fastafulltrúinn hefði tekið mjög óstinnt upp skeyti það, sem breski fastafulltrúinn beindi til hans fyrir viku. Hafa málin nú snúist þannig, aö það er hugsanlega sá breski, sem er kominn i klemmu. Hann sendi frá sér yfirlýsingu i gær, þar sem hann reyndi að draga i land, en komst þó svo klóklega að orði, að það hefði aldrei verið ágreiningur milli sendinefnda þessara tveggja vinaþjdða ,,um markmið, heldur aðeins um að- ferðir”. Nýtt riki á meginlandi Ameriku. I nefnd þeirri, sem ég sit i, nýlendumálanefndinni, urðu allhörð átök um land, sem nefn- ist Belize, en var áður Breska Hondúras. Það liggur að Guate- mala. Á föstudaginn var sam- þykkt með yfirgnæfandi meiri- hluta atkv. i nefndinni að mæla með þvi, að þvi yrði veitt fullt sjálfstæði, en Belize hefir haft heimastjórn i meira en 10 ár. Guatemala hefir reynt að tefja málið og sagt er, að þeir hafi viljað innlima Belize. Beitti fastafulltrúi Guatemala málþófi, sem vakti mikla hneykslun fjölda nefndar- manna, enda fékk hann aðeins 11 riki með sér, en yfir 100 voru á móti honum. Guðrún Tómasdóttir syngur í S.Þ. Það vakti gleði meðal íslend- inga hér, er fréttist, að Guðrún Tómasdóttir söngkona ætlaði að syngja hér i S.Þ. um hádegi á mánudag. Það var starfs- mannafélag S.Þ., sem gekkst fyrir tónleikunum i samvinnu við islensku fastanefndina hjá S.Þ., sem fóru fram i litlum samkomusal i byggingu Dag Hammarskjöld- bókasafnsins. Guðrún söng þarna i nær klukkutima islensk þjóðlög og lög i þjóðlagastil eftir islensk tónskáld frá Sveinbirni Svein- björnssyni til Jóns Þórarinsson- ar af sinni alkunnu snilld og var framúrskarandi vel tekið. Aheyrendur hafa sjálfsagt verið milli 50 og 100. Var þetta skemmtileg tilbreyting fyrir okkur frá fundaþrasinu. —sibl.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.