Þjóðviljinn - 03.12.1975, Blaðsíða 13
IYliðvikudagur 3. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Landsleikurinn: Ísland-Noregur 17:19
Markvarsla Olafs bjargaði
íslenska liðinu frá stórtapi
íslenska liöiö átti hroðalegan leik í fyrri hálfleik
og var sex mörkum undir í ieikhléi
Oft hefur maður séð islenskt landslið i handknattleik fara neðarlega í
leik sinum,en sjaldan eða aldrei eins og i fyrri hálfleik gegn norðmönnum i
gærkveldi. Það eina sem stóð uppúr var markvarsla ólafs Benediktssonar
og hefði hans ekki notið við...maður þorir ekki að hugsa þá hugsun til enda.
En hann átti þó eftir að gera enn betur og bæta enn einu stórafrekinu i safn
sitt sem markvörður i handknattleik. Staðan i leikhléi var 13:7 norðmönn-
um i vil,og maður átti ekki von á miklu hjá isl. liðinu. En það átti þó eftir að
rétta úr kútnum og það svo um munaði. Og enn var það Ólafur sem lagði
grunninn að þeim ágæta leik. Hann hreinlega lokaði markinu i siðari hálf-
leikog félagar hans mögnuðust upp við stórleik hans og tóku að skora hvert
markið á fætur öðru, uns þeir náðu að jafna 15:15 þegar aðeins 11 minútur
voru liðnar af s.h. Þarna sýndi islenska liðið hvers það er megnugt þegar
vel gengur, en það er varla hægt að ætlast til þess með sanngirni að ólafur
verji oft svona vel, enda var þetta engu likt.
Já, það var ekki hátt risið á isl.
liðinu i fyrri hálfl. Bæði vörn og
sókn var i molum, og þvi meira
var afrek Ólafs i markinu að vörn
in fyrir framan hann var á núlli.
Þar að auki voru hinir ömurlegu
sænsku dómarar mjög hliðhollir
norðmönnum og gáfu þeim hvert
vitakastið á fætur öðru, sem voru
i hæsta máta vafasöm, einkum
þau sem dæmd voru þegar menn
voru að fara innúr hornunum.
Fjögur af þessum 13 mörkum i
fyrri hálfleik voru skoruð úr vita-
köstum.
Þar við bættist svo að vörn
norðmanna var góð og mark-
varsla Pal Bye frábær. Að visu
fékk hann nokkur skot til að
verja, sem voru nánast hlægileg,
skot af löngu færi og varla fastari
en sending milli manna.
En hvaö um það, staðan i leik-
hléi var 13:7 norðmönnum i vil og
menn allt annað en bjartsýnir,
þrátt fyrir góða markv. Ólafs,
enda varla sanngjarnt að ætlast
til þess að hann bætti miklu við
sig. En það var einmitt það sem
hann gerði. t heilar 15 min. i s.h.
fékk hann aðeins á sig 2 mörk, þar
af annað úr vitakasti en þó hafði
hann varið m.a. eitt vitakast. Og
þessi stjörnuleikur hans lyfti fé-
lögum hans uppúr öldudalnum.
Þeir Páll Björgvinsson og Ólafur
Einarsson sem litið hafði kveðið
að i f.h. fóru nú loks i gang og
mörkin hlóðust upp.
Þegar staðan var svo 16:16 var
Ólafi E. visað af leikvelli i 5 min.
en það dugði ekki heldur hjá dóm-
urunum til að tryggja norskan
sigur, landinn barðist eins og ljón
og staðan var enn 16:16 þegar
Ólafur kom inn. Þegar svo staðan
var 17:16 norðmönnum i vil mis-
notaði Páll vitakast og i staðinn
skoruðu norðmenn sitt 18. mark
og siðan sitt 19. mark og þá
skömmu siðar misnotaði Ólafur
E. vitakast, þannig að lánið var
ekki með isl. liðinu þegar mest á
reið.
Um það hvaða maður bar af á
vellinum þarf ekki að deila; það
var Ólafur Benediktsson, kannski
besti handknattleiksmaður ís-
lands i dag. Af útileikmönnum
báru þeir Páll Björgvinsson,
Ólafur Einarsson, Jón Karlsson
og Stefán Gunnarsson af, þeir
voru i sérflokki. Arni Indriðason
gerði margt laglegt, en var ó-
venju lélegur i vörninni og réð
ekkert við hinn snjalla horna-
mann Allan Gjerde. Björgvin sást
litið og það var sama sagan með
hann þegar hann átti að gæta
Gjerde,, Björgvin réö ekkert við
hann. Friðrik Friðriksson fékk
alltof litið að vera inná, en hins-
vegar var Viggó mikið með.þótt
hann næði sér aldrei á strik.
1 norska liðinu báru þeir af, Pal
Bye markvörður, Allan Gjerde og
Jan Hauger, en annars er þetta
norska lið skemmtilegt lið, leikur
hraðan og fastan handknattleik,
en nokkuð einhæfan.og var furðu-
legt hvað isl. liðið var lengi að
setja fyrir lekann i vörninni.
Dómararnir voru sænskir,
sennilega versta sending sem við
höfum fengið frá svium á iþrótta-
sviðinu.
Mörk tslands: Páll 9 (3) Ólafur 4,
Jón K. 3, og Stefán 1 mark.
Markahæstur norðmanna var
Gjerde með 8 mörk (5). _s.dór
Björgvin Björgvinssyni mistekst linuskot. (Ljósm. G.Jóh.)
Ólafur Einarsson reynir markskot
Fyrri hálfleikur
gerði
útaf við
okkur
sagði Viðar
Símonarson
landsliðsþjálfari
eftir leikinn
— Þessi slæmi leikur okkar i
fyrri hálfleik og sú útreiö sein
við fengum þá geröi útum
þennan leik og var sá draugur
sem við þurftum að glima við i
siðari hálfleik þegar við loks
náðum okkur upp, sagði Viðar
Simonarson landsliðsþjálfari
eftir leikinn. — Annars er
þessi útkoma sæmileg tölu-
lega séö; en hefðum við leikið
allan leikinn eins og I s.h. þá
hefði ekki þurft að spyrja um
hvort liöið hefði sigrað. V'ið
hljótum að gera betur i kv,öld,
ég trúi ekki öðru.
— Ég var ósammála dómur-
unum i vitadómum þeirra á
okkur þegar norðmennirnir
voru að fara innúr hornunum;
mér fannst þeir of gjafmildir á
þau. Jú, þér er óhætt að hafa
það eftir mér að ég er bjart-
sýnn á leikinn i kvöld, sagði
Viðar.
Ólafur Benediktsson:
— Ég er sæmilega ánægður
með minn þátt, en það var sárt
að tapa þessum leik úr þvi
sem komið var, eftir að við
höföum jafnaö. Annars var
seinni hálfleikur jafn góður
hjá okkur og sá fyrri var öm-
urlegur, sagði þessi bjarg-
vættur islenska liösins, og
vissulega er það ekki sterkt til
orða tekið að vera sæmilega
ánægður með þátt sinn I leikn-
um.
Ólafur Einarsson
Fyrri hálfleikurinn gerði út-
um leikinn, munurinn sem
þeir náöu þá var of mikill,
þrátt fyrir að við næðum okk-
ur upp I seinni hálfleik. Og ef
við leikum allan leikinn I kvöld
eins og við geröum i seinni
hálfleik nú, þá vinnum við
leikinn i kvöld.
—S.dór