Þjóðviljinn - 07.12.1975, Qupperneq 11
Sunnudagur 7. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
ÞORSTEINN JÓNSSON:
kvikmyndakompa
Gagnrýni
Með gagnrýni er yfirleitt átt við
fræðilega greiningu verka og ein-
hverskonar mat á þeim. Sú kvik-
myndagagnrýni, sem algengust
er hér á landi, er hvorki fræðileg
né greining og telst þvi tæpast til
raunverulegrar gagnrýni. Það
mætti fremur nefna umsagnir, og
byggjast þær á þvi, að greinar-
höfundur segi skoðun sina á við-
komandi kvikmynd. Með þvi að
lesa umsagnirnar að staðaldri
kynnast lesendur greinarhöfundi
og læra að geta sér til um kvik-
myndir eftir skoðunum hans.
Umsögnin verður oftast til á
þann hátt að greinarhöfundur fer
á bió eins og hver annar og lifir
sig inn i kvikmyndina. Siðan segir
hann frá áhrifunum, sem hann
varð fyrir. Niðurstaðan er óneit-
anlega mikið undir smekk
mannsins og hugarheimi komin,
og getur verið hin furðulegasta.
Nýlegt dæmi er um það, að
„gagnrýnandi” skrifaði langt
mál um franska fjáraflakvik-
mynd og lýsti henni sem miklu
listaverki. Myndin gengur út á
það að sýna fallegt fólk, sem
hefur ekki annað fyrir stafni en að
finna kynhvötinni útrás. Hið
þægilega og áhyggjulausa um-
hverfi kvikmyndarinnar er heill-
andi fyrir áhorfandann og þegar
hann verður næst illa haldinn af
lifsleiða fer hann og finnur svaríö
við spurningunni, sem kvikmynd-
in vekur: Hvaða ferðaskrifstofa
selur ferðir til Bankok? í gagn-
rýni af þessu tagi getur allt gerst.
Á meðan umsagnarmaðurinn
lifir sig inn i sýninguna eins og
áhorfandi, horfir gagnrýnandinn
á myndina utan frá með köldum
skynsemisaugum visindamanns-
ins. Hann skoðar kvikmyndina
oftar en einu sinni og tekur hana
jafnvel i klippiborð til þess að
rannsaka einstaka myndkafla.
Hann þarf að hafa þekkingu á
kvikmyndasögu og helst þekkja
fyrri kvikmyndir höfundarins.
Hann lýsir kvikmyndinni með
orðum og greinir siðan verkið
hvaðsnertirinnihaldogform bæði
i heild og smærri einingum. Hann
rekur forsendur þess og tilgang
og leggur einhverskonar mat á
hvernig til tekst. Þó er ekki
nauðsynlega markmið gagnrýni
að meta verk.Hins vegar er
næstum ómögulegt að komast hjá
þvi, að i greiningunni felist eitt-
hvert mat.
Þetta er sú tegund gagnrýni,
sem ekki er beinllnis háð kvik-
myndaiðnaðinum (nema hvað
hann framleiðir hráefnið). Hún er
birt i sérfræðiritum fyrir þrönga
hópa og oft skrifuð af fólki, sem
hefur varið mörgum árum til þess
að læra kvikmyndafræði við há-
skóla. Fyrir gagnrýnandanum
vakir alls ekki að leiðbeina áhorf-
endum svo þeir finni myndir við
sitt hæfi.
Tvær samhliða tilhneigingar
eru greinilegar I gagnrýni eins og
hún er stunduð i nágrannalöndum
okkar. Annars vegar greining,
sem beinist að smæstu einingum
kvikmyndarinnar undir áhrifum
táknfræði (semiólógiu) og
málvisinda, og hins vegar athug-
un á félagslegu og sögulegu sam-
hengi. Gagnrýnin beinist bæði að
máli kvikmyndarinnar og einnig
að kvikmyndinni sem félagslegu
fyrirbæri (áróðurstæki). Þessi
tegund gagnrýni tengist mjög
rannsóknum á kvikmyndalist
sem slikri, enda hvorutveggja oft
stundað af sömu mönnum.
Aður fyrr voru það mestmegnis
skapandi kvikmyndagerðar-
menn, sem stunduðu rannsóknir á
kvikmyndinni og skrifuðu kvik-
myndafræði, en nú hefur komið
fram stór hópur manna frá kvik-
myndafræðideildum háskólanna,
sem fjalla um kvikmyndina sem
fræðigrein án þess að vera skap-
andi. Skapandi fólki virðist
vísindamennirnir stundum fara
langt yfir skammt og gera ein-
falda hluti flókna, þegar þeir eru
að reyna að koma einhverju kerfi
á aðferðir, sem skapandi
listamenn hafa ræktað með sér og
virðast ekki þarfnast skýringa.
Listamanninum nægir að vita,
hvort aðferðin hafi áhrif eða ekki.
En enginn vari vafi er á þvi að
þessi gagnrýpi, sem reyndar er
ekki enn orðin söluvara, á eftir að
verða kvikmyndalistinni til fram-
dráttar.
Algengt er að kvikmyndir, sem
hafa fengið illa útreið hjá gagn-
rýnendum, nái vinsældum meðal
almennra áhorfenda. Gagnrýnin
virðist þvi ekki hafa teljandi áhrif
á fjárhagslega velgegngi kvik-
mynda, sem slá i gegn eins og
sagt er. Kynningarstarfsemi á
vinsælustu myndunum fer nefni-
' Slippfélagið íReykjavíkhf
Má/ningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og 33414
lega öllu fremur fram i slúður-
dálkum blaðanna. Þar er efni úr
kvikmyndaheiminum (drauma-
heiminum) vinsælt og skrifað um
dýrar kvikmyndir og hamast við
að gera eftirsótta leikara
aðguðlegum fyrirbærum.
Fulltrúar kvikmyndaiðnaöar-
ins (bióeigendur hér á landi) vilja
náttúrulega helst að gagnrýnend-
ur fylgi þessu eftir með blaðri i
sama anda fyrir áhugafólk um
kvikmyndir. Þeim mislikar, ef
gagnrýnendum geðjast ekki að
kvikmynd, sem verið er að sýna.
Dæmi eru um það að þeir hafi
beitt áhrifum sinum til þess að
stöðva óhagstæða gagnrýni með
hótunum um að hætta auglýsing-
um o.s.frv. Sum dagblöðin láta
undan þeim þrýstingi. Vonandi
heyrir slik framkoma bióeigenda
sögunni til.
Á meðan gagnrýnendur eru að
eltast við að skrifa gagnrýni eða
umsagnir um formöngunarfram-
leiðsluna þá breytir það ekki
miklu fyrir kvikmyndaiðnaðinn,
hvort gagnrýnin er hagstæð eða
óhagstæð. Það jafnar sig upp með
timanum og sú aðsókn, sem tap-
ast á einni kvikmynd, vinnst á
annarri. Þessi skrif um kvik
myndir eru hins vegar til þess a
kynna þær almennt og vekja
áhuga á bióferðum. Auk þess
beina gagnrýnendur mismunandi
hópum áhorfenda á kvikmyndir,
sem hverjum hópi hæfir, þ.e.a.s.
koma i veg fyrir að horfendur
verði fyrir vonbrigðum með
myndir. 1 þessu felst m.a. að hóp-
urinn, sem hefur áhuga á vönduð-
um kvikmyndum, fær stundum
vitneskju um þær með hjálp
gagnrýnenda.
Með einhverskonar röksemda-
færslu er sennilega hægt að halda
þvi fram, að dagblaðagagnrýn-
endur hér á landi séu kvik-
myndalistinni til framdráttar.
Hitt er vist, að þeir eru kvik-
myndaiðnaðinum til mikils
gajns. En kvikmyndaiðnaðurinn
er einmitt einhver versti dragbit-
urinn á framfarir i kvikmynda-
list. Þessi mótsagnakennda að-
staða veldur eflaust einhverjum
velmeinandi gagnrýnendum
sálarflækjum.
Nýr
Ford Escort
1976 árg. af Ford Escort
er komin til landsins
Nýtt glæsilegt útlit
Ný innrétting
Mýkri fjöðrun
Rúmbetri og bjartari
Sparneytinn bíll
Eftirtaldar tegundir af Ford Escort
árg. 1976 eru til afgreiðslu nú þegar:
Escort 1100 2d. verð kr. 1.045.000
Escort 1100 4d. verð kr. 1.090.000
Escort 1300L 2d. verð kr. 1.192.000
Escort 1300L 4d. verð kr. 1.237.000
Sýningarbílar í salnum
SVEINN EGILSSON hf.
Ford-húsinu Skeifunni 17 Simi 85100.