Þjóðviljinn - 07.12.1975, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. desember 1975.
v
A
til hnifs
og skeidar
Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir
Á áttunda
hundrað
tonnaf kexiá
9 mánuðum
Þaö er mikið talað um
gjaldeyrisvandræði okkar
íslendinga, um tóman
gjaldeyrisvarasjóð og
leiðir til að spara gjald-
eyri. Það er líka mikið
talað um það þessa dag-
ana. að við ættum að hemja
dálítið viðskiptin vð Bret-
land, að minnsta kosti þau
viðskipti sem við höfum
takmarkaða eða kannski
enga þörf fyrir. Ein af
þeim vörutegundum sem
við kaupum í ríkum mæli
frá Bretlandi er kex af
ýmsu tagi, en rúmur
helmingur af innflutningi
okkar á kexi á þessu ári er
einmitt frá Bretlandi. Við
skulum nú líta nánar á
þessar tölur.
Samkvæmt upplýsingum
Viðskiptaráðuneytisins er
innflutningur frjáls á kökum og
kexi, og því erfitt að henda reiður
á þeim fjölda tegunda, sem flutt-
ar eru inn i landið.
Hjá Hagstofunni fengum við
hins vegar upplýsingar um magn
i kg og verðgildi þessara vara, en
vörur sem tilheyra tollskrár-
númer 19.08 eru „kökur, kex og
aðrar iburðarmeiri brauðvörur,
einnig með kakói að meiru eða
minna leyti.” Frá janúar til
septemberloka á þessu ári voru
flutt inn 743.128 kg. af fyrr-
greindum vörum, eða á áttunda
hundrað tonn. Af þessu magni
komu um 405 tonn frá Bretlandi.
Verðgildi þessara vara var 190
miljónir, 910 þúsundir, svokallað
CIF verð (án tolla, sölusk. vörugj.
• Meira en
helmingurinn
frá Bretlandi
• 17 miljónir í
gjaldeyri til
Bretlands fyrir
kex á einum
mánuöi
• Yfir 60 teg-
undir af sætu
kexi í einni
verslun
heilds. og smás. álagningar)
Þetta er sem sagt verðgildi
vörunnar að utan með flutnings-
gjöldum.Bretland fær rúmar 100
milljónir fyrir þessa vöru sina frá1
okkur i gjaldeyri, en ekkert land
kemst i námunda við Bretland
hvað magn snertir.
1 októbermánuði á þessu ári er
magnið alls yfir 11 tonn,
verðgildið yfir 30 milljónir, og þar
af fara tæpar 17 milljónir til
Bretlands á þessum tima. Nýrri
tölur eru ekki komnar, en
mánuðirnir fyrir jól eru jafnan
lang hæstir hvað snertir magn og
verð á þessum vörum.
Samanborið við árið i fyrra
(jan.-sept) höfum við i ár eytt
nærri helmingi meiri gjaldeyri i
kr.tölu i kexið þótt magnið sé nú
heldur minna. Koma hér til
gengisfellingar og einnig er
hugsanlegt að um aðrar vöruteg-
undir (og dýrari) sé að ræða i ár.
Jan.-sept. i ár er upphæðin
190.910 þús. en var á sama tima i
fyrra 108.285 þúsundir, og þá
einnig meira en helmingur frá
Bretlandi.
Flestar af þessum vörutegund-
um eru i raun óþarfar og að eyða
dýrmætum gjaldeyri i sætt kex,
sem þar að auki er framleitt hér á
landi, er svo furðulegt, að það er
ótrúlegt að nokkur mæli þvi bót i
alvöru. Að hafa úr að velja tugum
tegunda af rándýru og óhollu kex-
meti, er valfrelsi, sem er harla
litils virði. Danskar smákökur
fylla nú einnig hillur verslana, að
ógleymdum tertubotnunum. Þótt
við kunnum að telja tertubotna
nauðsynlega, sem mjög eru þó
skiptar skoðanir um, eru þeir
einnig framleiddir hér á landi og
við eigum þvi kost á þeim nýjum
frá innlendum framleiðendum.
Nú má búast við að enn erfiðara
verði fyrir innlenda framleiðend-
ur að keppa við þá erlendu nú
eftir áramótin, en þá lækka tollar
á þessum vörum i 55% frá löndum
utan EFTA og i 30% frá EFTA
löndunum. Tollarnir eru i dag
65% frá löndum utan EFTA og
40% frá EFTA löndunum.
Til þess að gera mér einhverja
hugmynd um fjölda þeirra teg-
unda, sem hér eru á markaðinum
af sætu kexi og smákökum, gekk
ég inn i eina stóra og eina litla
matvöruverslun og taldi
tegundirnar. 1 litlu versluninni
voru þær rúmlega 30, en yfir 60
talsins i stóru versluninni, og á þó
væntanlega eftir að bætast enn i
safnið fyrir jólin. Ekki gat ég séð
að i versluninni væri annað eins
úrval af nokkurri annarri vöru,
og ekki tókst mér heldur að koma
auga á nokkurra vörutegund i
þessari verslun, sem mér fannst
ónauðsynlegri.
tækinu. Sumir hafa keypt máln-
ingu sem þeim er sagt að aðeins
þurfi að mála með tvisvar, en
siðan kemur i ljós að 4 umferðir
duga ekki. Oftast er það vegna
þess að liturinn þekur illa, eða
að undirliturinn er allt annar en
sá sem málað er með. Ýmsir lit-
ir sem blandaðir eru með rauðu
t.d. rauðgult, getur þurft að
mála með 5—6 umferðir áður en
liturinn þekur fyllilega. Þess
vegna er rétt að spyrja alltaf
um viðkomandi lit, áður en
maður festir kaup á málningu,
þar sem málning frá sama
merki getur þakið mjög mis-
jafnlega eftir þvi um hvaða lit
er að ræða.
Léleg málning
Hún var ekki hress kunn-
ingjakona min, sem eyddi heilli
helgi i að mála yfir stofuna hjá
sér. Þegar verkinu var lokið,
kom i ljós að málningin var göll-
uð og stofan öll röndótt eftir
tvær umferðir (af hvitu yfir
hvitt). Hún fór auðvitað i versl-
unina og kvartaði og fékk sem
betur fer aðra málningu i sára-
bætur, en nú þarf hún að eyða
heilli helgi i viðbót til þess að
mála yfir rendurnar. Vert er að
vara fólk við að kaupa máln-
ingu, sem er i ómerktum um-
búðum (þessi var i plastfötu),
nema það sé að kaupa grunn-
málningu eða þessháttar. Best
er að halda sig við hin viður-
kenndu merki, ef mála á t.d.
yfir eldri málningu og ef máln-
ingin reynist gölluð, sem alltaf
getur komið fyrir, á að sjálf-
sögðu að fá það bætt hjá fyrir
Að kunna
að gera við
Það verður seint metið til
fjár, hvers virði það er að vera
handlaginn og kunna að gera við
eitt og annað sem aflaga fer á
heimilinu. Og þeir eða þær sem
eru svo lánsöm að geta gert við
smáræðis bilanir i tækjum af
ýmsu tagi, eru vis til að spara
heimilinu þúsundir. S.P. nokkur
hringdi og sagði okkur dæmi um
hvað það kostar að fá við-
Látið frá
ykkur heyra
Við viljum hvetja lesendur
til þess að skrifa okkur eða
hringja ef þeir hafa hug-
gerðarmann i nokkrar minútur
til að gera við smáræði i elda-
vélinni (engir varahlutir inni-
faldir). Jú það getur kostað
rúmar tvö þúsund krónur og er
þó aðeins taxtinn samkvæmt
upplýsingum sem hann fékk, að
viðbættum aksturskostnaði.
Hvernig væri að kenna fólki ein-
földustu viðgerðir i sky:ldu-
náminu svo að það komist hjá
svona kostnaði.
Ódýrar súpur
1 Kronverslununum fást nú
mjög ódýrar súpur, þær kosta
aðeins 44 krónur pakkinn i Kron
• i Breiðholti og er verðið væntan-
lega það sama annars staðar
hjá Kron. Þessar súpur eru frá
Royco og eru til i ýmsum teg-
undum, en best þykir mér
tómatsúpan. Pakkasúpur eru
vissulega hvorki sérlega hollur
eða næringarrikur matur, en
með t.d. eggi og brauði er þetta
ágætis máltið og sérlega ódýr.
Hver pakki endist þó varla
nema i tvo sæmilega súpudiska.
myndir i sparnaðarhornið,
geta t.d. bent á skemmtilega
heimatilbúna hluti, ódýra
vöru o.s.frv. og einnig ef þeir
vilja kvarta undan einhverju
(t.d. verðlagi, þjónustu, vöru)
og komum við þvi þá á fram-
færi i „gæti verið betra”.Látið
heyra frá ykkur, siminn er
73586 og ef þið skrifið þá
merkið bréfin „Til hnifs og
skeiðar”.