Þjóðviljinn - 14.01.1976, Page 3
Miövikudagur 14. janúar 1976. ÞJóÐVILJlNN — SIÐA 3
JARÐSKJÁLFTINN
Fannst vel
á Húsavík
„Kippurinn var mjög sterkur
hér á Húsavik,” sagði Asdis
Sigurðardóttir á skrifstofu sýslu-
manns þingeyinga.
Tjón varð ekki af völdum jarð-
skjálftans á Húsavik.
Asdis sagði að um kvöldmatar-
leytið, þegar við hringdum norð-
ur, væru bilar væntanlegir með
um 40 manns frá Kópaskeri, en
þangað austur hefði björgunar-
sveit haldið fyrr um daginn til
þess að aðstoða við flutninga á
fólki þaðan.
Færðin var mjög að þyngjast
þegar við töluðum við Asdisi þvi
skollin var á stórhrið.
Ferð bilanna með fólkið frá
Kópaskeri var ekki talin hættu-
laus þvi þrjár brýr á milli Húsa-
vikur og Kópaskers eru lélegar
orðnar vegna jarðskjálftanna og
ekki ljóst hver styrkur þeirra er.
—úþ
Austan stórviðri
„Þetta var austan stórviðri hér
við suðvesturströndina," sagði
Páll Bergþórsson um veðrið i
gær. „Vindhraðinn mældist 10
vindstig á skipum suður af
Reykjanesi. Til marks um vind-
hraðann má geta þess, að 12
vindstig eru 64 hnútar, en á
Stórhöfða komst vindhraðinn upp
i 80 hnúta,” sagð Páll ennfremur.
Páll sagði að i gær hefði snjóað
um allt land nema á norðaustur-
landi. Frost var um allt land.
Um 6 leytið i gær sagði Páll að
hitinn væri að komast upp undir
Framhald á 14. siðu
Raufarhöfn:
— Þetta var geysi harður
kippur, það lék hér allt á reiði
skjálfi, myndir skekktust á
veggjum og lausamunir féllu úr
hillum, borð og stólar færðust
til, en samt held ég að við höfum
algerlega sloppið við skemmdir
á húsum, sagði Heimir Ingi-
marsson sveitarstjóri á Raufar-
höfn er við ræddum við hann i
gær, eftir hinn mikla jarð-
skjálftakipp sem stór skemmdi
hús á Kópaskeri.
— Hér á Raufarhöfn er ekki
Heimir Ingimarsson
Raufarhafnar-
búar bjuggu sig
undir að taka
við fólki frá
Kópaskeri
þess verður óskað. Veghefill fór
héöan fyrir stundu til að opna
leiðina milli Raufarhafnar og
Kópaskers og hann er sennilega
að ljúka þvi núna. Veður hér er
gott en spáð er versnandi veðri
Allt á reiðiskjálfi
sagði Heimir Ingimarsson sveitarstjóri
starfandi neitt almannavarnar-
ráð, en ég hef, ásamt héraðs-
hjúkrunarkonunni og lögregl-
unni, haft forgöngu um það að
undirbúa móttöku þess fólks frá
Kópaskeri sem ekki getur dval-
ið áfram i húsum sinum. Við
skipuðum nefnd strax til að sjá
um móttökurnar sem saman-
stendur af konum úr kvenfélag-
inu og slysavarnardeildinni hér.
Við höfum mjög góða aðstöðu til
að taka móti fólki og sem dæmi
get ég nefnt að á hótelinu einu
má koma fyrir 70 manns, þann-
ig að ég tel að við getum tekið á
móti öllum sem hingað þurfa að
koma frá Kópaskeri án þess að
þrengja nokkuð að okkur.
— Við höfum ekki enn sent
neina björgunarsveit til Kópa-
skers, en erum tilbúnir að
leggja fram alla þá hjálp sem i
okkar valdi stendur hvenær sem
og þá höfum við jarðýtu til taks
ef fer að snjóa eða skafa. Við
ætlum að halda fólksbilafæri á
veginum.
— Mér er ekki kunnugt um
hvort skemmdir hafa orðið á
húsum hér útá sléttunni, enda
hefur simasamband verið mjög
vont og allt beinist að þvi að
bjarga nauðstöddu fólki á Kópa-
skeri, sagði Heimir að lokum.
—S.dór.
Nordli tekur
við í dag
Mikil mannaskipti í norsku
stjórninni koma á óvart
Verkalýðsfélagið Jökull á Höfn:
STYÐUR
SJÓMENN
Osló 13/1 — ntb — A morgun, mið-
vikudag, kl. 11 að norskum tima
hefst siðasti rikisráðsfundur
stjórnar Trygve Bratteli en
kiukkustund siðar hefst fyrsti
fundur hinnar nýju stjórnar undir
forsæti Odvars Nordli.
Nordii lagði I gær fram ráð-
herralista sinn. Hann leiddi I ljós
niu breytingar á stjórninni. Auk
Brattelis hverfa sex aðrir ráð-
hcrrar úr stjórninni og tveir
skipta um ráðuneyti. Meðal
þeirra sem hverfa úr stjórninni
eru Alv Jakob Fostervoll land-
varnaráðherra og Ingvald Ulve-
seth iðnaðarráðherra. 1 stað
Fostervolls kemur Rolf Hansen
en Bjartmar Gjerde sem gegndi
embætti kirkju- og menntamála-
ráðherra tekur við af Ulveseth.
Sjö ráðherrar verða áfram i
stjórninni, þ.á m. Knut Fryden-
lund utanrikisráðherra, Jens
Evensen hafréttarráðherra, Per
Kleppe fjármálaráðherra og Ej-
vind Bolle sjávarútvegsráðherra.
Af fimmtán ráðherrum eru fjórar
konur og hafa þær aldrei verið
eins margar i norsku stjórninni.
Nordli lagði áherslu á að þetta
væri stjórn er hann hefði sjálfur
útnéfnt en bætti þvi við að ráð-
herralistinn hefði verið sam-
þykktur einróma i þingflokki og
landsstjórn Verkamannaflokks-
ins. Hann vildi litið segja um
hvort valdataka hans markaði
stefnubreytingu stjórnarinnar en
kvaðst myndu halda stefnuræðu
stjórnar sinnar i næstu viku.
Svo var að heyra á leiðtogum
annarra stjórnmálaflokka lands-
ins að þessi miklu mannaskipti
hafi komið þeim á óvart. Kváðust
bæði borgaraflokkarnir og Sósial-
iski vinstriflokkurinn ætla að biða
átekta og sjá hvernig nýja stjórn-
in reyndist i starfi.
Formaður Höyre, Erling Nor-
vik, kvaðst þó ekki búast við
miklum frávikum frá stefnu
Brattelis. — En þeirri stefnu er
Odvvar Nordli
ég jafnandvigur eftir sem áður,
bætti hann við. Formaður Mið-
flokksins, Dagfinn Varvik, sagði
að mannaskiptin væru gerð i þvi
augnamiði að breyta um andlit á
stjórninni og þar með fegra hana i
augum kjósenda.
— Ég tel þó ekki að nýja stjórn-
in verði til þess að fækka m jög at-
kvæðum borgaraflokkanna, sagði
hann.
Berit As, formaður Sósialiska
vinstriflokksins, sagði að yfir-
bragð stjórnarinnar hefði litið
breyst við mannaskiptin. — Ráð-
herrarnir verða að fá að reyna sig
áður en hægt er að leggja mat á
störf þeirra, sagði hún og bætti
þvi við að hún teldi litlar likur
vera á þvi að afstaða SV til
Verkamannaflokksins á þingi
myndi breytast við stjórnarskipt-
in.
Fundur haldinn i stjórn og
trúnaðarráði Verkalýðsfélags-
ins Jökuls Höfn i Hornafirði
haldinn 12. janúar 1975 lýsir yfir
fyllsta stuðningi við aðgeröir
sjómanna og útgerðarmanna á
Hornafirði og Suðurnesjum, er
þeir lokuðu hliðum fjarskipta-
og radarstöðva NATO. Þar sem
ljóst er að þær aðgerðir hafa
vakið verðskuldaða athygli út
Viðast var blindbylur i gær, og
að sögn starfsmanna Vegagerö-
arinnar var færð misjöfn á vegum
landsins vegna snjóa og hvass-
viðris.
Greiðfært var um Suðurnesja-
vegi og aðalveginn austur yfir
Hellisheiði og alla leið austur
undir Eyjafjöll. Þar fyrir austan
var ekki ferðafært vegna veðurs.
Hliðarvegir á þessu svæði höfðu
teppst seinni hlutann i gær og
færð þyngst á öðrum.
um heim og sýna svo ekki verð-
ur um villst samstöðu þjóðar-
innar i baráttunni við ofbeldis-
aðgerðir breta i fiskveiðiland-
helgi okkar.
Jafnframt vill fundurinn
þakka starfsmönnum land-
helgisgæslunnar hugprúða bar-
áttu i ójöfnum leik og óskar
þeim alls velfarnaðar i störfum.
Fært var um Hvalfjörð og
Borgarfjörð og allt norður i land,
en hvasst var og hált og erfitt að
ferðast. Fært var vestur Gils-
fjörð og um allt Snæfellsnes, en þó
ekki greiðfært.
Blindbylur var á Vestfjörðum.
Fænt var um Norðurland á
stórum 'oilum i gær. Þar var verið
að ryðja veginn fyrir Tjörnes
vegna jarðsjálftanna þar nyrðra.
Sæmileg færð var um mest allt
Austurland, og var td. fært um
Oddsskarð og Fjaröarheiði.
—úþ
U tan ri kismálan efn d
Fundur í
dag
Utanrikismálanefnd aíþingis
kemur saman árdegis i dag til
þess að fjalla um niðurstööur sjó-
prófanna frá atburðunum á föstu-
dag, þegar breskt sjóræningja-
skip sigldi á varðskipið Þór. Sjó-
prófum er lokið og eru gögnin nú
hjá ráðuneytum.
SENDIBÍLASTÖÐfN Hf
Hvar er forsœtis-
ráðherrann?
Meðan islensk þjóð á i striði
við breta um lifsbjörgina situr
forsætisráöherra tslands i fel-
um i afkimum og lætur ekkert
frá sér fara um ástand mála
nema þá það, að hann „liti mál-
in alvarlegum augum”. Slika
umsögn hefur og Wilson hinn
breski gefið vegna landhelgis-
málsins.
Allan föstudaginn siðasta
reyndi undirritaður að ná tali af
forsætisráðherranum til þess að
fá hans umsögn um ásiglingu
bresks herskips á varðskipið
Þór. Ráðherrann var ekki til
viötals allan þann dag. Klukkan
að verða sjö gaf bréfritari hans
út þá tilkynningu að ráðherrann
„liti ásiglinguna alvarlegum
augum.”
í dagblöðum og öðrum fjöl-
miðlum hafa verið hent á lofti
ummæli ýmissa embættis-
manna og annarra ráðherra en
forsætisráðherrans.Þvi var það
að undirrituðum þótti ástæða til
þess i gær, að heyra hvað fyrir-
liði þjóðarinnar hefði um málin
aö segja á þriðjudegi, fimm
dögum eftir ásiglingu herskips-
ins á Þór og eitt og annað hafði
gerst á láði og legi, hérlendis og
erlendis á þeim tima.
En ráðherrann var ekki við.
Forsætisráðherrann var að
lita eitthvað annað svo alvar-
legum augum, að hann hafði
ekki minútu eða svo aflögu til
þess að svara þvi hvað hann
teldi til ráða, eða hvernig hann
liti á málin.
Velta menn þvi nú fyrir sér
hvar ráðherrann sé i raun og
veru, ef ekki týndur, þá hvers
vegna hann svari ekki i sima
þegar alvarleg mál eru á döfinni
með þjóðinni, heldur sifeldlega
minni spámenn úr rikisstjórn-
inni, hvort hér ráði hræðsla viö
að segja hug sinn, eða vanmátt-
ur til þess, eða hvort Mbl. hafi
rétt fyrir sér er það sagði á dög-
unum, og átti við lyndiseink-
Geir Ilallgrimsson
unn forsætisráðherrans: „ein-
stök hógværö”? —úþ
Misjöfn færð