Þjóðviljinn - 14.01.1976, Side 10
10. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. janúar 1976.
/
Bandarísk kjarnorkuvopn
byltingum, er ekki vist að „tak-
tisk” kjarnorkuvopn okkar séu
örugg fyrir bandamönnum okkar.
Einhver aðili gæti talið það hag-
kvæmt, eða jafnvel nauðsynlegt,
að taka á sitt vald „taktisk”
kjarnorkuvopn i eigu Bandarikj-
anna til að ná yfirhendinni i bar-
áttu innan lands. Ekki getum við
heldur lokað augunum fyrir þeim
möguleika að einhverjir banda-
menn okkar, til dæmis Lýðveldið
Kórea, tækju bandarisk vopn
traustataki til að verjast hugsan-
legri árás grannrikja, til dæmis
Norður-Kóreu.
3. Heimildarlaus
beiting vopna
Hættan á misnotkun banda-
riskra kjarnorkuvopna eykst
iskyggilega i hlutfalli við fjölda
þeirra manna, sem starfa að
framleiðslu þeirra, flutningi,
geymslu, gæslu og notkun þeirra
á striðstimum. Engu að siður eru
hin 30.000 kjarnorkuvopn i eigu
Bandarikjanna meðhöndluð af
mörgum þúsundum fólks, þar á
meðal bandariskum hermönnum,
bandamönnum okkar i Nató,
öryggisvörðum, visindamönnum,
rannsóknamönnum og verka-
mönnum við hafnir og vopnabúr.
1 allt er talið að um 120.000 manns
hafi aðgang aö bandariskum
kjarnorkuvopnum og efni þeim
viökomandi.
Komist hefur verið að þeirri
niðurstöðu að þrir af hverjum
þúsund mönnum i herjum Banda-
rikjanna þjáist af nógu alvarlegri
sálsýki til þess að þurfa á læknis-
hjáip að halda. í þinginu hefur
komið fram að 3,647 menn, sem
aðgang höfðu að kjarnorkuvopn-
um, hafi verið látnir hætta þeim
störfum á aðeins einu ári vegna
geðveiki, drykkjusýki, eiturlyfja-
neyslu og agaleysis.
4. Slys í meöferö
kjarnorkuvopna
Dreifing 30.000 bandariskra
kjarnorkuvopna um heimshöfin,
tugi hafna, mörg lönd i Evrópu og
Asiu og Bandarikin sjálf skapar
slika slysahættu, að ekki eru
dæmi til annarrar eins.
Varnarmálaráðuneytið hefur
viðurkennt að minnsta kosti
ellefu „brotnar örvar” (Broken
ArrowsVþað er að segja meiri-
háttar slys i meðferð kjarnorku-
vopna. Kjarnorkunefndin hefur
tilkynnt að minnsta kosti fjögur
slik slys i viðbót. Sannanir eru
fyrir þvi að mörg önnur slik slys
hafa átt sér stað siðan annarri
heimsstyrjöld lauk, þótt þau hafi
ekki verið tilkynnt. Þeir, sem
kannað hafa þetta mál af alvöru,
telja að eitt slíkt slys i meðferð
bandariskra kjarnorkuvopna hafi
átt sér stað að meðaltali að
minnsta kosti árlega siðan 1945.
Mestan hluta þeirra „taktisku”
kjarnorkuvopna, sem Bandarikin
hafa erlendis, má flytja heim án
þess að öryggi Bandarikjanna
minnki nokkuð við það. Þvert á
móti myndi öryggi þjóðarinnar
aukast, þar eð við flutninginn
heim myndi draga úr hættunni
vegna slysa, þjófnaðar eða
heimildarlausrar notkunar.
•
(Hér er sleppt siðasta hlutanum
af grein Schneiders, en i þeim
hluta hennar ieggur hann til
meðal annars að dregið sé að
miklum mun úr kjarnorkuvig-
búnaði Bandarikjanna erlendis
og tekur til dæmis fram að hann
telji að Bandarikin skuli fækka
kjarnorkuvopnum sinum i
Evrópu. 1 stað þess leggur hann
til að Bandarikin auki öryggis-
ráðstafanir kringum kjarnorku-
stöðvar sinar heimafyrir.)
Þorsteinn Jónsson, Hólmavík:
Enginn drepinn
og engu stolið
„Þetta er fyrsti dagur-
inn í dag hjá þeim á rækj-
unni," sagöi Þorsteinn
Jónsson á Hólmavík er við
höfðum samband við hann
á föstudaginn var, „og þeir
láta heldur líflega af
þessu."
— Átta bátar frá Hólmavik eru
á rækju og 5 bátar frá Drangs-
nesi. Hver bátur hefur leyfi til að
fiska tæp fjögur tonn á viku. byk-
ir sjómönnum skammturinn
heldur litill.
Sumarið hér vestra var gott,
jörðin var mátulega rök, enda
kom fé mjög vænt af fjalli. Meðal-
fallþungi dilka i sláturhúsinu hér
var 17,5 kiló, sem mun vera með
þvi besta, sem gerist á landinu.
80-90% fjárins var tvilembt.
Heyskapur gekk vel hér I
sumar. Hér verka menn i vothey
og hafa gert lengi, og eru þvi ekki
háðir veðráttunni hvað varðar
heyöflun.
Atvinnan hér byggist að mestu
á rækjunni. Þessa stundina er
ekki hægt að tala um atvinnu-
leysi, en frá þvi um miðjan
desember fram undir þetta hefur
atvinna verið sáralitil, helst eitt-
hvert skrap i kring um frystihús-
ið. Það siðasta af sumarfiskinum
var að fara, en handfæraveiöar
gengu vel hér i sumar, og fékkst
frekar góður fiskur. Hlutur mun
hafa verið 7-800 þúsund á bát, þó
mun það hafa verið misjafnt.
Hásetahluturinn á rækjunni fyrir
jólin i 36 úthaldsdaga mun hafa
verið um 200 þúsund krónur.
Menningin?
Ja, hún mætti vera meiri, en
engu hefur verið stolið og enginn
drepinn.
Þorsteinn Jónsson.
Annars eru haldin hér böll og
þorrablót ef við viljum kalla það
menningu. Nú, svo fylltum við
kirkjuna hér á aðfangadagskvöld
hjá okkar ágæta presti, Andrési
Olafssyni.
— úþ.
Leggjast tékkaviðskipti niður?
Ríkið gengur á undan með að neita ávísunum sem gjaldmiðli
Eftir alla þá vinnu og allan
þann áróður, sem rekinn hefur
veriðá liðnum árum fyrir því að
fólk noti ávisanir við greiðslur i
stað peningaseðla, þar sem rfk-
ið sjálft gekk á undan með þvi
að greiða starfsfólki sínu laun
með ávisunum, blasir sú stað-
reynd nú viö að rikið gengur á
undan i því að koma i veg fyrir
notkun þeirra, með þvi að gefa
útsölustjórum ÁTVR leyfi til að
neita að taka við ávisunum sem
greiösiu fyrir áfengi. Hætt er
svo við að fleiri aðilar taki þetta
upp, þannig að allt eins gæti far-
ið að tékkaviðskipti drægjust
svo saman að við lægi að þau
Ieggðust niður.
Við inntum Björn Tryggva-
son, aðstoðarseðlabankastjóra,
formann samstarfsnefndar
banka og sparisjóða álits á
þessu máli, en samstarfsnefnd-
in hefur unnið mjög mikið starf
á liðnum árum i þvi að fá fólk til
að nota ávisanir.
. Björn sagði að vissolega væru
það ill tiðindi ef sú yrði þróunin
að fólk hætti að nota tékka
vegna þess að verslanir eöa aðr-
ar stofnanir neituðu að taka við
þeim. Það hefði verið stefna
bankanna að auka tékkanotkun
og fyrir þvi hefði verið barist og
það hefði tekist að fá fólk til
þess. Hinsvegar fyndist sér sem
tékkanotkun væri orðin of mikil
i landinu og að bankarnir væru
að kafna i tékkaflóði.
Astæðuna fyrir þvi að ATVR
og eflaust fleiri neita að taka við
ávisunum sagði Björn auðvitað
vera þá hve gáleysislega menn
færu með tékka og hve oft væru
gefnir út innistæðulausir tékk-
ar. En með þvi að nú er upptek-
inn sá háttur að reikningsst.
bankanna fer yfir alla tékka
daglega, sagðist Björn vonast til
að meira aðhald kæmi i tékka-
útgáfu, en áður gerði seðla-
bankinn aðeins skyndikannanir.
Nú myndi það kerfi að svipta
menn tékkareikningum við
þriðja brot verða fljótara og
virkara en áður, og þvi væri
ástæða til að ætla að tékkar yrðu
áreiðanlegri gjaldmiðill en
áður. — S.dór
Styrkir
Vísinda-
sjóðs
Styrkir Vlsindasjóðs árið 1976
hafa veriö auglýstir lausir til um-
sóknar, og er umsóknarfrestur til
1. marz.
Sjóðurinn skiptist i tvær
deildir: Raunvisindadeild og
Hugvisindadeild.
Raunvisindadeild annast
styrkveitingar á sviði náttúruvis-
inda, þar með taldar eðlisfræði og
kjarnorkuvisindi, efnafræði,
stærðfræði, læknisfræði, liffræði,
lifeðlisfræði, jarðfræði, jarðeðlis-
fræði, dýrafræði, grasafræði,
erfðafræði, búvisindi, fiskifræði,
verkfræði og tæknifræði.
Hugvisindadeild annars .tyrk-
veitingar á sviði sagnfræði, bók-
menntafræði, málvísinda, félags-
fræði, lögfræði, hagfræði, helm-
speki, guðfræði, málfræði og upp-
eldisfræði.
Hlutverk Visindasjóðs er að
efla islenskar visindarannsóknir,
og i þeim tilgangi styrkir hann:
1. Eintaklinga og visindastofn-
anir vegna tiltekinna rann-
sóknarverkefna.
2. Kandidata til visindalegs sér-
náms og þjálfunar. Kandidat
verður að vinna að tilteknum sér-
fræðilegum rannsóknum til þess
að koma til greina við styrk-
veitingu.
3. Rannsóknarstofnanir til kaupa
á tækjum, ritum eða til greiðslu á
öðrum kostnaði i sambandi við
starfsemi, er sjóðurinn styrkir.
Umsóknareyðublöð, ásamt upp-
lýsingum, fást hjá deildarritur-
um, i skrifstofu Háskóla íslands
og hjá sendiráðum tslands er-
lendis. Athygli skal vakin á þvi,
að ný gerð eyðublaða hefur verið
tekin i notkun.
Umsóknir skal senda deildar-
riturum, eða i pósthólf Visinda-
sjóðs nr. 609.
Deildarritarar eru Guömundur
Arnlaugsson rektor, fyrir Raun-
visindadeild og Bjarni Vilhjálms-
son þjóðskjalavörður fyrir Hug-
visindadeild.________
Verkfalls-
þátttakan
eykst
í Madrid
MADRID 12/1 — Verkföll-
in á Spáni færast stöðugt i
aukana og er talið að um
100.000 manns þar hafi nú
lagt nður vinnu. i Madrid
hefur stöðvast vinna við
fyrirtæki, þar sem 30.000
verkamenn vinna. Þúsund-
ir vörubílstjóra, verka-
manna i flugvélaiðnaðin-
um og bankastarfsmanna
hófu verkfall í dag, og
byggingaverkamenn hóta
verkfalii.
Ein járnbrautarlinan i neðan-
jarðarbrautum Madridar var rof-
in með sprengingu i dag, og lög-
regla dreifði mótmælafólki i
miðborginni þar og i Barcelona
með táragasi. Verkfallsmenn og
mótmælafólk krefjast bæði hærra
kaupgjalds, frelsis til að stofna
verkalýðsfélög og þess að allir
pólitiskir fangar séu látnir lausir.
Norskir fiskimenn
hóta lokun
Stafangurshafnar
ÞRANDHEIMI 12/1 — Samn-
ingaumleitanir standa nú yfir við
togarasjómenn i Suður-Noregi,
sem hafa hótað að loka höfninni i
Stafangri, helstu oliuhöfn Noregs,
með þvi að leggja togurum fyrir
hafnarmynniö, ef þeir fái ekki
bætur fyrir tjón, sem þeir hafa
orðið fyrir á veiöarfærum vegna
skrans frá oliuverunum i Norður-
sjó. Ennfremur krefjast sjómenn
hærra fiskverðs.