Þjóðviljinn - 14.01.1976, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. janúar 1976.
Alþýðubandalagið:
Sósialistar Hafnarfirði
Hver er leið Islands til sósialismans? Hvernig
náum við markmiðinu? Hvað ber að varast?
Einar Olgeirsson fjallar um leið íslands til
sósialisma, i Gúttó, uppi, miðvikudaginn 14.
janúar kl. 20.30. Mætið stundvislega.
Alþýðubandalagið i Hafnarfirði.
Alþýðubandalagið i Neskaupstað
Alþýðubandalagið i Neskaupstað heldur félags-
fund f Egilsbúð, fundarsal, miðvikudagskvöld
14. janúar kl. 20:30.
Dagskrá:
1. Lúðvik Jósepsson ræöir stjórnmáiaviðhorfið.
Umræður. 2. önnur mál. — Stjórn Ab.
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Milli klukkan 17:00 og 18:00 verður Adda Bára
Sigfúsdóttir til viðtals á Grettisgötu 3. Siminn á
Grettisgötunni er 2 86 55.
Aðsend vísa
Ort í orðastað ónefnds höfðingja:
Ég vil selja mitt land,
ég vil leigja mitt land,
ég vil landhelgin okkar sé Bretanum frjáls.
Ég vil erlendan her
hafa að eilifu hér,
það er endanleg laúsn okkar sjálfstæðismáls.
Kolskeggur.
Idi Amin og
Eþiópia sitja
hjá
ADDIS ABABA 12/1 — Svo er að
sjá aö Einingarsamtök Afríku
(OAU) ætli aö kiofna i tvo jafn-
stóra parta út af afstööunni tii
Angólu.
22 riki, þar á meðal Sambia,
standa að tillögu þess efnis að all-
ir erlendir herir skuli kallaðir frá
Angólu og mynduð rikisstjórn,
sem allar stjórnmálahreyfing-
arnar þrjár, sem nú berjast um
völdin, eigi aðild að. önnur 22
riki, með Nigeriu i broddi fylking-
ar, standa hinsvegar að tillögu
um stjórn MPLA i Angólu sé við-
urkennd sem hin eina löglega
rikisstjórn Angólu. Tvö riki,
Eþiópia og Úganda, hafa enn ekki
tekið ákveðna afstöðu.
Fulltrúar MPLA á ráðstefnunni
um Angólumál i Addis Ababa
höfðu þangað með sér þrjá suður-
afrikumenn og tvo portúgala,
sem þeirra menn handtóku i bar-
dögum i Angólu. Voru þeir sýndir
fréttamönnum til sönnunar fyrir
þátttöku Suður-Afriku og portú-
galskra málaliða i bardögunum
með FNLA og UNITA.
® ÚTBOÐ
Tilboð óskast frá innlendum framleiðend-
um i smiði á 825 stk. af götuljósastólpum
fyrir Rafmagnsveitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Frikirkjuvegi 3, gegn 5.000,- kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðju-
daginn 10. febrúar 1976, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 < , r
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóövili'mn óskar eftir
blaöberum i eftirtalin
hverfi
Sogamýri
Safamýri
Langagerði
Fossvog
Sólheima
Höfðahverfi
Kaplaskjól
Mela
Tómasarhaga
Alftamýri
Seltjarnarnes
Vinsamlega hafið sam-
band við afgreiðsluna
simi 17500.
Öryggisráði S. Þ.
hótað hörðu
New York 13/1 reuter — öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna hélt i
dag áfram umræðum um málefni
landanna fyrir botni Miðjarðar-
hafs þrátt fyrir tvær sprengjutil-
raunir og þrjár tilkynningar um
sprengjur sem reyndust vera
gabb.
Þrjár sprengjur fundust i gær-
dag áður en þær sprungu og i gær-
kvöldi var tilkynnt um sprengju
við aðsetur sendinefndar Irak.
Voru allar sprengjurnar gerðar
óvirkar. öryggiseftirlit var allt
aukið um allan helming i dag,
ströng leit er gerð i öllum pósti að
bréfasprengjum og húsakynni Sþ
verða lokuð almenningi meðan á
viðræðunum stendur en búist er
við að þær standi i 10—14 daga.
Samtök sem nefna sig Vopnaða
andspyrnusveit gyðinga lýstu sig
ábyrg fyrir sprengjutilræðunum.
I gær samþykkti öryggisráðið
að veita samtökum palestinu-
araba, PLO, aðild að viðræðunum
eins og um venjulegt aðildarriki
Sþ væri að ræða. Þetta var sam-
þykkt með 11 atkvæðum gegn at-
kvæði Bandarikjanna en bretar,
frakkar og italir sátu hjá. Moyni-
han fulltrúi Bandarikjanna mót-
mælti tillögunni harðlega og kvað
hana draga mjög úr völdum og á-
hrifum ráðsins. Hann gat þó ekki
beitt neitunarvaldi þvi aðeins var
um dagskrártillögu að ræða.
Enginn fundur var i ráðinu i
morgun en fulltrúar ræddu eins-
lega tillögur að ályktunum sem
ganga til móts við kröfur PLO um
viðurkenningu á réttmætum
þjóðarréttindum palestinuaraba.
Fundur átti að hefjast aftur með
kvöldinu. Búist er við að Banda-
rikin beiti neitunarvaldi sinu til
að fella allar tillögur sem breytt
gætu þeim forsendum sem verið
hafa fyrir umræðum um
Palestinumálið innan vébanda Sþ
til þessa.
Sjómenn í úti-
stöðum við lög
reglu á Spáni
í byrjun dcsembcr sl. ientu
tveir islenskir sjómenn I úti-
stöðuin við spánska lög-
regluþjóna á eyjunni Gran
Kanari, en þar kom skip
þeirra, óskar Iialldórsson, við á
heimleið frá brislingsveiðum
við Afriku. Þrátt fyrir itrekaðar
tilraunir útgerðaraðiia bátsins
fengust mennirnir ekki látnir^
lausir og voru þó spánskir lög-
fræðingar fengnir til að ganga i
rnálið.
Aðdragandi þessa máls var
sá, að þessir ungu sjómenn, 17
ára og 25 ára, fóru i land á eyj-
unni að skemmta sér. Lögregl-
an fékk kæru á þá fyrir að
hnupla buxum einhversstaðar,
en þegar lögreglan ætlaði að
rannsaka málið snérust land-
arnir hinir verstu við og börðu
niður tvo lögregluþjóna. bá var
auðvitað ekki að sökum að
spyrja, þeim var umsvifalaust
varpað i fangelsi. bar i landi er
þaö alvarlegra mál að berja
niður lögregluþjón en hér, þótt
nóg þyki.
Nú er þar til að taka að
útgerðaraðilar bátsins fengu i
lið með sér spánskan lögfræðing
og aðra mektarmenn þar syðra
að reyna að losa piltana úr
prisundinni. Gekk hvorki né rak
Mörg hús
Framhald af bls. 1
húsum og var unnið að því i gær
að negla fyrir þá glugga sem
brotnað höfðu, enda fór veður
versnandi.
Rafmagn var enn á kaupfélags-
húsinu og þar ætluðu menn að
hafast við, meðan unnið er að
bráðabyrgðaviðgerð á þeim hús-
um sem skemmdust. bá fór raf-
magn heldur ekki af frystihúsinu
en þar eru geymd miljónatuga
verðmæti i frystiklefum. bað gef-
ur hinsvegar augaleið að ekki er
hægt að búa i þeim húsum sem
litið eða ekkert skemmdust hafi
rafmagn farið af þeim.
Simasambandslaust var við
Kópasker fyrst eftir hörmung-
arnar og var þá fyrirhugað að
skuttogarinn Baldur, sem er i
umsjá landhelgisgæslunnar fari
til Kópaskers og verði með neyð-
artalstöðvarsamband fyrir þorp-
ið, þar til simasamband er komið
á aftur.
Suðuraf Kópaskeri eru tvær
brýr sem skemmdust allnokkuð i
jarðskjálftanum. bær eru þó fær-
ar, en taldar varasamar. bær eru
við bæina Snartarstaði og ós.
bess má að lokum geta aö ibúar
á Kópaskeri eru um 130 og hús á
staðnum munu vera á milli 30 og
40 að öllu meðtöldu.
lengi vel, en þó kom þar að yfir-
völd linuðust og horfði vel i mál-
inu.
En þá tóku kauðarsig til og
geröu tilraun til að strjúka úr
fangelsinu og máttu þakka sin-
um sæla fyrir að vera ekki
skotnir á þaki fangelsisins við
flóttatilraun sina. Eftir þessa
flóttatilraun hljóp allt i baklás
aftur og ekki við það komandi
að sleppa þeim.
Nú er málið komið i hendur
islensks lögfræðings og hefur
hann snúið sér til utanrikisráðu-
neytisins með beiðni um aðstoð
sem auðvitað verður veitt. En
hvernig það gengur að fá pilta
Iausa er önnur saga. Spánn er
fasistariki og það þykir ekki til-
tökumái að menn sitji misseri
eða tvö i fangelsi án þess að mál
þeirra sé tekið fyrir. —S.dór.
Byrlega blœs
fyrir Isl. aðal-
verktökum
Islenskir Aðalverktakar,
hermangsfyrirtæki framsóknar
og ihalds, hafa i hyggju að reisa
stórhýsi við Höfðabakka á
Ártúnshöföa fyrir hvorki meira
né minna en hálfan miljarð
króna, eða fimm hundruð miljón-
ir. Ekki munu þeir hermangs-
menn hafa ákveöið til hvers þeir
ætla að nota húsið!
Aðalverktakar hafa þegar
eignast húsakynni hér i borginni,
húsnæði það, sem Tækniskólinn
nú er i. Hið nýja húsnæði, enn
óbyggða, á að vera upp á 7 hæðir,
og hver hæð 885 fermetrar. Gunn-
ur hússins hefur þegar verið
steyptur, en framkvæmdir hafa
stöðvast i bili, vegna einhverrar
tregðu á svörum við einu eða
öðru, sem verktakarnir vænta frá
Reykjavikurborg.
1 viðtali við Dagblaðið, segir
Thór Ó. Thors, framkv.stj. Aðal-
verktaka, að þeir verktakamenn
vissu enn ekki „hvernig húsið ætti
að lita út, né til hvers það yrði
notað.” —úþ
CIA
Framhald af bls. 16
Talsmaður þess, Robert Funseth,
sagði að slikar nafnabirtingar
hvettu „öfgamenn og geðsjúkl-
inga” til árása á einstaka dipló-
mata. Kvað Funseth bandarisku
stjórnina hafa haft samband við
frönsku stjórnina vegna þessa
máls. Ekki varð hins vegar ljóst á
máli hans hvort stjórnin hefði
reynt að koma i veg fyrir birtingu
nafnalistans.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
CARMEN
i kvöld kl. 20
föstudag kl. 20
sunnudag kl. 20
SPORVAGNINN GIRND
fimmtudag kl. 20
GÓÐA SALIN 1 SESÚAN
laugardag kl. 20
Litla sviðið
INUK
fimmtudag kl. 20.30
Miðasala 13,15-20.
Simi 1-1200.
^LEKFÉLM^
pfREYK)AVÍKDló|C
SAUMASTOFAN
i kvöld kl. 20,30.
EQUUS
fimmtudag kl. 20,30.
6. sýn. Gul kort gilda.
SKJALDHAMRAR
föstudag kl. 20,30.
EQUUS
laugardag kl. 20,30.
7. sýn. Græn kort gilda.
SAUMASTOFAN
sunnudag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
þriðjudag kl. 20,30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-55-20.
Opið bréf
Framhald af bls. 7.
betta fyrirbæri skýrir máske
enn beturá hvaða leið stjórnarfar
vort er á yfirstandandi timum
hins mikla miðstjórnarvalds.
Feluleikur islenskra stjórnmála
og innilokunarhneigð stjórnmála-
manna okkar skapar vaxandi
hættuástand varðandi einræðis-
tilhneigingar i stjórnarfari
þjóðarinnar, einkum á sviði utan-
rikismála.
betta vegur að rótum lýðræðis-
ins i landinu.
Hvað heldur þú, utanrikisráð-
herra, að þjóðin mundi gefa þér
viðtækt umboð til viðræðna og
samningagerðar við breta, við al-
menna þjóðaratkvæðagreiðslu,
yrði til hennar stofnað vegna
landhelgismálsins?
Fullvist má telja, að þau yrðu
fá atkvæðin, sem þú fengir. Ef
stjórnmálamennirnir halda
áfram að loka sig inni með mikil-
vægustumál þjóðarinnar, —leika
sér að fjöreggi hennar og framtið
— án stuðnings frá fólkinu sjálfu
til lausnar aðsteðjandi vanda, þá
er mikið hættuástand framundan
i sjálfstæðismálum hinnar is-
lensku þjóðar.
Nú hefur þú fjöregg þjóðar
þinnar milli handa.
— Gættu þess fjöreggs vand-
iega, og glataðu þvi ekki af óvar-
kárni.
Virðingarfvllst
Hermóður Guðmundsson.
Happdrætti
Framhald af bls. 2.
miða um 876 milljónir kró'na og
gert er ráð fyrir þvi að heildar-
hagnaður happdrættisins hafi
verið um 180 milljónir. Hluti
hagnaðarins rennur i rikissjóð og
er þeim hluta eingöngu varið i
þágu byggirigarframkvæmda
fyrir rannsóknarstofnanir at-
vinnuveganna. Um 80% hagn-
aðarins renna til framkvæmda
Háskóla tslands, þ.e. til nýbygg-
inga, til viðhalds húsa, til lóða-
framkvæmda og viðhalds þeirra
til tækjakaupa og kaupa alls kyns
búnaðar i skólahúsnæðið.
í framkvæmdaáætlun há-
skólans fyrir næsta ár er gert ráð
fyrir 190 millj. kr. framlagi frá
Happdrætti H.I., en 55 millj. kr.
framlagi frá rikissj. Af nýbygg-
ingafé Háskóla tslands 1976—80
er áætlað að 54% fari til
framkvæmda á Landspitalalóð en
46% til framkvæmda á Háskóla-
lóðinni.
bess má að lokum geta að
miðaverð hækkar nú úr 300 i 400
krónur. GFr.
Stórviðri
Framhald af bls. 3.
frostmark og reiknaði hann með
þvi að frostleysa yrði hér sunnan-
lands i nótt. Vindátt yrði austan
norðaustan, en við suðurströnd-
ina yrði suðvestanátt með slyddu-
éljum og siðan snjóéljum.
—úþ