Þjóðviljinn - 20.01.1976, Síða 3
Þriðjudagur 20. janúar 1976. þJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Kelduhverfi:
Jarðskjálftar með
minnsta móti í gær
Að sögn Björns Karlssonar i
Hafrafellstungu voru jarð-
skjálftar með minnsta móti i
Kelduhverfi og Axarfirði i gær-
dag. Um helgina var nokkuð um
snarpa kippi, en rétt að menn
fundu hreyfingu i gær.
Fólk það sem flúði heimili sin
að Ærlækjarseli, Skógum og Núpi
á dögunum er nú allt komið heim.
Björn sagði að vatnsmagnið i
kilnum sem myndaðist við Skóga
væri með ólikindum. Búið er að
grafa framrás til sjávar, þannig
að húsin liggja ekki lengur undir
skemmdum vegna vatnsins, en
svo mikið vatn er þó i kilnum að
það liggur alltaf við að útúr hon-
um flæði inni húsin þrátt fyrir
framræsluna.
Björn sagði menn ósköp fegna
þvi að fá smá hvild, frá jarð-
skjálftunum eins og var i gær.
—S.dór
Loðnuverð ákveðið:
Lítið hærra
fyrra
en í
1 fyrrinótt var ákveðið loðnu-
verð frá þvi loðna barst fyrst á
land i ár þann 17. janúar og skal
það gilda til loka janúarmánaðar.
Er verðið krónur 3.50 fyrir kilóið
að viðbættum 10 aurum af hverju
kílói i loðnuflutningasjóð. Verð á
úrgangsloðnu frá frystihúsum
skal vera 10% lægra.
Verð þetta var ákveðið af
fulltrúum seljenda og af odda-
mánni gegn atkvæðum kaupenda,
þeas. bræðslueigenda. Létu kaup-
endur bóka eftir sér eftirfarandi:
,,Með þessari verðlagningu er
sýnt að margar verksmiðjur
muni ekki hafa vinnslutekjur
fyrir breytilegum kostnaði miðað
við fyrri reynslutölur um nýtingu
og miðað við þær sölur á loðnuaf-
urðum, sem þegar hafa farið
fram og mótmæla þvi harðlega
þessari verðákvörðun.”
1 yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur
Daviðsson, sem var oddamaður
nefndarinnar, Páll Guðmundsson
og Tryggvi Helgason af hálfu
loðnuseljenda og Guðmundur Kr.
Jónsson og Jón Reynir Magnús-
son af hálfu loðnukaupenda.
Til samanburðar má geta þess,
að janúarverð á loðnu i fyrra var
2,80 kr. pr. kg. Sé það verð
reiknað til þess gengis, sem nú er
á bandarikjadollar, kemur i ljós,
að það samsvarar 3,35 krónum
fyrir hvert kiló. Hefur þvi raun-
verulegt verö á loðnu hækkað um
15 aura kilóið.
—úþ
Samninga'
fundir
Samninganefndir Alþýðusam-
bands Islands og atvinnurekenda
sátu á samningafundi frá kl. 14 i
gær og lauk fundinum kl. 19. Ann-
ar fundur hefur verið boðaður kl.
14 i dag.
Stjórn Blaðamanna-
félags íslands hefur sent
lögreglustjóra bréf, þar
sem því er lýst yfir, að
hún Ifti það mjög alvar-
legum augum, að lögregl-
an hindraði einn af blaða-
mönnum Þjóðviljans í
starfi 15. þessa mánaðar.
Jafnframt hefur stjórnin
óskað eftir viðræðum við
lögreglustjóra um sam-
starf lögreglu og blaða-
manna. Bréf Blaða-
mannafélagsins fer hér á
eftir:
„Hr. lögreglustjóri Sigurjón
Sigurðsson.
Stjórn Blaðamannafélags
Islands hefur borist bréf frá
blaöamönnum á ritstjórn
Þjóðviljans vegna þess atburð-
ar sem átti sér stað 15. janúar
Stjórn
Blaðamanna-
félags íslands:
Lögreglan að brjóta upp hurðir.a að Garðastræti 12.
Mjög alvarlegt mál
1976, þegar einum af blaða-
mönnum Þjóðviljans var visað
frá, þar sem hann var að taka
myndir af þeim atburðum, er
áttu sér stað á skrifstofu Varð
bergs.
Stjórn Blaðamannafélags
Islands litur hvert það atvik
mjög alvarlegum augum, þar
sem komið er i veg fyrir á einn
eða annan hátt að blaðamenn
geti sinnt störfum sinum með
eðlilegum hætti.
Stjórn félagsins gerir sér
grein fyrir þvi að i ört stækkandi
þjóðfélagi er ekki lengur hægt
Sendir
lögreglustjóra
bréf vegna
framkomu
lögreglunnar við
blaðamann
Þjóðviljans
að ætlast til þess að lögreglu-
þjónar eða aðrir þekki það fólk i
sjón. sem starfar á fjölmiðlun-
um, og vill stjórnin þvi benda á
að Blaðamannafélag Islands
gefur út passa til félagsmanna
sinna og er ætlast til að þeir séu
sýndir þar sem á þarf að halda.
Ef það mætti verða til þess að
koma i veg fyrir að slik atvik
endurtaki sig, þá er stjórn
félagsins reiðubúin að ræða
þessi mál við yður við fyrsta
tækifæri.
Fyrir hönd stjórnar B.l.
Bragi Guðniundsson."
Almennur fundur um landhelgismál á Neskaupstaö:
við
Samningaviðræður
breta eru útilokaðar
i fyrradag gekkst
Alþýðubandalagiö í
Neskaupstaö fyrir al-
mennum umræðufundi um
landhelgismálið og flutti
Lúðvik Jósepsson þar ýtar-
legt framsöguerindi. Um
sjötiu manns sóttu fund-
inn, þar á meðal allmargir
sjómenn. i fundarlok var
samþykkt einróma svo-
felld tillaga um landhelgis-
málið.
„Almennur fundur um land-
helgismál, haldinn i Neskaupstað
á vegum Alþýðubandalagsins 18.
janúar ’76, telur aðekki eigi að ljá
máls á neinum samningaviðræð-
um við breta eftir ofbeldisaðgerð-
ir þeirra innan islenskrar fisk-
veiðilögsögu siðustu mánuði.
Nýjustu upplýsingar fiskifræð-
inga, innlendra sam erlendra
Kópasker:
Fólk
fyrr en
fer ekki heim
vatnið kemur
Að sögn þeirra Árna Itagnars-
sonar og Auðuns Benedikts
sonar á Kópaskeri, er unn
ið að því að konia vatnslögn
þorpsins i lag og er allt efni til
hennar koniið norður. Það ligg-
ur Ijóst fyrir að fólk kcmur ekki
lieim aftur fyrr en vatnslögin er
komin i lag, enda ekki fýsilegt
að búa i vatnslausu þorpinu.
Vegna frosts I jörðu verður að
leggja vatnslögina ofan jarðar
og þvi verður að vera sírcnnsli i
plaströrinu dag og nótt svo ekki
frjósi. Nú vinnur 15 manna
hjálparflokkur úr Kelduhverfi
og öxarfirði að viðgerðum á
vatnslöginni á Kópaskeri og frá
Akureyri er væntanleg vararaf-
stöð til að halda vatnsdælunni
gangandi dag og nótt en loforð
hefur verið gefið fyrir þvi að
stærri diselrafstöð vcrði send
norður.
Bráðabirgðaviðgerð hefur
farið fram á húsunum sem
skemmdust og munu þau öll
nema eitt vera ibúðarhæf,
þ.e.a.s. það þétt að hægt er að
búa i þeim.
Það sem menn óttast nú mest
að skolplögn þorpsins hafi
gengið úr lagi, en það er ekki
hægt að kanna fyrr en vatn er
komið aftur i þorpið. Ljóst er að
flestar ef ekki allar varanlegar
viðgerðir á Kópaskeri hvaða
nafni sem þær nefnast verða að
biða vorsins.
Um helgina komu nokkrir
framámenn úr Reykjavik norð-
ur á Kópasker með Matthiasi
Bjarnason ráðherra i broddi
fylkingar. Menn nyrðra eru afar
óhressir með framkomu
þessara manna, sem höfðu að-
eins tima til að fá sér að borða
Unnið að bráða-
birgðaviðgerð á
vatnslögninni
— óttast að
skolplagnir séu
úr lagi gengnar
engátu ekki gefið sér tima til að
ræða við heimamenn, ekki einu
sinni fulltrúana i almanna-
varnarnefndinni. Þetta fannst
heimamönnum furðulegt og eru
vægast sagt reiðir þessum stór-
mennum sem flugu á Kópasker
til að fá sér að borða.
—S.dór
sýna ótvirætt, að ekkert er aflögu
fyrir útlendinga á miðunum við
landið og alltof langt hefur þegar
verið gengið með samningum við
vestur-þjóðverja til tveggja ára.
Hvert tonn sem samið er um lil
útlendinga, jafnt af þorski sem
öðrum fisktegundum, rýrir hlut
okkar og valkosti og bitnar
beinlinis á lifskjörum alþýðu. nú
og á næstu árum.
Það væru hrapalleg afglöp og
svik við islenskan málstað. að
ætla að kaupa bresku herskipin út
fyrir 200 milur með nauðungar-
samningum um afla bretum til
handa.
Islensk stjórnvöld hljóta að
gera þá lágmarkskröfu til
Atlantshafsbandalagsins og
bandarisks herliðs á Islandi að
sjá til þess að bretar hætti hern-
aði sinum gegn okkur skilyrðis-
laust. ella hljótum við að lita á
NATÓ og herinn sem samsek
breska árásarliöinu.
Jafnframt þarf það að vera
ljóst, að það er ekki i verkahring
NATÓ að skipta sér af islenskum
innanrikismálum. og islendingar
eru einfærir um að gera upp sin
mál við breta og aðrar þjóðir.
þegar hernaðarihlutun er úr sög-
unni.
Fundurinn gerir þá kröfu til
islenskra stjórnvalda að þau taki
tillit til skýlauss almenningsálits
og lifshagsmuna þjóðarinnar. og
hefji ekkert baktjaldamakk um
sanininga við þá, sem sist hafa tíl
þess unnið."