Þjóðviljinn - 28.03.1976, Qupperneq 13
Sunnudagur 28. mars 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
<
Gisela May
kemur
á lista-
hátíö
Austurþýska söngkonan Gisela
May verður gestur á Listahátið i
sumar, en hún er heimskunn fyrir
túlkun sina á söngvum hins mikla
leikhúsmeistara Bertolts
Brechts.
Gisela May. sem einnig er leik-
kona, hefur farið með Brecht-
söngva um fjölda evrópskra stór-
borga og hlotið frábærar viðtök-
ur. Hans Eisler, tónskáldið sem
hefur ásamt Paul Dessau skrifað
mestalla tónlist viðtexta Brechts,
uppgötvaði hæfileika Giselu May
til Brechttúlkunar 1957: hún söng
öðruvisi en vant var að syngja i
óperum og þá er fariö var með
þjóölög.
Söngvar þeir sem Brecht skaut
inn i leikrit sin eru yfirleitt póli-
tisks eðlis, ætlaðir til þess að
vekja upp skilning á samhengi i
samfélagi sem kannski ekki ligg-
ur i augum uppi, útlegging með
nýjum hætti á þeim tiðindum sem
eru að gerast á sviðinu. Til að
túlka þessi ljóð með áhrifasterk-
um hætti er krafist fulls trúnaðar
við áform bæði skálds og tón-
skálda, sem nota bene sömdu
músik sina i beinni og náinni
samvinnu við skáldið. Þessum
kröfum er Gisela May sögð full-
nægja með ágætum: túlkun henn-
ar er nákvæmnisleg, þaulhugsuð
— hver nóta, hvert orð kemst vel
og ótvirætt til skila. Rödd hennar
er sterk og glæsileg, agi og yfir-
...fer meö texta eftir Brecht
vegun einkenna túlkun hennar.
sem engu er jafnfjarlæg og til-
finningavellu
Hans Eisler og Paul Dessau
eru báðir þekktir og sérstæðir
fulltrúar nútimatónlistar.
Landsbankinn, Seölabankinn og Búnaöarbankinn i llafnarstræli.