Þjóðviljinn - 28.03.1976, Side 15
Sunnudagur 28. mars 1976 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 15
Umsjón:
Magnús
Rafnsson og
Þröstur
Haraldsson
Árið 1975 var það blóm-
legasta sem um getur í ís-
lenskri plötuútgáfu. Alls
komu út rúmlega 20
stórar plötur, og það
merkilega gerðist að
allar báru sig; markað-
urinn tók þessu flóði eins
og ekkert væri. Augljós-
asta ástæðan fyrir
þessari miklu aukningu
er vitaskuld tilkoma
stúdíósins í Hafnarfirði,
Hljóðrita h.f. Hún gerir
alla plötugerð mun
öruggari en þegar tón-
listarmenn þurftu að fara
úr landi til að taka upp.
1 fyrra kom nýtt útgáfufyrir-
tæki fram á sjónarsviðið og
haslaði sér völl. Þar er átt við
Steina hf. Framkvæmdastjóri
þess er Steinar Berg, og fyrir
skömmu fengu Klásúlur hann
til að gera lesendum sinum
grein fyrir þeim aðstæöum sem
islensk plötuútgáfa býr viö.
Fyrst var hann spiirður hvað
kostaði að gera eina breiðskifu.
þjóðanna. Hana stendur til aö
taka upp „live” i stúdiói.
Væntanlega tekur upptakan
ekki nema þrjú kvöld eða svona
10-15 tima og hljóðblöndunin 20-
30 tima og þau nota enga auka-
menn þannig að sú plata kemur
til með að verða ódýr.
Hvernig
veröur
RÆTT VIÐ
STEINAR
BERG UM
ÍSLENSKA
PLÖTU-
ÚTGÁFU OG
STARFSEMI
STEINA HF.
JÓLAMARKAÐURINN
Hvað kostar plata? v
—bað er ákaflega misjafnt.
Sennilega er best að skýra það
með þvi að taka dæmi. Ég get
nefnt tvær plötur sem við erum
að setja á markað um þessar
mundir. önnur þeirra er með
Einari Vilberg, Hann kom i
stúdióið með grunnana æfða og
fullt af hugmyndum. 'Síðan
þurfti aö fá til liðs við hann
nokkra atvinnuspilara sem æfðu
lögin hans i stúdióinu. Þeirra
laun námu hátt á fjórða hundrað
þúsunda og þegar laun upptöku-
stjóra eru reiknuð meö var þessi
upphæð komin yfir hálfa miljón.
I upptökuna fóru 120 klukku-
stundir I stúdiói og 41 stund i
hljóöblöndun. Timinn i stúdiói
kostar 6.800 kr. i dagvinnu og
7.800 i næturvinnu, en upptakan
hjá Einari fór að 80 hundraðs-
hlutum fram i næturvinnu. Að
þessu öllu reiknuðu er
kostnaðurinn kominn i uþb.
1.700 þúsund krónur. Þá átti
eftir að senda plötuna út i skurö
oþh., prenta umslag og pakka
henni inn i plast. 8% fara i
STEF-gjald.og þegar allt þetta
er lagt saman reiknast mér til
að upphæðin sé komin upp i 2.2-3
miljónir sem er kostnaðurinn
við að koma fyrstu 1.500 ein-
tökunum á markað.
Hins vegar er plata með B.G.
og Ingibjörgu. Þau komu með
allt sitt efni fullæft og þurftu
sáralitið af aukamönnum. Laun
til aukamanna, þar með töldum
upptökustjóra, námu uþb. 200
þúsund krónum. Stúdiótimarnir
uröu ekki nema um 100, þannig
að þessir tveir stóru liðir eru
mun minni en á plötu Einars.
Munurinn er 7-800 þúsund.
Það má einnig nefna þriðju
plötuna sem er með Spilverki
næst?
— En hvað með dreifingar-
kostnaðinn?
—Otgáfan reiknar sér 10% af
heildsöluverði i dreifingar-
kostnað. Þetta er sama hlutfall
og hjá öllum öðrum út-
gefendum. Heildsöluverðið er
svo 1.200 krónur en út úr búð
kostar platan 1.980- kr.
Verslunin leggur 38% ofan á
heildsöluveröið og svo bætast
við 20% i söluskatt.
—Hvað þarf td. plata Einars
að seljast vel til að bera sig?
—Fyrstu 1.500 eintökin nægja
ekki fyrir kostnaði,en sennilega
myndu tvö þúsund gera það. Þá
hefur Einar fengið sin
höfundarlaun. en að öðru leyti
fær hvorki hann né útgáfan neitt
fyrir slna vinnu.
Mitt hlutverk aö finna
listamenn
—Þarf ekki mikið fjármagn til
þess að hefja útgáfustarfsemi?
—Jú, það þarf fjandi mikla
peninga. Sennilega myndu
listamenn ekki fá sér út-
gefendur ef svo væri ekki. Og
þó. Ég veit ekki hvort þeir væru
tilbúnir að standa i öllum þeim
snúningum sem þarf til að koma
plötum á markað. Hvað mig
áhrærir fékk ég stuðning við
útgáfu Stuðmannaplötunnar
sem varsú fyrsta seméggafút.
Siðan hefur þetta staðið undir
sér sjálft. Reyndar var það
alger tilviljun að églentii þessu.
Það æxlaðist svona með Stuð-
menn og siðan kom Spilverkið.
Þá þurfti ég að gera upp við mig
Já&.
1 3
1
V i 1
hvort ég færi út í þetta af alvöru
eða héldi áfram að vinna i Faco.
—Hvernig er fyrirtækið upp-
byggt?
—Það er eins og hvert §nnað
hlutafélag. Þar er enginn hlut-
hafi mikið stærri en annar.
—Hver tekur ákvarðanir um
hvað skal gefið út?
—Það geri ég i flestum til-
vikum. Fyrirtækinu er skipt
upp i valdsvið og mitt hlutverk
sem framkvæmdastjóra er að
vera á höttunum eftir lista-
mönnum og gera við þá
samninga. Ég er vitanlega
opinn fyrir tillögum annarra
hluthafa.en ef fram kemur til-
laga sem ég er andvigur er
málið rætt til hlitar. Annars
hefur ekki komið til neins
ágreinings á þessu sviði ennþá.
Ég hef ekki gert fastan
samning við neina listamenn,
það hefur aðeins verið samið
um einstakar plötur. Við
byggjum þetta upp á góðum
persónulegum samböndum við
listamennina og ég er ánægður
með þá sem við höfum i dag. Ég
held lika að það sé gagnkvæmt,
þeir fara held ég ekki neitt
annað fyrr en þeir hafa þraut-
reynt fyrir sér hjá okkur.
útvarpið hefur áhrif
—Reynir þú að hafa áhrif á
hvað listamennirnir setja á
plöturnar?
—Nei, eftir að útgáfa hefur
verið ákveðin ráða þeir algjör-
lega hvað þeir setja á plötu. Ég
er enginn stúdiómaður en ef
mér likar við þá tónlist sem
listamennirnir hafa upp á að
bjóða ráða þeir alveg hvernig
þeir gera það.
—Hvaða gæöamat ræður þ'vi
hvað er gefið út af islenskum
plötum?
—Það er td. staöreynd að
plötur eru oft gerðar fyrir út-
varp, enda leikur útvarpið ekki
alla tónlist. Einar Vilberg og
Spilverkið fá þar varla inni
nema i óskalagaþáttum vegna
þess að þeir syngja á ensku. En
útvarpið er samt okkar lang-
sterkasti fjölmiðill. Það má
nefna dæmi af plötu Randvers.
Hún seldist Htið sem ekkert til
að byrja með en sVo komst hún i
óskalagaþættina og þá fór hún
aö seljast, seldist mjög vel um
jólin.
Ég reyni aö taka ekki mið af
útvarpinu, heldur læt ég
persónulegan smekk ráða. En
maður kemst ekki hjá þvi að
takamiðaf sölugildi platnanna.
Maöur gefur einfaldlega ekki út
plötu sem ekki selst. En það
þarf ekki að þýða að maður gefi
ekki út hluti sem ekki lita út sem
söluvara. Það voru td. margir
svartsýnir á aö plata Spilverks-
ins seldist. En ég var hrifinn af
þessari tónlist og hélt að
markaður væri fyrir hana sem
svo reyndist vera. ÉgheldJika
að það sé góður markaður fyrir
tónlist eins og þá sem Þokkabót
og Diabolis in Musica leika.
En það er staðreynd að við
þurfum að gefa út plötur sem
Hlerað og
slúðrað
Eins og fram kemur I viðtai-
inu við Steinar Berg hér á sið-
unni er fyrirtæki hans, Steinar
hf„ að gefa út tvær nýjar plötur
um þessar mundir og vildi svo
til að þær voru einmitt kynntar
blaöamönnum i vikunni sem
lcið.
önnur þeirra er með Einari
Vilberg og nefnist Starlight. A
henni eru eingöngu ný frum-
samin lög eftir Einar og textar
sömuleiðis, enskir. Með Einari
er mikið mannval sem sér um
undirleik og raddanir. Þetta
fólk er Ásgeir Öskarsson, Pálmi
Gunnarsson, Lárus Grimsson,
Jakob Magnússon, Magnús
Kjartansson, Þórður Arnason,
Gunnar Þórðarson, Spilverk
þjóðanna, Helgi Guðmundsson
og Hannes Jón Hannesson. Upp-
tökustjóri var Baldur Már Arn-
grimsson en upptaka fór fram á
timabilinu nóvember-janúar sl.
Hin platan sem er i þann veg-
inn að koma á markað er með
vestfirsku hljómsveitinni B.G.
og Ingibjörgu. bessi sveit er
dæmigerð landsbyggðarhljóm-
sveit og sú vinsælasta á böllum
á Vestur- og Norðurlandi til
Skagafjarðar; þar fyrir austan
tekur við áhrifasvæði Ingimars
Eydal.
Lögin á plötunni eru öll af
ballprógrammi sveitarinnar.
Nokkur þeirra eru erlend með
islenskum textum en hin frum-
samin. Eru þau af ýmsu tagi og
skila fljótum hagnaði meðan
verið er að koma fótum undir
fyrirtækið. Við getum td. ekki
gefið út karlakóra oþh. tónlist
sem hreyfist hægt en er kannski
lengi i sölu; ekki eins og er'.
Markaöurinn hefur stór-
aukist
—Nú hefur plötusala aukist
mjög mikið hér á landi að
undanförnu. Væri þessi mikla
sala möguleg ef jólamarkaður-
inn væri ekki fyrir hendi?
—Já, ég held það. Það má td.
benda á þær plötur sem seldust
einna mest á siðasta ári, Stuð-
menn og Lónli blú bojs, þær
komu báðar út um mitt ár. En
þótt útgáfan væri mikil i fyrra
held ég að enginn hafi farið illa
út úr henni. Við töpuðum i það
minnsta ekki á neinni plötu.
Og nú er útlit fyrir að útgáfan
aukistenn meir á þessu ári. Við
ætlum að gefa út 5 plötur i mars
og april og fyrir mitt sumar
verða þær orðnar átta. Gunnar
bórðarson verður lika umsvifa-
mikill. svo sennilega verða
plöturnar orðnar fimmtán i
sumar. Og hvernig verður þá
jólamarkaðurinn næst?
—Hvernig hefur salan á
plötum Steina gengið?
—Staðan núna er sú að
Stuömenn hafa selst i 7.700-7.800
eintökum, Spilverkið i réttum 5
þúsund, Ingimar Eydal i 3.400-
3.500 og Þokkabót i 2.000-2.500
eintökum. Stuðmannaplatan
hefur gengið mjög vel miöað við
það að hún var ekki til i 2
mánuði i haust. Hún hreyfist
enn, einkum út á landi, og sama
er að segja um Ingimar Eydal.
Það má nefna það að plata Spil-
verksins seldist að 90-95
hundraðshlutum i Reykjavik og
nágrenni en sama og ekkert á
landsbyggðinni, enda hafa þau
litið spilað úti á landi
—Hvaða áhrif hefur stúdióið i
Hafnarfirði haft á plötuútgáfu?
—Það hefur vitanlega breytt
miklu. Aður rikti mikið
öryggisleysi i þessum bransa.
En þaö hefur kannski ekki orðið
til þess að plötur verði ódýrari i
gerð. Nú leyfa menn sér meiri
munað i stúdiói en þegar þeir
þurftu að fara út. James Taylor
gerði sina fyrstu plötu á 45
minútum en nú gefa menn sér
betri tima og æfa jafnvel lögin i
stúdióinu. Nú er fyrirsjáanlegt
að aðstaðan á eftir að batna enn
meir þvi stefnt er að þvi að bæta
amk. átta rásum við þær átta
sem fyrir eru i aprillok og 24
rásir eru ekki langt undan. Þá
er stúdióið orðið sambærilegt
við það besta sem þekkist
erlendis. —ÞH/MR
reynt að ná til margra ólikra
hópa. Má þvi búast við að vest-
firskum danshúsagestum hlýni
um hjartaræturnar þegar lögin
fara að hljóma i óskalagaþátt-
unum.
Gunnar Þórbarson aðstoðar
B.G. og Ingibjörgu i einu lagi og
Ragnar Sigurjónsson trommu-
leikari i nokkrum. Stjórn upp-
töku annaðist Magnús Kjart-
ansson.