Þjóðviljinn - 08.04.1976, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 8. april 1976. ÞJÓDVILJINN — SIDA 5
af eiiendum vettvangí
Ný pólitísk kynslóð að vaxa
úr grasi í Frakklandi?
í Newsweek29. mars 1976 var
birt viðtal, sem einn kunnasti
blaðamaður þess, Edward
Behr, átti við Francois Mitter-
and, leiðtoga franskra jafnaðar-
manna. Viðtalið fer hér á eftir,
lauslega þýtt og litið eitt stytt.
Biaðamaðurinn: Kosningar til
fylkisstjórna eru nýlega afstað-
nar, sveitastjórnarkosningar
verða 1977 og þingkosningar
1978. Segja má, aðekki sjái fyrir
enda kosningabaráttunnar, sem
hafin er. Finnst yður það ekki?
Mitterand: Sú er raun á. I
Frakklandi er hafin kosninga-
barátta, sem yfir mun standa
næstu tvö ár.
Biaðamaðurinn: Er það heppi-
legt?
Mitterand: Mér finnst mér vera
æðimargt á höndum. En ég átti
ekki hlut að timasetningu kosn-
inganna né að frönsku kosn-
ingalögunum.
Blaðamaðurinn: „Kosningar án
áhættu” voru nýafstöðnu kosn-
ingarnar til fylkisstjórna kall-
aðar, en i þeim unnu jafnaðar-
menn mjög á. Þær þykja hafa
litil áhrif á landsmálin. Litið þér
svo á?
Mitterand: Að nokkru marki.
Engar mikils háttar breytingar
hljótast af þeim.Ahrifamiklir
staðarmenn, ihaldssamir menn,
mega sin að jafnaði meira i slik-
um kosningum heldur en i þing-
kosningum, svo að hægri flokk-
ar standa tiltölulega vel að vigi i
þeim. Eitt vegur annað upp.
Blaðamaðurinn: Að þessu sinni
máttu áhrifamiklir staðarmenn
sin litils.
Mitterand: Kosningarnar til
fylkisstjórna sýndu, að róttækar
breytingar hafa átt sér stað.
Kosningarnar báru þvi vitni, að
ný pólitisk kynslóð er vaxin úr
grasi i Frakklandi. A ævi minni
hef ég aðeins tvisvar áður orðið
ásjáandi slikra umskipta: 1
fyrra sinnið sumarið 1944, þegar
Frakkland var leyst úr viðjum
hernámsins: i siðara sinnið
1958, þegar „önnur kynslóð”
gaullista hóf de Gaulle til valda
á ný.
Blaðamaðurinn: Er ný kynslóð
lika komin fram á sjónarsviðið i
stjórnarflokkunum?
Mitterand: Minna ber á þvi.
Það getur verið ástæða þess,
hve vel okkur gekk. t raun réttri
hefur ný pólitisk kynslóð hafist
handa. Ef þér rennið augum yfir
þá liðlega 200 nýju fylkisstjórn-
armenn, sem jafnaðarmenn
fengu kjörna, munuð þér sjá, að
margir þeirra konur og karlar,
eru innan 35 ára aldurs. Og það
er stutt siðan margir þeirra
hófu afskipti af stjórnmálum.
Þetta er nýlunda i Frakklandi.
Blaðamaðurinn: Hver verður
niðurstaða þingkosninganna
1978? Verður stjórnarkreppa, ef
vinstri menn hljóta meirihluta á
þjóðþinginu?
Mitterand: t stjórnarskránni er
hvergi gert ráð fyrir aö sú staða
komi upp, að um tvo gagnstæða
lýðræðislega kjörna meirihluta
verði að ræða, hægri manna i
forsetakjöri, og vinstri manna i
þingkosningum,—Frá 1958 hafa
menn vanist þvi, að skoðana-
bræður forsetans séu i meiri-
hluta á þingi. Ef ég hefði verið
kjörinn forseti 1974, hefði min
beðið meirihluti hægri manna á
þingi. 1 kosningunum 1978 getur
svo farið, að vinstri menn hljóti
meirihluta á þingi þótt enn sitji
forseti, kjörinn af hægri mönn-
um. Þar eð stjórnarskráin kveð-
ur ekki á um lausn sliks vanda,
verður lausn hans komin undir
pólitiskri aðgát, mannviti og
góðum vilja til að torvelda ekki
framvindu mála i Frakklandi.
Biaðamaðurinn: Ef vinstri
menn vinna meirihluta i kosn
ingunum 1978, verðið þér út-
nefndur forsætisráðherra.
Mundi yður semja við Giscard
d’Estaing forseta?
Mitterand: Ef ég yrði útnefndur
forsætisráðherra, mundi mér
semja við hvern þann forseta,
sem gæfi mér kost á að fram-
kvæma kosningastefnuskrá
mina, þ.e. sameinginlega
stefnuskrá vinstri raanna.
Blaðamaöurinn: En gæfi ■
Giscard kost á þvi?
Mitterand: Þér verðið að spyrja
hann að þvi
Biaðamaðurinn:
Agreiningurinn á milii franskra
sósialista og kommúnista er
ekki lengur launungamál. Verð-
ur sá ágreiningur ykkur ekki
fjötur um fót i kosningabarátt-
unni?
Mitterand: Við jafnaðarmenn
stöndum ekki i ritdeilum. Ef
kommúnistar fara til þess, gera
þeir vinstri mönnum erfitt fyrir.
Blaðamaðurinn: Teljið þér enn,
að starfshæf verði i Frakklandi
nokkur sú rikisstjórn, sem
kommúnistar eiga sæti i?
Mitterand: 1 sameiginlegri
rikisstjórn vinstri manna er
gert ráð fyrir sameiginlegri rik-
isstjórn þeirra. Þegar stefnu-
skráin var samin, virtist mér
það eðlilegt og mér virðist það
enn.
Blaðamaðurinn: Og hefur ekk-
ert orðið til þess, siðan stefnu-
skráin var samin, að þér skipt-
uð um skoðun?
Mitterand: Nei , þvi að banda-
lag okkar hefur ekki verið rofið.
1 stjórnmálum ávinnst ekkert
án fyrirhafnar.
Blaðamaðurinn: Hvernig
haldið þér, að franskur almenn-
ingur bregðist viö rikisstjórn al-
þýðufylkingar?
Mitterand: Þegar við jafnaðar-
menn féllumst á sameiginlega
stefnuskrá vinstri manna, vakti
fyrir okkur að verða helsti
flokkurinn á vinstri vængnum.
Flokkur jafnaðarmanna er nú
ekki einungis orðinn helsti
vinstri flokkurinn, heldur er '
hann lika orðinn helsti stjórn-
málaflokkurinn i Frakklandi.
Þar sem hann er, sýnist mér, að
verði traustur varnagli, þegar
mynduð hefur verið rikisstjórn
vinstri manna.
Blaða maðurinn : Mjög hefur
verið um það rætt, að Banda-
rikin svifti ítaliu og Frakkland
kjarnsprengjuhlif sinni, ef
kommúnistar verða teknir upp i
rikisstjórn i þeim löndum. Hald-
ið þér, að Bandarikin séu að
svipast eftir átyllu til að aftur-
kalla kjarnsprengjuhlif sina?
Mitterand: Nei, ég held ekki, að
Bandarikin séu að svipast eftir
átyllu til þess. Og ég er ekki
þeirrar skoöunar, að Bandarik-
in séu albúin til að afsala sér
hlutverki heimsveldis. Ég loka
ekki augum fyrir þvi, að litið
eitt örlar á einangrunarstefnu
þarlendis, einkum á kosninga-
árum. En hafa rikisstjórn
Bandarikjanna og herráð hug á,
Mitterand
að þau dragi sig inn i skef sina?
Það held ég ekki.
Blaðamaðurinn: Þér teljið ekki
alvöru vera að baki hótunum
um það?
Metterand: Ekki alvöru vera á
ferðum, eða öllu heldur. að með
þeim sé verið að láta undan
stundarkröfum heima fyrir.
Hversem stefna Bandarikjanna
verður, hlýtur hún að vera
heimsstefna, — þótt vitandi vits
mætti hún vera heimsstefna i
rikara mæli. Hvað sem þvi lið-
ur, njóta stuðningslönd Banda-
rikjanna sjálfkrafa verndar
þeirra? Það er engan veginn
vist. Ef á Frakkland yrði ráðist,
skærust Bandarikin i raun og
veru i leikinn og hættu þannig á
hnattstrið? Ekki er það yfir efa-
semdir hafið.
H.J.
Smith - hefur neyöst til nokkurs
undanláts.
1 átökunum um framtiöar-
stjórnarfar i Ródesiu ber nú mest
á fjórum stjórnmálamönnum.
Einn þeirra er hvitur, lan Smith,
forsætisráðherra minnihluta-
stjórnar livitra manna. Hinir
þrir, Joshua Nkomo, Abel
Muzorewa og Ndabaningi Sithole
standa hvcr fyrir sinum armi
innan baráttusamtaka blökku-
manna, sem eiga í haröri keppni
innbyrðis.
Smith var bóndi áður fyrr, en
hóf þátttöku i stjórnmálum fyrir
28 árum. Hann var þá talinn hóf-
samur i stjórnmálum, en færðist
fljótt til hægri. 1961 sagði sagði
hann sig úr þáverandi stjórnar-
flokki i mótmælaskyni vegna
frumvarps til breytinga á
stjórnarskránni, en samkvæmt
þvi frumvarpi áttu blökkumenn
að fá vissa aðild að þinginu. 1965
lýstiSmith Rodesiu sjálfstætt lýð-
veldi, eftir að landiö hafði i
Silhole — áhrifamaöurá bak við
skæruhernaö.
marga áratugi verið bresk ný-
lenda.
Smith hélt lengi vel sinu striki
sem öfgasinnaður hægrimaður,
en siðustu árin hefur þó rás at-
burðanna neytt hann til að til-
einka sér litið eitt hófsamlegri af-
stöðu. Hann er nú fús til
samninga við blökkumenn og
hefur lýst sig viljugan til að sam-
þykkja, að Ródesiu skuli stýrt af
samstjórn blökkumanna og
hvitra. Þó vill hann ekki ennþá
veita öllum blökkumönnum
landsins kosningarétt. Þegar
samningaumleitanir þeirra
Nkomos fóru út um þúfur nýlega,
stóð Smith enn fast á þvi að hvitir
ródesiumenn, sem eru aðeins 4-5
af hundraði landsmanna, skyldu
hafa 60-70% þingmanna á
löggjafarþingi landsins.
Joshua Nkomo er sá
blökkumannaleiðtoganna
þriggja, sem eftirgefanlegastur
Nkomo mcðal fylgismanna.
er við Smith-stjórnina. Hann
komst upphaflega til áhrifa sem
leiðtogi sambands járnbrautar-
starfsmanna en var framan af
svo þægur yfirvöldum hvitra
manna að þau sendu hann
stundum til útlanda sem fulltrúa
„ánægðra” blökkumanna. Með
tið og tima gerðist hann þó of
kröfuharður fyrir smekk hinna
hvitu valdhafa. Leiddi það til þess
að hann var nokkrum sinnum
fangelsaður á grundvelli yfir-
borðskenndra ásakana og um tiu
ára skeið geymdur i stofufangelsi
i afskekktu héraði. Samfara
þessari meðferð gerðist Nkomo
smámsaman harðskeyttari i
ummælum sinum um minnihluta-
stjórn hvitra manna.
A sjötta tug aldarinnar var
hann talinn sjálfkjörinn leiðtogi
allrar baráttuhreyfingar
ródesiskra blökkumanna, en
þegar hann var látinn laus 1974 að
Muzorewa - friöarsinni sem
gerðist herskár.
lokinni stofufangelsisvistinni,
voru aðrir leiðtogar orðnir
áhrifameiri. Nkomo kunni þvi
illa, og i september 1975 kom
hann af sítað klofningi i Afriska
þjóðþingsflokknum (ANC), sem
er heildarsamtök allra baráttu-
hópa ródesiskra blökkumanna.
Varð Nkomo þá leiðtogi þess
hluta ANC. sem hafði aðalbæki-
stöðvar i Ródesiu sjálfri. og hóf
siðan samningaviðræður við Ian
Smith.
Meþódista biskup
Annar aðalleiðtogi ANC, Abel
Muzorewa, er biskup af trúflokki
meþódista. Hann hefur aðsetur i
Mósambik og stjórnar þaðan
drjúgum hluta ANC. Muzorewa
hafði á sinum tima forgöngu um
að sameina öll baráttusamtök
ródesiskra blökkumanna i ANC.
og á árabilinu 1971-1975 var hann
leiðtogi flokksins alls.
Muzorewa biskup var framan af
hlynntur þvi að finna friðsamlega
lausn á deilunni við hvitu vald-
hafana. en eftir misheppnaðan
lund með Smith i járnbrautar-
vagni á landamærum Rodesiu og
Sambiu lýsti hann þvi yfir að
samningaleiðin væri ófær og ættu
blökkumenn ekki annars úrkosta
en að taka upp skæruhernað.
Þessi yfirlýsing gakti mikla at-
hygli. þvi að fram til þessa hafði
Muzorewa verið þekktur sem
akafur friðarsinni.
Þriðji leiðtogi ródesiskra
blökkumanna. Ndabaningi
Sithole. er einnig geistlegrar
stéttar og af trú meþódista. Hann
var áður fyrr einn af eindregn-
ustu stuðningsmönnum Nkomos.
en gerðist smámsaman herskárri
og varð um siðir harðsnúinn
keppinautur Nkomos.
6 ára dómur 10 ára
þrælkunarvinna
1963 gekk Sithole úr ZAPU.
samtökum sem Nkomo stóð fyrir.
og stofnaði ZANU. herskáa hreyf-
ingu. sem átt hefur rikasta
þáttinn i skæruhernaði blökku-
manna inn i Ródesiu frá stöðvum
i Mósambik.
1964 var Sithoie dæmdur til sex
ára þrælkunarvinnu fyrir að ha|a
hvatt til þess að Smith yrðí
drepinn. Hann var þó ekki látinn
laus fyrr en 1974 og hefði trúlega
verið hafður i haldi lengur. ef efelU
hefði verið lagt fast að ródesiskö
stjórninni erlendis frá að látá
hann lausan. Eftir það var haaa
aftur handtekinn hvað eftir annð/i
og sakaður um að sitja um tíf
annarra blökkumannaleiðtopi.
Varð þetta til þess. að hann á$
lokum akvað að fara i útlegð. liM
og Muzorewa biskup. Þó er kalt á
milli þeirra biskups og er afl
heyra á sumum fréttaskýrendum
að þeir telji Sithole enn herskáéri
i afstöðu sinni en Muzorewa.
4 leiðtogarródesíumanna