Þjóðviljinn - 08.04.1976, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 8. apríl 1976. ÞJÓDVILJINN — StÐA 7
Rœða Hans G. Andersens á
hafréttarráðstefnunni i gœr:
Minning
Harða Guðmundsdóttir
F 14. janúar
1912 - D
13. mars 1976
Hinn 13. mars s.l. lést Harða
Guðmundsdóttir, Lindargötu 20,
Siglufirði, á Sjúkrahúsi Siglu-
fjarðar. Otför hennar fór fram frá
Siglufjarðarkirkju þ. 20. mars s.l.
Harða var fædd á Þönglabakka
i borgeirsfirði 14. jan. 1912. For-
eldrar hennar voru Guðmundur
Jörundsson skipstjóri frá Hrisey
og kona hans, Sigriður Sigurðar-
dóttir frá Skarðdal i Siglufirði.
Guðmundur drukknaði, þegar
Harða var i frumbernsku. Seinni
maður Sigriðar var Sigurhjörtur
Bergsson, greindur og gegn
maður, sem margir rosknir sigl-
firðingar muna vel, en hann
starfaði lengi sem vélgæslu-
maður við gömlu rafstöðina. bau
bjuggu áfram á Þönglabakka
nokkur ár, en fluttust siðan að
Staðarhóli i Siglufirði. Eftir fárra
ára búskap þar fluttu þau yfir
fjörðinn i kaupstaðinn, en þaðan
eftir stutta dvöl til Hriseyjar. Þar
bjuggu þau einnig stutt og fluttust
aftur til Siglufjarðar. Átti Harða
hér heima upp frá þvi.
Arið 1930 réðist hún til starfa á
simstöðinni i Siglufirði og vann
þar til 1947. Hún giftist árið 1941
Braga Magnússyni, nú gjaldkera
hjá bæjarfógetaembættinu i
Siglufirði. Þau eignuðust fjögur
börn. Tvö þeirra létust i fæðingu,
en upp komust tvær dætur,
Sigriður fædd 3. mars 1943, gift
Reyni Sigurðssyni húsasmiða-
meistara i Reykjavik, og bórdis
Vala, fædd 27. júli 1947, gift
Kristjáni Benediktssyni flug-
manni i Reykjavik. Sigriður og
Reynir eiga tvo syni, og Þórdis og
Kristján einn. Harða komst til
þroska á þeim árum, þegar
sviptingarnar i verkalýðshreyf-
ingunni voru mestar. Móðir
hennar og Þóroddur bróðir
hennar, sem var elstur systkin-
anna, voru i forystuliði hinna rót-
tækustu og harðskeyttustu, rót-
tækir námsmenn, menntamenn
og upprennandi stjórnmálamenn,
sem sóttu hingað sumarvinnu,
voru heimagangar hjá fjölskyldu
hennar og heimilið sjálft raunar
miðstöð sósialisma og verkalýðs
hreyfingar i bænum. Sá mál-
staður varð strax i æsku mál
staður Hörðu, og frá honum hvik-
aði hún aldrei. Hún var ein
þeirra, sem hlutu dóm fyrir fram-
göngu sina i Dettifossslagnum
fræga 1934, og taldi sér að þvi
heiður. Um skeið var hún
umboðsmaður Verkalýðsblaðsins
á Siglufirði.
Harða veiktist af breklum og
átti upp frá því við heilsuleysi að
striða og þurfti að ganga undir
margvislegar lækningaaðgerðir,
m.a. tvisvar undir ,,höggningu”,
sem olli þvi, að hún varð þvi sem
næst ófær til allrar áreynslu og
vinnu. Siðustu tvo áratugina
munu hafa verið áhöld um, hvort
hún dvaldist meira á heimili sinu
eða á berklahælum og sjúkra-
húsum. Það voru þung örlög fyrir
konu, sém unni heimili sinu og
var að upplagi mannblendin,
glaðvær og félagslynd, að vera
þannig svipt starfskröftum og úti-
lokuð að mestu frá eðlilegu lifi og
starfi. brátt fyrir þetta hélt hún
alltaf meðfæddri reisn og hátt-
prýði i fasi og framkomu. Hún
var smekkvis i klæðaburði, kunni
vel að haga máli sinu, sómdi sér
vel hvar sem hún kom fram, og
lét aldrei hugfallast.
Með fráfalli Hörðu er horfinn af
vettvangi bæjarlifsins i Siglufirði
siðasti einstaklingurinn úr stórri
fjölskyldu dugmikils fólks, sem
um hálfrar aldar skeið átti
drjúgan þátt i að móta og skapa
sögu bæjarins. Þessu blaði og
aðstandendum þess er ekki sist
mikil eftirsjá að liðsemd þessa
fólks.
Ég leyfi mér fyrir hönd sigl-
firskra sósialista að votta vanda
mönnum Hörðu heitinnar samúð
okkar, ásamt virðingu og þökk.
Eiginmanni hennar, sem alltaf
studdi hana og annaðist af dæma-
fárri ræktarsemi og umhyggju,
svo og börnum þeirra og barna-
börnum. sendi ég og fjölskylda
min persónulegar samúðar-
kveðjur.
Benedikt Sigurðssor
Ákvörðunarréttur strandríkis
verður að vera enflanlegur
Við almennu umræðuna á
Hafréttarráðstefnunni i New
York flutti Hans G. Andersen,
sendiherra, ræðu fyrir islands
liönd i gær og ræddi aðaliega um
skilgreiningu islendinga á hug-
takinu efnahagslögsaga. i ræð-
unni rökstuddi sendiherrann þá
skoðun að ákvarðanir strand-
rikis um auðlindir yrðu að vera
endanlcgar, en mættu ekki vera
háðar gerðardómsákvæðum. i
ræðunni segir m.a.:
„Eitt höfuðatriðið i sambandi
við spurninguna um lausn deilu-
mála er að leggja áherslu á
nauðsyn þess að komið sé i veg
fyrir að deilur risi, það er nauð-
syn þess að efnisreglur sáttmál-
ans séu svo skýrar og ljósar að
engar deilur eða eins fáar deilur
og mögulegt er risi Ég vil fjalla
nokkuð um það atriði vegna
þess að sendinefnd Islands telur
það hafa höfuðþýðingu.
Svo sem við höfum við fjöl-
mörg tækifæri lagt áherslu á,
verður ávallt að hafa i huga að
unnið er að heildarlausn, þar
sem hin einstöku höfuðatriði
verða að vera i nákvæmu jafn-
vægi. Að okkar áliti hljóta hinar
fimm meginstoðir væntanlegs
sáttmála að vera, i fyrsta lagi
allt að 12 milna landhelgi, i öðru
lagi óhindruð umferð um sund, i
þriðja lagi afmörkun land-
grunnsins, i fjórða lagi allt að
200 milna efnahagslögsaga og i
fimmta lagi sérstakar reglur
varðandi hið alþjóðlega hafs-
botnssvæði. Vegna timaskorts
mun ég nú aðeins vikja að hug-
takinu efnahagslögsaga i þessu
sambandi.
Sendinefnd Islands telur að
efnahagslögsöguhugtakið feli i
«ér raunhæfa efnahagslega lög-
sögu yfir auðlindum þar sem
strandrikið hefur fullveldisrétt
yfir auðlindum á svæðinu. bæði
ólifrænum og lifrænum. Að þvi
er varðar lifrænar auðlindir,
mun það sem umfram er („sur-
plus”), það er sá hluti leyfilegs
aflahámarks, sem strandrikið
sjálft getur ekki hagnýtt, verða
Framhald á bls. 14.
ORLOFSFERÐLR
I.AI IN M-IGA SIJMAKin 1970
Brottfarardagar:
Áfangastaðir: Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept Okt.
JÚGÓSLAVÍA: Portoroz (3 vikna ferðir) 2. 23. 14. 4. 25. 15.
MALLORCA 14. 25. 14. 4. 9. 18. 30. 9. 21. 30. 11. 13. 1.3. 5. 17. 8.
IBIZA 28. 11. 2. 23.
OSLO 21. 28 4. 11. 18. 26. 2. 11. 17. 26.30. 9. 13. 20. 30. 5. 10. 17.
STOKKHÓLMUR (Helsinki) 21. 28 4. 11. 18. 2. 26. 30. 9. 13. 20. 30. 5. 10. 17.
KAUPMANNAHÖFN 18. 23 25. 30 1. 5. 8. 12. 15.19. 22. 26. 29. 3. 6. 10. 13. 17.20. 28. 31. 3. 7. 11. 14. 17.21. 25.28. 31. 5. 12. 19.
LONDON 10. 17. 24. 1. 8 15. 22 29. 5. 12. 19. 26. 3. 10. 18. 25. 8. 15. 21. 28. 11. 18. 25.
Vegna mikillar eftirspurnar er ráðlegast að panta í tíma. Ferð-
in 2/6 til Júgóslavíu er þegar uppseld.
Alþýðuorlofsafsláttur er veittur til félagsmanna ASÍ og INSÍ.
Feröaskrifstofan Landsýn h.f. býður nú fjölbreytt val
orlofsferða erlendis á hagstæðasta verði sem völ er á.
Eftirsóttustu ferðamannastaðir Evrópu:
PORTOROZ — MALLORCA — IBIZA
Við vekjum sérstaka athygli á sérlega hagstæðum ferð-
um til Júgóslaviu. Þangað skipuleggur Landsýn — fyrst
íslenzkra ferðaskrifstofa — hópferðir í beinu flugi.
Fyrsta flokks hótel, einkabaðströnd, sundlaug, óvenju
tær sjór, margs konar aðstaða til úti- og innileikja, f jöl-
þættir möguleikar til skoðunarferða m.a. til Feneyja og
Austurríkis, auk fjölmargra innlendra staða.
Ferðir til allra höfuðborga Norðurlanda vikulega á ó-
venjulega hagstæðu verði:
Osló, Stokkhólmur, Helsinki og Kaupmannahöfn.
LANDSVN ALÞYDUORLOf
FERDASKRIFSTOFA SKÓLAVÖRDUSTÍG 16 SÍMI 28899