Þjóðviljinn - 08.04.1976, Síða 11
Fimmtudagur 8. april 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
3 landsleikir í
körfuknattleik
viö portúgali
Fyrsti
leikur-
inn í
kvöld
Portúgalska landsliðið i körfu-
knattleik leikur þrjá landsieiki nú
i vikunni. Sá fyrsti er i kvöid, en
hinir á föstudag og laugardag.
Portúgalska iiðið er skipað 16
leikmönnum, úr 5 félagsliðum, en
auk þeirra komu 5 þjálfarar og
fararstjórar. Leikmennirnir eru
heldur lágvaxnir, meðalhæðin um
188 sm, en hinsvegar segjast þeir
vera harðir i horn að taka. Aðal-
þjálfari liðsins er Hermino Barr-
eto, frá Mosambique. Hann sagði,
að eftir byltinguna hefði verið
hafin skipuleg starfsemi iþrótta-
sambanda i landinu, þvi fyrir
byltinguna hefði skipuiag iþrótta-
mála veriö nánast ekki neitt.
Þetta lið sem hingað er komið, er
hluti af mun stærri hóp sem hefur
vcriö við stansiausar æfingar
undanfarin tvö ár, en litið hefur
verið gert að þvi að leika lands-
leiki, fyrr en á seinni hluta siðasta
árs og portúgalir hafa ekki tckið
þátt I neinu alþjóðamóti i körfu-
bolta. Ahuga á körfubolta kvað
Barreto ekki vera eins mikinn nú
og fyrir tveimur árum, þvi sú
stefna hafi verið tekin að fækka til
muna þeim útlendingum sem
léku með liðum i landinu og um
þessar mundir er aðeins einn út-
lendingur sem leikur með liði i
portúgölskum körfubolta.
Barreto þjálfari lagði mikla á-
hcrslu á það, að stefnan hjá þeim
væri, að þjálfa upp unga menn i
landsliðið og væri það ástæðan
fyrir þvi hversu fáa slika liðið
hefur að baki. Samanlagður
landsleikjafjöldi leikmannanna
er um 100 leikir, en um 250 hjá is-
lenska liðinu.
Leikurinn i kvöld fer fram i
Laugardalshöllinni og hefst hann
kl. 20.30, en hinir leikirnir fara
fram suður i Njarðvikum, sá fyrri
á föstudagskvöld kl. 20.00, en hinn
siðari á laugardag kl. 14.00.
G.Jóh.
íslenski
landsliðs-
hópurinn
Þeir 12 leikmenn sem skipa
islcnska landsliðshópinn sem
æfir fyrir landsleikina við
portúgali I körfuknattleik hafa
samtals 224 landsleiki að baki,
cn þeir eru:
Kolbeinn Pálsson KR 42
fyrirliði
Agnar Friðriksson !R 38
Jón Sigurösson, Arm. 32
Þórir Magnússon Val 29
Birgir Jakobss'on !R 17
Kári Marlsson IJMFN 16
Kolbeinn Kristinsson !R 14
Gunnar Þorvarðarson 14
Bjarni Gunnar 1S 12
Jón Jörundsson IR 7
Jónas Jóhannsson 2
Guðsteinn Ingimarsson 1
tslenska landsliðið i körfuknattleik sem mætir portúgölum I kvöld.
Tók bars i 5tír na að
ákveða í sland Isferð
hjá einu sterkasta handknattleiksliði heims, Partizan
Bjelovar sem kemur í boði Vals og leikur 3 leiki
Fyrirliði júgósla vneska
landsliðsins i handknattleik,
Horvat, sagði i viðtali við bjóð-
viljann, þegar júgóslavneska
landsliðið var hér á ferð i vetur,
að ferðir til Islands væru alltaf
vinsælustu ferðir sem júgóslav-
neskir handknattleiksmenn
kæmust i, hingað væri sérlega
gott að koma og gaman að leika
hér á landi. bað er alveg greini-
legt að Horvat meinti það sem
hann sagöi, það tók félag hans
Partizan Bjelovar ekki nema 5
tima að ákveða Islandsferð aö
þessu sinni. Valur, sem á vor-
heimsóknina aö þessu sinni, átti
von á Sjálandsúrvali, en það
sveik gefin loforð á siðustu
stundu og þá voru góð ráð dýr.
Til að reyna eitthvað sneru
Valsmenn sér til Partizan Bje-
lovar og spurðust fyrir um hvort
liðiö vildi koma til tslands i boði
Vals.
Menn áttu tæplega von á þvi
aö liðiö gæti komið með svo litl-
um fyrirvara, en aðeins 5 klst.
eftir að valsmenn höföu haft
samband við þá kom jákvætt
svar, Partizan ætlaði að koma
og liöið kemur til tslands á
morgun og leikur 3 loiki hér á
landi.
Fyrsti leikurinn verður gegn
tslandsmeisturum FH i Laugar-
dalshöll á laugardag og hefst
hann kl. 15. A sunnudag leikur
Partizan siöan við s-vestur-
landsúrval, sem valsmenn velja
sjálfir og siðasti leikurinn verð-
ur svo við gestgjafana sjálfa,
Val, og fer hann fram uppá
Akranesi á mánudaginn og hefst
kl. 20.30.
Nánar verður sagt frá þessari
heimsókn i Þjóöviljanum á
morgun. —S.dór
4:0 og
0:0 í
Rvíkur-
mótinu
Tveir leikir hafa farið fram i
þessari viku í Reykjavikur-
mótinu i knattspyrnu. A
mánudaginn sigraði Fram
Þrótt 4:0 og hlýtur fyrir það 3
stig og á þriöjudaginn skildu
KR og Víkingur jöfn, 0:0 og
hljóta þvi sitt stigiö hvort
félag.
Lést eftir
hnefaleika
keppni
Tropicanakeppnin í júdó:
Halldór sigraöi
meö yfirburöum
Bandariki hnefaleikarinn
Chuck Wilburn lést á sjúkrahúsi I
Sidney i Astraliu i fyrradag. Hann
hafði legið meðvitundarlaus
nokkra daga eftir keppni við
ástralska hnefaleikarann Victor
Thompsson I léttvigt. Þetta er I
annað sinn sem andstæðingur
Thompsons deyr eftir viðureign I
hringnum, í hinu tilfellinu var það
1970 að spánskur hnefaleikari lést
eftir rothögg frá Thompson.
Mánudaginn 5. april 1976 var I
fyrsta sinn háð hér á landi judo-
keppni i opnum flokki þar sem
einungis kepptu judomenn léttari
en 70 kg. Framleiðandi Tropicana
á tslandi gaf verðlaunin á þetta
mót, sem verður framvegis ár-
legt mót.
Keppnin var geysihörð og mikiö
um tvisýnar viðureignir eins og
jafnan þegar hinir léttari judo-
menn eigast við. Margir ungir og
efnilegir judomenn komu fram i
þessari keppni og vöktu verð-
skuldaða athygli Þó fór svo að
lokum þegar lokið var keppni i
riðlum að hinir reyndustu komust
i fjögurra manna úrslitin. Til úr-
slita kepptu þeir Halldór Guð-
björnsson og Sigurður Pálsson, og
sigraði Halldór -örugglega eftir
mjög snarpa og góða viðureign.
Gunnar Guðmundsson, núverandi
islandsmeistari i léttmillivigt, gat
ekki keppt aö þessu sinni vegna
meiðsla. Fjórir efstu menn í
keppninni urðu þessir:
1. Halldór Guðbjörnsson JFR
2. Sigurður Pálsson JFR
3. Jóhannes Haraldsson UMFG
Eysteinn Sigurðsson A.
Halldór varð þvi fyrstur manna
til að vinna hinn glæsilega Tropi-
cana-bikar sem keppt er um á
þessu móti.
Landsliðinu í körfu
boðið til Portúgaj
lslenska landsliðinu i körfuknattleik hefur verið boöið til Portú-
gal. Kom þetta fram á blaöamannafundi hjá KKÍ vegna komu
portúgalska körfuboltalandsliðsins. Það var aðalþjáifari liðsins
Hermino Berreto sem bauð isl. liðinu fyrir hönd portúgalska körfu-
boltasambandsins. Ekki er enn búiö aö ákveða hvenær liðið fer ut-
an, en stefnt er aö þvi að isl. liðið verði I Portúgal á sama tiina og
það pólska, en það veröur I Portúgal annaö-vort i júli eða septem-
ber. Að öilum likindum fer þá fram þriggjaliða keppni. KKl hcfur
þegar þegið boðið.
G.Jóh.