Þjóðviljinn - 08.04.1976, Síða 16
VOÐVIUINN
Fimmtudagur 8. apríl 1976.
Áburðar
verð
hækkar
um 40
prósent
og mjólkin og
kjötið og„.
Lokadagur
og Kópa-
messa
í MK.
1 gær var lokadagur, siðasti
kennsludagur, hjá fyrstu stúd-
entsefnunum 54 i Menntaskól-
anum i Kópavogi. Um morgun-
inn efndi skólameistari, Ingólf-
ur A. Þorkelsson, til kópamessu
á sal skólans. Þar var messað
yfir kópum (stúdentsefnunum)
og kennurum. Stúdentsefni
kvöddu hvern kennara 4 bekkj-
ar með ávarpi og námsmeyjar
færðu þeim gjafir. Þá messaði
skólameistari i kveðjuskyni og
flutti viðstöddum Kópamessu-
sálm, sem sunginn var undir
laginu við Integer Vitae. Þá
voru sungnir stúdentasöngvar
og ættjarðarlög.
Ingólfur A. Þorkelsson sagði i
viðtali við Þjóðviljann að þeir i
Kópavoginum hefðu ekki viljað
apa eftir „dimmissionshefðirn-
ar” úr gömlu menntaskólunum
og þessi lokadagur hefði tekist
mjög vel, og menn skemmt sér
vel á Kópamessunni.
Aburðarverksmiðjunni hefur
verið heimilað að hækka verð á
áburði um 40% frá heildsöluverði
sl. árs. Um leið falla niður niður-
greiðslur á áburðarverði, en
hækkun á áburði, sem ákveðin
var i fyrra, hefur til þessa verið
greidd niður að hálfu.
Þetta þýðir i reynd að Kjarni,
sem áður kostaði 23.660 kr. lestin
hækkar i 33.120 kr. Græði II
hækkar úr 227.380 kr. i 38.340 og
Græði I hækkar úr 29.440 kr. i
41.220.
Samkvæmt upplýsingum frá
formanni Stéttarsambands
bænsa þýðir þessi hækkun á
áburði um 150 þúsund króna
hækkun á útgjöldum meðalbús,
sem tekið er mið af i sambandi
við visitölureikninga. Þetta er
um 150 þúsund króna hækkun á
gjaldalið sliks bús. Má þá búast
við þvi að i júnibyrjun hafi þessi
áburðarhækkun þau áhrif á mat-
vælaverð, að mjólkurlitrinn
hækki um 2.80 kr. og kg. af kinda-
kjöti um ca. 21 kr.
Tónleikar á
Ranfarhöfn
Fréttaritari vor á Raufarhöfn,
Angantýr Einarsson, hringdi og
kvaðst vilja koma á framfæri
einni góðri frétt til mótvægis við
.allar þær hinar slæmu, sem nóg
hefði verið af að undanförnu.
Ilann sagði að s.I. laugardag, 3.
april hefðu komið til Raufarhafn-
ar góðir gestir, barytonsöngvar-
inn John Speight og kona lians
Sveinbjörg Vilhjálm sdóttir.
Héldu þau tónleika i félagsheimili
staðarins, og voru þeir allvel sótt-
ir og gestunum vel fagnaö.
Til að greiða fyrir heimsókninni
bauð sveitarstjórnin fjárhagsað-
stoð, en slik baktrygging er mik-
ils virði á meðan ekki starfar tón-
listarfélag á staðnum. Umræður
eru nú hafnar um stofnun sliks fé-
lags, og fyrirhugað er að koma á
fót tónlistarskóla á Raufarhöfn
næsta vetur. Var nýlega gerð
frumkönnun á þvi hve margir
vildu njóta slikrar kennslu, og
reyndust þeir samkvæmt henni
vera 42, bæöi börn og fullorðnir.
,,-Kóparnir” úr MK ganga fylktu liði til kópamessu.
Ýmisleg vigorð voru á lofti
Byggrng geðdeildar
að stöðvast
Undanfarið hefur verið
unnið af f ullurn krafti við
að reisa geðdeild við
Landsspítalann. Nú eru
allar líkur á að þær
frarnkvæmdir stöðvist
rneð vorinu að því er Páll
Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri í heilbrigðisráðu-
neytinu sagði í viðtali við
blaðið.
— Það hefur ekki verið samið
um annað en að steypa húsið
upp og loka þvi. Því verki á að
verða lokið fyrir mailok nk. og
þá liggur ekkert fyrir um frek-
ari framkvæmdir. Frekari fjár-
veiting er ekki fyrir hendi á
fjárlögum, þetta var eitt af þvi
sem skorið var niður i meðferð
alþingis á fjárlagafrumvarpinu.
Hvortný fjárveiting fæst veit ég
ekki. En verkinu hefur miðað
samkvæmt timaáætlun sem
gerð var haustið 1974, sagði
Páll.
— ÞH
Myndasamkeppni 9 ára barna um umferðarmál
769 myndir bárust
I gær voru afhent verðlaun í
myndasamkeppni sem mcnnta-
málaráðuneytið og umferðarráð
efndu til meðal níu ára skóla-
barna. Verkefnin sem börnin áttu
að glima við voru 1. Leiðin i skól-
ann. 2. Hjálpsemi við aldraða, og
3. Sendiferð.
Mikil þátttaka var i keppninni
og bárust alls 769 myndir úr 56
skólum á landinu. t'dómnefnd
áttu sæti Þórir Sigurðsson náms-
stjóri, Borghildur óskarsdóttir
myndlistarkennari og Árni Þór
Eymundsson upplýsingafulltrúi.
Guðmundur Þorsteinsson um-
sjónarkennari i umferðarmálum
við ráðuneytið afhenti verðlaunin
en þau fengu eftirtalin börn: 1.
verðlaun sem voru reiðhjól frá
Fálkanum hlaut Aðalheiður
Piego Hjálmarsdóttir úr Foss-
vogsskóla, 2. verðlaun, iþrótta-
búning frá Sportvöruverslun
Ingólfs Óskarssonar, hlaut Vil-
hjálmur Kári Heiðdal úr Breið-
holtsskóla, 3.-12. verðlaun voru
bækur frá Erni og örlygi en þau
hlutu Birgitta Guðmundsdóttir
Kópavogi, Guðný Hafdis Hill,
Sandgerði, Jens Reynir, Breiða-
gerðisskóla, Jón Garðar, Æfinga-
deild KHI, Petra B. Árnadóttir,
Vogaskóla, Ragna Sigurlaug
Ragnarsdóttir, Akureyri, Rik-
harður Reynisson, Breiðholts-
skóla, Sigurður Guðmundsson,
Sandgerði, Sólveig Rósa Ólafs-
dóttir, Æfingadeild KH, og Una
Margrét Jónsdóttir, Vesturbæj-
arskóla.
—ÞH
Enn titrar
jarð-
skorpan
Jarðhræringa hefur aftur orðið
vart á Kópaskeri, en þær eru enn
sem komið er mjög vægar. Var
þeirra vart bæði aðfaranótt
þriðjudags og síðdegis sama dag.
Höfundur
„Fimm
kvenna”
viðstaddur
frum-
sýninguna
Björg Vik, höfundur leikritsins
FIMM KONUR sein frumsýnt
veröur i þjóðleikhúsinu i kvöld,
kom til landsins i gær i boði
Norræna hússins. Hún flytur
erindi uni verk sitt Fimm konur
kl. 14.15 i dag i Norræna húsinu.
Hún er fyrst og fremst smásagna-
höfundur og á sunnudaginn kl. 17
les liún úr verkum sinum á sama
stað og einkum úr siðasta smá-
sagnasafninu Fortellingar om fri-
het.
Sagt hefur verið um Björg Vik
að hún sé ein af fáum norskum
rithöfundum sem njóti almennra
vinsælda. Málefni kvenna hafa
verið henni mjög ofarlega i huga
og i verkum sinum fjallar hún um
samband karls og konu og vanda-
mál kynjanna. Björg Vik er
blaðamaður aö mennt og vann
mörg ár við blaðamennsku.
Meðal annars stóð hún að útgáfu
nýs kvennablaðs i Noregi,
„Sirene”, sem kom fyrst út 1973.
I kvöld verður Björg Vik við-
stödd frumsýninguna á verki sinu
i Þjóðleikhúsinu.