Þjóðviljinn - 19.09.1976, Side 7

Þjóðviljinn - 19.09.1976, Side 7
Sunnudagur 19. september 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 ista. Þeir voru meöal hinna mörgu sósialista i Vestur-Evrópu sem mótmæltu aðgeröum sovét- manna mjög harðlega og hafa á- vallt siðan minnst á afstöðu sina, m.a. á nýafstöðnum Berlinar- fundi. ttalkir kommúnistar hefðu vafalaust helst kosið leið júgóslava, hvað varðar afstöðu til hernaöarbandalaga, en þeir ótt- ast, að stórveldin i austri og vestri muni ekki sleppa tökum sinum á þeim rikjum, sem með þeim eru I hernaðarbandal., og viðleitni til að draga Italiu út úr Atlantshafsbandalaginu geti þvi leitt til beinnar eöa óbeinnar hernaðarihlutunar bandarikja- manna. Raunar hefur Kissinger, utanrikisráðherra bandarikja- manna, þegar staðfest með stór- yrtum hótunum sinum i sumar að þessi hætta er fyrir hendi.I rikj- um Varsjárbandalagsins hefur á hinn bóginn ekkert það gerst, sem kemur i veg fyrir endurtekningu atburðanna i Tékkóslóvakiu 1968, enda hafa rúmenar hvað eftir annað orðið varir við harðan þrýsting sovétmanna gegn sjálf- stæöri utanrikisstefnu þeirra, nú seinast þegar rúmenar óskuðu eftir þvi að vera áheyrnarfulltrú ar (observer) á ráðstefnu óháðra (hlutlausra) rikja, sem nýlega var haldin i Colombo, en urðu að láta sér nægja að sitja ráðstefnu- na með óformlegri hætti og án nokkurra fulltrúaréttinda. Italskir kommunista hafa þvi komist að þeirri niðurstöðu, aö til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig verði þeir að sætta sig viö rikj- andi ástand, en þeir verði frekar að reyna með aðild að rikisstjórn aö skapa þá utanrikisstefnu af hálfu itala, er stuðli að upplausn hernaðarbandalaganna beggja. Gjörólík viðhorf í Norður- og Suður-Evrópu Það er eftirtektarvert, að þessi stefnumörkun, er engin skyndiákvörðun sem tekin er i tengslum við kosningar. Sósialistaflokkur Nennis breytti um afstöðu til Nato á seinasta ára tug og stefnubreyting komm- unistaflokksins á sér einnig lang- an aðdraganda. Breytt afstaöa kommúnista varð opinber þegar fyrir tæpum tveimur árum, þótt fáar fréttir bærust af þvi hingaö norður i álfu fyrr en nú i vor.Ekki er að sjá, að hin nýja afstaða til aðildar að Nato hafi valdið veru- legum deilum innan flokksins. Fátt sýnir betur hvað pólitisk við horf meðal vinstri manna eru gjörólik i Norður- og Suður- Evrópu, en spánski kommúnista- flokkurinn mun einmitt vera á svipuðum nótum hvað Nato snertir og sá italski. I rikjum þar sem fasistahættan er ekki raunveruleg, hlýtur það hins vegar að vera áfram eðlileg- ur og heilbrigöur þáttur vinstri stefnu, að stuðla að þvi að hernaðarbandalögin verði leyst upp með þvi beinlinis að vinna að þvi, að hvert riki dragi sig ein- hliða út úr hernaðarklíku stór- veldanna i austri og vestri. Sér- hvert skref i þá átt innan Atlants- hafsbandalagsins er stuðningur við þau öfl innan Varsjárbanda- lagsins, sem þar þrýsta á um af- vopnum og upplausn hernaðar- bandalaga. Að sjálfsögöu munu sósialistar taka fullan þátt i rikis- stjórnum viðkomandi landa, þrátt fyrir áframhaldandi NATO- aðild, þegar svo ber undir. Engu að siður er fyllsta ástæða til, að halda kröfunni um úrsögn úr NATO hátt á loft,a.m.k. i þeim NATO-rikjum þar sem bein fasistahætta er ekki yfirvofandi. Einnig er nauðsynlegt.að hag- nýta sérhvert tækifæri i rikis- stjórn til að knýja á um grund- vallarbreytingar á aðstööu NATO, — hér á Islandi sem ann- ars staðar, i fullu samræmi við þá sjálfsögðu meginreglu, að hvergi sitji eriendur her í sjálfstæöu riki. Hvað svo sem segja má um af- stöðu italskra sósialista til NATO, þá verður hitt ekki af þeim skafið, að þeir hafa þegar náð frábærum árangri i viöleitni sinni til að skapa fjöldahreyfingu sósialiskr- ar alþýöu. Þeir leggja á það mesta áherslu, að afla sér trausts, en forðast stóryrði og kreddufestu. Þeir vita sem er, að sósialismi verður ekki skapaður i orði heldur á borði. Jón Múli Árnason skrifar: En margt eigum við viðskiptavinir og verslunarfólk ólært enn i fallegri og geöþekkri framgöngu. Eitt sólskinssiödegi ákváðum við að skreppa enn einu sinni niöur að Tjörn til að skoða Gosbrunninn og hlusta á vatnið. A leiðinni var komiö við i verslun til að kaupa döðlur handa okkur og brauð handa öndunum. Ungur piltur mælti fram veröið á döðlupakkanum og ég sagði: — Það getur ekki verið aö þetta hafi hækkað um helming siöan i ágúst. — Þá kvað við úr horni verslunar- stjórans: Atli maður kannist ekki við tóninn i þessum post- ulum — alltaf að væna mann um svik og pretti. — Einhvers- staðar lengst inni i mér hljómaði önnur rödd: — ég heyri hljóðið og þekki það. Það er hljóðið úr rússum: þetta voðalega skelfilega hljóð. — En ég hafði ekki vit á þvi aö láta mér það að varnaði verða og keypti 10 karamellur og nokkra vindla og sagöi svo: — Nu fer ég vestur i bæ að kaupa döðlur i búð, sem selur þær á hálfvirði. — Það hefði ég ekki átt aö segja, þviað nú kom verslunarstjórinn fram úr skoti sinu og orðinn reiður : Atli maður kannist ekki við tóninn i þessum postulum — alltaf að væna mann um þjófnað. — Þú ert þó ekki að segja i alvöru að ég sé að væna þig um þjófnað? — Jú, — og svona glæpamann ætti aö vera búið að loka inni fyrir löngu. — Ég hörfaði út á götu og sagði: Svona smákramarar ættu að éta skit. — Þá fyrst sauð upp úr hjá verslunarstjóranum og hann æpti yfir fólkið sem safnast hafði saman i von um slag: Svona glæpamann ætti að vera búið að hengja fyrir löngu. — Ég hafði vit á þvi að hörfa inn i bilinn skrúfa niður rúðuna og öskra: Komdu hingað og ég skal drepa þig. — Síðan rukum viö af stað með bensiniö i botni á Volg- unni. Við leyndumst um stund i skóginum við Bjarkargötu, — en tókum að lokum risikóna og vöppuðum niður á Tjarnar- bakkann að dást að Gosbrunn- inum og borða karamellur. Við hlustuðum á vatnið og taug- arnar róuðust og ég gat kveikt mér i vindli. Endurnar fengu ekki neitt nema regnbogann fagra i þetta sinn. JMA Helgarfrí og hversdagsleiki Það varð litið úr helgarfrii hjá Flugránsnefnd á dögunum, þegar Vestur-Króatarnir ákváðu að lenda á Vellinum. Það setti lika óhug að þjóðinni, „ þegar flugræningjarnir neituðu að gefa sig á tal viö okkar menn — en henni létti aftur, þegar Útvarpið tiikynnti 10 sinnum i röð, að Flugránsnefnd væri i stööugu sambandi við Ólaf Jóhannesson. Aðrir ráðherrar voru i Lundúnum og misstu af öllum hasarnum, en hafa eflaust haft samband sin i milli, og vonandi tekist að kenna bretum eitthvað i stjórnlist og fleiru. Valsmenn nutu sin betur um siðustu helgi á Laugardals- vellinum og rústuðu Akurnes- inga með glæsibrag, og margir spurðu, hversvegna Valsskytt- urnar væru ekki settar í lands- liðið. Þar varáberandiskorturá kanónum með „boldgefíihl” á borð við Hermann Gunnarsson i bardögunum við hollendinga og belga, — enda reiddist Tony Knapp mjög fréttaritara Þjóðviljans eins og frægt er orðið, — íþróttasiða Blaðsins Okkar hefúr löngum verið hlið- holl Völsurum af eölilegum ástæðum; Kópavogskrakkarnir hafa blásið af mikilli snilld á Laugar- dalsvellinum i sumar, þjóð- söngva fagra á undan lands- leikjum og Bikarkeppni með virðuleik. Það er gamall og góður siður að risa úr sætum og taka ofan við slik tækifæri, og allir virðast kunna það nema ljósmyndarar dagblaðanna. Það er eins og þeir biði eftir þvi að fá að sleppa fram af sér beislinu og leika lausum hala meðan Guð vors lands hljómar, og brenna þá af i allar áttir eins og þeir eigi lifið að leysa. Þetta er hjóðfæra1eikurum keppendum og áhorfendum til mikils ama, og timi til kominn, að ritstjórar reyni að hafa vit fyrir fótógröffum sinum, — vel kæmi til greina stuttur og strangur kúrsus i mannasiðum. Ofar i Laugardalnum voru þeir i heiðri hafðir á sýningunni Föt ’76, — og þó stundum úr hófi fram á tiskusýningum þegar hispurs-herrar og meyjar svifu ina við matvörukaupmanninn, vixlana og allt heila gillið, — og nýju fötin úr sögunni i svip. Einnig rifjuðust upp útvarps- fréttir af viðbrögðum einhverra húsmæðra og Neytendafélags- st jórnarinnar við lokun mjólkurbúða. Þar kvað við sami um salinn meö ofurmanniegri kurteisi og tilgerð. En þetta ágæta fólk á sér afsökun, — það er ekki iklætt neinu lafatrússi. Það er i senn furöulegt og ótrú- legt, hve klæðskerum, prjóna- konum og skósmiðum okkar hefur tekist vel upp á siðari árum, og aldrei betur en nú, — óvist, hvort annarsstaðar i heiminum hafi sést fallegri og vandaðri fatnaður en i Laugar- dalshöll nú i haust. Lausleg athugun virðist lika benda til þess, að prisar á þessum inn- lenda iðnaði standist vel saman- burð við hina erlendu, og má það vera okkur öllum fagnaðar- efni, — það er að segja þeim, sem hafa ráð á að fá sér nýjan galla. Svo fengum við okkur kók og kostaöi hundrað krónur minnsti skammtur i plastbolla. Af hverju hundrað krónur? þetta kostar 31 krónu i búðum. ,,Það er þægilegra” sögöu brosmildar afgreiðslustúlkur, sem ekki þurftu að skipta smápeningum, og létu kókiö freyða eins og kampavin. Það er nefnilega það. Þar með var manni svipt aftur inn i hversdagsleikann, verðbólguhugleiöingar, skuld- söngurinn um að þetta væri allt gert fyrir okkur, — og yrði meö timanum „þægilegra”. Það kann aö vera, þótt viö munum ekki eftir neinum óþægindum i mjólkurbúðunum á undanförnum áratugum. Það var að visu stundum dálitið þröngt á skömmtunarárunum og mörgum erfitt um andar- drátt i troðningnum, sem við notum i staðinn fyrir röð, — þaö er i samræmi við Islendings- eðlið og ekkert viö þvi að gera. En hvernig svo sem bægsla- gangi i hrúgunni fyrir framan búðarborðið reiddi af, munum við ekki eftir öðru en glaðlegri þjónustu fyrir innan þaö, — þótt stúlkurnar þar þyrftu og þurfi enn að skipta smápeningum allt niður á 10 aura planið. Verður að teljast hæpið að Neytenda- félags-stjórninni hafi i siöustu yfirlýsingu tekist aö sanna, aö þjónusta verði miklu betri i öðrum verslunum þegar búið er að loka mjólkurbúðunum, — sem við vonum öll að okkur verði hlift við. Ekki er þó enn timabært, að óska ASB-stúlk- unum til hamingju meö sig- urinn, en vonandi dregst þaö ekki lengi úr þessu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.