Þjóðviljinn - 10.12.1976, Blaðsíða 5
Föstudagur 10. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
njUDT
irDafíiir'
ÞoHeifsm
\skimti j
Somc öccla ndic rccipcs
4 s
XNS.- ■ -=^- ■ II wspgggf
Somc öcclandic rccipcs
írb . 11
Elín Kristjánsdóttir
Some lcelandic Recipes
Litla matreiðslubókin sem þú sendir erlendum
vinum í jólagjöf — og hún kostar lítið.
Þessi bók er ekki stór, aðeins 80 litlar síður, en
hver segir að gjöf þurfi alltaf að vera svo voða
stór og dýr. Það eru gæðin sem skipta máli.
Þessi litla bók geymir fjölmargar uppskriftir ís-
lenskra rétta, sem margir útlendingar hafa þegar
prófað og lokið lofsyrði á. Bókin er svo lítil fyrir-
ferðar að hægt er að senda í stóru umslagi hvert
sem er.
Könnun Kyrrahafsins
4. bindi í bókaflokknum Lönd og landkönnun
í þýðingu Steindórs Steindórssonar
Mannkynssagan er meira en morð og dráp, hún
geymir ekki aðeins nöfn herskárra hershöfð-
ingja, sem leiða milljónir til skipulagðrar aftöku,
heldur einnig nöfn manna sem knúnir af ævin-
týraþrá og löngun til þess að láta gott af sér leiða
leituðu á vit þess ókunna og fremur fórnuðu
eigin lífi en annarra fyrir hugsjón sína. Þróunar-
saga mannsins er samofin sífelldri leit til þess að
nýjum löndum og leiðum.
LÖND OG LANDKÖNNUN
Könnun
Kyrrahafsins
öm&örlygur
Snjólaug Bragadóttir frá Skáldalæk
Enginn veit hver annars
konu hlýtur
Bókin segir frá ungum stúlkum á hálum brautum
höfuðborgarinnar og ástarævintýrum þeirra.
Þær taka á leigu gamalt hús við Grettisgötu.
Brátt bætast fleiri í hópinn, karlar og konur, og
ástin birtist í margskonar myndum. Ýmist er
ástarfuninn að brenna upp báða elskendurna,
eða ástin tekið svo óvænta stefnu, svo enginn
veit að lokum hver annars konu hlýtur.
Séra Gunnar Benediktsson
Stiklað á stóru
frá bernsku til brauðleysis
Frásagnargáfa þessa byltingasinnaða klerks,
hispursleysi og ritleikni er þjóðkunn. Aldrei hef-
ur hann verið hreinskilnari og opinskárri um
einkamál sín og ævikjör en í þessari bók, en
margþætt reynsla hans og félagsleg skyggni
gera minningar hans að samtíðarskuggsjá.
Ekkert mannlegt lætur hann sér óviðkomandi,
þekking hans víðtæk, penni hans léttur, en
hvass og markviss.
ÓLAFUR
NOTAR ENGA
TÆPITUNGU
OG DREGUR
EKKERT
UNDAN,
HVORKI SÍN
ÆVINTÝRI NÉ
ANNARRA.
BÓK ÓLAFS
FRÁ ODDHOLI
MUN LENGI
í MINNUM
HÖFÐ FYRIR
BERSÖGLI OG
BRAGÐMIKIÐ
GRÍN
„ ég vil nú hafa minarkonur
sjálfursegir
Olajurá
Oddhóli
ogfyrrumi
Álfimesi
Ólafur scgir hispurslaust frá murgslungnu UMilaupi
slnu og Jregur ckkcrt undan. Hunn cr léttur I lund og
ganiunscmin vcAur d sútlum. gc'rir grln nð sjúlfum sír
scm tklrum, svo scm frum kcmur I kaflanum
Éghefaldrei hlegió
annao eins
og lesendum þessarur bökar verður lélt
um hldtur, svo þcir muna vart annoð cins.
Svæðameðferðin
— Zone Terapi —
eða Frásagnir fóta
eftir Eunice D. Ingham
í þýðingu Jóns Gissurarsonar
Hér er um mjög sérstæða bók að ræða og í
formála hennar segir höfundur m.a.: ,,Með
nuddi réttra staða á fæti, eða fótum, má því hafa
heillarík áhrif á aumt líffæri, hversu fjarri, sem
það er nuddstað. Hundruð sjúklinga minna hafa
fengið undraverðan bata.
SteinarJ h'iöwksson
Þrantgóöir.
raimastum
Steinar J. Lúðvíksson
Þrautgóðir á raunastund
8. bindi björgunar- og sjóslysasögu Islands
Þessi bók fjallar um árin 1920—1924 og nú er
komið að þeim þætti í útgerðarsögu íslendinga,
þar sem skúturnar skipa sinn mikla sess. Meðal
atþurða má nefna strand Talismans viö Kleifar-
vík, Krossmessugarðinn mikla og strand Sterl-
ings við Brimnes. þá er í bókinni fjöldi Ijósmynda
frá þessu tímaþili og þar á meðal myndaflokkur
frá síldveiðunum fyrir Norðurlandi.
Hornstrendingabók
Þórleifs Bjarnasonar
að miklu leyti nýtt verk í þremur bindum og myndskreyttum kassa.
Prýdd 80 Ijósmyndum, sem margar hverjar hafa hvergi birst áður.
Hornstrendingabók greinir frá byggðarlögum Hornstranda og mannlífi þar um slóðir um langan
aldur, harðri lífsbaráttu fólksins í þessum afskekkta og hrjóstruga landshluta, en jafnframt
sérstæðri menningu þess og einkennilegum háttum. Drjúgur hluti bókarinnar er sagnaþættir og
þjóðsögur af Hornströndum, og tekst höfundi að bregða sterku Ijósi á liðnar aldir. Horn-
strendingabók er eitt af merkilegustu átthagaritum á íslenskri tungu og frábært rit vegna
fróðleiks og ritsnilli Þórleifs Bjarnasonar.
Baidur Guðlaugsson og Páll Heiðar Jónsson
Þrítugasti marz 1949
mestu innanlandsátök frá siðaskiptum
Þann 30. mars 1949 fékk innibyrgð spenna, tortryggni og gagn-
kvæm andúð útrás í athöfnum og átökum, sem ekki hafa orðið
önnur og meiri síðan um siðaskipti. Bókin er byggð á innlendum
og erlendum gögnum úr skjalasöfnum ráðuneyta og hæstaréttar
og viðtölum við stjórnmálamenn, lögreglumenn, varaliðsmenn,
áhorfendur og sakborninga. í bókinni eru 60 Ijósmyndir, flestar
áður óbirtar, þ.á m. úr kvikmynd.
Góö bók er gultt betri
ÖRN OG ÖRLYGUR
Vesturgötu 42, Sími: 25722