Þjóðviljinn - 23.12.1976, Side 1
UOWIUINNI
Fimmtudagur 23. desember 1976 — 41. árg. —289. tbl.
MENGUN FRÁ ÁLVERI
KOMIN LANGT
YFIR HÆTTUMÖRK
SJÁ BAKSÍÐU
Haraldur Þór Jónsson afgreiöslumaöur á Vlöimel 35hampar hér kæstri skötu og býr sig undir miklar annir á morgun viö söluna. Mynd:-gsp
Kæst skata
á borðum
— Jú, hún er óneitanlega ansi
sterk ýldufýlan af skötunni þegar
maöur hefur látið hana standa i
hálfan mánuð til þess eins að
úldna duglega áður en hún fer i
saltið, sagði fisksalinn að Viðimel
35 1 gær, þegar við fengum að
kikja á skötuna, sem i dag verður
svo viða á borðum.
Hann mun kominn frá Vest-
fjörðum sá ágæti siður að
hafa ævinlega kæasta skötu til
matar á Þorláksmessunni og eru
þeir fjölmargir sem hafa þá
venju i heiðri. Að sögn félaganna
á Viöimel hefur a.m.k. mikið
verið spurt um kæsta skötu
siðustu dagana og hefur salan i
dag verið i undirbúningi i heilan
mánuð.
Og það verður seint sagt að
hann sé sérstaklega snyrtilegur
þessi undirbúningur. Skatan er
tokin beint úr bátunum og látin
standa i.stampi i hálfan mánuð.
Þar úldnar hún meira og meira
með hverjum deginum sem liður
og þykir mönnum ekki nóg um
fyrr en að tveimur vikum liðnum.
Þá er skatan þrifin og lagfærö og
siðan sett i salt iaðrar tvær vikur.
Að þvi loknu stendur hún i hreinu
rennandi vatni i tvo sólarhringa
og ferð þaðan beint á boröið hjá
neytandanum, sem borðar af
bestu lyst,.. án þess að hafa
nokkrar áhyggjur af þvi sem á
undan er gengið.
—gsp
Rannsókn handtökumálsins keyrö af hörku:
„Þetta eru ánægjuleg
réttarhöld og koma
mér alls ekki á óvart”
— sagði Haukur Guðmundssson
rannsóknarlögreglumaður í viðtali við Þjóðviljann
— Ég get ekki sagt að það hafi
komiö mér verulega á óvart að
handtaka Guðbjarts eða bilstjóra
hans skyldi hafa ,einhver eftir-
köst, enda þótt ég ætti e.t.v. ekki
von á þvi að þau yrðu jafn hastar-
leg og raun ber vitni, sagði Hauk-
ur Guðmundsson rannsóknarlög-
reglumaður i Keflavik I samtali
við Þjóöviljann i gærkvöldi en
hann gekkst I fyrradag undir 6
klst. langar og strangar yfir-
heyrslur hjá skipuðum, umboðs-
dómara vegna meintrar ólög-
legrar handtöku á bílstjóra
Guðbjarts Pálssonar.
— Rannsóknarlögreglum aður
getur alltaf átt von á þvi að starf
hans sé illa þokkað af ráðandi
mönnum og þegar glimt er við
ákveðin öfl i þjóöfélaginu kemur
manni ekkert á óvart þótt gripiö
sé svona i taumana. Hins vegar
verð ég að játa að ég undrast það
hversu hratt þessi rannsókn er
keyrð áfram miðað við hvernig
tekiö hefur veriö á svona málum
hingað til.
Viö Kristján Pétursson höfum
t.d. reynt mikið til þess að flýta
rannsókn á meintri ólöglegri
handtöku tveggja bandaríkja-
manna I nóvember árið 1975 en,
þrátt fyrir tilmæli okkar margi-
trekuö hefur enginn.skriður verið
á þeirri rannsókn og er ekki að
búast viö þvi að henni ljúki á
þessu ári. Seinna málið, þ.e.a.s.
þetta Guðbjartsmál, hefur hins
vegar verið keyrt áfram af
ómældri vinnugleöi og mér sýnist
þvi augljóst, að i islenska réttar-
farinu sé ekki sama hvort Jón eða
Sr. Jón eigi I hlut.
Þarfyrir utanfinnst mér dálitið
undarlegt að fulltrúi saksóknara
rikisins, Hallvarður Einvarðsson
varasaksóknari.skulihafa hlýtt á
alla yfirheyrsluna yfir mér og
mér hefur raunar skilist að hann
hafi verið viöstaddur allar yfir-
heyrslur i málinu, en mér vitan-
lega er það mjög óvenjulegt ef
ekki einstakt i tilfellum sem þess-
um.
En mér finnst þessar yfir-
heyrslur á margan hátt ánægju-
legar, hélt Haukur áfram. —
Steingrimur Gautur Kristjánsson
Framhald á 14. siðu
Haukur Guðmundsson
„Maður getur
alltaf átt von á
þessu þegar
glímt er við
ákveðin sterk
öfl í
þjóðfélaginu”
Loðnuver-
tíðin varð
glæsileg
Loðnuvertiðinni, sem hófst
um miðjan júlimánuð, lauk
20. desember og mun
heildaraflinn hafa orðið um
110 þúsund tonn. Siðasta
daginn fengu fjögur skip
afla,.eða öll sem voru við
veiðar, og voru það Arsæll
KE með 250 lestir, Sæbjörg
VE með 280 lestir, Grind-
vikingur GK með 600 lestir
og Súla EA með 650 lestir. öll
sóttu þau loðnuna um 10-15
milr.r inn fyrir miðlinuna á
milli Islarlds og Grænlands.
Loðnuvertiðin fór fram úr
vonum þeirra bjartsýnustu
og voru það um 25 bátar sem
fiskuðu þau 110 þúsund tonn
sem veiddust. Heildarverð-
mæti aflans er mikið og voru
gjaldeyristekjurnar af hon-
um um tveir miljarðar
króna. Aflahæstu skip voru
Sigurður frá Reykjavik og
Súlan frá Akureyri.
Ekkert bendir til þess að
ekki hefði verið unnt að
halda loðnuveiðum áfram al-
veg til vorsins, en hér verður
þó látið staðar numið i bili.
—gsp
HAPPDRÆTTI
ÞJÓÐVILJANS
Opið fram á kvöid á
eftirtöldum stöðum:
Gömlu afgreiðslu Þjóðviljans, Skóla-
vörðustig 19, sími 17500. Skrifstofu
Alþýðubandalagsins, Grettisgötu 3, simi
28655. Afgreiðslu Þjóðviljans Siðumúla 6,
sími 81333. Hjá umboðsmönnum
Þjóðviljans um land allt.
Siá baksíðu
í dag veröur
dregiö í
Happ-
drættinu.