Þjóðviljinn - 23.12.1976, Page 3
Fimmtudagur 23. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Erlendar
fréttir í stuttu
máli
CARRILLO HANDTEKINN
MADRID 22/12 — Samkvæmt fréttastofufregnum frá Spáni var
Santiago Carrillo, leiðtogi Kommúnistaflokks Spánar, handtek-
inn i dag i Madrid ásamt Gregorio Lopez Raimundo, leiðtoga
Kommúnistaflokks Katalóniu. Carrillo, sem verið hefur i útlegð
frá lokum spænska borgarastriðsins 1939, sagði blaðamönnum
fyrir skömmu aðhann hefði verið á laun i Madrid siðan i febrúar
og fyrirskipaði Rodolfo Martin Villa innanrikisráðherra þá
handtöku hans. 1 umræddu viðtali við fréttamenn sagði Carrillo
að búast mætti við mikilli ókyrrð á vinnumarkaðnum ef
Kommúnistaflokkurinn yrði ekki leyfður fyrir þingkosningarn-
ar, sem eiga að fara fram á næsta ári. Spænska stjórnin neitar
enn að leyfa Kommúnistaflokknum að starfa opinberlega, enda
þótt nú eigi svo að heita að þingræði skuli endurreist i landinu.
13 BÖRN FARAST
LYON, Frakklandi 21/12 Reuter — Þrettán þroskaheft born og
ung kona drukknuðu i kvöld er skólavagn fór út af vegi i dimmri
þoku og steyptist niður i Rhone-fljótið. Niu manns sluppu lifs af
úr slysinu, þar af sjö börn, en sum þeirra eru alvarlega meidd.
LISTAVERKASALI ÁKÆRÐUR
FYRIR STRÍÐSGLÆPI
HAAG 22/12 — Forrikur hollenskur listaverkakaupmaður,
Pieter Menten, kom i dag til Hollands eftir aö honum hafði verið
visað úr landi i Sviss. Hann var handtekinn við komuna tii Hol-
lands.en þar hefur hann verið ákærður um að hafa tekið þátt i
fjöldamorðum á gyðingum i Galisiu (landsvæði sem nú er skipt á
milli Póllands og úkraniu) árið 1941, en þá mun Menten hafa
þjónað i SS-sveitum þjóðverja. Nokkur, vitni hafa gefið sig fram
á móti Menten, sem flýði land er umræddar ásakanir voru born-
ar fram.
TIMES HVETUR TIL HÖRKU
í FISKVEIÐIMÁLUM
LUNDÚNUM 22/12 Reuter — Lundúnablaðið Times hvetur i dag
bresku stjórina til að vera eins harðsnúin ,,og nauðsynlegt sé”
gagnvart Efnahagsbandalagi Evrópu i i fiskveiðimálum banda-
lagsrikja innbyrðis. Segir blaðið að ef bretar missi einhvers af
sinum hlut á þessu stigi málsins, muni reynast erfitt að ná þvi
aftur. Svo sé raunar að sjá,að Bretland ætli að fara verst allra
bandalagsrikja út úr skiptingu þeirra sin á milli á þeim fiskafla,
sem veiddur verður innan hinnar nýju 200 milna lögsögu banda-
lagsins, sem gengur i gildi um áramótin.
Heyra má á þessari frétt og öðrum að kröfuharka breta, sem
farið hafa fram á 50 milna sérlögsögu, muni aukast gagnvart
öðrum EBE-rikjum við það að ekki hefur tekist samkomulag við
Island um fiskveiðiréttindi til handa bretum á Islandsmiðum.
NÝR UMBOÐSSTJÓRI NAMIBÍU
SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM 22/12 Reuter — Martti Ahtisaari,
ambassador Finnlands i Tansaniu, var i dag skipaður eftir-
maður irans Seáns McBride sem umboðsstjóri S.þ. fyrir Nami-
biu. Hafði SWAPO, frelsishreyfing Namibiu, sem nýtur viður-
kenningar Sameinuðu þjóðanna mælt með Ahtisaari i embættið.
Suður-Afrika stjórnaði Namibiu áður i umboði Þjóðabandalags-
ins og siöan S.þ., en hefur ekki sleppt yfirráðum sinum þar enda
þótt alþjóðadómstóllinn i Haag lýsti þau ólögleg 1969.
McBride var forseti mannréttindasamtakanna Amnesty
International áður en hann tók við umboösstjórnfyrir Namibiu,
og er búist við að hann hefji á ný störf fyrir samtökin er em-
bættistimabil hans i þjónustu S.þ. rennur út um áramótin.
ALÞJÓÐABANKINN HJÁLPAR
PINOCHET
WASHINGTON 21/12 — Alþjóðabankinn samþykkti i dag að
veita Pinochet-stjórninni i Chile tvö lán, samtals aö upphæð 61
miljón dollara, enda þótt Norðurlöndin fimm, sem sameiginlega
ráða yfir einu atkvæði af tuttugu i stjórn bankans, andmæltu þvi
ákaft vegna brota Pinochet-stjórnarinnar á mannréttindum.
Bandarikin studdu hinsvegar lánaumsókn Pinochets, sem sam-
þykkt var með 14 atkv . en fimm sátu hjá. Atta bandariskir
þingmenn höfðu einnig mælt á móti lánveitingunni á þeim for-
sendum, aö Bandarikin ættu að hætta aðstoð við þau riki, sem
stöðugt brjóta mannréttindalög á þegnum sinum.
REYKINGAR BANVÆNAR
LUNDÚNUM 22/12 Reuter — Tuttugu ára rannsóknir á reyking-
um breskra lækna hafa leitt i ljós likur á þvi, að á milli þriðjungs
og helmings allra þeirra, er reykja sigarettur, deyi af völdum
ýmissa sjúkdóma, sem reykinganar örva. Þar á meðal eru
hjartasjúkdómar, lungnakrabbi og ýmsir aðrir lungnasjúkdóm-
ar.
Chiliskir kommúnistar
þakka frelsun Corvalans
MEXIKÓBORG 22/12 APN —
Stjórn Kommúnistaflokks Chile
hefur sent frá sér orðsendingu af
tilefni lausnar Luis Corvalan,
leiðtoga flokksins, og segir þar
meðal annars, að frelsun Cor-
valans sé mikill sigur fyrir al-
menning i heiminum, sem sýnt
hafi hinni langþjáöu þjóð Chile
mikla samstöðu. Ennfremur segir
i yfirlýsingunni:
„Vegna þrýstings frá and-
fasiskum, lýðræðissinnuðum
öflum um allan heim neyddist
herforingjastjórnin til að hætta
refsiaðgerðum sinum gegn aðal-
ritara chiliska kommunista-
flokksins. Það var þeirra virka og
linnulausa barátta, sem fékk
Pinochet til að láta Corvalan og
aðra syni þjóðarinnar lausa úr
fangelsum og fangabúðum. En
baráttunni er ekki lokið. Frelsun
Luis Corvalan er hvati áfram-
haldandi baráttu verkalýðs og
allrar alþýðu Chile gegn ein-
ræðinu. Hugrekki Luis Corvalan
er tákn um að chiliska þjóðin
verður ékki beygð i duftið. Um
leið og leiðtogar chiliskra
kommúnista lýsa yfir þakklæti
sinu beina þeir tilmælum til allra
rikisstjórna, flokka og samtaka,
allra stjórnmálamanna og
þjóðarleiðtoga, allra . framfara-
sinnaðra manna, að þeir haldi
BANGKOK 22/12 Reuter — Vara-
landstjóri fylkisins Súrat Tani i
suðurhluta Tailands beið bana i
dag er skæruliðar, sem i fréttinni
eru taldir til kommúnista, skutu á
þyrlu sem hánn var á ferð i. Talið
er aö um 1500 skæruliðar séu i
frumskógum i fylki þessu, sem
áfram þrýstinghum þar til allir
pólitiskir fangar i Chile hafa verið
látnir lausir. Nauðsynlegt er að
bjarga lifum þeirra föðurlands-
vina, sem gripnir hafa verið af
leynilögreglumönnum Pinochets.
Það er skylda allra lýðræöissinna
i heiminum að berjast fyrir
endurreisn mannréttinda i Chile.
liggur að Tailandsflóa. Þeir eru
sagðir heyra til Kommúnista-
flokki Tailands, sem er bannaður
af þarlendum yfirvöldum. Þeir
hafa færst allmjög i aukana i
þessum mánuði og að sögn fellt
tiu stjórnarhermenn og sært yfir
tuttugú.
Thaílenskir skæru
liðar magnast
Áríöandi fundur SINE
SÍNE félagar og aðrir námsmenn á íslandi.-Áríðandi fundur í Félagsstofnun
stúdenta klukkan 6 í dag< Þorláksmessu. Mikilvægt að allir mæti. Aðgerðir á
döf inni.
Ath. Félagsstofnun kl. 6 í dag.
SíNE
marka&storg
jólaviðskiptanna
Verzlunin KJÖT & FISKUR er einn af frumherjum baráttunnar fyrir lægra vöruverði
til neytandans. Hagkvæm innkaup, skynsamlegur rekstur og vaxandi velta gera okkur mögulegt
að bjóða lægra vöruverð. Við riðum á vaðið með „sértilboðin" síðan komu „kostaboð á kjarapöllum" og nú
kynnum við það nýjasta í þjónustu okkar við fólkið I hverfinu. „markaðstorg jólaviðskiptanna"
Á markaðstorginu er alltaf að finna eitthvað sem heimilið þarfnast til undirbúnings
jólanna, og þar eru kjarapallarnir og sértilboðin. Fað gerist alltaf
eitthvað spennandi á markaðstorginu!
sértilboð:
Kaaber kaffi , 275
strásykur 25 kg 2625
flórsykur 1/2 kg 95
Akra smjörliki 140
egg 420
rúsinur 1/2 kg 254
Libbýs tómatsósa 147
Égils appelsinusafi 2 1 645
Hveiti Pilsbury Best 5 pund 231
10 pund 432
hálfrar aldar þjónusta
kjöt&fiskurhf
seljabraut 54-74200