Þjóðviljinn - 23.12.1976, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. desember 1976
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón meö sunnudagsblaði:
Arni Bergmann
Útbreiðslustjóri: Finnur Torfi Hjörleifsson.
Auglýsingastjóri: Úlfar Þormóðsson
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Siðumúia 6. Simi 81333
Prentun: Blaðaprent hf.
ÞAÐ ER BEÐIÐ OG LEITAÐ LAGS
Þann 26. nóvember s.l. lauk i Reykjavik
viðræðum sendinefndar Efnahagsbanda-
lagsins við islenska ráðherra og embættis-
menn um fiskveiðimál.
Þar var rætt um fyrirhugaða samninga
milli Islands og Efnahagsbandalagsins
um svokölluð gagnkvæm fiskveiðiréttindi
og fleira.
1 lok þeirra viðræðna gaf formaður
sendinefndar Efnahagsbandalagsins,
Finn Olav Gundelach. sem er einn af fram
kvæmdastjórum EBE út yfirlýsingu á
fundi með fréttamönnum.
Morgunblaðið greindi frá yfirlýsingunni
á þessa leið næsta dag:
,,1 yfirlýsingunni sagði Finn Olav
Gundelach, að hann væri sannfærður um,
að þegar formlegar viðræður hæfust i des-
ember mundu báðir aðilar gefa út yfirlýs-
ingu um það, hvernig þeir mundu haga
stjórn fiskveiða, hvor á sinu svæði, og á
grundvelli þeirra yrði unnt að hefja
árangursrikar samningaviðræður, sem
markvisst stefndu að lausn. Þá sagðist
Gundelach jafnviss um það að aðilar
myndu sjá til þess, að aflaminnkun hvors
aðila á svæði hins yrði ekki of skyndileg.”
Þannig lýsti sem sagt Gundelach sann-
færingu sinni að loknum viðræðum seint i
nóvember við Einar Ágústsson, Matthias
Bjarnason og Geir Hallgrimsson.
Enginn þarf að láta sér detta i hug, að
Gundelach hafi séð ástæðu til að lýsa þess-
ari sannfæringu sinni um stöðu samninga-
málanna án þess, að hafa i þeim efnum við
sterk rök að styðjast, byggð á viðræðunum
við islenska ráðherra.
Og sérstök ástæða er til að undirstrika,
að ráðherrarnir Einar Ágústsson og Matt-
hias Bjarnason, sátu hnipnir undir lestri
Gundelachs á yfirlýsingu sinni og hreyfðu
engum mótmælum.
Nú er hins vegar sýnt, að ekki verður af
samningum i desember svo sem til stóð.
Og á blaðamannafundi i Briissel nú
þann 20. des. gaf Gundelach nýja yfirlýs-
ingu. Samkvæmt fréttum Morgunblaðsins
sagði hann þá m.a: „að íslendingar virt-
ust hafa skipt um skoðun varðandi veiði-
heimildir til handa EBE á þessu stigi,
vegna stjórnmálaástands heima fyrir.”
Það er mjög fróðlegt að bera þessar
tvær yfirlýsingar saman. Þær segja svo
ljóst sem verða má, að i Reykjavikurvið-
ræðunum seint i nóvember hafa islensku
ráðherrarnir gefið mjog mikið undir fót-
inn með samninga strax i desember.
Seinna, þegar i ljós kom hversu alger and-
staðan gegn þvi að hleypa Bretum inn i
landhelgina á ný reyndist vera, —þá hefur
sem betur fer komið hik á þá Einar, Matt-
hias og Geir, og þeir látið Gundelach vita,
að þeir bara treystu sér ekki ,,á þessu
stigi” — „vegna stjórnmálaástands heima
fyrir”.
Þetta er gott svo langt sem það nær, og
sýnir hvaða áhrif sterkt og vakandi al-
menningsálit getur haft. En sist af öllu
skulu menn þó gleyma þvi nú, að hættan á
samningum er f jarri þvi að vera liðin hjá.
Það er beðið og leitað lags. Efnahags-
bandalagið hefur sent rikisstjórn Islands
tilboð um bráðabirgðasamkomulag. Ekki
hefur fengist gefið upp, hvað i þessu til-
boði felst. Þá hefur EBE einnig lagt fram
uppkast að rammasamkomulagi til hvorki
meira né minna en 10 ára.
1 janúar má búast við að Efnahags-
bandalaginu takist að jafna sin innri
ágreiningsmál varðandi rétt einstakra
rikja i hinni nýju fiskveiðilögsögu, og að
þá muni að utan verða þrýst á islenska
ráðherra af vaxandi þunga.—Þá reynir á,
að ráðherrar og þingmenn stjórnarflokk-
anna verði látnir hafa hitann i haldinu hér
heima.
Bresku togararnir fóru úr landhelginni
1. des. Undir engum kringumstæðum má
hleypa þeim innfyrir aftur meðan ástand
fiskistofna er eitthvað i likingu við það
sem nú er. Hér er ekki eitt tonn, ekki einn
fiskur aflögu.
Fiskverndarmálum i islenskri landhelgi
verðum við Islendingar að stjórna einir og
sjálfir af skynsamlegu viti. Við eða okkar
hagsmunir munu hins vegar alls engu
ráða um það, hvernig rikjasamsteypa
Efnahagsbandalagsins hagar fiskveiðum
og fiskivernd i sinni 200 milna lögsögu.
Þar ráða hagsmunir EBE-rikjanna, en
ekki okkar.
Allt tal um það, að ef við gerum þetta
eða hitt fyrir Efnahagsbandalagið, þá
muni það innan sinnar landhelgi vernda
fiskveiðihagsmuni okkar, — slikt tal er
hugarfóstur eitt án tengsla við veruleik-
ann. Þar munu hagsmunir EBE rikjanna
einir ráða i bráð og lengd.
Það er t.d. ljóst, að Efnahagsbandalagið
mun ekki gera ráðstafanir til að vernda
þorskinn við Grænland af umhyggju fyrir
okkur, eða vegna samninga við okkur.
Hins vegar kann EBE að gera slikar
ráðstafanir vegna hagsmuna sinna
aðildarrikja, hvað sem okkur liður. Um
þessar meginstaðreyndir breytir það
engu, þótt þorskar eigi það til, svo sem al-
kunnugt er, að takast ferð á hendur yfir
sundið milli Islands og Grænlands.
k.
Vafasöm
ákvörðun
Visir heldur áfram að
gagnrýna refskákina, sem
stjórnarflokkarnir höfðu i
frammi i sambandi við kjör á
Alþingi i bankaráðin. I forystu-
grein blaðsins i gær kemur enn
fram fullyrðing um að
Framsóknarmenn hafi gert kjör
Kristins ' Finnbogasonar i
bankaráð Landsbankans aö
úrslitaatriði fyrir framhaldi
stjórnarsamvinnunnar:
„Sjálfstæðismenn og
framóknarmenn á Alþingi komu
sér saman um að endurnýja
siðferðisgrundvöll stjórnar-
samstarfsins með kosningu i
bankaráð Landsbankans.
Framsóknarmenn gerðu það að
úrslitaatriði fyrir
áframhaldandi stjórnar-
samvinnu að oddviti hús-
byggingarsjóðs flokksins yrði
endurkjörinn i bankaráð
stærsta viðskiptabankans. Eins
og á stendur verður að telja
þessa sameiginlegu ákvörðun
þingflokka stjórnarinnar vafa-
sama.
Við kjör i bankaráðin vakti
það einnig athygli, að þing-
flokkar rikisstjórnarinnar
veittu Alþýðuflokknum ekki
stuðning til þess að tryggja kjör
fulltrúa hans, þó að Alþýðu-
flokkurinn hafi ekki þingstyrk
til þess að fá fulltrúa i nefndir
eða ráð, sem skipuð eru fimm
fulltrúum, hefði fyrir margra
hluta sakir verið eðlilegt að
veita honum aðild að stjórnum
a.m.k. sumra mikilvægra
stofnana.
I þessu sambandi er einnig
rétt að vekja athygli á nauðsyn
þess að setja bankaráðs-
mönnum ákveðnar starfsreglur.
Sumir þeirra hafa starfað árum
saman sem eins konar tösku-
bankastjórar. Þeir eru
úgefendur á vixlum eða selja þá
eigin bönkum. Það liggur i
augun uppi, að erfitt er fyrir
þessa aðila að rækja lög-
bundið eftirlitshlutverk sitt með
rekstri bankanna. En rétt er að
leggja áherslu á, að banka-
ráðsmenn eru ekki allir undir
sömu sök seldir i þessum
efnum, þeir eru ekki tösku-
bankastjórar upp til hópa”.
Afstaða fyrr-
verandi verka-
lýðsleiðtoga
Ein af þeim breytingum sem
fékkst fram við 3. umræðu um
Sverrir
fjárlögin var tillaga Eðvarðs
Sigurðssonar, Guðmundar H.
Garðarssonar, Gylfa Þ. Gisla-
sonar og Karvels Pálmasonar
um 2ja miljóna framlag i stofn-
kostnað Listasafns ASt. Enginn
þurfti að vera hissa á þvi að
þingmenn eins og Ellert
Schram, Guðlaugur Gislason,
Jón G. Sólnes, Pálmi Jónsson og
Steinþór Gestsson væru reiðu-
búnir til þess að opinbera
fjandskap sinn við verkalýðs-
hreyfinguna með þvi að vera á
móti þessu menningarframlagi.
Hinsvegar segir það sina sögu,
að fyrsti formaður Lands-
sambands isl. verslunarmanna,
fyrrv. verkalýðsforinginn
Sverrir Hermannsson, skyldi
vera andvigur þessu framlagi
til verkalýðshreyfingarinnar.
Hann var jú aldrei annað en
flokkspólitiskur útsendari i
verkalýðshreyfingunni.
Þróumst með
hraða snigils
Manilla-ræða fjármála-
ráðherra var rikissjóði dýrari
en búist var við. Það var ekki
einvörðungu um kostnaðinn við
stóra sendinefnd á fund
Alþjóðabankans að ræða. Hún
hefur dregið lengri slóða. Svo
brýndi Matthias aðrar þjóðir að
standa sig i framlögum til þró-
unarlanda að hann var að lokum
brýndur til dáða á eigin orðum.
Tillaga Gils Guðmundssonar
um hækkum á framlagi Islands
i þróunarsjóð sameinuðu
þjóðanna úr 13 i 50 miljónir var
að visu felld. En svo brýndi Gils
Matthias i Þjóðviljabréfum sin-
um til nafna hans ritstjórans, að
honum lærðist loksins að blygð-
ast sin. Milli annarrar og þriðju
umræðu féllst ráðherrann á að
leggja til að framlagið yrði 25
miljónir króna. Og við það sat.
Þetta er að visu dropi ,i hafiö
miðað við það markmið Sam-
éinuðu þjóðanna, sem þær hafa
sett sér og islendingar
samþykkt að rikar þjóðir einsog
við, skuli verja 1% af þjóðar-
tekjum sinum til þróunarað-
stoðar. En við höfum aðeins rétt
úr kútnum, og það er mest um
vert. Sérstaklega vegna þess að
sendimenn okkar i New York
höfnuðu nýlega fjárveitingu frá
Þróunarstofnun S.Þ. til næstu
fimm ára, en hún gerði ráð fyrir
38 •miljón 'krónu þróunarfram-
lagi til Islands á ári. Tilboðinu
Gils
var að visu ekki hafnað að
frumkvæöi islendinga, heldur
munu starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna hafa kvartað við
utanrikisráðuneytið og bent þar
á að það jaðraði við að vera
óviðurkvæmilegt, ef Islendingar
héldu áfram að þiggja þessa
þróunarhjálp. Með hraða
snigilsins þokumst við þó
áfram.