Þjóðviljinn - 23.12.1976, Page 7
Fimmtudagur 23. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Xe>ag§krá
Bráöum koma blessuð jólin
A morgun gengur jólahátið i
garö. Trúaðir sem trúleysingjar
halda sameiginlega hátiö, þó að
þeir kunni að finna sér ólikar
ástæöur til jólahaldsins. Flestir
eru trúlega að fagna fæðingu
frelsarans i Betlehem, aðrir
telja nauðsynlegt að stytta
skammdegið og enn aðrir halda
fjölskylduhátið. Við sitjum fram
á siðasta dag við að skrifa jóla-
kveðjur til allra þeirra sem við
vanræktum allt árið og káupum
jólagjafir til þeirra sem næst
okkur standa og við sinntum
ekki heldur i erli dagsins. Og til
þess að láta einnig eitthvað af
hendi rakna til þeirra samborg-
ara, sem við vitum að eiga i
erfiðleikum, hlaupum viö með
gömlu fötin okkar .eða jafnvel
peninga til Mæðrastyrksnefnd-
ar. Að öllu þessu loknu getum
við sest að hlaðborði jólanna
með góöa samvisku.
Það er betra en ekki að vera
góður einu sinni á ári. Þess
vegna eru jólin góð og falleg há-
tið, sem vekja i brjóstum okkar
skástu tilfinningar okkar. Þeir
sem lesið hafa bækur Eric
Maria Remarque um fyrri
heimsstyrjöldina, minnast
kannski frásagnar hans af þvi,
þegar herirnir hættu að brytja
hvor annan niður á jólakvöldið
og sátu sinn hvoru megin viglin-
unnar og sungu saman jóla-
sálma. Þessi frásögn kann sum-
um að þykja hugljúf, en endan-
lega er, hún einungis fáránleg.
Fyrst og fremst er hún fárán-
leg, af þvi að hún segir frá
blekkingu. Og blekking leiðir
aldrei til neins. Hermennirnir
stóðu upp aftur og héldu áfram
að drepa hver annan næsta dag.
A sama hátt gleymum við að
jólahaldi loknu fljótlega öllum
þeim, sem við ættum að sinna
og þeim, sem skarðastan hlut
bera frá hinu islenska alls-
nægtaborði. Okkur hættir til að
blekkja sjálf okkur, flýja frá
óþægilegum staðreyndum. Við
hlýðum mörg á fagnaðarerindið
i kirkjum landsins á jólunum,
heyrum söguna um manninn,
sem eyddi ævinni i að boða frið á
jörðu, mannkærleik og bræðra-
lag og jafnrétti allra manna, en
gleymum að hinn sannkristni
vestræni heimur hefur gengið
svo langt fram I að brjóta niður
þessar kenningar, að öllu lifi á
jörðu hér er nú ógnað. Það þarf
nokkra burði til að horfast i
augu við þá staðreynd.
Menn hafa fæstir þá burði, og
flýja frá þessari staðreynd með
ýmsu móti. Þeir sem ákafast
hafa barist gegn jafnrétti og
bræðralagi allra manna, hafa
þess i stað arörænt og kúgað,
leggja niöur það litla vitsmuna-
lif sem þeir kunna að hafa og
halla sér að guði i von um fyrir-
gefningu og eilift lif. Aðrir finna
sér veraldlegri leiðir út úr vand-
anum, hengja sig i pólitiska
stefnu og gera sér hana að
trúarbrögðum án allrar þátt-
töku vitsmunalifsins, og er það
sist betra. Kenningar Jesúsar
frá Nasaret hafa jafnt orðið
fyrir þessu og kenningar
sósialismans enda er margt likt
með þeim.
En trúarvissa án ihugunar
gerir engum gott. Engin mann-
anna verk eru fullkomin, hvorki
Jesúsar Krists né hugmynda-
fræðinga sósialismans, þó aö
báðum gengi gott eitt til. Það
hlýtur að vera okkar að velja og
hafna þeim fjölmörgu þver-
sögnum, sem er að finna i
kenningum beggja. „Sælir eru
þeir sem ekki sáu, en trúðu þó”,
sagði frelsarinn, en hann sagöi
einnig „Leitið og þér munuö
finna, knýið á og fyrir yður mun
upp lokið verða,” og mörg kjós-
um við heldur hið siðara ráðið.
Vera má, að ónákvæmni guð-
spjallamannanna, sem voru að-
eins jarðneskar verur, sé um að
kenna en hugmyndafræðingar
sósialismans verða sjálfir að
standa undir sinum þversögn-
um. Til þeirra getum við náð
beint, þó að marga misvitra
guðspjallamenn séþar einnig að
finna.
Við eigum sjálf eftir að leysa
margan vanda hinna sósialisku
kenninga,og nægir þar að nefna
hinn frjálsa lýðræðislega sósíal-
isma. Þann vanda hljótum viö
aö leysa með þeim vitsmunum,
sem okkur eru gefnir. Viða er
sósialismi notaður til aö kúga
fólk i stað þess að frelsa þaö, og
á sama hátt hafa boðberar
kristindómsins hagnýtt sér
kenningar Krists i sama skyni.
Sli'kt er vitanlega ranghverfan á
kenningum beggja.
Vera má að hvorum tveggja
hafi orðið á sömu mistökin. Ef
til vill hafa báðir ætlað mann-
kyninu meira en það er menn
til. Okkur aumum er fyrirgef-
andi að trúa blint á þann guð
sem refsar okkur á himnum
uppi. En það er ástæðulaust að
óttast löngu dauða hagfræðinga
suður I Þýskalandi svo mjög að
trúa blint á kenningar þeirra,
sem einungis voru tilraunir
hugsandi manna til að finna
lausn á sameiginlegum vanda
mannkynsins. Fyrir það mundu
þeir enda refsa okkur ef þeir
hefðu valdið til. En við leiðum
þá refsingu yfir okkur sjálf. Og
hana hafa menn fulla ástæðu til
að óttast.
Eina haldbæra ráðið
gegn óttanum er að horfast i
augu við það sem ógnar tilveru
okkar. Það dugar okkur
skammt að flýja hann með þvi
að kaupa okkur aflát á himnum.
Það er átakanlegt að heyra þá
menn taka sér guðsorð i munn,
sem ekki vita hvað mannkær-
leikur er og breyta samkvæmt
þvi. En það er ekki siður sorg-
eftir Guörúnu
Helgadóttur,
deildarstjóra
legt að horfa upp á gáfaða
menn, sem hafa áhyggjur af
velferð mannkynsins, mæna
blint til Kina eða Kúbu sem ein-
hverrar allsherjar lausnar á
vandamálum hins vestræna
heims, sem býr við allt önnur
skilyröi og þarfnast nýrra og
annarra lausna. Það er sama
villutrúin og óhugsuð, blind
guðstrú. Það er ámóta van-
hugsað og þegar þeir, sem orðið
hafa fyrir vonbrigðum með
framkvæmd sósialismans i
Sovétrikjunum, telja þar með
kenningar sósialismans hafa af-
sannað gildi sitt. Slikar niður-
stöður eru flótti frá raunveru-
legum vandamálum, sem við
stöndum öll frammi fyrir og
verðum að leysa i sameiningu,
ef við viljum byggja þessa jörð
áfram.
Og þann vanda leysir ekkert
eitt okkar. Hann verðum við aö
leysa saman. Þess vegna er
hugsjón sóaialismans okkar
eina von. Hugsjónin um jafnan
rétt allra manna til gæða
jarðarinnar, um frelsi hins
kúgaða og arðrænda og um
bræðralag allra manna, stendur
bein, hvaða vindar sem um
hana leika. Allar okkar verstu
gjörðir koma niður á okkur
sjálfum, hvað sem kann að
verða á himnum uppi. Það getur
endanlega enginn hagnast á að
kúga og arðræna aðrar
manneskjur eins og þegar hefur
sannast með óhugnanlegum
hætti. Þær þjóðir sem svivirði-
legast hafa mergsogið aðrar
þjóðir i græðgi sinni eftir innan-
tómum lifsgæðum, standa nú á
heljarþrömeigin tortimingar og
okkar allra. Ef til vill gerði
kenningasmiðurinn frá Nasaret
sér þetta ljóst, þegar hann
sagði: „Það sem þér gerið ein-
um af minum minnstu
bræðrum, það gerið þér mér.”
Jólin eru hátið ljóss og birtu,
segja prestarnir. Sú birta hefur
i þau tvö þúsund ár, sem liðin
eru frá fæðingu frelsarans, náð
skammt út i myrkrið. Ennþá
stunda menn bræðravig og um-
gangast þá jörð sem þeim var
gefin af miskunnarleysi, sem nú
ógnar öllu mannkyni. Sú stund
erupp runnin að við erum knúin
til að endurskoða þau markmið
sem við keppum að. Þó að við
séum fá og smá hér norður á
veraldarhjara, eins og sálma-
skáldið sagði, getum við notað
þessa daga til að endurskoða
hug okkar um, hvernig lifi við
viljum lifa i samfélagi við aðra
menn eða draga til okkar það
sem við komum höndum yfir i
fáranlegu kapphlaupi okkar
eftir fánýtu skrani. Með réttri
niðurstöðu hygg ég að við eigum
betri og rikari jól að ári og þess
gerist ekki sama þörf að kaupa
sér aflát fyrir vanrækslusyndir
á siðustu stundu.
Félögum öllum og öörum óska
ég slikrar jólahátiðar.
Öryrkjum ætlað
að lifa langt fyrir
neðan himdalíf
segir Þormóður Guðlaugsson
sem er 100% öryrki
Isl. kartöflur
fram í mars
FLESTAR TEGUNDIR GRÆNMETIS
TIL HJÁ GRÆNMETISVERSLUNINNI
Þormóður Guðlaugsson kom
allreiður á Þjóðviljann fyrir
helgi. Hann er 100% öryrki og
sagöi að það væri langt fyrir
neöan hundalif sem þeim væri
ætlað að lifa.
Taldi hann af og frá aö 100%
öryrkjar eða gamalmenni gætu
unnið og ættu ekki heldur að
gera það. Mikill fjöldi þessa
fólks hefur aðeins 41.584 krónur
i lifeyri á mánuði og er þá tekju-
trygging þar innifalin. Þó aö
tekjur fólks geti náð 56.084 kr.
án þess aö tekjutryggingin falli
niður, eins og fram kom i ræðu
Eðvarðs Sigurðssonar á ASl-
þingi, þá er það miklu hærri
upphæö en fjöldinn hefur.
Þormóöur sagði að ef fólk léti
sérnægja að borða eina máltíð á
dag, en auðvitað hlyti það aö
drepast á þvi fyrr eða siðar,
mætti gera ráð fyrir aö lægsta
kjötmáltið kostaði á mat-
sölustað 990 krónur en fisk-
máltið 790 krónur. Fimmtán
kjötmáltiðir gera þá 14.850 kr.
en 15 fiskmáltiðir 11850 kr. Ef
gert væri ráð fyrir fjórðung úr
mjólkurlitra á dag á matsölu-
stað væru það 1.444 krónur. Með
10.000 króna húsaleigu verða
þetta samtals 38.144 kr. og eru
þá eftirstöðvarnar af ellilif-
eyrimum 3.440 krónur. Þá er
eftir að borga alla þjónustu t.d.
strætisvagna, klæöi og skó.
Þetta væri ekkert á við hundalif
þvi að hundar fengju amk.
tvisvar að borða á dag. Það má
segja að öryrkjar sliti litið
Þormóður Guðlaugsson.
fötum ef þeir sitja i hjólastól en
þeir þurfa þó altént nærföt eins
og annað fólk.
Þjóðfélagið ætlast til þess að
þetta fólk lifi á betli, sagði
Þormóður. Ég tel mig ekki eiga
bömin, þó aö ég hafi getið þau,
þvi að þau eru ekki þrælar
minir. Þau hafa nóg að berjast
fyrir sinu eigin lifi.
Að lokum sagöist Þormóður
hafa unnið alla sina ævi bæði til
sjós og lands og ekki eiga rétt á
neinum lifeyrissjóði. —GFr
Þrátt fyrir rýra uppskeru
kartaflna á siðastliðnu hausti á
Suðurlandi, eru horfur á að þær
muni endast út febrúarmánuð. A
Norðurlandi var uppskera viðast
hvar góð og þar munu innlendar
kartöflur verða á markaðnum
fram i april. Hingað til hefur
verið mjög góð nýting á
kartöflum á Suðurlandi, litið um
skemmdir, en töluvert smælki.
Fram að þessu hafa nær
eingöngu verið seldar kartöflur i
II. verðflokki, sem eru fremur
smáar. En frá og með þessari
viku verða á markaðnum
kartöflur i I. verðflokki sem eru
jafnari að stærð, og litið um
smáar kartöflur i þeim flokki.
Það eru felstir sammála um að
bragðgæði kartaflanna hafi verið
með besta móti i haust og vetur.
Grær.metisverslun land-
búnaðarins mun fá um 500 tonn af
pólskum kartöflum eftir áramót
og i vor hafa verið tryggðar
kartöflur erlendis frá sem ættu
að duga þar til nýjar italskar
kartöflur koma á markaðinn.
Þrátt fyrir lélega uppskeru
kartaflna viðast hvar i Evrópu,
hefur ekki verið sett á
útflutningsbann, en frá Banda-
rikjunum og Kandada hafa verið
seldar kartöflur viða á
meginlandi Evrópu. þannig að
verðið hefur haldist nokkurn
veginn óbreytt siðustu vikur.
Flestar tegundir grænmetis eru
nú til hjá Grænmetisversluninni
og allt sem bendir til þess að
nægilegt framboð verði á
grænmeti i vetur.
BÆKURNAR ÚR LJÓÐHÚSUM
Ölíkar persónur
eftir Þórberg Þórðarson
Verð: kr. 3000 + sölusk.
Sigur í Víetnam
eftir Richard West
Verð: kr. 1600 + sölusk.
LJÓÐHÚS
Laufásvegi 22
Reykjavik
Pósthólf 629
Simi 17095, 35724.