Þjóðviljinn - 23.01.1977, Side 15

Þjóðviljinn - 23.01.1977, Side 15
Sunnudagur 23. janúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Hin hvassa kló veggjalúsarinnar (stækkuö 830 sinnum). Veggja- lúsin getur tórt mánuöum saman næringarlaus i veggjarsprungu. l öllum hjartnæmum umræöum samtímans um lífríki og samhengið í þvi verða nokkrar smáar líf- verur mjög útundan, enda þótt þær séu manninum einkar nákomnar. Hér er átt við þær lýs og flær og aðra óværu, sem skríða vill á menn og nærist á blóði þeirra eða húð eða fitu- vessum. Þessi partur líf- keðjunnar er hið mesta feimnismál og það þykir t.d. í öllum löndum jafn- mikil skömm að láta það spyrjast að lús haf i skriðið á einhvern úr fjölskyld- unni. En auövitað ættu menn ekki aö þær bíta Þetta skrýmslier venjuleg höfuölús, stækkuö 80 sinnum: hálfgleymdur kunningi snýr aftur. veröa neitt undrandi á þvi, aö herra sköpunarverksins sé ætur talinn, við erum hluti lifkerfis, sem ekki virðir forréttindi. Allir hafa matarlyst, fillinn jafnt sem bakterlan. Ef augu okkar væru eins skarpskyggn og smásjár, þá mundum við sjá hundruö þúsund bakteria brölta á hverjum fer- sentimetra af yfirborði húðar okkar heittelskuðu — reyndar eru þetta mest nytsamlegar og skað- lausar bakteriur, sem m.a. hrekja á brotfskaðlega sýkla. En við sjáum ekki þessar örsmáu sambýlisverur okkar, og sálar- friðnum er ekki stefnt i hættu. En þegar þessi nánu tengsl við dýrarikið koma fram i heim- sóknum veggjalúsa, fatalúsa, höfuðlúsa, flóa, flatlúsa, þá vandast málið heldur betur. Óþægindin eru tilfinnanleg, sýkingarhætta i mörgum tilvik- um veruleg og nytsemd engin, þetta eru allt snikjudýr. Veggjalýs eru algengasta meinið i mörgum löndum og reynast furðulega lif- seigar. Höfuðlýs (pediculus humanis capitis) voru i eina tið taldar lifsmerki i þjóðtrú, en settu mjög ofan i mikilli her- ferð heilbrigðisunnenda gegn þeim. Jafnt hér sem i nálægum löndum höfðu menn gleymt þeim leiðindagesti, eða svo gott sem, en nú ku það gerast oftar en lengi hefur verið, að lýs hafa skriðið á börn. Þetta kvikindi á sér sex vikna æfiskeið. Hvert kvendýr eignast um 300 egg (nit) sem það festir á hárin með sterku náttúru- limi. Og hver lús finnur til svengdar fimm sinnum á dag og sýgur þá blóð úr höfðuðleðri hins óheppna gestgjafa. Flóin er og hvimleiður sýklaberi. Hún er aðiens 2-3 mm. á lengd, en getur stokkiö um 35 cm. á langveg og 20 cm. upp i loft — geri aðrir hástökkvarar betur. Þannig festir lúsin sig (240 sinnum stækkaö) og þaö þarf nokkuö róttækar aðferöir til aö hrekja hana á brott. i 85 RÚLLUI R Seljum næstu daga heilar og hálfar rúllur af ■ Æ 1 Xl guiíieppum á mjög hagstæðu verð ■ ..... i - - 85 rúllur eru í boði ,v y Lítið við í Litaveri því það 1 ||| fffli v hefur ávallt borgað sig í Hreyfilsnúsmu, Grensásvegi 18 i I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.