Þjóðviljinn - 29.03.1977, Page 7
Þriöjudagur 29. mars 1977. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
í fyrsta lagi má auka kaupmátt á kostnað
atvinnurekenda, ef til hliðaraðgerða er gripið, sem
hindra að þeir velti kauphækkuninni
aftur yfir á launafólk. Þess vegna krefst ASÍ...
Ásmundur
Stefánsson
hagfræðingur:
Krafa um aukinn
kaupmátt
Fyrir stuttu sendi Vinnuveit-
endasamband tslands frá sér
álitsgerð, þar sem greint er frá
mati atvinnurekenda á áhrifum
30% kauphækkunar. í álits-
gerðinni er þvi haldið fram, að
verðbólga muni magnast, þvi
atvinnurekendur muni velta
kauphækkuninni út í verðlagið
og gengið muni falla um 15%
í álitsgerðinni er algjörlega
litið framhjá hinum viðtæku
kröfum ASl um breytta efna-
hagsstefnu. Eina pólitiska áð-
gerðin, sem nefnd er i álitsgerð
Vinnuveitendasambands Is-
lands, er gengisfelling. Að þessu
leyti er álitsgerðin i töluverðri
andstöðu við fyrri yfirlýsingar
atvinnurekenda, þar sem lýst er
nauðsyn pólitiskra aðgeröa.
Verkalýðshreyfingin gerir sér
ljóst að kauphækkun ein saman
tryggir ekki bætta afkomu
launafólks. Með veröbólgu og
skattahækkunum geta vald-.
hafar hirt aftur það, sem
ávinnst i samningum um
kaupið. Þess vegna hefur Al-
þýðusambandið sett fram itar-
legar kröfur um breytta stefnu i
efnahagsmálum. Ahrif krafna
ASI verða ekki metin af viti,
nema til þess sé tekið tillit.
Alitsgerð Vinnuveitendasam-
bandsins er þvi leikur að tölum.
Ég vil af þessu tilefni rekja
hér með það sem ég tel mestu
máli skipta i pólitiskum kröfum
ASI:
I fyrsta 'lagi má auka
kaupmátt á kostnað atvinnu-
rekenda ef til hliðaraðgerða er
gripið sem hindra að þeir velti
kauphækkuninni aftur yfir á
launafólk. Þess vegna krefst
ASl aðgerða i verðlagsmálum
og sérstakrar tryggingar af
hálfu rikisvaldsins um verðlag
búvöru og opinberrar þjónustu..
1 öðru lagi má ná auknum hlut
launafólki til handa með þvi aö
beina aðgeröum að þvi að efla
hagvöxt umfram það, sem
annars væri. Þvi gerir ASI kröf-
ur um aðgerðir á þessu sviði. 1
þriðja lagi má auka ráð-
stöfunarfé almennings á
kostnað hins opinbera og bland-
ast fáum hugur um, að á þvi
sviði má ná svigrúmi, án þess
að það bitni á gæðum opinberr-
ar þjónustu ef menn ganga i
verkið af alvöru. ASI krefst full-
kominnar opinberrar þjónustu
en telur ótvirætt að mikið megi
spara i opinberum rekstri, án
þess að félagsleg þjónusta verði
skert. 1 fjórða lagi má á hverj-
um tima ná aukningu á kostnað
fjárfestinga. Hvað fjarfesting-
ar snertir er skipulagsleysið svo
geigvænlegt, að enginn vafi er
á, að meiri framleiösluaukningu
má ná með minni fjárfestingu
og bættu skipulagi, þannig að i
dag ætti hér að vera hægt að ná
svigrúmi til kauphækkunar án
þess að ganga á hlut framtiðar-
innar.
Verði komið til móts við kröf-
ur ASI um breytta efnahags-
stefnu, má ná allt annarri og
meiri aukningu kaupmáttar en
gert er ráð fyrir i álitsgerð
Vinnuveitendasambandsins,
jafnframt þvi sem komast má
hjá þeirri verðbólguhrollvekju,
sem þar er búin til.
Hættur af asbestnotkun
Einn af fjórum sýna
skerta lungnastarfsemi
Nýlega gaf Heilbrigðis-
eftirlit ríkisins út skýrslu
um hættu á atvinnusjúk-
dómum vegna mengunar i
Kisiliðjunni við Mývatn.
Kom þar m.a. fram að ef
ekki verður þegar gripið til
viðeigandi ráðstafana
muni það óhjákvæmilega
verða til þess að nýr sjúk-
dómur heldur innreið sína i
landið: kísilveiki sem á er-
lendum málum nefnistsili-
cosis.
Klsilveiki fellur undir þann
flokk atvinnusjúkdóma sem
nefnist ryklungu. I þeim flokki
eru einnig sjúkdómar sem herja
einkum á þá menn sem vinna i
námum, við álvinnslu, ýmiskonar
málmvinnslu og -bræðslu, með
glerull og skylda hluti og með as-
best. Hér á eftir verður einkum
fjallað um síðastnefnda hlutinn,
asbest, en samkvæmt nýlegri
grein i Dagens Nyheter hafa
sænskir sérfræðingar komist að
viðtækum og skuggalegum af-
leiðingum þess efnis á lungu
þeirra sem meö efnið vinna.
Námuvinna ekki hættuleg-
ust
I Sviþjóö vinna um 100 þúsund
manns með asbest og er þá bæði
átt við vinnslu á asbesti og þá sem
vinna með þaö t.d. við einangrun
húsa oþh. Rannsóknir sem gerðar
hafa verið á stórum vinnustöðum
sýna að einn af hverjum fjórum á
á hættu að fá litt þekktan sjúkdóm
sem á læknamáli nefnist „pleura-
plaque” en hann lýsir sér 1 kölkun
og bólgumyndun i brjósthimn-
unni. Að auki á einn af hverjum
hundrað á hættu að veikjast af
„asbestosis” sem er náskyld
ídsilveikinni og mætti þvi nefna
asbestveiki.
Rannsóknir þessar eru ekki
langt komnar i Sviþjóð en nýlega
var þó haldin þar ráöstefna þar
sem sérfræðingar þeir sem að
rannsóknum þessum vinna báru
saman bækur sinar og ráöfæröu
sig við erlenda gesti.
Lítt þekktur
sjúkdómur
útbreiddur meðal
þeirra sem
vinna með asbest
A ráöstefnu þessari var greint
frá helstu niðurstöðum rannsókn-
anna og kom þar ma. fram að af
770 starfsmönnum sem rann-
sakaöir voru á aðalverkstæðum
sænsku járnbrautanna reyndust
257 hafa „pleuraplaque” og 8
„asbestosis”. I verksmiðju einni
sem framleiðir byggingarefni
reyndust 46 af 195 starfsmönnum
vera haldnir af einhvers konar
truflunum i starfsemi lungnanna.
Það er einkum svonefnt blátt as-
best sem kemur frá Suður-Afriku
sem talið er hættulegt.
Kanadiskur læknir sem sat
ráðstefnuna og hefur fengist mik-
ið viö rannsóknir á áhrifum as-
bests á heilsufar manna
staðhæfði að þeir sem ynnu i as-
bestnámum væru i minni hættu
heldur en þeir sem ynnu við ein-
angrun skipa og húsnæðis.
Sjúkdómurinn /,pleura-
plaque"
Það eru innan viö fimm ár siðan
læknar fundu sjúkdómseinkenni
„pleuraplaque” á röntgenmynd-
um. 1 fyrstu heldu þeir aö sjúk-
dómurinn hætti að herja á menn
ef þeir hættu að vinna við asbest,
þe. að lökunin hætti, en nú hefur
þaö sýnt sig að sjúkdómur þessi
hagar sér að þessu leyti alveg
eins og kisilveiki og asbestveiki:
sjúkdómseinkennin halda áfram
að vaxa eftir að menn hætta að
vinna með efniö.
Sérfræðingar telja aö sjúkdóm-
ur þessi veröi þannig til að
asbesttref jar sem maðurinn
andar að sér þröngvi sér i gegn-
um lungun og setjist aö i brjóst-
himnunni. Sjúkdómurinn þarf
ekki að hafa áhrif á lungnaþoiiö,
þe. öndunarhæfnina, en þó eru
þess dæmi aö það hafi minnkað
um 40%.
Ekkert hefur enn komið fram
við rannsóknir sem bendir til
skyldleika „pleuraplaque” og
lungnakrabba en vitað er að sjúk-
dómsins veröur oftar vart hjá
þeim sem reykja. Þeir sem ráð-
stefnuna sátu treystu sér ekki til
að gefa nein almenn heilræði
tilþeirra sem vinna við asbest, til
Sænsk heilbrigðisyfirvöld hafa
nú stórar áhyggjur af áhrifum
asbests á heilsufar þeirra sem
vinna með það. Benda rannsóknir
til þess að 1 af hverjum fjórum
eigi á hættu að fá sjúkdóminn
„pleuraplaque” sem herjar á
brjösthimnuna.
I tilefni af þessu haföi blaöið tal
af Hrafni Friörikssyni forstöðu-
manni Heilbrigðiseftirlits rikisins
og spurði hann hversu tnargir
þeir væru hér á landi sem vinna
með asbest og hvort þessa nýja
sjúkdóms hefði oröiö vart hér.
Hann kvað mál þetta vera litt
kannað og væri ekki vitaö með
vissu hve margir vinna með
asbest hér á landi.
þess væru rannsóknir of stutt á
veg komnar. Þó væri ráðlegt fyrir
þá að hætta aö reykja.
Ekki verið greint hér á
landi
Hjá Heilbrigðiseftirliti rikisins
fengum við þær upplýsingar að
asbestnotkun hefði mikið veriö til
umræðu á hinum Norðurlöndun-
um, einkum eftir að fréttir birtust
um það sumarið 1975 að asbest-
vinna gæti valdjð krabbameini.
—-Fyrir utan álverið er hættan
mest hjá þeim sem vinna við
einangrun með asbesti, einkum
um borð i skipum þar sem að-
staða er oft þröng og loftræsting
litil. Mest er hættan þó þegar
veriö er aö rifa asbesteinangrun
úr skipunum, sagði Hrafn.
Hann visaöi einnig til viðtals
sem Morgunblaöið átti við hann
fyrir skömmu. Þar segir hann að
nú sé unnið aö könnun á notkun
asbests i vatnslagnir hér á landi.
Viða eru notaðar vatnslagnir úr
asbestsementi eða öörum asbest-
efnum og vill Heilbrigöiseftirlitiö
ganga úr skugga um hvort hætta
sé á þvi aö asbestnálar berist meö
neysluvatni. Hrafn segir i viötal-
Þótt það væri aldrei staðfest
brugðust danir hart við og
bönnuðu notkun efnisins en I Svi-
þjóð var ein tegund þess bönnuð.
Hrafn Friðriksson forstöðu-
maður Heilbrigiöseftirlitsins
sagði aö hann vissi ekki til þess að
nein könnun hefði verið gerð á
áhrifum asbests hér á landi og
ekki gat hann sagt hversu margir
ynnu með asbest hér.
Blaðamaður spuröi hann um
sjúkdóminn „pleuraplaque”,
hvort hans heföi orðið vart hér á
landi.
— Nei, þessi sjúkdómur hefur
ekki verið greindur hér á landi.
Þaö kann að hafa sinar skýringar
i þvi að hann hefur ekki verið
kannaður sérstaklega. Einnig er
hugsanlegt að menn hafi ekki
greint hann frá eftirstöðvum
berkla eða brjósthimnubólgu.
Leifar af þessum sjúkdómum og
jafnvel einnig lungnabólgu, geta
lýst sér mjög svipaö og „pleura-
plaque”, þe. sem þykkildi eða
kölkun i brjósthimnunni. Þessir
sjúkdómar voru algengir hér og
þvi gæti verið að læknar hefðu
ekki greint „pleuraplaque” frá
þeim enda getur það verið erfitt.
—ÞH
inu að þessi könnun sé ekki gerð
að gefnu tilefni, hins vegar sé
vitað að tæring i vatnslögnum er
mjög mikil hér á landi. Hefur
eftirlitið i þessu sambandi óskaö
eftir upplýsingum frá öðrum
Norðurlöndum.
Loks má nefna að i hinni frægu
skýrslu sem Matthias Bjarnason
heilbrigðis- og tryggingaráðherra
flutti á alþingi 1. mars sl. um
mengunarhættu i álverinu i
Straumsvik segir að fyrirtækinu
hafi verið „gert að gera greih
fyrir asbestnotkun sinni og gefin
fyrirmæli um að draga úr þeirri
notkunásamtað viöhafa sérstaka
gát og varnir við sögun og aðra
meðferð á efninu.” Kemur fram i
skýrslunni að asbestnotkun ál-
verins hefur numið 62.5 tonnum á
ári miðað við framleiðslu á70 þús-
und tonnum af áli og 100 fóöruö
ker. Hefur fyrirtækið orðið við
þessum fyrirmælum.
—ÞH
Asbestnotkun hættuleg heilsu manna
Hefur ekki verið
kannað hér á landi
segir Heilbrigðiseftirlit ríkisins —
Svíar hafa miklar áhyggjur af asbesti