Þjóðviljinn - 11.06.1977, Side 10

Þjóðviljinn - 11.06.1977, Side 10
M SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Lmug«rd»gur 11 jénl 1»77 Helga Pálsdóttir Geirdal: Maöur vonast eftir verulegum kjarabótum. Kannski hefur aldrei verið unnið hér betur en núna þegar fólk er afslappað af þvi að það vinnur aðeins dagvinnuna, segir ólafur Elisson verkstjóri. | Sigriin Clausen: Ég er hlynnt þvl að beita meiri hörku ef meðþarf. Þórný Elisdóttir: Það er alit annað að vera komin heim kl. 5,þó að ég sé ekki með nema 5 manna fjölskyldu. ,Fólk á að geta lifað af dagyinnu’ Akraborgin klýfur rennslétt sund, og sól stafar af snjóhvitum byrðing skipsins. Ferð er heitið upp á Skaga til að spyrja verkalýð um viðhorf til yfirvinnu- banns og samninga suð- ur i Reykjavik. Konur eiga að kljúfa sig út úr og semja sér Meöal farþega er Herdis Ólafs- dóttir, formaður kvennadeildar Verkalýðsfélagsins á Akranesi, á heimleið úr langvinnu þófi. Hún ætlar aö hvila sig um hrið á þrasi við atvinnurekendur, en Bjarn- friður Leósdóttir tekur sæti henn- ar. Ég sest á móti Herdisi og hún segir mér hljótt frá nýjum tiðind- um af samningastólum. Hún hef- ur áhyggjur af þvi aö láglauna- hóparnir muni enn sitja eftir með sárt enni, en konur skipa meiri- hluta þeirra. „Ég er komin á þá skoðun að konur eigi að kljúfa sig út Ur og semja sér”, segir hún. Svo fer hún að segja mér frá hæfi- leikakonum i verkalýösstétt á Akranesi og er greinilega stolt af liði sinu. Nú kemur þekktur ihaldspiltur og hlammar sér niö- ur viö hliöina á okkur og eftir þaö eru verkalýösmál ekki rædd af al- vöru. Hér vinna um 100 konur og 30 karlar begar kemurupp á Skaga verö- ur að láta hendur standa fram úr ermum þvi að timinn er naumur. Siðasta ferö meö Akraborginni er klukkan hálf þrjú vegna yfir- vinnubannsins. Ég hraða mér eft- ir sólgljáandi steinsteypu og heimsæki 3 stóra vinnustaði. Að þessu sinni verður skýrt frá komu minni i frystihús Haralds Böðvarssonar. Þegar ég kem þar að, rétt fyrir eitt, er matartima ekki lokið og mannskapurinn flatmagar f yrir utan i sterku skini sólar.Hér vinna um hundrað kon- ur og 30 karlar. Fiskurinn vinnst af þvi að fólk vinnur betur Helga Pálsdóttir Geirdalliggur igrasinuognýtur góöa veðursins. „Maður vonast eftir verulegum kjarabótum”,segirhún. „Þó held ég að ekki sé hægt að taka stór stökk i einu. Þetta verður að koma i áföngum. Fólkið hérna er ánægt að hafa svona stuttan Heimsókn í frystihús Haralds Böðvarssonar á Akranesi Ellnborg Benediktsdóttir: Mér finnst þetta ganga hægt hjá þeim þarna fyrir sunnan Myndir ogtexti: GFr vinnutima vegna yfirvinnubanns- ins. Þaö er þreytandi að vinna dageftirdagtilkl.7 en nú er hætt fyrir 5. Þetta eru betri aðgeröir en að stoppa alveg. Fólk er ánægðara svona þó að þetta komi óneitanlega viö pyngjuna þegar til lengdar lætur. Hitt er annaö mál hvort yfirvinnubannið flýtir fyrir samningum. Fiskurinn vinnst af þvi aö fólk vinnur betur þegarþað hættir svona snemmaá daginn. Enginn svertingi i Ródesiu tæki að sér að hreinsa kamra fyrir þetta kaup Nú er hringt til vinnu og Helga hraðar sér inn i húsið. Ég fylgi á eftir.og inni i húsinu hitti ég ólaf Eliassonverkstjóra isal. Hann er spurður að þvi hvort yfirvinnu- bannið hafi haft mikil áhrif i frystihúsinu. „Fyrir viku,” seg ir hann,, „kom hér mikill afli á land og þá þurfti að láta hluta af honu:n i burt. Ég tek það fram að hér hefur alla tið verið unniö vel, en kannski aldrei betur en núna þegar fólk er afslappað vegna þess að baö vinnur aðeins dag- vinnuna.Hér er fagfólk sem vinn- ur af kostgæfni, en enginn svert- ingi f Ródesiu tæki að sér aö hreinsa kamra fyrir það kaup sem þvi er boðið upp á. Konurnar hérna fá 17 þúsund krónur á viku sem er til háborinnar skammar. Verðstöðvun verður að setja á oddinn Sigrún Clausen er trúnaðar- maður í frystihúsinu og hana tek ég næst tali. Hún leiðir mig inn i pásustofuna svokallaða, sem er snyrtileg vistarvera sem verka- fólkið notartil smáhvilda og til að fá sér að reykja. ,,Ég er ekki of hress yfir samningamálunum”, segir Sig- rún, „ég er hrædd viö gömlu grýlu, að allar kjarabætur verði jafnharðan teknar aftur. Ég held að algjör verðstöövun sé það eina sem getur tryggt þær kjarabætur sem við fáum. Ég trúi ekki ööru en samið verði um 100 þúsund króna lágmarkskaup þvi að það er ekki hægt að ætla fólki aö lifa á 70 þúsund krónum á mánuði en það er kaupiö hér i frystihúsinu. Ég er persónulega hlynnt þvi að fara út i harðar aðgerðir til aö halda kröfunum sem markaöar voru á ASl-þinginu i fyrra til streitu. En verðstöðvun verður aö setja á oddinn svo aö ekki verði allt af okkur tekið aftur, jafnvel ður en fyrsta útborgun kemur til, eins og gerst hefur áður. Fólk er að uppgötva, að það á að geta lifað á dagvinnunni Um yfirvinnubanniö er það að segja að viö höfum uppgötvað að það er miklu meira mann- sæmandi að vinna aðeins dag- vinnuna. Við höfum getað gert ýmislegtsem viðhöfum áður orö- ið að sleppa. Hingað til hefur viðtekin skoðun verið sú aö dag- vinnukaupiö sé ekki til að lifa á, heldur komi þar eftirvinnan til. Og fólk sér þetta núna þegar þaö fær viku eftir viku 17 þúsund krónur velta út úr launaumslag- inu. Þetta kemur sér mjög illa fjárhagslega fyrir marga. Við verðum að breyta þessu. Fólk á að geta lifað á dagvinnunni, og það er að uppgötva það núna. Ég held að afköst okkar i vinn- unniséu betri heldur en þegar við unnum eins langan vinnudag og hefur tiðkast. Við erum óþreytt- ari. En hins vegar ef mikið af fiski bærist á land er ég hrædd um að það kæmi við kaunin á at- vinnurekandanum. Ég er ekki Framhald á bls. 18.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.