Þjóðviljinn - 25.09.1977, Side 11
Sunnudagur 25. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Frá Vestur- Þýskalandi hafa
undanfarið borist þær fréttir, að
Adolf Hitler sé á ný að verða
súperstar þar i landi. Kvikmynd
um hann slær aðsóknarmet,
blöðin birta úrdrætti úr dag-
bókum nasistaforingja og I
Hamborg kvað vera i uppsiglingu
söngleikur mikill um foringja
Þriðja rikisins. Svo er að heyra á
vesturþýskum blöðum að þessi
Hitler-alda valdi mönnum
margvislegum ónotum þar i
landi. Ymsir, þar á meðal Willy
Brandt, hafa varað við þvi að
þessu kunni að fylgja endurnýjuð
hrifningá nasismanum,og margir
þarlendir framámenn, sém
s jálfir voru f slagtogi við nasista á
yngri árum, eru ekkert hrifnir af
þvi að verið sé að rif ja þessa tima
upp.
Sannleikurinn er lika sá, að
Hitler hefur verið feimnismál hjá
þjóðverjum siðan heims-
styrjöldinni siðari lauk, og hafa
menn reynt að afgreiða hann og
nasismann með ýmiskonar kyn-
Hitler i hópi aðdáenda. Yngri kynslóöin gefur hin undarlegustu svör.
Hitler aftur súperstar
legum og langsóttum skýringum.
Og þjóðverjar hafa raunar ekki
verið einir um það. Vissir
reyfarahöfundar bandariskir, svo
sem Leon Uris og Irwin Shaw,
voru til dæmis með skýringar i þá
átt, að þjóðverjar væru I eðli sinu
einhverskonar kynjaverur, sem
skæru sig úr öllu öðru mannfólki,
þannig að þvi væri likast að þeir
væru af öðrum hnetti. Af einni
slfkri skáldsögu bandariskri var
það helst að skilja, að höfundur
teldi þjóðverja haífa gengið af
göflunum af þvi að lesa Niflunga-
ljóð og hlusta á Wagner.
Reynt að gleyma nas-
ismanum
Austurþjóðverjar hallast hins-
vegar að þvi að fria þýsku þjóðina
af allri synd i þessu máli. Þar er
hin opinbera lina að heimsstyrj-
öldin siðari hafi verið alþjóðleg
barátta alþýðunnar gegn Hitler-
fasismanum, og er jafnvel þeirri
hugmynd gefið undir fótinn að
þýska þjóðinhafi ekki verið siður
einlæg i þeirri baráttu en aðrir. 1
Vestur-Þýskalandi hefur, eins og
fyrr er að vikiö, hinsvegar verið
tekið það ráð að afgreiða nasism-
ann með ýmsum skýringum á
persónuleika Hitlers eins, en yfir-
leitt hefur þar i landi aðaláhersl-
an verið lögð á að hafa sem fæst
orð um timabil nasismans og leit-
ast við að láta það falla i
gleymsku. Það er skiljanlegt með
tilliti til þess, að fjölmargir nú-
verandi háttsettir menn þar i
landi voru á sinum tima inasista-
flokknum eða höfðu á annan hátt
góð sambönd við nasista.
Til þessa hefur vesturþjóðverj-
um lika orðið furðuvel ágengt i
þeirri viðleitni sinni að gleyma
Hitler. Þetta kemur meðal ann-
ars fram af svörum við spurning-
um, sem lagöar voru fyrir þar-
lenda skólanema. Af þeim er
ljóst, að vesturþýsk æska veit
ekki ýkja mikið um þann leiðtoga
þjóðar sinnar, sem sjálfur gortaði
af þvi á slnum tima að njóta meiri
vinsælda i sinu föðurlandi en
nokkur einstaklingur frá þvi að
Lúbher leið.Skólanemarnir voru
beðnir að gera grein fyrir þvi,
sem þeirvissuum Hitler. Nokkur
svaranna:
„Leiðtogi i 30 ára stríð-
inu”
„Hann drakk mikið af viskii og
var mikill söngmaður.” (Tólf ára
stúlka.)
„Ég held að hann hafi fæðst
1819.” (Fjórtán ára stúlka.)
„Ég hef heyrt að Adolf Hitler
hafi verið ættaður frá Hollandi.”
(Þrettán ára drengur.)
„Adolf Hitler var itali.” (Fjór-
tán ára stúlka.)
„Hann lærði læknisfræði i
Mönchen, eftirað hann var búinn
með skyldunámið.” (Fimmtán
ára drengur.)
„Dag einn kom hann á krá
nokkra i Miinchen, þar sem
Vaxandi
áhugi fyrir
Hitler grípur
um sig
í Vestur-
Þýskalandi
kommúnistaflokkur nokkur var á
fundi. 1 þeim flokki voru aðeins
þrir félagsmenn. Úr þeim flokki
stofnaði hann siðar nasistaflokk-
inn." (Fjórtán ára drengur.)
„Hann var i nasistaflokknum,
sem var vinstri klofningur úr
flokki sósi aldem ók ra ta . ”
(Seytján ára piltur.)
„Og þá, sem voru á móti hon-
um, nefndi hann nasista. Hann
setti nasistana I gasklefana.”
(Þrettán ára drengur.)
„Hann sigraði Bismarck i kosn-
ingum og kom til valda 1933.”
(Fimmtán ára drengur.)
„Staðgengill hans var Bis-
marck, sem setið hefur i fangelsi i
Austur-Þýskalandi I 30 ár og hef-
ur reynt að fremja sjálfsmorð i
fangelsinu.” (Fimmtán ára
drengur.)
„Hitler var sjálfur gyðingur.”
(Sextán ára sttúka.)
„Hitler var leiðtogi Þýskalands
i þrjátiu ára striðinu.” (Seytján
ára drengur.)
„Hann hóf heimsstyrjöldina
siðari milli Vestur- og Austur-
Þýskalands. Hann kom þvi til
leiðar að múrinn (Berlinar-múr-
inn) var hlaðinn. Margir hata
Hitler, vegna þess að hann lét
hlaða mUrinn.” (TIu ára stdlka.)
„Hann var foringi þýska sam-
bandslýðveldisins.” (Fjórtán ára
stúlka.)
„Hitler var I Kristilega demó-
krataflokknum.” (Fjórtán ára
stUlka.)
SS-samkomur
Rétt er að taka fram að ekki
voru svörin öll á þessa lund, þótt
furðumörg væru það. Sumir nem-
endanna vissu greinilega meira
um Hitler og höfðu margir
skömm á honum, en einnig voru
ófáir innan um, sem töldu hann
hafa verið sæmilegan eða jafnvel
ágætan mann. Og þótt blessuð
börnin kunni að vita litið um for-
ingja Þriöja rikisins, þá hafa að
minnsta kosti sumir þeirra eldri
hvorki gleymt honum né aðdáun
sinni á honum. Gamlir nasistar,
ekki sist liðsmenn úr SS-sveitun-
um,koma oft saman á samkomur
til að minnast „gömlu góðu dag-
anna” og fara ekkert leynt með
það. Sagt er að aðsóknin að slik-
um samkomum fari vaxandi. Ný-
nasistahópar hafa og opinskáan
áróður i frammi, með þegjandi
samþykki yfirvalda, enda óttast
þau ekki að nasistum detti i hug-
að steypa „kerfinu”. Ef vinstri-
menn dirfast að reyna ab hindra
nasista i að dreifa áróðri, gripur
lögreglan fram i leikinn til vernd-
ar nasistum.
Prófessor Reinhard Kíinhl ,
doktor i félagsvisindum við há-
skólann i Marburg,segir i pistli
um svör nemendanna, að þótt
margir þeirra viti greinilega sitt-
hvað um Hitler, þá viti þeir nán-
ast ekkert um þýska fasismann.
Þar sneiðirprófessorinnað þeirri
tilhneigingu landa sinna að skella
allri blóðskuld nasismans á Hitler
einan og að reyna að skýra nas-
ismann sem þjóöfélagslegt
fyrirbæri þvi sem næst eingöngu
út frá persónulegum eiginleikum
ogskoðunum Hitlers. Svo einfalt
var það mál að sjálfsögðu ekki.
Með fulltingi gömlu yfir-
stéttarinnar
Hitler var vissulega þjóðemis-
sinni, kynþáttahyggjumaður,
heimsvaldasinni og fjandmaður
marxisma, en hið sama var að
segja um stóran hluta þýsku
þjóðarinnar á hans dögum. Allar
þessar tilhneigingar voru fyrir
hendi I Þýskalandi þegar fyrir
1918. Þegar kringum fyrriheims-
styrjöld ólu stjórnmálamenn,
hershöföingjar og f jármálamenn
þýska keisaradæmisins með sér
hugmyndir og áætlanir um stór-
fellda landvinninga, ekki sist i
austurvegi. Hitler þurfti ekki að
finna neitt nýtt upp á þeim vett-
vangi; hann tók bara við áætlun-
um sem aðrir höfðu gert.
Valdataka Hitlers var heldur
ekkert furðufyrirbæri eða tilvilj-
un. Hann hét lægri millistéttinni,
sem örvingluð var vegna kreppu
millistrlðsáranna, gulli og græn-
um skógum, og vann hana þannig
til fylgis við sig, svo og með þvi að
höfða til fordóma hennar. Völd-
unum náði hann hinsvegar ekki
einungis með fulltingi þessa
fjöldafylgis, heldur og með stuðn-
ingi stóriðjuhölda, fjármála-
,manna, stórjarðeigenda og hers-
höfðingja — yfirstéttar landsins.
Yfirstéttin leit að visu niður á
hann vegna þess að hann var
litillar ættar og hafði engan
frama hiotið nema i stjórnmál-
um, auk þess er henni stóð nokk-
ur stuggur af ofstæki hans, en
hún vissi að óhætt var að treysta
þvi að hann bryti verkalýðs-
flokkana — sósialdemokrata og
kommúnista — á bak aftur og
gerði verkalýðssamtökin áhrifa-
laus. Hugmyndir Hitler.s i utan-
rikismálum fóru lika i öllum
meginatriðum saman við hug-
myndir yfirstéttarinnar á þeim
vettvangi. Þessvegna greiddi
yfirstéttin, með stóriðjuhöldana,
von Papen og Hindenburg gamla i
fararbroddi, leið nasismans til
valda
Þetta kæra ráðamenn Fjórða
þýska rikisins, sem hefur Bonn
fyrirhöfuðborg, sig ekkert um aö
æska landsins fái að vita.
dþ.
Hjartanlega
velkomin
Iðnkynningin í Laugardalshöll stend-
ur landsmönnum öllum opin. Flug-
leiðir bjóða sýningargestum 25%
hópafslátt í innanlandsflugi.
Tískusýningar alla daga kl. 18og 21.
Svavar Gests stjórnar bingói
14 og 16 í dag.
jöf til gests dagsins:
Málning á 4ra herbergja íbúð frá \
málningarverksmiðjunni Hörpu.
j I IÐNKYNNING
1§■ LAUGARDALSI
ÉÍI^HI 23. sepfc«»2.okt.''7]