Þjóðviljinn - 23.03.1978, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 23. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Yfirlýsing meirihluta stjórnar RARIK:
Ráðherra tók að sér
hlutverk stjórnarinnar
V'ið undirritaðir, Helgi Bergs,
Björn Friðfinnsson og Tryggvi
Sigurbjarnarson, höfum i dag
beðið iðnaðarráðherra að leysa
okkur frá störfum i stjórn Raf-
magnsveitna rikisins þegar i
stað.
Tíl skýringar á þessu viljum við
taka fram það semhér fer á eftir:
Rafmagnsveitur rikisins hafa
mörg undanfarin ár átt við mikla
og sivaxandi fjárhagsörðugleiká
að striða. Höfuðvandi RARÍK
stafar af mikilli fjárfestingu fyr-
irtækisins, sem svo til eingöngu
hefur verið fjármögnuð með lán-
um. Lánin eru með óhagstæðum
kjörum, en framkvæmdir oft
gerðar af ýmsum félagslegum og
byggðapólitiskum ástæðum og
þær skila yfirleitt mun lakari
fjárhagslegri arðsemi en sem
svarar til kostnaðar við það fjár-
magn sem i þeim er bundið.
Eigandi RARÍK — rikissjöður
—hefur ekki lagt fram fé til fyrir-
tækisins, heldur hefur hann út-
vegað lánsfé og lagt verðjöfnun-
argjald á raforkusölu i smásölu
til þess að mæta hluta af f járfest-
ingarkostnaði RARÍK.
RARIK eru nú komnar i alvar-
legt fjárþrot. Bráðabirgðaráð-
stafanir duga ekki lengur. Fram-
kvæmdir eru stöðvaðar sökum
fjárskorts og fyrirtækið skuldar
Landsvirkjun hundruð miljóna
króna fyrir keypta raforku.A.m.k.
eitt oliufélag hefur stöðvað oliuaf-
hendingu til disilstööva fyrirtæk-
isins.
Byggðalinunnar og spenm-
stöðvar þeirra eru byggðar fyrir
reikning rikissjóðs, en kostnaður
við byggingu þeirra hefur farið
fram úr áætlun sökum verðbólgu
og skuldar nú rikissjóður RARÍK
hundruð miljóna af þeim sökum.
Kostnaðartölur fjárlaga og
lánsfjáráætlun rikissjóðs um
framkvæmdir RARÍK 1978 eru
miðaðar við verðlag i mai 1977 og
þvi úreltar. Fá þarf mikið fé til
viðbótar eða skera niður fram-
kvæmdir að öðrum kosti.
1 ljósi framangreindra vanda-
mála ákvað stjórn RARlK ný-
lega, að stofna ekki til nýrra
greiðsluskuldbindinga að svo
stöddu meðan fjárhagsvandi
stofnunarinnar væri óleystur.
Hinn 8. þ.m. lagði iðnaðarráðu-
neytið fyrir stjórn Rafmagns-
veitnanna að panta nú þegar allt
efni til áætlaðra framkvæmda við
svokallaða Vesturlinu.
Stjórnin samþykkti af þvi til-
efni á fundi sinum hinn 13. mars
s.l., að á meðan ekki væri fengin
lausn á fjárhagsvanda stofnunar-
innar teldi hún ekki fært að stofna
til frekari greiðsluskuldbindinga
en þegar hefði verið gert og gæti
hún þvi ekki orðið við þessum fyr-
irmælum.
Hér er ekki um það að ræða, að
stjórn RARÍK sé út af fyrir sig
andvig framkvæmdum við Vest-
urlinu, heldur hitt, að þegar fy rir-
tækið er i greiðsluþrotum, þá get-
ur það ekki bætt á sig nýjum fjár-
skuldbindingum.
Iðnaðarráðherra sendi þá Raf-
magnsveitustjóra rikisins bréf,
þar sem hann fyrirskipaði honum
að panta samdægurs allt efni i
Vesturlinu. Þeir stjórnarmenn
RARÍK, sem nú hafa sagt sig úr
stjórninni telja, að með þessu sé
iðnaðarráðherra búinn að taka að
sér hlutverk stjórnarinnar og hún
sé þvi orðin bæði óþörf og gagns-
laus.
Ljóst er að á næstunni þarf að
gera ráðstafanir sem duga til
frambúðar varðandi fjárhag
RARIK. Taka þarf fjárfestingar-
stefnuna til endurskoðunar,
þannig að þær framkvæmdir fyr-
irtækisins, sem ekki réttlætast af
fjárhagslegri arðsemi, verði
greiddar af rikissjóði eða
Byggðas jóði. Hægt er að reikna út
áhrif allra meiri háttar fjárfest-
inga á hag fyrirtækisins fyrir-
fram og um leið velja þeim við-
eigandi f jármögnunarleiðir. Gera
þarf nú þegar uppstokkun á
skuldum fyrirtækisins og koma
þeim i það horf, að rekstur þess
geti staðið undir greiðsium af-
borgana og vaxta. Taka þarf
verðlagningu á raforkusölu til
hitunar til endurskoðunar.
Það er von okkar að með þessu
takist okkur að vekja nægilega
athygli á þeim stórfellda vanda,
sem við er að etja, og þannig sé
stuðlað að þvi að hann verði leyst-
ur til frambúðar.
Mundu
nafnið
þitt
endur-
sýnd
A laugardaginn fyrir páska
verður endursýnd iMÍR-salnum,
Laugavegi 178, sovésk-pólska
kvikmyndin „Mundu nafnið þitt”.
En þessi kvikmynd fjallar með
eftirminnilegum hætti um
Auschwits-fangabúðirnar og lif
nokkurra þeirra er þaðan komust
lifandi.
Kvikmyndin er sýnd kl. 15 á
laugardag og er aðgangur öllum
heimill meðan húsrúm leyfir, eH á
laugaröaginn var þurftu margir
frá að hverfa.
KðpawnslaigslaönT^)
Útboð
Tilboð óskast i þakklæðningu úr stáli á
iþróttahús Digranesskóla við Skálaheiði.
Útboðsgögn afhendast á skrifstofu bæjar-
verkfræðings Kópavogs, frá og með
þriðjudeginum 28. mars.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu bæjar-
verkfræðings þriðjudaginn 11. april kl. 11.
Bæjarverkfræðingurinn Kópavogi.
Um leiö og Landsýn og Samvinnuferöir
óska félagsmönnum verkalýös- og samvinnuhreyfingar
og öllum öÖrum viÖskiptavinum sínum
gleöilegra páska,
minnum viÖ á aÖ verölistinn fyrir sumariÖ 1978
er tilbúinn.
® LANDSÝN
ÆU!rn*'
JtST'-
Austurstræti 12 slmi 2-70-77
SKOUAVORÐUSTIG 16 SIMI28899
Ný sending
mikið úrval
ULJnuínLni
Hamraborg 3, Sími: 42011, Kópavog
Verð: tæpl. 70.000.—
borð og 4 stólar
Borð og stólar úr birki,
ljós t»g brún bæsuð.
OPIÐ LAUGARDAGA
STA lhusgagnagerð
STEINARS HF.
Hversvegna að
burðast með
allt í fanginu
fötu.skrúbb, þvottaefni og flr.
Hvað með tveggja fötu skruggukerru.
sem eyðirengu. kemst yfir 20 km/klst.
og er óttúlega lipur í umferðinni?