Þjóðviljinn - 23.03.1978, Side 7

Þjóðviljinn - 23.03.1978, Side 7
Fimmtudagur 23. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 „Þess vegna er uppstokkun hlutverka á heimili og i samfélaginu ekki siður hagsmuna- og réttindamál karlmanna en kvenna, svo ég tali nú ekki um börnin, Þaö er beinlinis forsenda eölilegrar lifshamingju. Gunnlaugur Astgeirsson Ljónid í veginum A þessum áratug hefur ný mannréttindahreyfing vaxiö til töluveröra áhrifa hér á landi og viða annarsstaðar. Athyglin hef- ur einkum beinst aö misrétti kynjanna. Fram i dagsljósiö eru dregin og skýrð þau samfélagsöfl sem mestu ráða um misréttið. Reynt er að vekja konur til vit- undar um stöðu sina og hlutskipti og þær, og reyndar allir góöir menn, hvött til baráttu fyrir jafn- rétti á öllum vigstöðvum. Margt hefur áunnist þó æðispölur sé á leiðarenda, sé hann þá til. Meðalannars hefur það áunnist að æ fleiri gera sér grein fyrir þvi hversu stórpólitisk skólamál og uppeldismál eru. Hver eru áhrif þeirra á lif einstaklinganna, tengsl þeirra við hagsmuni ráð- andi afla i kapitalisku samfélagi og þar með afgerandi áhrif á for- sendur jafnréttisástands. Það er nefnilega alls ekkert einkamál eins eða neins hvernig uppeldis- skilyrði samfélagið býr sínum börnum. Þar fléttast f jölskyldan, heimilið, skólinn, atvinna, efna- hagslif osfrv. saman I eina órófa heild, þar sem hver þáttur er öór- um háður og breyting eins hefur áhrif á hina. Það er þvi langt frá að sköpun jafnréttis sé einfalt mál eöa því verði náð með einöngruðum að- gerðum á afmörkuðum sviöum þjóðlífsins. Fjölskyldan Fjölskyldan hefur gjörbreyst á þessari öld. Stórfjölskyldan þar sem framfærsla, uppeldi, mennt- un og þjónusta fóru fram á heim- ilinu eða i nánum tengslum við það er horfin. Þessum hlutverk- um hefur verið skipt niður á ýmsar aöskildar stofnanir og kjarnaf jölskylduna. Rikjandi verkaskipting innan fjölskyld- unnar er að karlmaðurinn sér um „fyrirvinnuhlutverkið” en konan um uppeldi og þjónustu. Þessi skipting gildir yfirleitt þó konur sæki út á vinnumarkað, sem 60-70% giftra kvenna gera. Þá er litið á laun þeirra sem aukagetu, útivinnan er timabundið ástand þangað til „ástandið batnar” og þeim er enn ætlað að gegna uppeldis-og þjónustuhlutverkinu. Þessi staða er algerlega óvið- unandi. Einkanlega vegna þess að einskorðun og einangrun hlut- verka af þessu tagi fullnægir enganveginn þeim mannlegu grundvallarþörfum sem eru forsendur mannsæihandi lifs^ lifshamingju og lifsfyllingar. Við erum mótuð frá vöggu til grafar til þess að gegna ákveðn- um kynhlutverkum sem þjóna hagsmunum efnahagslifsins án nokkurs tillits til lifsþarfa manneskjunnar. Ef meiningin er að halda i eitthvert form kjarnafjölskyld- unnar (sem er reyndar spurning útaf fyrir sig) veröur að stokka algjörlega upp hlutverkaskipt- ingu innan hennar ef jafnrétti á að nást. Uppeldinu verður að skipta milli beggja foreldra og uppeldis- stofnana. Barnier nauðsynlegt að bindast nánum tilfinningatengsl- um við fleiri en einn, annað er beinlinis skaðlegt, bæði foreldr- um og börnum. Barnaheimili og skólar eru jafn nauðsynleg végna þess, að i nútimasamfélagi er fjölskyldan og heimiliö ófær um að sinna öllum þeim uppeldis- þáttum sem börn eiga rétt á að njóta. Fyrirvinnuhlutverkinu verður að skipta, en það krefst breytinga á vinnutilhögun 1 þjóðfélaginu þannig að atvinnureksturinn mið- ist við þarfir fólksins en ekki öfugt. Þjónustuhlutverkinu þarf einnig að skipta upp, ekki þannig aðkarlmenn vaski upp og ryksugi tilað friða slæma s.ámvisku, held- ur þannig að allir heimilismenn séu færir um að sinna öllum lágmarksþörfum heim- ilishaldsins og geri það. Þetta eru allt forsendur jafn- rétíis á heimili og þær eru reynd- ar miklu fleiri. Ef það err rétt sem segir i' leikritinu um Þórð járnsmið i Landssmiðjunni að „fjölskyldan væri útungunarstöð bæði fyrir harðstjóra og tásleikjur” (bls. 81) og rætur mannlegrar óhamingju og mis- réttis liggi þar, I þeirri mótun sem þar fer fram, þá er það ekki endilegaf jölskyldansem sliksem veldur, heldur valdakerfið innan hennar. Þessvegna hlýtur breyt- ing þess kerfis, sem er afleiðing hlutverkaskiptingarinnar, að vera eitt meginverkefnið i jafn- réttisbaráttunni. En þar eru mörg ljón á veginum. Ljóniö Ein stærstu ljónin eru sú karlimynd ogkvenimynd sem við erum öll mótuð eftir. Látum kvenimyndina Uggja milli hluta en vikjum ögn að karlimynd okkar (það var nú reyndar þetta sem greinin átti að fjalla um). Karlmenn gangast mjög upp i sinu hlutverkúÞeir eru stórir og sterkir, ef ekki likamlega,þá and- lega. Þeir eru fyrirvinnurnar sem eiga að s já vel fyrir sér og sinum. Þeir stjórna atvinnulifinu^ menningarlifinu og þjóðlifinu öllu. Þeir standa i eldlinu lifsbar- áttunnar og eru i rauninni hetjur i anda íslendingasagna sem eiga frumkvæði, áræði, þor og atorku til að takast á við þau vandamál sem við er að glima. Hetjan er köld og lætur sér bregða við fátt og það er af og frá að hún láti sjá þær tilfinningar sem kunna að ólga i vikingablóðinu bláa (séu þær ekki með öllu dauðar). Það er kannski I lagi að veita konum einhverja hlutdeild i hetjuskapn- um rétteins og að sinna heimilis- störfum og uppeldi með þvi að vaska upp og ryksuga. En það veröur að vera i hófi svo ekki verði, gengisfelling á Jietjunni sjálfri, þvi gengisfellingar eru vondar og leysa engan vanda. Þessir karlkomplexar eða karlremban eru að sjálfsögðu af- leiðingar mótunar fjölskyldu, skóla og samfélags. En þeir eru lika afleiðing þeirra mannlegu eiginleika sem karlmenn verða að bæla samkvæmt kröfu Bikúlsins (sjá Egill Egilsson: Karlmenn tveggja tima). Það að gangast upp i að vera það sem maður er ekkúen þykist vera, er- afleiðing þess að maður fær ekki eða getur ekki verið það sem maður er. 011 erum við manneskjur með margbrotna hæfileika og eiginleika sem alls ekki fá að njóta sin i njörvaðri og einangraðri hlutverkaskiptingu. Karlár og konur hafa jafn mikla þörf fyrir náin mannleg sam- skipti og að fá athafnaþörf sinni fullnægt. Þessvegna er röskun og uppstokkun hlutverka á heimili og i samfélaginu ekki siöur hags- muna- og réttindamál karlmanna en kvenna, svo ég tali nú ekki um börnin. Það er beinlinis forsenda eðiilegrar lifshamingju. Scalaóperan 200 ára Hefúr átt storniasama sögu A þessu ári er þess minnst meö margvislegum hætti aö frægasta ópera heims/ La Scala i Mílanó# á tvö hundruð ára afmæli. A afmælisárinu eru sýndar tuttugu óperur. Þar af eru átta uppfærslur nýjar. Auk þess verða fluttir sextán tónleikar og átta ballettar. Enn þann dag i dag verða til sögur af sterkum viðbrögöum áheyrenda, sem láta sig ekki muna um að æpa söngvara niður ef að þeim likar ekki frammi- staða þeirra. Nú fyrir skemmstu þoldi bandarisk söngkona, Shir- ley Verett, ekki mátið og fór heim áður en samningstima hennar væri lokið — hún var orðin þreytt á að biöa eftir þvi hvorir heföu betur i áheyrendasalnum, aðdá- endur hennar eða andstæðingar. Blaðið Corriera della Sera hneykslaðist mjög og talaöi um skammarlega hegðun áheyrenda, sem höguðu sér rétt eins og þeir væru á knattspyrnuvelli. En það var ekki rétt hjá blaðinu, að slik hegðun væri einsdæmi. Þegar Madame Butterfly var Toscanini kom mjOg viO sOg* hinnar frægu óperu. frumsýnd 1904 hreyttu andstæð- ingar höfundarins, Puccinis, klámi og svivirðingum yfir söng- konuna sem fór með aðalhlut- verkiö. Ari áður hafði Toscanini, sem þá var kornungur, en mjög efnilegur hljómsveitarstjóri, lent i útistöðum viö áheyrendur, og neitaði aö koma fram fyrir þann Tökum að okkur smiði á eldhúsinnréttingum og skápum, bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur um breytingar á innréttingum. Við önn- umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og inni. Verkið unnið af meisturum pg vönum mönnum. Trésmíðaverkstæðið Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613 lýð I þrjú ár. Þegar óperan Mefistofele eftir Boito var frum- sýnd 1868 kom til slagsmála á göt- um úti i Milanó, og lögreglan varð að loka óperunni eftir þrjár sýn- ingar. Sprengjur og eggjakast La Scala átti i ýmsum útistöð- um við fasistastjórn Mussolinis, m.a. vegna þess, að aðalhljóm- sveitarstjórinn, Toscanini, neit- aði að leika fasistasönginn Giovinezza. A striðsárunum varð óperuhúsið fyrir sprengjukasti, en viðgerð var fljótt lokið eftir striö, og hófust sýningar aftur 1956. La Scala hefur reyndar komiö mjög við sögu italskra stjórn- mála. Meðan norðurhluti ítaliu var enn á valdi Austurrikis á 19. öld, urðu óperur Verdis, sem mjög eru tendar þessu húsi, mik- ill þSttur i italskri þjóöernisvakn- ingu. A hinum heitu dögum upp- reisnar æskunnar fyrir um það bil tiu árum, réðust stúdentar á skartbúna frumsýningargesti með eggjum og málningu. Nýir starfshættir Siðan þá hefur ýmislegt breyst I starfsháttum La Scala. Forstjóri er nú Carlo Maria Badini, sem er S&ialisti, en nú um skeið hafa sósialistar og kommúnistar stjórnað Milanó i sameiningu. Badini hefur #ýnt þvi verulegan áhuga að gera La Scala aögengi- legri alþýðu manna. 1 fyrra lét hann t.d. selja meira en 100 þús- und sérstaka afsláttarmiða til verkamanna og stúdenta fyrir sem svarar 1200 krónum — en annars hafa ódýrustu miðar kost- að allt frá 4000 krónum og til 30 þús. króna (bestu sæti á frumsýn- ingu). Badini kveðst vilja sanna aö só- sialismi þýöi ekki jöfnun niöur á við heldur upp á við. Og ætlar hann að fjölga afsláttarmiðum enn að miklum mun. Þesst ópera hefur lifaft af Napóleon, Habsborgara, Mussolini og sprengjur breska flughersins. Skólafulltrúi Staða skólafulltrúa i Kópavogi et hér með auglýst laus til umsóknar. Staðan verður veitt frá 1. mai 1978. Umsóknarfrestur er til 15. april 1978. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðu- blöðum til undirritaðs, sem einnig veitir nánari upplýsingar. Bæjarstjórinn i Kópavogi

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.