Þjóðviljinn - 23.03.1978, Qupperneq 16
16S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. mars 1978
Smálistarsafnið í Mijas
ambus ruggustólar,—
ambus hillur —
ambus stólar —
ambus borö —
litað eða bæsað brúnt.
Vörumarkaðurinnhf.
Ármúla 1A/ simi 86112.
Nýkomin bambushúsgögn
Fáanlegt i birki
Opið kl. 9-12 laugardag fyrir páska
Sjö undur veraldar máluA á
venjulegan tannstöngul.
Alltaf öðru hvoru er
maður minntur á þá
staðreynd að mennirnír
eru eins misjafnir og þeir
eru margir. En stundum
gengur fram af manni,
einkum þegar eitthvert
mannaverk ber fyrir
augu sem er fjarlægast
imyndun hins venjulega
manns. Það er til að
mynda ekki að furða þótt
mann reki í rogastans
þegar fyrir augun bera
listaverk, sem eru svo
smá, að þau er ekki hægt
að greina með berum
augum, heldur verður
annað hvort að horfa á
þau í gagnum stækkunar-
gler eða jafnvel smásjá!
Spánn hefur um árabil verið
vinsælasti sumarlcyfisdvalar-
staður þeirra íslendinga sem
sækja til sólarlanda, og sólar-
ströndin, Costa del sol, vinsæl-
asti dvalarstaðurinn með
ferðamannabæinn Torremolin-
os. sem aðal-dvalarstað. Þaðan
er svo hægt aö heimsækja fjöl-
marga fagra og skemmtilega
staði viðsvegar i Andalusiu og
jafnvel viðar.
En skammt frá Torremolinos,
svona um það bil 15 km. i suður-
átt, er litið og geysilega fallegt
þorp sem heitir Mijas. Það
stendur hátt uppi fjallshlið og er
dæmigert andalúsiskt sveita-
þorp, og það sem meira er um
vert, þvi hefur verið haldið litið
breyttu, þrátt fyrir vaxandi að-
sókn ferðamanna neðan frá
ströndinni. Margt væri hægt að
skrifa um þetta þorp, m.a. það
að þar hafa verið teknar marg-
ar senur i kvikmyndir sem hafa
átt að gerast i Andalúsiu á
Spáni.
En það var ekki beinlinis
þetta þorp sem hér átti að fjalla
um, heldur stórmerkilegt mini-
ature listasafn sem þar er, eða
smálistarsafn eins og segja
mætti á islensku, og þetta smá-
listarsafn er það fyrsta sinnar
tegundar i heiminum og er það
kennt við eiganda þess sem
heitir Max. Þarna er hvert lista-
Þurrkað mannshöfuð af hvftum manni sem Jibaros-indfánar drápu
og sem er til sýnis i smálistarsafninu i Mijas.
' Bæjarskrifstofur
iHafnarfjarðar
Hafnarfjörður - kjörskrá
Kjörskrárgögn til bæjarstjórnarkosninga
28. mai 1978, liggja frammi almenningi til
sýnis á bæjarskrifstofunni, Strandgötu 6,
Hafnarfirði, alla virka daga nema laugar-
daga frá 28. þ.m. til 25. april n.k. kl. 9.30 til
15.30. Kærur yfir kjörskránni skulu komn-
ar til skrifstofu bæjarstjóra eigi siðar en 6.
mai, n.k.
Hafnarfirði 20. mars 1978.
Bæjarstjóri.
Fatahengi
Þessi mynd er stækkuð upp 15 sinnum,þannig að hún er Iraun ekki nema rúmir 6 millimetrar á lengd og
3 á hæð.
Þar eru flugur klæddar í föt og síðasta
kvöldmáltíðin er máluð á títuprjónshaus
verkið öðru fallegra,en þau eiga
það öll sameiginlegt að vera svo
litil að trauðla er hægt að skoða
með berum augum, heldur
verður að nota stækkunargler
og i einstaka tilfellum smásjá til
að skoða þau.
Þarna eru mörg málverk
máluö á tituprjónshausa, m.a.
andlitsmynd af Lincoln fyrrum
forseta Bandarikjanna, og verö-
ur að skoða þá mynd i gegnum
smásjá, svo og málverk af hinu
fræga málverki da Vinci,
Siðasta kvöldmáltiðin. Þarna
má sjá Sjö undur veraldar
máluð á venjulegan tannstöngul
og ballettdansmær skorna út i
tannstöngul úr filabeini. Þarna
má lika sjá margskonar smá-
flugur klæddar i föt og fleira i
þeim dúr. Þarna er lika til ein-
stæður hlutur, sem er þurrkað
mannshöfuð af hvitum manni
sem Jibaros - indiánar drápu,
tóku af höfuðið og þurrkuðu.
Þetta er eina þurrkaða manns-
höfuðið sem til er i heiminum.
Þorpið Mijas, sem þetta ein-
stæða safn er i, stendur beint
fyrir ofan bæinn Fuengerola,
sem margir Islendingar hafa
dvalið i eða komið til. Það væri
sannarlega athugandi fyrir þá
tslendinga sem fara til Torre-
molinos á Costa del sol á sumri
komanda að skreppa uppi Mijas
og skoða þetta einstæða safn;
það verður einginn svikinn al
þvi. —S.dói