Þjóðviljinn - 23.03.1978, Síða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. mars 1978
Erindf Ása í Bæ um daginn og veginn:
Ási i Bæ. Teikning: Ragnar Lár.
KLOFIN ÞIÓÐ
EN GÓÐUR SIÓR
Góðir áheyrendur.
A jólaföstu þrumaði maður
nokkur úr þessum ræðustól um þá
geigvænlegu spillingu sem rikti á
landi hér og boðaði ragnarök ef
ekki linnti. Og um áramót
hlustaði ég á presta sem létu
reiðinnar raust á okkur dynja og
tóku svo djúpt i árinni að krafta-
verk og aðeins kraftaverk gæti
bjargað þjóðinni frá glötun. Þess-
ir menn voru heitir og sárir og
röktu fyrir okkur þá váboða,sem
þeim þótti iskyggilegastir, og þvi
miður, maður varö að samþykkja
flest sem þeir sögðu. Og samt.
Botninn var suður i Borgarfirði.
Það er ákaflega eftirtektarvert
og sýnir kannski betur en flest
annað hvar við stöndum, að þeir
sem fjallað hafa um þessi mál i
ræðusem ritihafa forðastað leita
skýringa eins og þær kynnu að
vera geislavirkar. Hefur þetta
spllingarfargan dottið yfir okkur
bara svona einhvernveginn,
reikum við i myrkri vantrúar eins
og prestarnir segja eða er þá
okkar fræga islendingseðli ekki
beysnara en svo, að það þoli ekki
trukkið þegar á reynir. Hvað
veldur þvi,að við sem grétum með
regninu á Þingvöllum ’44 erum
orðin að þeirri kjötkássu sem
nefnist islensk þjóð á þessari
stund? Þau eru sjálfsagt mörg
klóökin sem liggja í dikið, en ef
nefna ætti eina orsök annari
fremur, þá er ég ekki i neinum
vafa um hver yrði fyrirferðar-
mest; það er dvöl bandarikjahers
i landinu. Stillið ykkur.gæðingar,
ég ætla ekki að fara að kyrja yfir
ykkur Island úr Nató og herinn
burt. Við skulum rabba saman i
bróðerni. En hér er þó rétt að
skjóta þvi inn að þeirsem þykjast
þekkja best til hermála á þessum
misserum telja ekki hættu á að
heimseldur brjótist út nema fyrir
slys af þeirri einföldu ástæðu að
risa veldastrið myndi senda
hnattkrilið okkar beint til helvitis
og þá þyrfti enginn um sárt að
binda, hvorki á Miðnesheiði, i
Kalamasú né á bökkum Bækal-
vatns.
Sundruð smáþjóð
grotnar
Ef mannkynið ætlar að komast
af og leysa sin hrikalegu vanda-
mál þá gerist það ekki með
hernaði hvað sem þeir glamra
Langi Lúns, Sússlov eða Kúó
Feng... En sleppum þvi, leyfum
blessuðum mönnunum að trúa þvi
að dátagreyin á Reykjanesskag-
anum hafi úrslitaþýðingu fyrir
afkomu vestrænnar menningar
og þvi verði kaninn að dvelja hér
innangarðs um ófyrirsjáanlega
framtið. En þá skulu þeir hinir
sömu menn gera það upp við sig
hvað það kostar að hafa varðliða
stjörnufánans i landinu. Nú, spyr
einhver, hvað höfum við ekki
grætt á hernum? Jú, einhverjir
hafa troðið Ut veskin sin og ég að
minnsta kosti öfunda þá ekki af
þeim gróða, en spurning er,
höfum við grætt, hefur fslenska
þjóðin auðgast á hersetunni?
Enginn mælir móti þvi, að her-
stöðvarmálið sé og hafi verið
mesta misklíðarefni með þjóð-
inni allt frá sturlungaöld. í þessu
falli skiptir ekki máii hvort 55
þúsund eru með og 46 þúsund
móti, hlutföllifl hafa aldrei verið
mæld. Þjóðfn er nógu k4o/fin tfl
þess að hér býr ekki lengur ein
þjóð i þeim s4dta4ngi setn áður var
og það er mergurinu máteins.
Einu sinni var sagí : Sendum út
á sextugt dýúp s«ndurlyfld4s-
fjafldann. t þá daga skiidu menn
að sundruð smáþjóð kemst ekki
af, hún grotnar niðtwr. Það er sem
sagt min skoðun að flestar þær
meinsemdir sem nú hrjá okkur
megi leynt eða ljóst rekja tíl her-
setunnar og á ég þé hvorki við
hass eða hór eða það sutíumbuii
kringum völlifln sem við sáum í
sjónvarpinu i gærkvökJi, heldur
þá þjóðarsundrungu sem her-
setan hefur vaidið. Við náum
aldrei sarnan um neitt sem máh
skiptir, erum út og suður, otum
okkar totum, eigum ekkert sam-
eiginlegt eitthvað sem hét ’44 að
vera tslendingur.og sumum finnst
þaðekki lengur eftirsóknarvert...
Ógæfa Grænlendinga var sú að
Dönum tókst að ljúga að þeim aö
alU þeirra, trú, siðir, atvinnu-
Éwtfeír, artbnraamfétagi*,
öðrum oröum lif þefyra i landinu
um þúsundir ára hafi verið nauða
ómerkilegt skitabras samanborið
við den hpje dartske Kultúr. Þeir
voruekki lengur inúk, ekki menn,
heldur hundar Dana, og munaöi
ekki nema einum að þeir yrðu
aldauða og raunar tvisýnt um líf
þeirra ennþá."
Sömusögueraðsegja af frænd-
um þeirra, rauðskinnum Vestur-
álfu, hundruðum þjóða sem lifaö
höfðu sinu eigin lifi um árþúsund-
ir, en féllu fyrir byssum en þó
fyrst og fremst lygum og svikum
hvita villimannsins. Þeir misstu
trúna á sjálfasig. Það er vandi að
vera smár.
Venjulegt fólk og
fornar dyggðir
Nú gæti verið fróðlegt að velta
þvi fyrir sér hvað það er sem
gerir einstaklinga að þjóð, en það
hefur flækst fyrir meiri mönnum
enmér. Éggætiþósagt örlitiðfrá
æskuumhverfi minu. öil viðskipti
almennings fóru fram munnlega;
hjá mínu fólki var kvittun eins-
konar fyrirlitlegt skeinisblað, sá
sem ekki stóð við orð sin var ein-
faldlega afskrifaður, ég heyrði
aldrei minnst á slikt fólk i æsku
minni, það var ekki umtals hæft.
Brellur, einsog þegar bróðir seldi
bróður hland fyrir brennivin og
sagði um leið: vertu vel að þvi
kominn, bróðir, það heyrði ekki
undir ómennsku heldur var krydd
daglegs lifs.
Einhver mesta raun afa mins
var að sækja til sveitarinnar
hálfa tunnu af kjöti i tiu manna
heimili þegar illa áraðúog þó svo
hann borgaði þetta við fyrstu
hentugleika, sveií) undan þvi,
mannlegt stolt hafði sett niður.
Marga stund á nóttu sem degi var
hann ræstur út til ái) gera við eitt
og annað sem aflaga fór i fiski-
flotanum og ekki alltaf greitt að
verðleikum, en það skipti engu
máli. Að geta hjálpað fiski-
mönnunum að komast á miðin,
það var hamingja. Gestrisnin var
þannig að kona nokkur minu fólki
óviðkomandi var gestur i' húsi afa
mins i 17 ár án þess að nokkurn-
tima væri spurt hvenær orlofi
hennar lyki. Hálfgildings upp-
eldissonur afa hefði heldur látið
negla sig á tré en segja ósatt orð
og var þó piælskumaður. Hann
var fyrsti umtalsverði verkalýðs-
foringi Eyjanna en yfirforingi
hans var Kristfit1, einkanlega
þegar hann rak hyskið Ut Ur
musterinu.
Afi var alinn upp hjá afa sínum
iAuraseli, ögmundi galdramanni
sem veitti vötnum til heilla fyrir
bændur, en var einnig þeirrar
náttúru að hann varð blár sem
nótt ef hann sá litilmagna órétti
beittan og lagði þá á illmennið ef
svo bar undir. En þetta fdlk mitt
haföi einn voðalegan gatta, það
kunni ekki að græða peninga eða
sánka að sér eignum, það var iíkt
og þvi fyndist efeki tafca þvl að
standa I sveleiðisstússi þessa fáu
Hfdaga sem því voru gefnir. En
það hafði gaman af sterýtnum
köiium og að smiða báta og
syngja og leika, og veiðimenflska
á sjó og landi var þvf I bióð borta.
Ég er aðtate utn venjutegt fóHk og
fornar dyggðir og hetd þvl fram
að meginþorri þjéðarinnar hafi
verið óápilltur og heiðartegur á
Þingvölium ’44.
En á þessum 34 árum faefur
orðið stöktíbreyting og liður nú
varla sá degur að efeki berist
fregnir af sóðalegustu afbrofcum
einstaklinga og hópa. En þá
lyftist fyrst sfeörin ef rétt rqtnist
að obbinn af fiskifletanum sé til-
kominn með stórsvindii, og er
gullið dæmi um siðferðisþrótt
einkaframtaksins svo maður ekki
tali um eftiriit bankanna og var
ekki á bætandi á þeirra raunir.
Jafnvel blessuö þjóðkirkjan er
orðin að akáifeaskjóii miLjúna -
Nei, dæmin eru of mörg til að
verða rakin hér, og grunar þó
suma að við stöndum við ris hol-
skeflunnar en ekki fall. Og samt
ættum við ekki að undrast, þetta
spillingarástand er nákvæmlega
það sem mörg okkar bestu skáld
hafa varað okkur við frá fyrstu
dögum hernáms og gera enn, og
mætti þar tilnefna ekki ómerkari
höfunda en Halldór Laxness, Jó-
hannes úr Kötlum, Jón Helgason,
Guðmund Böðvarsson, Stein
Steinarr, Ólaf Jóhann Sigurðsson,
Jakobinu Sigurðardóttur, Svövu
Jakobsdóttur,Þorsteinfrá Hamri
auk skara yngri manna. Meðan
þjóðin mókti i hungurdvala
erlendrar kúgunar þótti henni
gott að hlusta á brýningarraddir
skálda sinna; nú dottar hún við
imbakassann og græðgin marg-
visleg situr i fyrirrúmi fyrir
þjóðarheill. Og þið sem teljið orð
min svartsýnisraus skuluð
hyggja að þvi, að sjálfsánægja
leiðir til falls.
Hvern hefði grunað 1262 að
tslendingar ættu framunan sjö
alda áþján myrkurs og niðurlæg-
ingar? Og hvern hefði órað fyrir
þviá Þingvöllum ’44 að aronskan
væri orðin að fyrsta boðorði
ársins 1978? „Þótt borgir standi I
báli og beitt sé eitri og stáli þá
skiptir mestu máli að maður
græði á þvi”, sagði skáldiö. Hafi
ég á annað borö rétt fyrir mér er
herkostnaður ofekar orðinn of
mikiH nú þegar. En hvar stöndum
við að öðrum 34 áru«i liðnum eða
segjum 64 árutn iiðnum? Vill ein-
hver svara þvi?
CU-áaJJk wUk afclrw
Nei, vrð þurf»m ekfeá aronsku
hetdur einiflgu og reisn, við verð-
um með eiBtwerjum réðum að
brjótast út úr þessum vitahring
sufldrungariflnar, og hygg ég að
öflflur smærri mál svo sem verð-
bóiga leysist, kannsfci ekki af
sjálfu sér.en með lagi. Ég held tii
að þjóðareifl ing sé aíger fersend a
þess að við leysum landheigis-
mátið. Nú, erum við ekki búin að
leysa það?
Jú, viö höfwn unnið stríðið við
útlendingana, en við eigum hitt
eftir sem erfiöara er, það er strið-
ið viðokkur sjálf.Viö teljum okk-
ur með gáfuðustu þjóöum heims
— það er lfldega þessvegna sem
við stefnum að’ þvi að koma 100
skufcfcoguruta á miðifl — einmitt
nærri er gengið fiskistofnunum.
Mér er sagt að þessi nýju skip
hafi togkraft og afkastagetu á við
4—5 nýsköpunartogara, svo þegar
allt er komið i kring höfum við
sem svarar 4—500 siðutogara á
miðunum, sem þaráofan skafa
hvaða botn sem vera skal og taka
fiskinn uppi sjó ef þeir ná honum
ekki við botn. Auk þess bætist svo
við togbátaflotinn á grunnmiðum.
Slikur gereyðingarmáttur hef-
ur aldrei fyrr leikið lausum hala
um tslands mið. Fróðir telja að
hér hafi sjaldan verið fleiri en
200—250 togarar að jafnaði og þó
hefur tvisvar á þessari öld stapp-
aðnærri ördeyðu á miðunum, það
eru striðstimabilin 1918 og 1939 til
45 sem þar björguðu mestu, allur
erlendi flotinn hvarf af miðunum
og fiskurinn fékk frið til að
hryggna og dafna. Nú þegar
stappar við ördeyðu i þriðja sinn
er ráðsnilli okkar fólgin i þvi að
hleypa 100 „bestu fiskiskipum
heims” i leifarnar. Ollu eru tak-
mörk sett.
Litum til suðurlandsmiða, þau
eru eyðimörk, þessi gullkista sem
áður var, og af hverju, af þvi að
búið er að skarka á þeim gegnd-
arlaust i aldarfjórðung. Þarna er
landhelgin 3—4 mllur allt frá
Reykjanesi austur I Lónsbugt og
engin kringum Vestmannaeyjar
svo þar má toga uppi i kálgarða
og er tii háborinnar skammar
fyrir alta aðilfja. Nú, meðan eitt-
hvað var að fó, sótti obbinn af
minni togskipum (og netabátum)
á þessi mið árið út og árið inn og
útkoman er þessi eyðiflaörk. Afl-
inn sem nú fæst á þeseu svæði er
tiikominn fyrir glfurlega sókfl og
austur veiðarfæra og harðnar þó
sifeilt á dalflUffi.
Og þyr-fti nú margt að segja i
senn. Hraðfrystihúsamenn sunn-
aniaflds iáta svo sem það sé fyrir
einhver óhöpp að illa gangi að
reka húsin; ástæðan er auðvitað
fyrst og fremst sú að fiskur er
þorrinn á þessu svæði,og satt að
segjahef ég at'drei vitað þá sömu
menn hafa frumkv æði um verfld-
un eða friðun. Ég veit ab hór er
hægar um að taia en i að rata, en
það viH nú svo vel til að áratugur
er iiðinn siðan lagt«ar tii við bæj-
arstjórn Vestmannaeyja að þar
yrði kölluö saman ráðstefna lun
vandamál þessara miða, þvl til
voru þeir sem þóttust sjá hvert
stefudi, en þá var ekki hlustað á
iitla kalla fremur en endranær, en
öslað áfram i blindni liðandi
sfundar. Það er ekkert nema hutt
a* frarflkw kmH aMkt 4
I
súöurlandsmiðum, ég man þá tið
aö svo til hvert vor fylltust Eyja-
mið af smáþorski. Sumarið 1956
var samfeld torfa af uppvaxandi
þorski allt frá Dyrhólaey vestur
fyrir Jökulsá og má nærri geta
hvort hann hefur ekki verið viöar
á grunnsævi.
En það var fleira i sjónum en
þorskur, það var lika ýsa. Fyrir
hana var einnarmilu útfærslan
1952 gifurlega þýðingarmikil,
enda var þá alger friöun innan 4-
mllnamarkanna, svo þegar við
bættist útfærslan i 12 mllur 1958
þá gerðist það undur á þessum
miðum að þau bókstaflega fyllt-
ust af ýsu,og kom á daginn að við
þessi skilyrði náði hún stærð sem
slagaöi uppi meðalþorsk. A þess-
um árum var algengt að fá 5—7
lesta afla á meðal-mótorbátslinu
yfir haustmánuðina og dæmi um
10—12 lesta afla, daglegt að tveir
menn á trillu fengu 2—3 lestir i
róðri. Það mætti nota það núna.
Um 1960 var ýsustofhinn orðinn
þvilíkur að ég fullyrði að annar
eins hefur aldrei verið við landið
á okkar dögum.
Ég veigra mér við að lýsa þvi
hvernig aflakóngarnir gengu frá
þessum stofni á árunum 1960—65,
það var morð; nei.það var gereyð-
ingarherferð. Ýsan safnaðist i
geysistórar torfur á loðnutimann,
smá og stór af uppeldisstöðvun-
um,og þeir köstuðu nótum sinum
á þetta og fengu allt uppi 100 lestir
i kasti og fyrir nú utan það sem
flaut út úr nótunum svo sjór var
hvitur af smáseiðum, þá fór allt
uppundir helmingur i mjölverk-
smiðjurnar af þvi sem barst á
land.Dæmi: 6.marsl965 bárustá
land — þá var allur sildarflotinn
við þessa iðju — bárust á land i
Eyjum 2700 lestir af ýsu, það eru
góðir tiu togarafarmar á einum
degi,og 700—800 lestir fóru i m jöl,
og hefði veriðfróðlegt að telja það
kóðsem þannig fór i kvarnirnar i
stað þess að vaxa, þó ekki væri
nema til hryggningaraldurs...
Besti sjór í heimi
Ég er ekki að minnast á þessa
sársaukafullu geðbilun til að
vekja athygli á dramatiskum
hæfileikum minum,heldur til að
sýna fram á afleiðingar sundr-
ungar og stjórnleysis þar sem lið-
andi stund er allt, framtiðin ekki
til.... ogég óttast að þessi hugsun-
arháttur sé enn við lýði og kunni
að koma betur i ljós eftir þvi sem
samkeppnin harðnar um þær
bröndur er enn synda um sjáv-
ardjúpin. Fiskifræðingarnir
þögðu um ýsudrápið, en það
mega þeir eiga, aðþeir eru á góð-
úm vegi með aö bjarga suður-
landssildinni, og tillögur þeirra
um fiskvernd og fiskveiðar að
mig minnir fyrir þrem árum eru
þær skynsamlegustu sem enn
hafa komið fram. En þeim var
hafnað af hagsmunaástæðum;
hver otaði sínum tota og enginn
vildi sleppa neinu, smáskitleg
hreppapóiítik sat I íyrirrúmi fyr-
ir þjóðarhagsmunum. En það er
einmitt friðun sildarinnar sem
visar okkur leiðina um hvað hægt
er að gera ef við högum okkur
eins og menn.
Af reynslu minniþykist ég geta
fullyrt að með þvi að nota skyn-
seminagætumviöáörfóum árum
komið upp glæsilegum ýsustofai
við suðurströndina. Og þó ég
nefai suðurlandsmið, þá er ég
einflig sannfærður um að mibin
gefca gefið okkur nægan fisk ef við
notum skynsemina attt umhverfí6
landið. Ennþá bryddir ekki & nein
um marfeverðum róðstöfutwm
gagnvart ofekur sjálfum og hver
höndin uppámóti armarri um
hvaðgeraskuli. Það yrði of iangt
mál að fara útt hvað ég teidi
hyggilegast a.m.k. sunnaniands
og visast að aðrir k-unni mér betri
ráð. En þeirri fuHyrðiflgu ætia ég
að bæta við,að ef við höldum á-
fpam sem horfir, verða fleiri mið
enþau sunnanlands orðin aðeyði-
mörkum áður en langt um liður.
Við eigum kannski eidri besta
land i heimi,þö það sé tígnarlegt,
en við eigum besta sjó i heimi,
fiskimið sem gætu gert okkur
kleift að lifa með sóma i landinu.
Ég treysti á að unga kynslóðin
finni þá leið til þjóðareiningar
sem þarf til,að svo megi verða.
(Fyrirsagnir og millifyrirsagn-
te m ÞjétMtjflm)
sfáffl