Þjóðviljinn - 23.03.1978, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 23.03.1978, Qupperneq 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. mars 1978 MINNING Menningar- og fræðslusamband alþýðu LANDSÝN-ALÞÝÐUORLOF AÐ FRÆÐAST OG FERÐAST Ferðaskrifstofa launþegasamtakanna Skólavörðustíg 16 — Sími 28899 Kynnisferð til Júgóslaviu Menningar- og fræöslusamband alþýðu og Alþýöuorlof hafa I samvinnu við Feröaskrifstofuna Landsýn skipulagt sérstakar orlofs- og fræðsluferöir fyrir félagsmenn f stétt- arfélögum innan Alþýðusambands tslands, ætlaðar þeim sem hafa hug á ab sameina orlof og fræöslu með þvl að kynnast löndum og þjöðum um leiö og þeir njóta hvfldar og hressingar. Fyrsta ferðin til Júgóslaviu verður farin 17. mai 1978. Ferðin stendur yfir f 3 vikur. Dvalið verður I baðstrandar- bænum PORTOROZ — Blómahöfninni — á strönd Adrfa- hafsins f 2 vikur, en einni viku verður variö til skoðunar- og fræðsluferðar um einhver fegurstu héruð Jágóslavfu. Auk þess að kynnast rómaöri náttúrufegurð og sögufrægu umhverfi gefst þátttakendum kostur á þvf að heimsækja verksmiðjur og aöra vinnustaði, opinberar stofnanir og sveitarstjórnir og fræðast með viðtölum og á ahnan hátt um llfíjj'.jör fólksins og kynnast stjórnarfari Júgóslavfu. Verð aðeins kr. 145.000.- Þessi einstæða ferð mun aðeins kosta kr. 145.000.- á mann fyrir þá sem eru félagsmenn I stéttarfélögum innan ASt eöa f félögum sem aðild eiga að Alþýðuorlofi. Innifalið I þessu verði er: Dagflug Keflavfk/Ljubljana, flutningur til og frá flugvelli f Júgóslavfu, gisting I 3 vikur, þ.e. 2 vikur á hótelunum Neptun/Apollo I Portoroz með frfum aðgangi að einkabaðströnd hótelanna, morgun- mat/kvöldmat allan timann og — siöast en ekki sfst — 7 daga skoðunarferð með islenskri leiðsögn. Bókanir hjá Landsýn h.f., Skólavörðustfg 16, simi 28899,og þar eru veittar frekari upplýsingar. Fulltrúafundur , H júkrunarf élags íslands Fulltrúafundur Hjúkrunarfélags tslands, verður i Domus Medica 3. og 4. april n.k. Dagskrá samkv. félagslögum. Lagabreyting önnur mál. Stjórnin. Arður til hluthafa Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Sam- vinnubanka íslands h.f. þann 18. mars s.l., greiðir bankinn 10% arð p.a. af innborg- uðu hlutafé fyrir árið 1977. Af jöfnunar- hlutabréfum greiðist sami arður frá út- gáfudegi. Greiðsla arðs af nýjum hlutabréfum fer fram þegar þau eru að fullu greidd og hafa verið gefin út. Arðurinn er greiddur i aðalbankanum og útibúum hans gegn framvisun arðmiða ársins 1977. Athygli skal vakin á þvi að réttur til arðs fellur niður, sé hans ekki vitjað innan þriggja ára frá gjalddaga. Reykjavik, 20. mars 1978 Samvinnubanki íslands h.f. Svafa Þórleifsdóttir fyrrverandi skólastjóri Fædd 20.10.1886 — Dáin 7.3.1978 Nú er hún horfin guðs I geim og með henni eitt sterkasta afl kvennahreyfingarinnar á Islandi. Hún andaöist i Borgarspitalanum þ. 7. marz s.l. rúmlega 91 árs að aldri. Hún var fædd á Skinnastað i öxarfiröi 20. október 1886, dóttir þeirra merku prestshjóna Sess- elju Þóröardóttur og séra Þórleifs Jónssonar, sem lengi var prestur á Skinnastað i öxarfiröi. Faðir hennar var fræðimaður mikill og vel hagmæltur. Uppvaxtarheimili hennar á Skinnastaö var mikið merkis- heimili því báðir foreldrar hennar voru vel gefin, og i mörgu á undan sinni samtiö. Það var eitt meö meiri framkvæmda- og hugsjóna- heimilum landsins. Sagt er, að lengi búi að fyrstu gerö og þaö sannaöi Svafa með öllu lifi sinu,en þvl varöi hún fyrst og fremst til menningar og kær- leiksauka til allra sem kynntust henni. Llfsspor hennar mörkuöu þá haröspora sem lengi munu marka leið hennar meöal sam- feröamanna hennar. Ég ætla mér ekki að minnast hér hennar mikla þáttar I skóla- málum né félagsmálum innan Islands og utan, sem var áreiðan- lega landinu til sóma; það eru aðrir mér hæfari búnir aö gjöra. Þess vildi ég minnast sem að mér snéri frá okkar fyrstu kynnum. Mér veittist hjá henni mikil stoð þegar ég, litið félagsvön, var tilnefnd og kosin i stjórn K.R.F.I., þar sem hún átti sæti I f jöldamörg ár. Ef mér heppnaðist að koma með einhverja vitleg ábendingu eða tillögu, studdi Svafa mig æf- inlega. Hún sýndi með skýrum rökum aö þetta eða hitt, sem ég stakk upp á, væri nauðsynlegt hreyf- ingu okkar. Ég minnist þess ekki, að naiaþeirra ágætu kvenna, sem ég vann með i stjórn K.R.F.I. I þau tólf ár sem ég átti þar sæti, mæltu á móti þvi sem Svafa lagði til málanna eða studdi. Ekki var það þó af því, að hún færi með há- vaöa I þeim málum sem hún kom meö eða styrkti,heldur af því, að allar samstarfskonur báru til hennar mikið traust og virtu þekkingu hennar og góðvilja. Eitt af mörgu sem Svafa var upphafsmaður aö halda náms- skeiö I fundarsköpum og fundar- reglum. K.R.F.I. hélt svo þetta námsskeið og var Svafa forstöðu- maður þess. A þessu námsskeiöi lærði ég það litla sem ég kann I þeim fræöum og hefur þaö oft komið sér vel þegar ég hefi þurft sem formaður að stjórna fundum og við önnur félagsstörf. Eftir því sem ég kynntist Svöfu betur lærði ég að meta hennar miklu hæfileika og framsýni. Hún var frá uppháfi gjaldkeri og rit- stjóri hins merka rits Menningar- og minningarsjóðs kvenna og sá algerlega um útgáfu þriggja fyrstu bókanna,og leysti hún það verk af hendi með mikilli prýði. Þessi sjóður var henni mikið á- hugamál,bæði vegna þess, að með eflingu sjóðsins var hægt að veita fleiri námsstyrki til fátækra stúlkna, sem þráðu meiri mennt- un til munns og handa og ekki sið- ur hitt, að þvi fleiri sem bækurnar urðu, þvi fleiri kvenna var getið fyrir þeirra margvislegu störf, en ekki eingöngu vegna þess, að þær væru konur þessa eða hins karl- mannsins. Fyrstu náin kynni hafði ég af Svöfu þegar ég fór heim til henn- ar með minningargjöf og grein um móður mina. Ég minnist þess alltaf hve gott var og lærdómsrikt aö sitja hjá henni I næði og tala við hana. Hún fræddi mig um svo margt þessa stuttu stund, sem ég dvaldi hjá henni og andrúmsloftiö var svo gott, að þegar ég fór frá henni fannst mér ég afþreytt og endurnærð bæði andlega og lik- amlega. Svo var það nokkru seinna aö ég hringdi til hennar og bað hana leyfis að mega koma til hennar þvi ég þyrfti á ráðleggingu að halda fyrir mig sérstaklega. Ég sagði henni að ég gæti ekki rætt þetta mál I sima. Hún sagði, að ég væri velkomin. Ég fór til hennar og við töluðum góða stund saman um það, sem mér lá á hjarta. Þegar ég fór fylgdi hún mér til dyra og leit sinum skæru, bláu augum á mig og sagði: — Ég vona, Valgerður mfn, að þú hafir ekki farið erindisleysu og ráöleggingar minar verði þér til góðs. — Og svo sannarlega voru ráð hennar góö. Svona er og var Svafa I mínum huga og minu hjarta. Ég veit að hún hefur átt bjarta og góða heimkomu á alheims- ströndinni handan við þetta jarð- lif. I fylgd með henni hefur verið góður hugur allra þeirra mörgu, sem henni hafa kynnst. Astvini hennar sem eftir lifa bið ég guð að vernda og styrkja. ...orðstirr deyr aldrigi hveims sér góðan getr. Valgerður Gfsladóttir. Er sjonvarpió bi,aó?Ji □ Skjárinn Sjónvarpsverftsfeði símT“ Begsíaáasfraíi 3812-1940 ^tn OFNINN GEFUR GÓÐAN YL STÁLOFNAR HF. STÓ ofninn er íslensk framleiösla og framleiddur fyrir íslenskar aöstæður. Hann ersmíðaöur úr 1,8 mm þykku holstáli, rafsoöinn saman aö mjög miklu leiti með fullkomnum sjálfvirkum vélum, sem tryggja jöfn gæöi suðunnar. STÓ ofninn hefur þá sérstöðu aö allar mælingar á hitanýtingu og styrkleika hafa veriö geröar á Islandi af Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins aö Keldnaholti, og þá notuð hitaveita. STÓ ofninn er stílhreinn og fer allstaðar vel. Þeir fagmenn sem hafa kynnt sér STÓ ofninn mæla sérstaklega með honum, ekki eingöngu vegna útlits, heldur miklu frekar hvernig hann er uppbyggöur, hve vel hann nýtir hitann, og handhægt er að leggja pípulagnir að honum. Leitið nánari upplýsinga. Gerum föst verðtilboð. VELDU STÓ OFNINN OG HANN MUN YLJA ÞÉR UM ÓKOMINN TÍMA:

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.