Þjóðviljinn - 23.03.1978, Page 23
Fim mtudagur 23. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
sjönv&rp
Maðurinn
sem sveik
Barrabas
Að kvöldi föstudagsins
langa verður leikrit dr.
Jakobs Jónssonar,
,,Maðurinn sem sveik
Barrabas", frumsýnt í
sjónvarpi. Þetta er fyrsta
leikritið, sem tekið er í
litum í sjónvarpssal.
Leikurinn gerist i Jerúsalem
og nágrenni á timabilinu milli
pálmasunnudags og föstudags-
ins langa. Leikritið var upphaf-
lega samiö sem útvarpsleikrit,
en höfundurinn hefur endur-
samiö þaö fyrir sjónvarp.
Leikstjóri er Siguröur Karls-
son, og meö helstu hlutverk fara
Þráinn Karlsson, Ragnheiöur
Steindórsdóttir, Jón Hjartarson
og Arnar Jónsson. Tónlist er eft-
ir Elias Daviösson og leikmynd
og búningar eftir Jón Þórisson.
Arnar Jónsson (t.v.) I hlutverki Abidans og Jón Hjartarson sem
Efraim.
Styrktarfélag vangefinna 20 ára:
Erindi og umræður
um mál vangefínna
í dag, skirdag, veröur þess
minnst i útvarpinu kl. 16.25, aö
20 ár eru liöin frá stofnun
Styrktarfélags vangefinna i
Reykjavik. Sigriöur Ingimars-
dóttir húsmóöir, sem er einn af
stofnendum félagsins, mun
flytja erindi um þróun málefna
vangefinna hér á landi.
Sigriöur sagöi, aö ekki væri
hægt að flytja tæmandi erindi
um svo yfirgripsmikiö mál á 20
min., en hún kvaöst myndu
rekja sögu málefna vangefinna I
stórum dráttum. Sigriöur sagöi
aö hún hæfist eiginlega ekki fyrr
en 1930, er heimiliö aö Sólheim-
um i Grimsnesi var stofnaö.
Siðan mun hún rekja lagasetn-
ingar i sambandi við vangefna.
Sigriöur hefur verið mjög
virkur félagi i Styrktarfélagi
vangefinna og var ritari
stjórnarinnar i 17 ár.
A eftir erindi Sigriöar eru um-
áHHl
Sigriöur Ingimarsdóttir
ræöur, sem Kári Jónasson
fréttamaöur stjórnar. Þar
ræðast viö Gréta Bachmann
forstöðumaöur að Bjarkarási og
Hrefna Haraldsdóttir forstööu-
maöur að Lyngási, Bjarni
Kristjánsson kennari Sólborg á
Akureyri, Pétur Þorgilsson
sölumaður og Asa Kristinsdóttir
húsmóöir.
Vegna 20 ára afmælisins
hafa undanfariö veriö þættir i
útvarpi um málefni vangefinna.
Síöasta erindiö veröur á 2. i
páskum. Þá flytur Jóhann
Guömundsson læknir erindi um
þátt foreldranna.
Þá stendur um þessar mundir
yfir aö Kjarvalsstööum sýning-
in Viljinn i verki, sem er sýning
á verkum vangefinna. Einnig er
komiö út timarit Styrktarfélags
vangefinna, og fæst ritiö á
Kjarvalsstööum og á skrifstofu
styrktarfélagsins.
Gömul tónlist á gítar og flautu
1 kvöld kl. 22.10 leika Snorri
Örn Snorrason og Camilia
Söderberg gamla tónlist á gitar
og flautu. Upptakan var gerö á
tónleikum i Bústaðakirkju 11.
febrúar sl.
Snorri örn Snorrason gitar-
leikari lauk flugmannsprófi áriö
1970, en ákvaö þá aö snúa sér al-
farið að tónlistinni og hóf nám i
Tónlistarháskólanum i Vin. Þar
stundaði hann nám i gitarleik i 5
ár, auk náms i tónlistarsögu,
tónfræöi og fleiri greinum. Aöur
en Snorri hélt utan til náms i
klassiskum gitarleik, haföi hann
um árabil leikiö danstónlist i
Reykjavik, m.a. i hljómsveit-
inni Orion, þar sem Sigrún
Haröardóttir var söngkona.
Snorri hefur undanfariö stundað
framhaldsnám i Basel i Sviss.
Eiginkona Snorra, Camilla
Söderberg, er af sænskum ætt-
um, en ólst upp i Austurriki og
hlaut menntun sina i Tónlistar-
háskólanum i Vinarborg. Hún
stundar nú framhaldsnám i
Schola Cantorum.
Konungsefnín - sídari hluti
i kvöld kiukkan átta verður
fluttur siðari hluti ieikritsins
„Konungsefnin’’ eftir Henrik
Ibsen. Þýðandi er Þorsteinn
Gislason, en Gisli Halldórsson
annaðist leikstjórn. Meö stærstu
hlutverkin fara Róbert
Arnfinnsson, Rúrik Ilaraidsson,
Jón Aðils, Sigurður Skúlason,
Erlingur Gislason og Guðrún
Asmundsdóttir.
t fyrri hluta leiksins sagði frá
þvi að Hákon Hákonarson er
kjörinn til konungs i Noregi.
Skúli jarl telur sig ekki siöur
réttborinn til þjóöhöföingja, og
Nikulás Arnason biskup i Osló
hvetur hann til aö hopa hvergi.
Biskupinn hefur orðið fyrir
margs kyns vonbrigöum og
mótlæti á langri ævi. Biturleiki
hans kemur fram i refsskap og
illgirni. A banasænginni lætur
hann Skúla brenna bréf, sem
heföi getaö sannaö rétt hans til
konungdóms. Þá hefur Hákon
gert Skúla aö hertoga og vill
greinilega allt til vinna að ekki
komi til innanlandsófriöar. En
Nikulás biskup hefur þegar
boriö eld aö bálkestinum.
sýning aó
Kjarvalsstöóum
18.-27 mars 78
dagskná:
Skírdagur 23.3 Kl. 3 Lúðrasveit leikur (ef veður leyfir) Kvikmyndasýning Kl. 8.30 Háskólakórinn syngur Sýningin opin frá kl. 2-10 e.h.
Föstudagurinn langi 24.3 Lokað
Laugardagur 25.3 Kt. 5 Kvikmyndasýning. Kl. 8.30 Nemendur úr öldutúnsskóla syngja. Sýningin opin frá kl. 2-10 e.h.
Páskadagur 26.3 Kl. 5 Telpnakór úr Garðabæ syngur og Söngflokkurinn Hljómeyki flytur nokkur lög Kl. 8.30 Upplestur, Guðrún Ásmundsdóttir les Sýninqin ooin frá kl. 3-10 e.h.
Annar í páskum Síðasti daaur svninqarinnar Kl. 5 Brúðuleikhús Kl. 8 Jónas Þórir leikur á orgel Sýningin opin frá kl. 2-10 e.h.
AKRANES—
AKRANES
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga
1978 liggur frammi til sýnis á Bæjarskrif-
stofunni, Kirkjubraut8, frá 28. mars til 25.
april n.k.
Bæjarstjóri.
• Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtiiboð
SÍMI53468