Þjóðviljinn - 13.05.1978, Side 5
Laugardagur 13. mal 1978. I( ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
151 Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
S m n Vonarstræti 4 simi 25500
Starfsfólk
í hefmilishjálp
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
óskar að ráða starfsfólk til Heimilisþjón-
ustu 4 til 8 tima á dag. Nánari upplýsingar
veittar að Tjarnargötu 11, simi 18800
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir april
mánuð er 15. mai. Ber þá að skila skattin-
um til innheimtumanna rikissjóðs ásamt
söluskattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið 10. mai 1978
LAUSAR STÖÐUR
Viö Flensborgarskólann i HafnarfirBi, fjölbrautaskóla,
eru lausar nokkrar kennarastöður, einkum I islensku,
stærðfræði, listgreinum, vélritun og Iþróttum. Æskilegt er
að umsækjendur geti kennt fleiri kennslugreinar en eina.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 10. júnl n.k. Umsóknar-
eyðublöð fást I ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 11. mal 1978,
UTBOÐ
Hitaveita Akureyrar
óskar eftir tilboðum i lagningu dreifikerf-
is Hitaveitu Akureyrar 6. áfanga útboðs-
gögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu
Akureyrar Hafnarstræti 88b Akureyri, frá
og með þriðjudeginum 16. mai 1978 gegn
30 þús. króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofum
Akureyrarbæjar Geislagötu 9 Akureyri,
föstudaginn 26. mai 1978 kl. 11.00 f.h.
Hitaveita Akureyrar.
Utanríkisráðuneytið
óskar að ráða nú þegar ritara til starfa i
utanrikisþjónustunni.
Umsækjendur verða að hafa góða
kunnáttu og þjálfun i ensku og a.m.k. einu
öðru tungumáli. Fullkomin vélritunar-
kunnátta áskilin.
Eftir þjálfun I utanrikisráðuneytinu má
gera ráð fyrir, að ritarinn verði sendur til
starfa i sendiráðum Islands erlendis, þeg-
ar störf losna þar.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf verða að
hafa borist utanríkisráðuneytinu, Hverfis-
götu 115, Reykjavik, fyrir 23. mai 1978.
Utanrikisráðuneytið
Bangsímonamir — og
strangur skóli
myndir. Stólar eru þar margir.
Tiður gestur er einnig pensill með
skafti og fari eftir þann lit sem
hann hefur á eftir sér dregið.
Bangslmonar margir horfa sak-
leysislega framan I gestinn. A
einni og sömu mynd getum við
fundið túttusyrpu, sem rifjar upp
bernskutiðindi og svo ýmislegt
annaö sem ekki verður nefnt, lika
ruggustóla sem hæfa sögufróðum
ömmum, þá svarta ferninga
miskunnarlausrar gagnrýni, enn-
fremur gátum við til vinstri séð
tannhjól Iðnvæðingar leitast við
að brjótast inn I þennan heim, um
leið og fjólublár iðrunarlitur
kaþólskunnar lagði sitt til mál-
anna neðst til hægri.
Við stungum upp á þvi, að þessi
mynd gæti heitið „Samhengiö I
islenskum bókmenntum”.
Sigurður Orlygsson hafði i
sjálfu sér ekkert á móti þvi. En
hann tók skýrt fram, að hann væri
ekki að segja sögur i myndum
sinum. Ég var sagði hann, alinn
upp I ströngum skóla geometrisk-
ar afstraksjónar, og ég er feginn
aö hafa gengið i gegnum þann
skóla. Þegar ég nú tek þekkjan-
lega hluti og bý til úr þeim mynd-
ir, þá eru þeir valdir vegna þess,
að form þeirra henta mér. En
þessir hlutir — bangsar, borö,
stólar, penslar, þeir kannski taka
upp einhverskonar sambúð og
færast smám saman lengra inn I
ákveðna merkinu.
En sem fyrr segir: Ég tek úr
hlutveruleikanum þá þætti sem
mér henta. En ef menn hafa gam-
an af að lesa inn I þetta samhengi
eitthvað frá sjálfum sér, leggja
út af myndunum á sinn hátt, þá er
það ekki nema til góðs fyrir alla
aðila. Þú segir að þessi leikur lita
og hluta minni þig á litil börn. Þvi
ekki það? Ég var sjálfur að eign-
ast mitt fyrsta barn á dögunum...
\br í Reykjavík
Við bjóðum landsmenn velkomna til Reykjavíkur. Vekjum athygli á
þeim sérstöku vorkjörum, sem við bjóðum nú á gistingu.
Leitið upplýsinga, - hafið samband við okkur, eða umboðsskrifstofur
Flugleiða um land allt.
«HOTEL#
Suöurlandsbraut 2. Sími 82200
HQTEL
LOFTLEÍÐIR
Reykjavikurflugvelli. Sími 22322
Sigurður
Örlygsson á
Kjarvalsstöðum:
Sigurður örlygsson opnar sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum I dag,
laugardaginn 13. mai. Hann sýnir
fjörutiu og þrjár myndir. Þær eru
allar málaðar siðan um áramót.
Hvernig fer fyrir myndlistarsög-
unni ef þessum afköstum heldur
áfram?
Heimurinn fyllist af málverk-
um, sagði Sigurður.
Það er hægur vandi aö þekkja
þá hluti sem setja saman þessar
Sigurður örlygsson: Þessir hlutir henta mér
(Ijósm. Þjv. Leifur)