Þjóðviljinn - 13.05.1978, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 13.05.1978, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJóÐVILJINNj Laugardagur 13. mal 1978. RÍKISSPÍTALARNIR Lausar stöður LANDSPÍTALINN LÆKNARITARI óskast nú þegar á Hátúnsdeild. Hálft eða fullt starf eftir atvikum. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun áskilin, ásamt góðri vélritunarkunnáttu. Umsóknir sendist til starfsmanna- stjóra, sem veitir nánari upplýs- ingar i sima 29000. KLEPPSSPÍTALINN LÆKNAFULLTROI óskast nú þeg- ar á spitalann. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun áskilin, ásamt góðri vélritunarkunnáttu. Umsóknir berist til læknafulltrúa spítalans, sem veitir nánari upplýs- ingar i sima 38160. Reykjavik, 14. mai 1978 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000 1 H AFN ARFIÖRÐUR Innritun 6 ára nemenda (börn fædd 1972) og annarra nýrra nemenda fer fram i grunnskólum Hafnarfjarðar (einnig i sima) fimmtudaginn 18. mai kl. 13—16. Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar. Sveinafélag plpulagningamanna Aðalfundur félagsins verður haldin að Hótel Loftleiðum, Leifsbúð, þann 20. mai 1978 kl. 14 e.h. Venjuleg aðalfundarstörf. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins Skipholti 70. Stjórnin. AÐALBOKARI Staða aðalbókara við Skrifstofu Rann- sóknastofnanna atvinnuveganna er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Skrifstofu Rannsóknastofnanna atvinnuveganna fyrir 31. mai 1978. ÚTBOÐ Stjórnamefnd Fjölbrautaskólans i Breið- holti óskar eftir tilboðum i lokafrágang annarrar og þriðju hæðar D-álmu við Fjölbrautarskólann i Breiðholti. Otboðsgögn verða afhent á teiknistofunni Arkhönn s/f Óðinsgötu 7 gegn 30.000.- kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 11 mánudaginn 29. mai næst komandi en þá verða þau opnuð. Dagana 18-22 maí verður staddur hér á landi á veg- um Gallerí Suðurgötu 7 og Kjarvalsstaða breski saxó- fónleikarinn Evan Parker. Hann heldur tvenna ein- leikstónleika hér. Laugar- daginn 20. maí kl. 16 leikur hann í Norræna húsinu/ en sunnudaginn 21. maí á Kjarvalsstöðum. Parker tilheyrir spunahreyfing- unni bresku/ sem við höf- um lítillega kynnt hér á síðunni. Hún varð til snemma á 7. áratugnum og tónsköpun hennar einkenn- Umsjón: Kristín ólafsdóttir Aagot V. óskarsdóttir Jóhanna V. ÞórhalJsdóttir hornaugað Spunamaður í heimsókn Helstu fulltrúa spunahreyfingarinnar má telja þá Evan Parker og Derek Bailey. A þessari mynd er hljómsveit Baileys „The Com- pany”. Fremst til vinstri er Derek Bailey, þá Evan Parker, Steve Beresford og Lol Coxhill. ist af þvi að tónlistin er ekki samin fyrirfram/ heldur er allt leikið af fingrum fram. Evan Parker var meöal stofn- anda hljómsveitarinnar Company. Markmiö hennar var ekki aö mynda fasta hljómsveit heldur er mannaskipan sibreyti- leg. Hljómsveitin á aösetur i Bretlandi en meölimir hennar koma viöa aö. Hugmyndin aö baki þvi aö hafa hljómsveitina svona opna, er sú aö þeir liös- menn hennar telja aö föst hljóm- sveit hljóti að leiöa til stöðnunar. Dæmi um hljómsveit sem starfar á hliðstæöum grundvelli er Globe Unity Orchestra sem hefur aöset- ur i Þýskalandi. Þeir Parker og Baily hafa einmitt leikiö meö þeirri hljómsveit. Spunamennirnir áttu i miklum erfiðleikum með aö fá verk sin gefin út á hljómplötum, þess vegna bundust þeir samtökum og stofnuöu sitt eigiö útgáfufyrir- tæki. Þetta fyrirtæki,Incus, var stofnað áriö 1970, og hefur gefið út Evan Parker. yfir 20 plötur sem þrykktar eru i litlu upplagi (innan viö þúsund eintök). Hliðstæð fyrirtæki eru einnig starfandi i Hollandi og Þýskalandi. Evan Parker notfærir sér hljóö- færi sitt á mjög sérstakan hátt, sem brýtur i bága viö heföbundna skoöun á hljóöfæraleik. Hann not- ar sér möguleika hljóöfærisins út i ystu æsar, til dæmis leikur hann sér aö þvi aö breyta tónhæö yfir- tónanna meö ýmsum tæknibrell- um. Bylting hans tekur til allra þátta tónlistarinnar, t.d. bindur hann sig ekki viö tóntegund eöa hinn vestræna tólftónaskala. Hann spilar ekki i ákveönum takti, þ.e.a.s, þaö er vissulega sveifla I tónlistinni en þar er ekki fastur púls. Mikiö er lagt upp úr aö notfæra sér möguleika á tón- blæ og tónalit og þetta og fleiri þættir mynda þann efnivið, sem „tónmál” hans byggist á. Parker er mjög hrifinn af kóreanskri, japanskri og kin- verskri tónlist og telur aö hún búi yfir rikari og meira lifandi notkun tónalita en vestræn tón- list, og aö þar sé fólk almennt opnara fyrir þessum þætti tón- listarinnar. Það er kannski áherslan á þetta atriöi i tónlist Parkers sem veldur þvi aö mönn- um kann aö viröast hún fram- andi. Þó aö tónlist spunamann- anna sæki margt til jass- ins vilja þeir ekki kalla sig jass-leikara. Þeir teija aö innan meginstrauma jassins fari ekki lengur fram nein nýsköpun, held- ur eigi sér staö formdýrkun án lif- andi inntaks. Þeir hafa mætt litl- um skilningi hjá samtökum jass- leikara, eigendum jassstaöa og dagskrárstjórn útvarpsins. Þaö var meöal annars vegna þessa sem Incus fyrirtækiö var stofnaö. í tónlist þessara manna felst af- neitun á heföbundnum formum klassiskrar tónlistar, s.s. sinfóniu og óperu. Þessi form telja þeir endurspegla hiö stéttskipta þjóö- féiag sem þau verða til i, bæöi hvaö varöar verkaskiptingu flytj- endanna og aö þau voru oft samin fyrir útvalinn áhorfendahóp. Hin eiginlega sköpun i þessari tónlist erverk eins manns og fiðluleikari á 14. púlti hefur litlu sem engu viö aö bæta. 1 frjálsu tónlistinni er sérhver hljóöfæraleikari jafn- framt tónskáld. Tónlist þeirra krefst þess aö hljóöfæraleikar- arnir séu opnir og vakandi fyrir áhrifum frá samleikurum sínum og umhverfinu og aö þeir kunni að bregðast við þeim. Eins og samstarfsmaöur Park- ers, Derek Bailey, kemst aö oröi: Þaö að spila frjálsa tónlist er aö hver og einn spilar þaö sem hann vill en tekur þó tillit til samleik- ara sinna”. Þess má geta aö fyrir stuttu var Parker kosinn besti sópransaxó- fónleikari I lesendakosningum Melody Maker. Viö hvetjum alla tónlistarunn- endur, aö láta þennan tónlistar- viðburð ekki framhjá sér fara. (avó.jvþ, kól) $( Tilkynning til launaskattsgreiðenda Athylgi launaskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að 25% dráttarvextir falla á launa- skatt fyrir 1. ársf jórðung 1978 sé hann ekki greiddur i siðasta lagi 16. mai. Fjármálaráðuneytið. KÖRFUBÍLL Til sölu körfubill, Thames-Trader, á nýj- um dekkjum. Lyftihæð 10.5 m. Tilboð sendist rafveitustjóra fyrir 20. mai n.k. Rafveita Hafnarfjarðar, simi 5-13-35.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.