Þjóðviljinn - 13.06.1978, Síða 1

Þjóðviljinn - 13.06.1978, Síða 1
UOWIUINN Þriðjudagur 13.júni 1978 — 43.árg. — 122. tbl. Meirihlutaflokkarnir i borgarstjórn Samstaða um málefnasamning Sjá síðu 3 Rætt \ið Guðmund J. Guðmundsson um bæjarfélög sem ætla að greiöa laun samkvæmt samningunum: Nú sést svart á hvítu að kjörseðill er vopn í kjara- baráttu Úrslitaátökin um kjör launafólks og stefnu ríkisstjórnarinnar verða háð hér í Reykjavík Þjóðviljinn sneri sér i gær til Guðmundar J. Guðmundssonar, formanns Verkamannasambands islands, vegna frétta sem hafa verið að berast að undanförnu um að ýmis bæjarfélög væru að ákveða að greiða vísitölubætur á laun samkvæmt kjarasamning- unurn. Guðmundur J. Guðmundsson skipar 5ta sætið á framboðslista Alþýðubandalagsins i Reykjavik vegna alþingiskosninganna, en samkvæmt úrslilum borgar- stjórnarkosninganna er það baráttusætið i kosningunum. Það hriktir í stjórn- arflokkunum — Guðmundur sagði: — Nú hriktir i stjórnarflokk-, unum um allt land og þeir eru laf- hræddir. Þar sem Alþýðubanda- lagið vann góða sigra i byggða- kosningunum er ýmist búið að samþykkja að setja samningana i gildi eða það er i undirbúningi að bæjarfélögin greiði laun eftir kjarasamningunum frá í fyrra. Þar með eru komin stór skörð i múrana, svo stór skörð aö það verður varla aftur snúið nema stjórnarflokkunum takist að klóra i bakkann frá byggðakosn- ingunum. Það er einkennandi fyrir ástandið i stjórnarherbúö- unum aðeinstakir frambjóðendur stjórnarflokkanna eru farnir að lýsa þvi yfir þegar þeir skynja andúö verkafólks á geröum sin- um, að þeir séu andvigir bráða- birgðalögunum. En það vekur ekki siður athygli að Geir Hall- grimsson og Ólafur Jóhannesson hamast við að réttlæta kjara- skerðinguna, þcir hafa ekki sagt að þeir ætli að afnema bráða- birgðalögin og þeir hafa ekki sagt að þeir séu hættir við að taka óbeina skatta út úr visitöl- unni, en yfirlýsingar liggja fyrir um það efni frá þeim báðum. Þó að frambjóðendur stjórnarflokk- anna haldi þessu fram afr- þrengdir á framboðsfundum munu þeir verða enn aöþrengdari á alþingi frammi fyrir Geir og Ólafi — og þeir hafa látiö undan fyrir flokksforingjum sinum i stærri málum. Nú sjá launamenn svart á hvitu að kjörseðillinn er vopn I kjarabaráttu En meginatriðið i sambandi við ákvarðanir bæjarfélaganna er það að nú sjá launamenn svart á hvitu hvaö kjörseöillinn gildir i kjarabaráttunni. 1 þessu sam- bandi vil ég til dæmis minna á að Reykjavikurborg er stærsti við- semjandi Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og Verkakvenna- félagsins Framsóknar — þannig að það munar verulega um frum- kvæði af hálfu Reykjavikurborg- ar i þessum efnum. Þeir ætla að stjórna saman áfram Það er annars athyglisvert að áróðursmenn stjórnarflokkanna, einkum Sjálfstæðisflokksins, reyna aö beina athyglinni frá efnahagsmálunum yfir til utan- rikismálanna. En launamenn munu ekki láta þessi gamalkunnu Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasam- bandsisiands, skipar 5ta sætið á framboðslista Alþýðubandaiag- sins i'Reykjavík vegna alþingis- kosninganna 25. júnf næst- komandi. áróðursbrögð villa um fyrir sér, þvi ijóst er að eftir kosningar renna stjórnarflokkarnir saman ef sigrinum frá byggðakosning- unum verður ekki fylgt eftir um land allt. Nái stjórnarflokkarnir saman eftir kosningar munu tals- menn þeirra segja: Viö sögðum ykkur fyrir kosningar hvað við ætluðum að gera — og þá mun kjaraskeröingin verða enn svart- ari og vísitölufölsunin enn grófari en nú er. Launamenn eiga þess þvi kost nú að gera það upp við sig hvortþeirvilja taka slaginn strax með þvi að beita atkvæðum sinum gegn kaupránsflokkunum, eða hvort þeir vilja kjósa gegn sinum eigin hagsmunum, styöja kaupránsflokkana, og fá siðan yfir sig holskeflu kjaraskerðingar eftir kosningarnar. Fái stjórnar- flokkarnir stuðning launamanna munu þeir nota þann stuðning til þess að skerða kjörin. Svona ein- falt er það. Verði stjórnarflokk- arnir hins vegar fyrir ærlegri rassskellingu munu þeir ekki leggja i það að halda ætlunar- verki sinu áfram. Um þetta er kosið, um kjörin, um hag fólksins og ekkert annað. Úrslitin ráðast í Reykjavík Við þekkjum það af gömlum vana að Morgunblaðið mun siðustu dagana fyrir kosningar telja rússnesk herskip i flóum og fjörðum umhverfis tsland. Þvi fleiri sem herskipin eru, þeim mun meiri árangri sem ihaldið kannað ná i hræðsluáróðri sinum, þeim mun hrikalegri verður kjaraskerðingin eftir kosningar, kaupið lækkar, verðlagið hækk- ar bótalaust. Að lokum vil ég leggja áherslu á það að öll kjördæmi landsins eru mikilvæg, hvert einasta at- kvæði greitt Alþýöubandalaginu er andúð á stefnu stjórnarflokk-' anna, krafa um nýja stórnar- stefnu. En aðalúrslit kosninganna ráðast hér i Reykjavik; hér verða höfuðátökin, úrslitaátökin milli rikisstjórnarinnar og launafólks. —S. 'tei. i Enda þótt veöur væri ekki hið ákjósanlegasta var geysimikil þátttaka í Kef lavíkurgöngunni á laugardag. Á sjötta hundrað manns lögðu upp í gönguna og strax eftir fyrsta áfanga komst tala göngumanna yfir þúsund. Þegar á Reykjavíkursvæð- ið kom var gangan orðin nær því eins fjölmenn og árið 1976. Keflavikurgöngunni lauk með fjöldafundi á Lækjartorgi sem hófst kl.22 á laugardagskvöldið. Hafði þá verið gengiö 113 klukku- stundir með smáhléum i áningar- stöðum. A Lækjartorgi flutti Magnús Kjartansson ræðu og les- in voru baráttuskeyti frá fjöl- mörgum samtökum.Asmundur Asmundsson formaður miönefndar Ias upp ályktun fundarins og sleit Keflavikur- göngu 1978. Ungt fólk setti mjög svip sinn á gönguna að þessu sinni og f jölmennið sýndi að málstaður herstöövaandstæðinga á miklu og vaxandi fylgi að fagna. —-ekh Gangan í texta og myndum: 9,10 og 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.