Þjóðviljinn - 20.09.1978, Side 5

Þjóðviljinn - 20.09.1978, Side 5
Miövikudagur 20. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 i .»"• Jafnréttisgangan á leið að Kjarvalsstöðum. (MyndirT Leifur) t anddyri Kjarvalsstaða „Tímamót í jafnréttisbaráttu alls fatlaðs fólks á landinu” sagði Rafn Benediktsson, formaður Félags fatlaðrasá Kjarvalsstööum í gœi „Nú er lag til að breyta hugsjónum í veruleikayy — sagði Magnús Kjartansson „A ð fatlaöir komi á fund borgaryfirvalda i göngu sem við köllum jafnréttisgöngu er atburður sem vekur mikla og almenna athygli, þvi fatlaðir hafa yfirleitt frekar gengið með veggjum heldur en að vekja á sér sérstaka athygli, enda ber skipu- lag húsa og umhverfis það með sér að það hefur gleymst að taka tillit til þessa hóps.” Svo mælti Rafn Benediktsson, formaður Sjálfsbjargar, félags fatlaöra i Reykjavik, iávarpi sinu á Kjarvalsstöðum i gær. Það var áhrifamikið að verða vitni að jafnréttisgöngunni i gær, þessari þögulu en sterku uppreisn fatlaðra, þar sem þeir komu i fyrsta sinn saman á almannafæri og sýndu einhug sinn og baráttu- hug. Málstaður fatlaðra á lika mikinn stuðning, það sannaði sá mikli fjöldi ófatlaðra, sem þátt tók i göngunni. Vigfús Gunnarsson, formaður ferlinefndar fatlaðra, hét i ávarpi sinu á alla landsmenn að taka þessi mál til gaumgæfilegrar athugunar og geri stórt átak til að leiðrétta þau mistök sem hafa verið gerð á liðnum árum. „Gleymum heldur ekki öldr- uðum, blindum, þroskaheftum og öllum hinum hópunum sem biða og vona”, sagði Vigfús. Þegar hann hafði lokið máli sinu, sæmdi hann Kjarvalsstaði alþjóðamerki fatlaðra. Eftir lagfæringar sem gerðar hafa verið, eiga fatlaðir nú greiðan aðgang um allt húsið. Rafn ,Benediktsson, formaður Félags fatlaðra, sagði m.a. i ávarpi sinu: „Það er von okkar að þessi dagur muni marka tima- mót, ekki aðeins i baráttusögu félagsins, heldur jafnframt i jafn- réttisbaráttu alls fatlaðs fólks á landinu.” Lokaorð Rafns voru: „Vi skorum á ykkur, borgarstjóri og borgarfulltrúar! Vinnið ötul- lega að þvi að Reykjavik verði jafnréttis borg.” Theodór A. Jónsson, formaður Cr göngunni Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, talaði um húsnæðismál fatlaðs fólks og sagði m.a. að grundvallaratriði væri að allar ibúðir, byggingar og opin svæði verði aögengileg fyrir alla. Engin framtiðarlausn væri að byggja aðeins sérstakar ibúöir fyrir ákveðna þegna i þjóðfélaginu. Það væri einnig brýn nauðsyn að fatlaðir eigi kost á hagstæðari lánum til húsbygginga en nú er, þvi mun dýrara væri fyrir fatlaða en aðra að koma yfir sig þaki, þar sem þeir þurfa að kaupa út alla vinnu. Arnór Pétursson, formaður Iþróttafélags fatlaðra, ræddi um atvinnumál fatlaðra og sagði m.a., að aðalorsök þess að fatlaðir komist ekki á vinnu- markaðinn væru umferðar- hindranir. „Þjóðfélag okkar er þannig uppbyggt að ekki er reiknað með fötluðu fólki, sem er þó 15% af þjóðinni,” sagði Arnór. Hann taldi upp fjölmörg atriði til úrbóta i atvinnumálum fatlaðra. Magnús Kjartansson gerði hug- sjónir heilbrigðis og jafnréttis að umtalsefni. Hann sagöi m.a.: „Við undirbúning þessa jafn- réttisdags hef ég leitað liðsinnis Fötluð börn á Kjarvalsstöðum I gær. Vigfús Gunnarsson flytur ávarp I anddyri Kjarvalsstaða. Borgar- fulltrúar til vinstri. — (Ljósm. Leifur) Vigfiís Gunnarsson formadur ferlinefndar fatlaðra: „Aðalverkefnið er breytt hönnun húsa” — Það hefur veriö mikill undir- búningur að þessari göiigu, sagði Vigfús Gunnarsson formaður ferlinefndar fatlaðra I stuttu spjalli viö Þjóðviljann á Kjar- valsstöðum I gær. —Og það hefur verið geysilegt átak að koma þessu öllu I höfn. — Við stefnum að þvi marki, að allir landsmenn geri sér grein fyrir þvi, að það er ekki sama hvernig hús eru byggð. Það kemur oft fyrir að menn þurfa að flýja húsin þegar aldur færist yfir. Aðalverkefniö á komandi árum er að fá hönnun og bygg- ingu húsa breytt þannig að fatl- aðir geti nýtt húsnæðið jafnt sem aðrir, sagði Vigfús. — Þessi ganga okkar i dag er bara eitt skref i margra áratuga vinnu, þrotlausu starfi sem unnil er af þögulum hópum, dögum, vikum og árum saman, sagði Vig- fús að lokum. —eös hjá fjölmörgum mönnum. Ég hef hvarvetna fengið sömu viötökur, hjálpsemi, skilning, áhuga — og það sannar, að nú er lag til að breyta hugsjónum i veruleika á skömmum tima. —eös II m

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.