Þjóðviljinn - 21.09.1978, Side 2
/
2 SÍÐA —' ÞJÓÐV4LJINN Fimmtudagur 21. september 1978
J afntef li
Tuttugustu o@ fjórðu einvigis-
skák þeirra Karpovs og Kortsnojs
lauk i gærmorgun með jafntefli.
Það tók stórmeistarana aðeins
fjóra leiki að komast að þessari
niðurstöðu eftir að þeir tóku aftur
til við taflið.
Hvitt: Anatoly Karpov
Svart: Viktor Kortsnoj
42. Rc4
Biðleikur Karpovs.
42. — RcG
43. Hc5 Kd7
44. Rbtí- Kc7
45. Rc8!
Hvitur hótar nú að vinna svarta
riddarann með 46. Re7, svo
Kortsnoj stóð upp og bað Lothar
Schmid dómara að bjóða jafn-
teflið og lék siðan:
45. — Kxc8
Um leið færði Schmid Karpov
jafnteflisboðið. Karpov sagði ekki
orð skrifaði niður orðið „jafn-
tefli” á blað sitt og gekk út.
Staðan i einvigunu er þvi enn
4:2 fyrir Karpov. Tuttugasta og
fimmta skákin verður tefld i dag
og hefur Kortsnoj hvitt.
Umsjón: Ásgeir Þór Árnason
Heimsmeistaraeinv
Kortsnoj
m 09
y I Karpov í
A 1 Baguio
ígiö í skák
Bókasafn Kópavogs
Þýsk bókagjöf
Miðvikudaginn tí. september
s.l. var Bókasafni Kópavogs af-
hent rausnarleg bókagjöf frá
Martin-Behaim Gesellschaft I
Darmstadt, Vestur Þýskalandi,
en sú stofnun hefur að markmiði
að kynna þýskar bókmenntir og
menningu.
tkaffisamsæti. sem haldið var
af þessu tilefni i Bókasafni Kópa-
vogs, afhenti sendiráðunautur
Sambandslýðveldisins Þýska-
lands, Karlheinz H.G. Krug,bæk-
urnar fyrir hönd stofnunarinnar.
Bækurnar eru 110 að tölu og
valdar af mikilli kostgæfni til
þess að sýna þversnið af þýskum
nútimabókmenntum, fagurbók-
menntum sem fræðibók-
menntum. Má nefna sem dæmi
höfunda eins og H. Böll, G. Grass,
T. Mann, H. Hesse og K. Lorenz.
Bækurnar verða til synis og út-
láns i Bókasafni Kópavogs næstu
daga, en safnið er til húsa i Fé-
lagsheimili Kópavogs, 2. hæð, og
er það opið alla virka daga nema
laugardaga kl. 14-21.
Talið frá vinstri, fremri röð: Herra og frú Karlheinz H.G. Krug, Hrafn
Harðarson, bæjarbókavörður, Heiga Sigurjónsdóttir forseti bæjar-
stjórnar, Magnús Bjarnfreðsson, formaður bókasafnsstjórnar, aftari
röð: Sigrlður J. Magnúsdóttir og Kristin Björgvinsdóttir, starfsmenn I
Bókasafni Kópavogs, Helgi Tryggvason, Helgi Einarsdóttir og
Guðmundur Gislason I bókasafnsstjórn.
Enginn kemst
hjá æfingu
ef hann vill tala erlend tungumál.
Æfinguna færðu hjá okkur.
Hin vinsælu kvöldnámskeið fyrir fullorðna
hefjast 21. september.
Sími 10004 og 11109.
Málaskólinn Mlmir
Brautarholti 4
Sverrir Hólmarsson
skrifar
leikhúspistil
Valgerður Dan, Þóra Borg og Sigurður Karlsson I Glerhúsi Jónasar Jónassonar.
Alkóhóll
hann þyrfti að búa við slík
ósköp.
Lipurleg uppsetning og
traustur leikur gera mikið til að
þessisýning verður ekki leiðin-
leg.Sigrfður Hagalin hefur unnið
þessa frumraun sína I leikstjórn
á Iðnósviðinu af mikilli sam-
viskusemi og leikmynd Jóns
Þórissonar er bæði fallegt og
hagkvæmnislegt verk. Lýsing
er með ágætum. Að öllu yfir-
bragði er hér gott handverk á
ferðinni. Verkið er sýnt i einni
lotu án hlés og er ég hlynntur
þeirri ráðstöfun, þótt það sé
fulllangt til að sýna i einu lagi,
og væri skynsamlegt að skera
það niður um svo sem tuttugi
mínútur.
Sigurður Karlsson hefur veriö
vaxandi leikari undanfarið og
fær nú sitt stærsta hlutverk til
þessa, erá sviðinuallan timann.
Sigurður kann góð tök á hóf-
stilltum, raunsæislegum leik og
bregst hvergi bogalistin, en vel
hefði mátt óska honum dýpri og
traustbyggðari persónu til að
glima viö. Valgerður Dan leikur
eiginkonuna og þarfað fara með
margar heldur vandræðalegar
setningar eins og framan
greinir. Ekki er að undra þótt
tök Valgerðar á hlutverkinu séu
heldur veik, persónan er óskýrt
dregin af höfundarins hendi.
önnur hlutverk eru smærri,en
margt er það eftirminnilega
gert, einkum er vert að minnast
á ismeygilegan skopleik As-
disar Skúladóttur og magnaðan
leik Margrétar Helgu Jóhanns-
dóttur, sem mér þykir mikilúð-
legriá sviði en aðrar leikkonur.
Sverrir Ilólmarsson
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
Glerhúsið
Eftir: Jónas Jónasson
Leikstjóri: Sigriður
Hagalin
Leikmynd: Jón
Þórisson
Ahugi á áfengissýki virðist
vera undirstaða þessa fyrsta
sviðsverks Jónasar Jónassonar,
sem leiðir fram langt leiddan
alkóhólista sem kona og dóttir
hafa flúið, og gerir tilraun til að
leiða okkur fyrir sjónir ástand
hans og kryfja samskipti hans
við eiginkonu og fleiri. Það eru
ýmis tilhtaup að sæmilegu
vcrki i þessum texta, mörg
samtöl nokkuð lipurlega skrifuð
og verkið i heild rennur nokkuð
liflega áfram. Það sem hins
vegar skortir á er að hinu yfir-
lýsta efni þess, drykkjusýkinni
og orsökum hennar og afleið-
ingum, séu gerð nokkur viðun-
andi skil. Höfundur fer I kring-
um efnið án þess að komast
nokkurs staðar aö kjarna máls-
ins. Auk þess eru persónur hans
mjög óljóst dregnar, könnunin á
sálarlifi þeirra grunnfærin og
engin tilraun gerð til þess að
setja þær I félagslegt samhengi.
Verkið er þvi einkennilega
loftkennt, þrátt fyrir lipra
spretti og sýnilega einlægni höf-
undarins. Liflegast er það i
þeim atriðum þar sem vinir og
kunningjar hjónanna koma til
sögunnar og eru þau atriði yfir-
leitt mjög liðlega skrifuð, þótt
sums staðar sé erfitt að sjá
tengsl þeirra við verkiö i heild,
en þar er bara enn eitt dæmið
um almennt stefnuleysi verks-
ins. Annar galli sem sums
staðar stingur upp kolli er til-
finningasemi, sem keyrir á
nokkrum stöðum um þverbak.
Þar og viðar dettur höfundurinn
einnig I þá gryfju að leggja
persónum sinum i munn orðfæri
sem einungis á heima á prenti.
Þetta á einkum viðum orðræður
eiginkonunnar, sem viða eru
skáldlegar i þess háttar óhófi að
engum eiginmanni væri láandi
þótt hann drykki sig fullan ef
Mæður og synir aftur á svið
Einþáttungur og Synge á Litla sviðinu
1 kvöld hefjast aö nýju sýningar
á einþáttungunum Þeir riðu til
sjávar eftir J.M. Synge og Vopn
frú Carrar eftir Bertolt Brecht á
I.itla sviði Þjóðleikhússins. Þætt-
ir þessir voru frumsýndir I vor og
voru þá 11 sýningar fyrir fullu
húsi við afbragðs undirtektir.
Leikstjóri þáttanna er Baldvin
Ilaildórsson, en leikmynd eftir
Gunnar Bjarnason.
Fyrrieinþáttungurinn Þeir riðu
til sjávarsegir frá ekkju sem séð
hefur á eftir sonum sinum i hafið,
hverjum á fætur öörum og biður
nú fregna af þeim eina, sem eftir
er. Það er Guðrún Þ. Stephenscn
sem leikur ekkjuna, son hennar
leikur Hákon Waage, en dætur
hennar leika Sunna Borgog Þór-
unn Magnúsdóttir.
Siðari þátturinn Vopn frú Carr-
ar eftir Bertolt Brecht. Hug-
myndina aö verkinu tekur Brecht
einmitt úr þætti Synge en um-
hverfi og útfærsla með öðrum
hætti. Leikritið gerist i borgar-
astyrjöldinni á Spáni, hér er það
fiskimannsekkjan Teresa Carrar,
sem hefur misst mann sinn I bar-
dögum gegn Franco og mönnum
hans og reynir i lengstu lög aö
forða þvi að synir hennar taki
þátt i striðinu. Brlet Héðinsdóttir
leikur frú Carrar, bróður hennar
leikur Bjarni Steingrimsson, við
hlutverki sonarins Jose, hefur nú
tekið Randvcr Þorláksson, sem
kominn er aftur til starfa við leik-
húsiö eftir framhaldsnám erlend-
is. 1 öðrum hlutverkum eru
Guðrún Glsladóttir, Ævar R.
Kvaran, Anna Guðmundsdóttir
og fleiri.
Sýningin á fimmtudagskvöldið
hefst kl. 20 : 30, næsta sýningverð-
ur svo á sunnudagskvöld.
(Jr Vopnum frú Carrar: Bríet
Héðinsdóttir og Guðrún Glsla-
dóttir