Þjóðviljinn - 21.09.1978, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 21.09.1978, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 21. september 1978 [■ ÞJÓÐVÍLJINN — StÐA 13 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. 7.10 Létt lög og morgunrabb. (7.20 Morgunleikfimi). 7.55 Morgunbæn 8.00 Fréttir 8.10 Dagskrá. 8.15 Veöurfr. Forustgr. dag- bl. (útdr.) 8.30 Af ýmsu tagi: Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Jón frá Pálmholti les sögu sína „Feröina til Sædýra- safnsins” (12). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. 10.25 Viösjá: Friörik Páll Jónsson fréttamaöur stjórnar þættinum. 10.45 Reiknisstofnun bank- anna. Ólafur Geirsson tekur saman þáttinn. 11.00 Morguntónleikar: Enska kam mersveitin leikur Serenööu nr. 7 i D-dúr „ Haffner-serenööuna ’ ’ (K250) eftir Wolfgang Ama- deus Mozart. Einleikari á fiölu og stjórnandi er Pinchas Zukerman. 12.00 Dagskrá. Tóhleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. A frfvaktinni: Sigrún Siguröardóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.00 Miðdegissagan: „Fööur- ást” eftir Selmu Lagerlöf. Hulda Runólfsdóttir les (2). 15.30 M iödegistónleikar: Sinfóniuhljómsveit Lundúna leikur forleik aö óperunni „Hans og Grétu” eftir Engelbert Humper- dinck; André Previn stj. Jasha Silberstein og Suisse Romandehljómsveitin leika Sellókonsert i e-moll op. 24 eftir David Popper; Richard Bonynge stj. 16.00 Fréttir. Tilky nningar. (16.15 Veöurfregnir) 16.20 Tónleikar. 17.10 Lagið mitt: Helga b. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.50 Viðsjá: Endurtekinn þáttur frá • morgni sama dags. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Paglegt mál Gisli Jóns- son flytur þáttinn. 19.40 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 20.10 Leikrit: „Kertalog” eftir Jökul Jakobsson. Leik- stjóri: Stefán Baldursson. Persónur og leikendur: Lára... Anna Kristin Arn- grimsdóttir, Kalli ... Arni Blandon. Móðirin ... Soffia Jakobsdóttir. Maöurinn ... Karl Guömundsson. Konan ... Guðrún b. Stephensen. Læknirinn ... borsteinn Gunnarsson. Aörir leik- endur: Steindór Hjör- leifsson, Guörún Asmunds- dóttir og Pétur Einarsson. 22.10 Sönglög og ballöður frá 19. öld. Robert Tear og Benjamin Luxon syngja. André Previn leikur á pianó. 22.30 Veðurfegnir. Fréttir. 22.45 Áfangar. Umsjónar- menn: Asmundur Jónsson og Guöni Rúnar Agnarsson. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. KÆRLEIKSHEIMILIÐ Mamma! ÍOg fékk danstima Iverðlaun'. bARF ég að taka viö þeim? Leikrit í útvarpi 1931-1976 Fyrsta íslenska útvarpsleikritið A fimmtudaginn var birtist hér fyrsti hluti yfirlitsgreinar um út- varpsleikrit 1931-1976, og verður nú fram haldiö þar sem frá var horfið. Einar H. Kv^iran var vinsæll höfundur þessi árin. 1935 flytur útvarpiö enn tvö leikrita hans. Annað þeirra var „Tröll”, sem sérstaklega var samiö fyrir út- varp að likindum fyrsta sinnar tegundar eftir islenskan höfund. betta ár kynnast hlustendur höf- undum eins og Tjekov, Oscar Wilde og Eugene O’Neil og hinn sigildi leikur Hostrups, „Ævintýri á gönguför”, er fluttur i fyrsta en ekki siðasta sinn i útvarpinu. bá þegar er tekið aö vanda til jóla- leikrita og fluttir þættir úr „Pétri Gaut”. A fundi útvarpsráös i desember 1935 er Vilhjálmi b. Gislasyni fal- iö að athuga möguleika á þvi að koma upp sérstökum leikflokki fyrir útvarpiö. Af islenskum leikritum, sem flutt voru á árinu 1936, mætti nefna „Kristrúnu i Hamravik” eftir Guömund G. Hagalin og þætti úr „Skugga-Sveini” Matthiasar Jochumssonar, sem Leikfélag Reykjavikur flutti. Er- lendir höfundar, sem þá heyrast i fyrsta sinn, eru m.a. John M. Synge, Runar Schildt, Hans Fall- ada og Bernard Shaw. Arið 1937 er tekin upp sú ný- breytni aö flytja leikrit á sunnu dagskvöldum yfir sumar- og haustmánuðina. Margt af þvi voru léttir gamanþættir, bæöi innlendir og erlendir. t mai þetta ár er flutt fyrsta islenska barna- leikritið, en það er „Gilitrutt”, byggt á þjóðsögunni alkunnu. Ekki er höfundar getiö i dag- skrá, en hann mun hafa veriö Drifa Viöar, þvi aö fjórum árum siöar er flutt eftir hana leikrit meö sama nafni i barnatima. bá var flutt leikritið „Lærisveinn og meistari” eftir séra Pétur Magn- usson frá Vallanesi, og var hann sjálfur leikstjóri. Ýmsir islenskir prestar á þessari öld hafa fengist við aö semja leikrit, og má þar t.d. nefna Jakob Jónsson og Gunnar Árnason. Pálj J. Ardal er vel kynntur i útvarpinu árið 1938, en þá eru flutt tvö leikrita hans, „Táriö” og „Happið”. Annars eru fá islensk verk á dagskrá. Af merkum er- lendum leikritum má nefna „Fröken Júliu” eftir Strindberg, „Orðið” eftir Kaj Munk, „Fyrir- vinnuna” eftir Sommerset Maug- ham og fyrsta færeyska leikritiö, sem heyrðist i islenska útvarpinu. „Ranafell” eftir William Heine- sen. bá voru einnig fluttir kaflar úr verkum Shakespeares. Sumar- og haustmanuöina 1939 eru fluttir ýmsir 'gamanþættir á sunnudagskvöldum, svipað og tveimur árum áður. Nú heyrast leikrit eftir höfunda, sem aö jafn- aði hafa ekki verið orðaöir við leikbókmenntir, svo sem Vestur- Islendinginn Guttorm J. Gutt- ormsson, Axel Thorsteinsson og Kristmann Guömundsson. Af út- lendum verkum má nefna „A út- leiö” eftir Sutton Vane, „Egmont” eftir Goethe viö tónlist Beethovens og „Ofurefli” eftir Björnson. Meginuppistaöa islensku leik- ritanna áriö 1940 eru gamanþætt- ir eftir Loft Guðmundsson o.fl. Af stórverkum erlendum mætti nefna „Ræningjana” eftir Schill- er, „15. mars” eftir Schluter og „Gisla Súrsson” eftir Beatrice Helen Barnby, sem raunar fjall- ar um islenskt efni, eins og nafniö bendir til. Nokkuö hefur verið fjölyrt um leikritaflutning útvarpsins fyrsta áratuginn.Til þess liggja einkum þrjár ástæður. 1 fyrsta lagi eru þessi ár nú óöum aö fjarlægjast inn i blámóöu timans, a.m.k. þeim kynslóöum, sem nú eru á miðjum aldri eöa yngri. 1 annan staö var leikritum i þá daga út- varpað „beint” sem kallaö er, þ.e. leikendur komu saman i út- varpssal og fluttu leikritin jafnóö- um og þau heyröust i útvarpinu. bau eru okkur þvi með öllu glöt- uö. Raunar hélst þetta fyrir- komulag allmiklu lengur aö meira eða minna leyti, eða allt þar til fariö var að taka leikritin upp á segulbönd til varðveislu. 1 þriðja lagi þótti rétt að vekja at- hygli á, aö jafnvel á timum kreppu og fjárhagsörðugleika fyrir siðari heimsstyrjöld var ráðist i að flytja stór og veiga- mikil verk, sem mundu sóma sér vel i útvarpinu enn i dag. (Úr ársskýrstu Rikisútvarpsins) enda og umhverfisins láta ekki aö sér hæöa og hamingjan er brot- hætt. bessi útvarpsupptaka leikrits- ins fór fram á liðnu vori meö flestum sömu leikurum, sem léku i sýningu Leikfélags Reykjavik- ur. bau Arni Blandon og A'nna Kristin Arngrimsdóttir leika Kalla og Láru. Steindór Hjörleifs- son og Soffia Jakobsdóttir leika foreldra Kalla. Guörún b. Steph- ensen, Karl Guömundsson og Pétur Einarsson leika þrjá sjúkl- inga á sjúkrahúsinu. borsteinn Gunnarsson leikur lækni og Guö- rún Ásmundsdóttir leikur frænku Láru. Leikstjóri er Stefán Baldursson, en tónlistina við verkið, sem flutt veröur að hluta, samdi Sigurður Rúnar Jónsson. „Kertalog” er á dagskrá kl. 20.10 i kvöld og er leikritiö tæpar tvær klukkustundir aö lengd.-eös Haraldur Björnsson f „Skugga- Sveini” eftir Matthias Jochums- son, 1935-36. Kertalog eftir Jökul Jakobsson flutt í kvöld útvarp í kvöld verður flutt i útvarpi leikrit Jökuls Jakobssonar, „Kertalog”. Leikritiö hlaut fyrstu verölaun i leikritasamkeppni, sem fór fram hjá Leikfélagi Reykjavikur áriö 1971, en þaö var frumsýnt i Iönó áriö 1974. Kerta- log var sýnt alls 40 sinnum hjá L.R. á sinum tfma og hlaut mjög lofsamlega dóma og góöar viö- tökur. Leikurinn fjallar um pilt og stúlku, Kalla og Láru. bau kynn- ast á sjúkrahúsi, þar sem Lára hefur dvalist um hriö vegna geö- ræns sjúkdóms, en Kalli þarf að leita þangaö um stundarsakir af svipuöum orsökum. bau losna bæöi af sjúkrahúsinu og flytja i herbergi Kalla úti i bæ. En for- dómar og skilningsleysi aðstand- PETUR OG VÉLMENNIÐ — II. HLUTI EFTIR KJARTAN ARNORSSON yftLvT ^ÉYFW VKKoR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.