Þjóðviljinn - 21.09.1978, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 21.09.1978, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Fimmtudagur 21. september 1978 Innritun í prófdeildir: fer fram i Miðbæjarskólanum, Frikirkjuvegi 1, sem hér segir: Hagnýt verslunar- og skrifstofustarfadeild: i dag, fimmtudag21. septemberkl. 20-21:30 Föstudag 22.september kl. 13-19 Skólagjald: okt. — des. 36.000.00 krónur. Forskóli sjúkraliða: - i dagTfimmtudag 21. september kl. 20-21:30 Föstudag 22. september kl. 13-19 Skólagjald: okt. — des. 30.000.00 krónur. Grunnskóladeildir: i dag,fimmtudag 21. september kl. 20-21:30 Föstudag 22. september kl. 13-19 Skólagjald: okt. — des. 42.000.00 krónur. Framhaldsskólastig í ár: i dag,fimmtudag 21. september kl. 20-21:30 Föstudag 22. september kl. 13-19 Skólagjald: okt. — des. 54.000.00 krónur. NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR í sláturtíðinni Húsmæður athugið! Við höfum til sölu vaxbornar umbúðir af ýmsum stærðum. Hentugar til geymslu hverskonar matvæla. Komið á afgreiðsl- una. Kassagerð Reykjavikur Kleppsveg 33 Verslunarstjóri Kaúpfélag Vopnfirðinga óskar að ráða verslunarstjóra i kjörbúð, sem fyrst. Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist Halldóri Halldórssyni, kaupfélagsstjóra,eða Bald- vini Einarssyni , starfsmannastjóra Sambandsins, sem gefa nánari upplýsingar, fyrir 30. þ. mánaðar. Kaupfélag Vopnfirðinga V erksmið juvinna Viljum ráða vanan lyftaramann nú þegar, góð vinnuskilyrði. Ennfremur vantar okkur nokkra menn til ýmissa verksmiðjustarfa. Mötuneyti á staðnum, ódýrt fæði. Hafið samband við Halldór. Kassagerð Reykjavikur, Kleppsveg 33, sími 38383 Rætt við Loga Kristjánsson bæjarstjóra um undirbúning að ráðstefnu Alþýðubandalagsins um sveitarstjórnarmál A landsfundi Alþýðubanda- lagsins siöast liðiö haust var hafinn undirbúningur að ráð- stefnuum sveitarstjórnarmál, en slik ráðstefna var siöast haldin 1973 og fjallaði um nýgerðar breytingar á verkaskiptingu rikis og sveitarfélaga. Sveitar- stjórnarmenn á landsfundinum völdu 5 manna undirbúnings- nefnd, sem einnig átti að fjalla um verkaskiptingu rikis og sveitarfélaga og vera til ráð- gjafar og veita upplýsingar cftir þvi sem til hennar yrði leitað. Við getum áreiðanlega mikið lært hver af öðrum og á slikum fundi hittast menn og kynnast og eiga þvi hægara að leita eftir upplýsingum og samvinnu en ella. baö er auðvitað mjög mis- munandi við hvað menn eru að fást hver i sinu by.ggðarlagi, en að minu mati er ekki siður nauðsyn- legt að móta flokkslega stefnu i sveitarstjórnarmálum heldur en i landsmálum, þvi reynslan sýnir að pólitisk afstaða fólks á hverjum stað tekur miö af stefn- unni i sveitarstjórnarmálum. Logi Kristjánsson: Fjarstýring rikisins á sveitarfélögunum er tviþætt, annarsvegar með þvi að skammta þeim þröngan fjár- hag og hinsvegar fjárveitingum til einstakra sameiginlegra verkefna. Sveitar- st j órnar- mál eru — Það má segja að viss ótti sé uppi meðal okkar flokksmanna vegna þessa. Þeir eru margir hverjir hræddir viö að fá ihalds- sama heimastjórn sem ekki myndi sinna félagslegum þáttum svo sem dagvistun, ef rikið hvetti ekki til þess með fjárframlögum. Ég tel þetta ástæðulausan ótta. Aðalmálið er að sá aðili, sem tekur þetta verkefni að sér, fái það fjármagn sem til þarf, þvi annað hvort beygist stefna sveitarstjórnarinnar aö þörfum fólksins eða þá að fólkið skiptir um stjórn. Það er ekki aðalatriðið hvaða verkefni hvor aöilinn fær, heldur einmitt aö dreifa valdinu sem mest. Þetta hlýtur alltaf að verða spurning um hvað er heppilegast i rekstrinum og hvernig við gerum ibúana virkari stórpólitísk Einn fimmmenninganna er Logi Kristjánsson, bæjarstjóri i Nes- kaupstað, en auk hans eru i nefndinni Sigurjón Pétursson, Keykjavik, Björn ólafsson, Kópavogi, Skúli Alexandersson, liellissandi og Geir Gunnarsson, llafnarfirði. Þjóðviljinn hitti Loga að máli skömmu eftir að landsþing Sambands isl. sveitarfélaga var haldið i Reykjavik, og spurði hann um undirbúning ráð- stefnunnar, og þá fyrst hvenær hún yrði haldin. Við höfum hist nokkrum sinnum á liðnum vetri, sagði Logi, og ákveðið var að halda ráðstefnuna nú i haust þannig að nýir menn i sveitarstjórnum hefðu tækifæri til að sækja hana. Endanlega hefur ráöstefnan ekki verið timasett, en þaö veröur gert á næstunni. Móta þarf flokkslega stefnu — Hvert er gildi slikrar ráðstefnu? Þó ekki hafi veriö mótuð flokks- leg afstaða i sveitarstjórnar- málum almennt, þá held ég aö við Alþýðubandalagsmenn séum yfirleitt mjög sammála um flesta þætti þeirra. Sérstaða Alþýðu- bandalagsins i þessum málum er i vitund fólks aðallega tengd félagsmálum, dagvistarmálum, menntamálum og menningar- málum, en segja má að Alþýðu- bandalagsmenn hafi viðast verið i fararbroddi hvað framsýni og skilning á félagslegum þörfum fólks varðar. Það eru mjög margir þættir, sem við þurfum að ræða i okkar hóp og athuga á hvern hátt við störfum sameigin- lega að uppbyggingu okkar byggðarlaga. Tvíþætt fjarstýring Þörfin fyrir flokkslega stefnu i sveitarstjórnarmálum eykst verulega við að aukin verkefni færast yfir til sveitarfélaganna. Sveitarfélögin hafa i rauninni veriö fjarstýrð af rikisvaldinu, bæði með þvi að fjárhag þeirra hefur verið sniöinn þröngur stakkur og með fjárveitingum til einstakra sameiginlegra verk- efna. Þannig er fjarstýringin i rauninni tviþætt fyrst fjár- skorturinn, sem takmarkar umsvif og raunverulegt valdsvið s v e i t a r s t j ó r n a n n a , og mismunandi áherslur rikisins og sveitarfélaganna á sameiginleg verkefni. Þess eru dæmi, að verk- efni, sem sveitarstjórn setti númer 6 á e.k. lista um röðun framkvæmda,varð forgangsverk- efni, þar sem rikið veitti fé til þeirrar framkvæmdar en ekki Jieirra, sem sveitarstjórnin taldi brýnni þörf á! Þegar fleiri og stærri verkefni verða flutt til sveitarstjórnanna er mikilvægt að viö mótum stefnuna og verðum sammála á hvern hátt við tökum á málum. Auk verkaskiptingarinnar sjálfrar þurfum við einnig að ræða ýmis önnur mál, svo sem staðgreiðslukerfi skatta, uppbyggingu þjónustumiöstööva, stækkun sveitarfélaganna, og t.d.- hvort ekki á að knýja á um að rikið dreifi frekar þjónustu sinni um landið en gert hefur veriö. Valddreifing nauðsyn — Nú kom fram i viðtölum við ýmsa flokksmenn sem sátu landsþing sveitarstjórnarmanna að mismunandi afstaða cr uppi hvað varðar t.d. að sveitarstjórn- irnar taki alfarið við uppbyggingu dagvistarheimila. þátttakendur i uppbyggingu og stjórnun sinna heimabyggða. Stigs-,en ekki eðlismunur — Nú er oft rætt um að afstaða manna i sveitarstjórnarmálum mótist ekki af flokkspólitik? — Já, það stafar m.a. af þvi að það er of mikil stýring að ofan. Sveitarstjórnirnar hafa ekki það vald að geta boðið upp á mis- munandi valkosti svo nokkru nemi, og þvi myndast ekki skoðanir á hlutunum. Auk þess hefur okkur sósial- istum tekist aö lappa það mikið upp á þetta þjóðfélag að ihalds- samari hluti þjóðarinnar hefur orðiö að standa að félagslegum umbótum vegna þrýstings minni- hlutahópa og vegna áfangasigra verkalýösfélaga og stjórnmála- hreyfingar þeirra. Ég er sann- færður um að einnig vegna þessa myndast ekki jafn skörp skil milli fiokka i sveitarstjórnarmálum og ella myndi vera. Ég tel aðeins stigsmun en ekki eölis á sveitar- stjórnarmálum og landsmálum. I báðum tilfellum er um þaö að ræða að búa mönnum sem best lif eins og sagt er, og það er aðeins spurning um hvor aðilinn á að fara með hvern þátt, þ.e. hver verkaskiptingin á að vera. Ég visa þvi á bug að það sé ekki pólitik hvernig við búum að okkur heima i héraði, það er stórpóli- tiskt mál, sem flokkur eins og Alþýðubandalagið verður að láta til sin taka. Ég vænti þvi góðrar þátttöku sveitarstjórnarmanna á ráðstefnunni, og vil einnig hvetja þá flokksmenn sem sitja i sveitarstjórnum um allt land að sækja fundi og ráðstefnur á vegum Sambands isl. sveitarfé- laga og leggja sig fram um að kynna sér málin sem best. —AI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.