Þjóðviljinn - 21.09.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 21.09.1978, Blaðsíða 16
I JQÐVIUINN Fimmtudagur 21. september 1978 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaðamenn og aöra starfsmenn blaðs- ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Skipholti 19, R. 1 BUOIIM simi 29800, (5 Unurl^w / Verslið í sérvershin með litasjónvörp og hljómtœki Hjáimar Bárðarson: Kin- róma endurkjörinn formað- ur IMCO-nefndarinnar um öryggi fiskiskipa. Alþjódanefndin um öryggi fiskiskipa Hjálmar Bárdar- son end- urkjörinn Þessa viku er i aðalstöðv- um Alþjóðasiglingamála- stofnunarinnar (IMCO) i London haldinn 21. fundur i nefnd IMCO um öryggi fiski- skipa. 1 upphafi fundarins var Hjálmar Bárðarson, sigl- ingamálastjóri, einróma endurkjörinn formaöur nefndarinnar til eins árs. I frétt frá utanrikisráðuneyt- inu segir aö meginverkefni þessa fundar sé að fjalla um ýmis atriði er varða fram- kvæmd alþjóðasamþykktar- innar um öryggi fiskiskipa, sem gerö var á alþjóðaráð- stefnu á Spáni vorið 1977, og semja alþjóðleg ákvæði um öryggi fiskiskipa minni en 24 metra að lengd eða um það bil 100 brúttó rúmlesta, en til þeirra nær alþjóðasam- þykktin frá 1977 ekki. J ár nidnadar menn: FAGNA AFNAMI KAUPRÁN SL AG A Járniðnaðarmenn í Reykjavik gerðu nýlega samhljóða samþykkt á félagsfundi um að fagna aðgerðum rikisstjórnar- innar i kjaramálum. Ef rikisstjórninni tekst að halda markaðri stefnu telja járniðnaðarmenn að unnt verði að tryggja frið á vinnumarkaði og fulla atvinnu Samþykkt járniðnaðarmanna hljóðar svo: „Félagsfundur i Félagi járn- iðnaöarmanna haldinn 18. sept. 1978 fagnar afnámi laga nr. 3, 17. feb. 1978 og nr. 63. 24. mai 1978 um skeröingu verðlagsbóta á laun. Með afnámi laga þessara hefur verkafólk i Alþýðusambandi Is- lands unniö mikilsveröan sigur i kjaradeilu og fengið staðfest að hægt er aö nota kjörseðilinn sem vopn i kjarabaráttu. Jafnframt fagnar félagsfund- urinn ráöstöfunum stjórnvalda sem auka kaupmátt vinnulauna almennra launþega, svo sem niðurfærslu verölags og afnámi söluskatts af matvörum. Félagsfundur Félags járniðn- aðarmanna væntir þess að ný rikisstjórn viðhaldi kaupmætti al- mennra vinnuiauna og stefni að auknum kaupmætti vinnulauna m.a. með áframhaldandi niður- færslu verðlags á nauðsynjavör- um. Félagsfundur Félags járniðn- aðarmanna telur að með sllkri stefnu verði tryggður friður á vinnumarkaði og full atvinna”. Rækjuveiðar hefjast í október: í fyrsta sinn hæni kvóti á Húnaflóa en í Djúpi Geysilegt seiðamagn í Djúpi og Arnarfírði en rækju- stofninn í góðu ásigkomulagi Kækjustofninn hefur nú i nokkur ár verið í sama horfi og veröur leyft að veiða svipað magn og áður. Hins vegar hefur geysilegt seiðamagn fundist i tsafjarðar- djúpi, allt að 30 þúsund seiöi á togtima, og einnig i Arnarfirði og verður beðið með ákvörðun um hvenær veiöar geti hafist á þessum stöðum þar til Dröfnin hefur kannað þau nánar. t Húna- flóa hefjast veiðar 1. október og er nú i fyrsta sinn leyfður hærri kvóti þar heldur en I tsafjarðar- djúpi eða 2500 lestir á móti 2400 lestum i Djúpi. Þessar upplýs- ingar gaf Jón B. Jónasson I sjávar útvegsráðuneytinu en þvlbárust i gær tillögur Hafrannsókna- stofnunarinnar hvernig rækju- veiðum skuli háttað I ár. Það er algild regla að fara i einu og.öllu eftir þeim tillögum. 1 Patreksfirði og Tálknafirði hefur fundist sáralitil rækja og er lagt til að þeir verði lokaðir i ár. I hitteðfyrra veiddust þar 100 lestir en veiðin brást í fyrra. 1 Arnarfirði er lagt til að kvót- inn verði 570lestirenhann var 600 lestir i fyrra. Þá veiddust þar 520 lestir. I Isafjarðardjúpi er lagt til að kvótinn verði 2400 lestir en hann var 2500 lestir i fyrra en þá var farið fram yfir og veiddar 2680 lestir. 1 Húnaflóa eru gerðar tillögur um 2500 lesta kvóta en hann var 2000 lestir i fyrra. Þá veiddust 2070-2080 lestir. A öxarfiðri er lagt til að kvót- inn verði 900 lestir á móti 850 lestum i fyrra og geta veiðar hafist þar 1. október. Á Berufiröi eru gerðar tillögur um 85 lesta kvóta og er það meira en verið hefur áður og á Reyðar- firði er nú i fyrsta sinn settur kvóti og verður hann 75 lestir. Um 95 bátar munu stunda rækjuveiðar að þessu sinni þar af um 40 i Djúpi og 25-30 á Húnaflóa. Auk þess sem nú hefur verið taliö upp verða stundaðar veiðar á út- hafsrækju og eru llkur á að um 15 bátar verði á þeim veiðum fyrir norðan land og við Eldey. Jón sagði að ekki væru fyrirhugaðar neinar meiri háttar breytingar I sambandi við stjórnun veiðanna. —GFr Benedikt Gröndal: Flytur ræðu á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna á þriðju- daginn kemur. Utanríkisráöherra á þing Samein- uðu þjóðanna Flytur jómfrúr- ræðuna 26. þ.m. Benedikt Gröndal, utan- rikisráðherra, hélt vestur um haf slðdegis I gær til þess að sækja 33. alisherjarþing Sameinuöu þjóðanna, sem hófst nú i vikunni, og mun hann sitja þingið til 2. október nk. Ráðherra mun taka þátt i hinni almennu umræðu þingsins og er ráðgert að hann flytji ræðu sina nk. þriðjudag 26. þ.m. 1 för með ráðherranum er Hörður Helgason, skrifstofu- stjóri utanrikisráðuneytis- ins. Flugleiðir skapa nytt fordæmi: Segja upp starfsfólld 67 ára og eldra Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur hefur mótmælt Stjórn Flugleiða hefur nú skap- að nýtt fordæmi hérlendis og hef- ur ákveðið að segja upp starfs- fólki sinu sem náð liefur 67 ára aldri. Mikil óánægja er rikjandi meðal alls starfsfólks félagsins með þessa raðstöfun og stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavikur hefur þcgar sent Flugleiðum bréf með mótmælum. Um 20 starfsmenn Flugleiða eru nú á þessum aldri og hafa sumir hverjir þjónaö félaginu af trúmennsku i' áratugi. Þeim er nú launaö með þvi að vera kastað á kaldan klaka. Ellilifeyrir er nú 44.400 krónur en eftirlauna- greiðslur úr lifey rissjóðum verkalýðsfélaganna hefjast ekki fyrr en fólk nær sjötugsaldri. Karl Steinar Guðnason formað- ur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavikur sagði i samtali við Þjóðviljann i gær, að þetta mál yrði tekið föstum tökum þvi aö hér væri um algert grundvallar- atriði aö ræða. -GFr Antikmálið: Ákæra birt næstu daga „Antikmálið” svonefnda, sem Saksóknari rikisins visaði I vor tii Sakadóms, er nú á lokastigi þar. Að sögn Gunnlaugs Briem sakadómara verður málið þing- fest og ákæra birt i þvi mjög fljótlega, eða einhvern næstu daga. Málið snýst um meint misferli i sambandi við innflutning á ,,antik”-húsgögnum og var Björn Vilmundarson leystur frá störfum sem forstjóri Ferða- skrifstofu rikisins á sinum tima vegna þessa máls. Forstjóra- staðan var auglýst nýlega og var Kjartan Lárusson skipaður i hana, en hann hefur gegnt for- stjórastarfinu frá þvi að Birni var vikið úr starfi. Bannsvæðið sést á þessari mynd merkt tölustöfunum. Bann yid tog- veiðum í Djúpál Sjávarútvegsráðuneytið hefur i dag gefið út reglu- gerð um bann við togveið- um i Djúpál. Samkvæmt reglugerð þessari eru veiðar með botn- og flot- vörpu bannaðar á svæði sem markast af línum dregnum milli eftir- greindra punkta: f. 66 gr. 42,5 N 24 gr. 23 V 2. 66 gr. 43,5 N 24 gr. 10 V 3. 66 gr. 39,5 N 24 gr. 03 V 4. 66 gr. 38,0 N 24 gr. 15 V Svæði þetta er hið sama og Haf- rannsóknastofnunin lokaði hinn 14. september s.l. i vikutima vegna þess að vart hafði orðið smáþorsks i afla skuttogara á þessu svæði. Athuganir sem hafa verið gerðar á svæðinu siðan leiddu i ljós, að hlutfall smá- þorsks á svæðinu er enn mjög hátt og er þvi gripið til þessa ráðs að loka svæðinu fyrir togveiðumum óákveðinn tima.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.