Þjóðviljinn - 05.11.1978, Síða 10

Þjóðviljinn - 05.11.1978, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 5. nóvember 1978 helgarviðtalið Hljóöriti Hafnarfirði aö kvöldlagi. I einu horn- herbergjanna/ reykmettuöu og loftlausu, sitja nokkrir ungir hljóðfæraleikarar innan um magnara, míkró- fóna/ hátalara og leiösluspaghettí og æfa af kappi. I miðjum hringnum skekur sig enfant terrible islenskrar söngmenntar og spýtir kveðskap sinum með flámæltri röddu inn í hljóðnemann með til- heyrandi líkamskippum og andlitsgeiflum. Þess á milli stjórnar hann drengjunum af djöfulmóð og dillar sér eins og Lúsífer i logum helvitis. Megas himself —á æfingu fyrir sunnudagskonsertinn og upptökuna á ,/Drög að sjálfsmorði". Teikning og texti: Ingólfur Margeirsson —Þaö liggur tiu ára gömul þróun at> baki þessarar plötu, segir hann, þegar við tyllum okkur niður I æfingarhléi. Aðallega eru þetta lög, sem ég samdi á árunum 1968-72, en einnig hefur annað bæst við stuttklipptur og gekk um i dökkum jakkafötum með bindi og vann i útibúi Landsbankans víð Laugaveg. —Þá var ég bankamaður, sem fjallaði um erlend bankabréf af mikilli lipurö og kunnáttu. Eg Trúbador miðalda og hallærisplans siöan. Þetta er eins konar forði, sem safnast hefur saman. Við vinnum þetta þannig, að ég gef tilfinningunna i laginu og svo finna strákarnir andann og við breytum þessu og plottum þangað til allir eru ánægðir. Annars er ekki hægt að segja að lögin i „Drög aö sjálfsmorði” séu tengd innbyröis. Þarna er tilfinningaleg atburöarrás á ferðinni. Ekkert gerist á yfir- borðinu. Versin eru óskyld en tengjast með viðlagi. Það má eiginlega tala um geðhrif. En lögin eru sem sagt allt frá ’68. „í skotgröfinni” var kannski fyrsta kveikjan. eftir skotgröfinni skýzt ég eins og krypplingur&skeyti hvergi um reyk blóð tár eða svita ég vaknaði kiukkan niu i niða- myrkri& lagði nötrandi af stað til að borga rafmagn og hita Megas er spurður, hvort skáldskapur hans hafi tekið einhverjum breytingum eða þróun á fyrrnefndu timabili. —Varla. Linan og andinn var þegar kominn 1968. Þá var ég byrjaður aö yrkja á þessu miðaldabókmáli og hallæris- plansislensku. Annars er ég déskoti skotinn i Hallgrimi Péturssyni. Hann orti á alveg yndislegri og dönskuskotinni islensku. Ég komst aö þessu I reynd, þegar ég söng slatta úr Passiusálmunum sunnudaginn fyrir Páskadag 1973, viö kántri— og rökklög. Ekkert athugavert við það. Uppruna- lega samdi Hallgrlmur sálmana við lög frá Þýskalandi og Danmörku. Þetta var þvi framiö I fullkominni hefð. Eg fila vel hvaö hann gerir—ég veit hins vegar ékki, hvort hann filar mig. En öll skáld hafa haft áhrif á mig. Vitanlega. En ég lit ekki á mig sem skáld, heldur söngva- smið. Margir af textum minum njóta sin herfilega á prenti. Þegar lag er komið við kvæðið, þjappast hins vegar þetta saman og fyllir hvort annað upp. Og yfirleitt vinn ég texta og lag saman, þetta er samfelld þróuri. Þó kemur fyrir að ég sem lag viö texta-en aldrei texta viö lag. Viö ræöum' um fyrstu árin eftir stúdentspróf, þegar Megas hét Magnús Þór Jónsson, var vann frá niu til fimm, fór svo heim og lagöi mig. Sfðan svaf ég til miðnættis eða svo, og byrjaði að skrifa, yrkja og semja lög klukkan þrjú á nóttunni til klukka niu um morguninn, en þá fór ég aftur I jakkafötin og fór i vinnuna. Eg var ekki sérlega langlifur sem bankamaöur. Nokkrir vinnufélgagar minir, sem höfðu horn i siðu mér af persónulegum ástæöum, sendu daglegar kvartanir til ráöningarstjórans og sögðu mig gera hverja vitleysuna á fætur annarri. Hins vegar var hvergi hægt að finna að vinnu minni. Þá fór að bera á orösveimi, sem komið var af stað: „Hann er örugglega I einhverju, þessi.” Ráðningar- stjórinn sagði við þessa félaga mina, að hann nennti ekki að hlusta á 70 til 80 smádellur, og vildi fá eina pottþétta ástæbu fyrir þvi, að ég væri ekki starfi minu vaxinn. Þaö reyndist ómögulegt. En hann þóttist fila það, að ég væri i vondri aöstöðu, og ætti undir högg að sækja hjá vinnufélögum minum, svo að það varö úr, aö hann borgaði mér háa fyrirframgreiöslu og ég hætti. Ett kvöldiö fór ég þvi úr vinnunni semoftar.lét á engu bera og kom aldrei aftur. En mér var oft hugsað hlýlega til starfsbræðra minna. • - >- ‘'Wf ' . . -I f Megas leysir frá skjóð- unni En hvenær byrjaöi Megas eiginlega að semja lög viö kvæöi sin? Hvenær fæddist söngva- smiðurinn? —Sumariö 1967 var ég i vinnu austur i Hreppum. Þar varö mér fljótt i nöp viö móralinn i sveitinni og byrjaði að semja kviðlinga- svona eins konar nið- visur um bændur og búalið Hreppanna. Eftir sumarið fór ég svo að rifja það upp, að ég hafði verið merkt tónskáld I æsku. Eg hafði ofsinnis samiö pianólinur fyrir litlar symfóniu- hljómsveitir. Þetta var ákveðið kerfi, sem byggðist á mishljómum—þar sem allir kontrapunktarnir komu fyrir. Eiginlega samdi ég þetta sem kennslubók. Eg kallaði hana: Mishljómasamstæöur. Gradus ad Parnassum Ég fór nú að rifja upp þessa fornu þekkingu mina og datt i hug að nota mætti gitar i stað pianós. Svo fór ég aö slá á gitar og semja lög við kviölinga mina og kvæði. I byrjun voru þetta mest foxi taktar: 12 áttundu og 6 áttundu, svona týpiskt fyrir lög,semfjallaumheimspekilegar vangaveltur. Svo fór ég að pæla i rokki og Dylan i rafmagni. Þá hreifst ég meira af streit f jóruni i takti. Svo er ég menntaður I músik. Ég var eitt ár hjá Jóni Þórarins- syni I tónfræði. Þá var ég 16-17 ára. Hann var góður kennari, skepnan á honum. Og honum tókst aldrei að hrekja mig burt með niði og kaldhæðni eins og marga aðra nemendur sina. Ég held að honum hafi tekist aö framkvæma þaö sama og brjálaöa prófessornum I sög- unni um Frankenstein: Honum tókst að búa til monster. En eitthvað hlýt ég að hafa lært hjá honum, þvi: Hann hræðist það mikiö lærdóm minn að hann hleypir mér ekki i sjón- varpið inn. Spjalliö berst nú að tónlistar- smekk Megasar. —Ég hlusta á alls konar músik. Ég hef gaman af ákveönum klassikerum. Eins og t.d. Strauss, Prokoief, Stravinsky og Bela Bartok. Ég fer uppi Alban Berg og Anton von Weber og þessa 12 tóna- kerfiskalla. En þar spring ég. Annars hefur nýjari klassisk eins og elektrónikin haft mikil áhrif á poppið. Við snúum okkur að skáld- skapnum aftur. Annars er ég alveg hættur að skrifa smásögur. Siöasta smásagan sem ég skrifaði var reyndar sagnabálkur, sem hét Plaisir d’Amour og var I 20 þáttum. Þetta var skúffuskáld- skapur, en einn kaflinn hefur þó birst I Gamla Nóa, enda klámsaga. Megas fékkst mikið við teikn- ingu og myndlist áður fyrr, og var rómaður skreytilistamaður I Menntaskóla. —Já, já. Ég var I Myndlista- skólanum frá ellefu ára aldri til 17 ára aldurs. Ég myndskreytti þessar bækur minar, en fæst ekkert núorðiö við myndlist— það kemur fyrir aö ég geri mynd og mynd fyrir kunningj- ana. En ef þú hugsar þér þessa þrieind—texti, söngur og sviðs- framkoma, þá vegur það þungt á metunum. Borið saman viö það aö fást við myndlist og skrifa smásögu — meina ég. Ég fæ mikiö kikk út úr þessari þrieind. Og ef þú litur á texta mina, þá er þráðurinn þannig, aö það væri engum fært að gera úr honum smásögu —nema kannski Samuel Beckett. Þaö er náttúrulega alltaf möguleiki að tengja saman vers með viðlagi. Þannig er hægt að tengja saman sjö, átta anekdótur, þvi yfirleitt er textinn anekdóta. Einu sinni beiö ég eftir Hafnarfjaröar- strætó, I kulda og strekkingi. Þegar vagninn kom loksins, hugöist ég stökkva upp I hann, en tók þá eftir þvi aö skórnir voru óreimaöir og ég flæktist i reimunum. Þetta er anekdóta- skrýtla. Þannig var „Ekkert er útilokaö Allt” til. náði i strætó á stigvélinu óreimuðu stundarfjórðung vel það áður en iagði’ann af stað ég bað hann skipta bláum þareð ég átti einn bláan—ekkert smærra’ann sættist ekki á það kór: en gáðu undir mottuna maður&dregilinn &máske er einhver faiinn á bakvið spegilinn ekkert er útilokað—allt getur mögulega skeð fyrir lifi má setja lif sem veð fyrir geði geð Þegar ég kem fram á sviði, nota ég alltaf blöð. Ég kann náttúrulega textana, en hef blöðin til öryggis. Þaö er enginn minus að notast við blöð. Allir klassiskir tónlistamenn notast við blöð. Aheyrendur geta verið mismunandi og misskilja oft. Eins og t.d. i Paris. Ég kom þangað einungis tilaöskemmta mér og drekka brennivin i friöi. En heldurð’ekki að það sé búið að tilkynna það i islensku blöð- unum að ég ætli að halda þar tónleika. Svo linnti ekki lát- unum I Islendingunum i Paris, og að lokum þurfti ég aö halda tónleikana og var þrautfúll. Hreinlega hvæsti textana framan i söfnuðinn. Ég fékk mikið kikk út úr þvi. En fólkiö varö eldhresst meö flutninginn. Annars endaöi kvöldið með voöalegum misþyrmingum. Ég varreyndarfarinn þá. Þetta var á Bistro, og Arabinn, sem átti búlluna, hafði fengið þá flugu i hausinn, aö landarnir hefðu drukkiö meiri bjór en greitt var fyrir. Hann læsti þvi öllum dyrum, en stúlku einni rétt tókst aö hringja A Iögregluna. Þá gerðist Arabinn alveg óöur og kastaöi tveimur fullum flöskum af rauövlni inn i hópinn. Einn rotaöist og annar kjálkabrotn- aði. Lögreglan skarst svo I leikinn. Þetta er ekki I fyrsta skipti sem ég skil allt I rúst eftir mig. Þaö urðu lika general- slagsmál i Kaupmannahöfn einu sinni. En það er önnur saga. En sama kvöld og ég kom út af Bistro, sá ég að það sló rauðum bjarma yfir Parisar- borg. Þá hélt ég aö ég heföi spilað á gitar meöan Paris brann. Seinna fréttiég að einhverjir hryðjuverkamenn hefðu sprengt gasstöð i nágrenni Parisar. Þá sá ég eftir þvi að hafa ekki sungiö lagið um gömlu gasstöðina: við hlemmtorg ris gasstöðin gamla eins og forðum &ég get ekki tjáð það né túlkaö með orðum hve allt þetta gaman er grátt &hve það grátlega’allt marklaust?smátt en við hlemintorgið gnæfir gasstöðin okkar svo hátt. —im.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.