Þjóðviljinn - 05.11.1978, Side 12
Sunnudagur 5. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Börn að leik I litlu þorpi. A myndinni má sjá bananatré og sykurreyrspiöntur.
Biðstofan við kommúnuspitalann i Kanton er úti undir beru lofti.
komum á spitalann og hann lá
þarna með höndina i umbúðum.
Maöurinn var ekkert farinn að
hreyfa höndina, en liturinn á
fingrunum var alveg eölilegur og
sama er að segja um húöhitann.
Svo hittum við fólk, sem hafði
undirgengist limágræðslur fyrir
5—8 árum. Einn haföi misst hönd-
ina i stórum bréfahnif og hún
hafði klippst af rétt ofan viö liöa-
mótin milli þverhandarbeina og
kjúka. Núna er hann kominn til
vinnu á sama staö, hann hefur
fullan kraft i höndinni og það eina
sem hann kvartar undan er
örlitill doði i fingrunum ef honum
veröur kalt.
Annað dæmi sem var sláandi,
var stúlka sem hafði fengiö
illkynja mein 1 upphandlegg. Það
hafði reynst nauösynlegt aö taka
upphandlegginn af, en I stað þess
að taka allan handlegginn, var
framhandleggurinn færður upp á
öxlina, þannig að stúlkunni nýtist
höndin alveg. Þetta fannst mér
gifurlega áhrifamikið aö sjá.
Geysileg
vandvirkni
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. nóvcmber 1978
,,C:g átti ekki von á að langþráður
draumur minn um að fara til Kina
mvndi rætast.” Eyjólfur Haraldsson
læknir. — Ljósm. AI.
Islenskir
lœknar
í Kína
Okkur
var
sagt
að
Eyjólfur við Kfnamúrinn.
áburð
Guðmundur B.
kfnverskri konu.
Guðmundsson og Páll Asgeirsson i heimsókn hjá gamalli
Slikar aðgeröir krefjast geysi-
legrar vandvirkni. Það þarf aö
sauma fjöldann allan af æðum og
taugum svo vel fari. og þeir
sauma æðar, sem eru allt niður i
hálfan annan millimetra i
þvermál. Þetta er saumað i hönd-
um með aðstoö smásjár, auk þess
sem bein og vöövasinar eru
tengdar. Þeir treysta sér til aö
framkvæma svona aögeröir þó
liðið hafi allt uppi 36 klukkustund-
ir frá þvi limurinn fellur af þar til
aðgerð hefst, en þá eru auðvitaö
notaðar sérstakar geymsluaö-
ferðir, sem leiöbeint er um.
Þeim gekk heldur illa að
komast i gang með að græöa fing-
ur á, út af blóðrásarvandamál-
um, en 1966 höfðu þeir leyst þaö
vandamál og siðan þá hafa
verið framkvæmdar meira en
400 fingurágræöslur á þessum
spitala sem viö heimsóttum i
Shanghai. Nú hafa þeir miðlað af
reynslu sinni og tækni, þannig að
hægt er aö framkvæma slikar aö-
geröir mjög viða um landið og
einnig hafa verið send læknalið til
útianda tii að framkvæma lima-
ágræðslur.”
Að nýta þekk-
ingarforðann
— Hvað af þvl sem þiö kynnt-
ust þarna helduröu að gæti komiö
islensku heilbrigðiskerfi helst aö
gagni?
,,Við getum margt lært af
Kinverjum, og þeir kannski
eitthvaö af okkur. Ég tel aö
áherslan sem lögö er á fyrir-
byggjandi aðgeröir i heilbrigöis-
málum sé mjög til fyrirmyndar
og einnig þessi gagnkvæma þekk-
ingarmiölun, — að allir taki þátt i
aö mennta hvern annan.
Það finnst mér mjög athyglis-
vert og æskilegt fyrirkomulag
sem miðar að þvi að þekkingar-
forðinn nýtist sem best alls staö-
ar, og kemur i veg fyrir að menn
einangrist einhvers staðar bak
við veggi meö þekkingu, sem eng-
inn veit um nema maöurinn sjálf-
ur og einn eöa tveir aðrir.”
— Heldurðu að viö ættum aö
fara að grafa upp islenskar
grasalækningar, og rannsaka þær
i þvi skyni að beita þeim inni i
sjúkrahúsunum?
„Þetta er ekki sambærilegt.
Kinverskar grasalækningar
standa á mjög gömlum merg.
Þær hafa veörast i gegnum ald-
irnar og ég tel aö við eigum ekk-
ert sambærilegt viö þeirra „kerl-
ingarbækur”. Reynslan hefur
kennt mönnum a$ nota þessar að-
ferðir en þaö er ekki fyrr en núna
að farið er að rannsaka þær á
vlsindalegan hátt. Niöurstöður
þeirra rannsókna eiga eftir að
koma i ljós.” ■
— Viltu segja eitthvað aö lok-
um? x
„Ég vil gjarnan nota þetta
tækifæri til aö þakka kinverska
sendiráðinu i Reykjavik og
kinversku heilbrigðisstjórninni
fyrir einstaka velvild, gestrisni
og hjálpsemi viö okkur félaga,og
vonandi getur þessi heimsókn
okkar oröið til aö auka tengsl og
skilning milli islenskra og
klnverskra lækna.”
— AI.
taugaveiklun væri ekki til
Rætt við
Eyjólf Haraldsson
A undanförnum árum
hafa allmargir Islendingar
átt þess kost að ferðast til
Kína og kynnast af eigin
raun þeim umskiptum sem
orðið hafa þar j landi. I
septembermánuði dvöld-
ust t.d. þrír íslensk-
ir læknar, þeir Eyjólfur
Haraldsson, Guðmundur
B. Guðmundsson og Páll
Ásgeirsson í hálfan mánuð
í Kina og kynntu sér
kínverskar lækningar og
kínverskt heilbrigðiskerfi.
Lækningalist Kinverja
byggir á aldagamalli hefð
og hafa nálarstungulækn-
ingar þeirra vakið mikið
umtal og eftirtekt um allan
heim. ( heilsugæsukerfinu
eru þessar gömlu lækn-
ingaaðf erðir, nála-
stungan og grasalækn-
ingar, samofnar nýjustu
læknavísindum og útþensla
kerfisins með ótal
„berfættum læknum" veit-
ir 900 miljónum manna
beinan aðgang að læknis-
hjálp og upplýsingum
um hóllustuhætti og heilsu-
vernd.
Laugardag einn fyrir
skemmstu gaf Eyjólfur Haralds-
son læknir i Heilsugæslustöð
Kópavogs sér tima til aö spjalla
viö blaðamann Þjóðviljans og
segja frá feröum þeirra
þremenninganna um Kina og
hverju þeir kynntust.
„Upphafið aö þessu feröalagi
var að Páll átti leið til Astraliu á
læknaþing og Guðmundur ætlaði
til Kuala Lumpur. Þeir sóttu um
vegabréfsáritun til Kina snemma
i sumar, — þótti tilvalið að drepa
þar niður fæti, fyrst þeir voru á
leiö umhverfis hnöttinn hvort eð
var.”
„Ég kom ekki inn I þessa ferða-
áætlun fyrr en miklu sfðar, þegar
sá þriðji sem með þeim ætlaði,
heltist úr lestinni, — þannig að
fyrir mina parta byrjaði ævintýr-
iö snögglega einn morgun i ágúst-
byrjun, þegar siminn hringdi og
ég var spurður, hvort ég vildi ekki
koma með til Kina. Ég hafði ekki
búist við að langþráöur draumur
minn um Kinaferö myndi rætast,
en þann 31. ágúst hittumst við
þrir i Hong Kong, — ég að koma
frá íslandi, Páll frá Astrallu og
Guðmundur frá Róm. Daginn eft-
ir fórum við svo til Rauöa-Kina,
dvöldumst þar til 4 september og
heimsóttum Peking, Shanghai og
Kwangchow (Kanton).”
„Hver dagur hófst um áttaleyt-
ið á skoðunarferð sem stóð fram
yfir hádegið. Þá var tveggja tima
hlé og milli 3 og 4 var fariö i aðra
ferð, sem stóð venjulega til kl. 7.
Við nutum frábærrar gestrisni
alls staðar, en feröin var skipu-
lögð af kinverska sendiráöinu i
Reykjavik.
Nálastungur
og grasaseyði
Hvarvetna sem viö komum, var
greinilegt að ferö okkar haföi ver-
iö vandlega undirbúin, og á þess-
um stutta tima gafst okkur gott
tækifæri til þess að kynnast kin-
verska heilbrigðiskerfinu.”
— Hvaða hugmyndir geröir þú
þér um kinverskar lækningar
áður en þú komst á staðinn?
„Ég fór út með mjög opnum
huga, bafði auövitaö heyrt um
nálastungur og grasalækningar
sem tiðkuöust I Kina, en reyndar
vissi ég ekki viö hverju ég átti aö
búast. Þarna opnaðist alveg nýr
heimur. Við fengum vissulega að
sjá mikið af nálastungum sem
meðferð viö ýmsum kvillum, en
komumst að raun um að þeir nota
vestrænar lækningaaöferöir til
jafns við og samtímis þessum
hefðbundnu kinversku aðferðum,
— grasalækningum og náiastung-
um. Þetta kom mér talsvert á
óvart.”
— Lærðuð þið á einhvern hátt
að beita nálastunguaðferðinni?
„Nei. Það er afskaplega flókið
kerfi og byggist á þvi aö stinga
nálum i rétta punkta i likamanum
eftir þvi hvaða kvilla er um að
ræða. Þeir punktar hanga ekki
saman á neinn sýnilegan hátt og
liffræöileg tengsl hafa ekki fund-
ist milli þeirra þrátt fyrir mikla
leit, sem einnig hefur farið fram
hér á Vesturiöndum.
Enga skýringu fengum við á þvi
i þessari ferð, hvernig nála-
stunguaðferðin virkar, en okkur
var sagt að það væri nú i ræki-
legri rannsókn. A sama hátt
vinna Kinverjar að rannsóknum á
þvi hvaða efni það eru, sem eru
virk I grasaseyöunum og þaö
liöur áreiðanlega ekki á löngu
áður en það finnst, rétt eins og
skeö hefur á Vesturlöndum.”
Berfættir læknar
— Hvernig er heilsugæslu-
kerfið byggt upp?
„Frum-heilsugæsla er oftast i
höndum „berfættu læknanna”,
sem vinna úti meöal fólksins og
eru valdir af fólkinu. Þeir veita
fyrstu læknishjálp og skera úr um
hvort sjúklingurinn þarf á flókn-
ari meðferð að halda, en þeir geta
veitt. Stöövar berfættu læknanna,
sem viö sáum, eru mannaðar ein-
um lækni, hjúkrunarkonu og ljós-
móöur og slik eining þjónar um
2000 manns. Næsta stig I heilsu-
gæslukerfinu eru kommúnu-
spitalarnir eða bæjarspitalarnir,
en það eru spitalar sem hafa bæbi
handlæknadeild og lyfjadeild.
Siöan kemur héraðsspitalinn eða
borgarspitalinn sem tekur viö
sjúklingum úr fleiri kommúnum.
Sjúklingarnir fara inn i þetta
kerfi fyrir tilstuölan berfættu
læknanna, en þeir geta lika fariö
beint á kommúnuspltalana.”
„Berfættu læknarnir eru valdir
af fólkinu sjálfu og ákvörðunin
um það hver verður berfættur
læknir er pólitlsk. Eftir að hann
hefur verið valinn, fær hann sér-
staka þjálfun á spitaia eða hjá
eldri berfættum lækni, en þessi
þjálfun tekur 5—6 mánuði og
möguleiki er á lengra námi. Auk
þess fá þeir mikla þjálfun I starf-
inu sjálfu og það sem er áberandi
i öliu heilbrigöiskerfinu er
gagnkvæm kennsla og þekkingar-
miðlun, þannig að viöhald
kunnáttu virðist vera i mjög
góðu lagi. Þannig fara læknar frá
háskólaspltölum og héraðsspitöl-
um og miöla þekkingu sinni á
kommúnuspitölum og á heilsu-
gæslustöðvum berfættu
læknanna.”
— Hvernig starfar berfætti
læknirinn?
„Berfætti læknirinn sér um
fyrirbyggjandi aðgeröir, — litur
eftir hreinlæti og er fræöari um
hollustuhætti. Hann litur eftir
barnshafandi konum og börnum
þeirra. Berfætti læknirinn getur
leyst einföldustu vandamál t.d.
Ekkert má fara til spillis. Hér er veriö að flytja
unninn úr saur ibúanna i Shanghai.
greinir hann öndunarvegasjúk-
dóma og suma sjúkdóma i kvið.
Hann metur hve ástandið er al-
varlegt og hvert menn þurfa aö
fara á spitala. Meðferö hans á
sjúkdómum er sambland af
grasalækningum og lyfjagjöf.”
— Er grasalækningum iika
beitt á spitölum?
„Já, alveg á sama hátt. A öllum
þeim spitölum sem við komum á
var blandað saman vestrænum
lækningaaöferðum, grasalækn-
ingum og nálastungum. Það eru
yfirleitt notuö sömu lyf og hér á
Vesturlöndum og á sama hátt,
nema hvað þeir nota minni
skammta, liklega vegna sam-
verkandi áhrifa þessara aöferða,
lyfjagjafarinnar og grasaseyðis-
ins.”
Læknanámið
— Hvernig er læknanámi
háttað?
„Læknanám er núna 5 ára
háskólanám. í menningarbylt-
ingunni var námið stytt niöur I 3
ár, en þótti ekki gefast vel, þó
læknum fjölgaði auðvitað mikið.
Það gefur auga leiö aö það er ekki
hægt aö veita nægilega kennslu i
iæknisfræði á aðeins 3 árum, enda
hefur námstiminn verið lengdur
aftur I 5 ár.”
— Er þetta minni menntun en
læknar hér á Vesturlöndum fá á 7
ára námstima slnum?
„Það get ég ekki merkt. A
háskólaspitölunum hittum við
marga mjög vel menntaða lækna.
Kinverjar vilja gjarnan njóta
meira af þeirri reynslu sem feng-
ist hefur á Vesturlöndum og þeir
gera mikið af þvi að búa sina
menn undir að fara út I heiminn
og afla nýrrar þekkingar. Ollum
læknanemum og læknum i sér-
námi er gert að læra erlent tungu-
mál og siöan eiga þeir að fara til
útlanda og koma heim öliu
fróöari.
Sérfræöingar fá annars sina
menntun á sjúkrahúsum i Kina.
Sjálfir geta Kinverjar veitt mikla
menntun, en þeir hafa bara ekki
nógu mikinn mannskap til að sjá
öllum fyrir kennslu I vestrænum
lækningum.”
1 Kina, það urðum við varir við.
Fólk hugsaí um hag fjöldans og
sá hugsunarháttur viröist fólki
þar ákaflega eðlilegur.
Kinverjar borða hollan mat og
boröa mikið. Hins vegar sá ég
engan feitan mann i þessari ferö.
Þaö er algeng sjón að sjá fólk i
leikfimi á gangstéttum og
fristundum er gjarnan varið til
Iþróttaiðkana. Okkur virtist vera
mikið um afleiðingar gigtsóttar,
hjartasjúkdóma og
nýrnasjúkdóma og okkur var sagt
aö hjartasjúkdómar væru
algegnasta dánarorsökin. Einnig
segjast þeir hafa mikið af
kransæðasjúkdómum. Krabba-
mein er einnig aigeng dánar-
orsök.”
út á akrana, en áburðurinn er
A geðsjúkrahúsum er beitt nálarstunguaðferðinni og á þessari mynd sjást 6 sjúki-
ingar sem þjást af geðklofa i siikri meðferð. Nálarnar eru samtengdar i litlu tæki
fyrir miðju og vægur rafstraumur heldur stöðugri ertingu á nálinni sem fest er f
hvirfli sjúklinganna. Þessi meðferð tekur um 20 minútur i einu og er beitt i nokkra
daga samfellt.
A heilsugæslustöð berfætts læknis. Frá vinstri eru tvær Ijósmæður, þá hjúkrunar-
kona og siðan læknirinn.
Enginn feitur
— Hvernig er heilbrigði
Kinverja háttað? Fá þeir þessa
svoköiluðu menningarsjúkdóma
sem hrjá Vesturlandabúa eins og
taugaveikiun, hjartasjúkdóma,
offitu og krabbamein?
„Okkur var sagt að taugaveikl-
un væri ekki til. Skýringarnar eru
sjálfsagt margar, og ugglaust
hefur okkur ekki tekist að sjá til
botns I þvi öllu saman.
Það er sláandi þegar maður
kemur út á götu i Klna, að fólkið
er afskaplega ánægt og glaðlegt.
Þvi liður vel og þetta er heilbrigt
og föngulegt fólk sem lifir
áreiðanlega hollu lifi. Maður varö
aldrei var viö neina ágirnd eða
þvi um likt, heldur var nægju-
semin áberandi. Ég býst við aö
þessir þættir, — ágirnd og lifs-
gæðakapphiaup séu ef til vill ekki
fjarlægir þessu fólki, en eigin-
hagsmunir eru ekki hátt skrifaöir
Skírlífi fram
að hjónabandi
— Hvaö með áfengi, tóbak,
kynsjúkdóma og þess háttar?
„Kynsjúkdómar eru vist ekki
mikiö vandamál. t Klna þekkist
ekki lausung I kynferðismálum og
menn hugsa sér ekki til hreyfings
i giftingarmálum fyrr en eftir 24
ára aldur. Barneignir hefjast ekki
fyrr en I hjónabandi og óskilgetin
börn eru engin. Þetta þótti okkur
afskaplega ótrúlegt, en fullyrt
var að þetta væri svona, og ég
held að það geti vel verið rétt.
Þá var okkur sagt að i Kina
væri enginn alkóhólismi. Afengi
er á boðstólum, en þaö er einfald-
lega ekki notað nema stöku sinn-
um meö mat og ég hef þaö á
tilfinningunni aö það þætti fremur
hlægilegt ef fólk keypti áfengi að
marki. Hins vegar reykja
Kinverjar talsvert mikið.
Þeir leggja mikla áherslu á aö
fræða almenning um heilsufar og
hollustuhætti. A götum úti voru
spjöld og töflur með hvatningum
og upplýsingum, t.d. um hvernig
útrýma ætti flugum. Gangur
malariunnar var útskýrður með
myndum-, sýnt hvernig hún berst I
menn og hvernig snikjudýrið þró-
ast I mannskepnunni og i
mosquito-flugunum. Þá var einn-
ig i gangi mikil herferö um
heilbrigða lifshætti barna, um
mat, hreinlæti og uppeldi.”
Limir græddir
áfólk
— Hvað kom þér mest á óvart I
iækningalist Kfnver ja ?
„Þaö var eitt, sem hafði geysi-
lega mikil áhrif á mig, en þaö var
þegar við heimsóttum spitala I
Shanghai, þar sem fór fram
ágræösla á limum.
Fyrsta aðgerðin af þessu tagi
var framkvæmd 1963 og þá man
ég eftir blaðafregnum þetta hér á
landi. Viðbrögð manna voru yfir-
leitt þau aö þetta væri útlokaö, —
það væri ekki hægt aö græða limi
að nýju á menn, en sjón er sögu
rikari.
A þessum spitala sáum við
mann, sem misst hafði höndina.
Hún hafði höggvist af um miðja
þverhöndina og ágræðslan hafði
tekiö 17 klukkustundir. Þetta slys
hafði skeð daginn áður en við
Þessa mynd tók Eyjólfur á sjúkrahúsi f Shanghai, þar sem limágræðslur fara
fram. Sá sem situr lengst til vinstri missti fót við ökkla, en er nú fótboltahetja I
borginni. Sá I miöiö missti hönd i bréfahnff, en stúlkan missti upphandlegginn
vegna illkynja meins. Framhandlegggurinn var græddur á öxlina, eins og greini-
iega sést á myndinni. Þessar þrjár aðgeröir voru framkvæmdar fyrir 5-8 árum
siðan.